Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Blaðsíða 4
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2002 Fréttir DV Samkeppnisstofnun um nýtt félag um rekstur Ávaxtahússins eHf. og Banana ehf.: Samþykkt með ströngum skilyrðum starfsmenn sæti þagnarskyldu gagnvart eigendum Samkeppnisstofnun hefur gefið grænt ljós á samning Baugs Group hf. og Eignarhaldsfélagins Fengs hf. um stofnun einkahlutafélags um rekstur Ávaxtahússins ehf. og Ban- ana ehf. en með skilyrðum. Það er mat ráðsins að samningurinn um einkahlutafélagið Grænt ehf. upp- fylli skilyrði laga til ihlutunar. Með heimild í lagaákvæði og til að koma í veg fyrir röskun á samkeppni eru sett sjö skilyrði og sum afar ströng. Þagnarskylda Eitt þeirra skilyrða sem athygli vekur og Samkeppnisstofnun setur er að framkvæmdastjóra og starfs- mönnum Græns og tengdra fyrir- tækja sé óheimilt að veita stjórn- endum og eigendum félagsins upp- lýsingar um viðskipti eða viðskipta- kjör einstakra viðskiptavina. Skulu starfsmenn Græns ehf. undirrita yf- irlýsingu um þagnarskyldu og trún- að þar um og skal senda afrit til Samkeppnisstofnunar. Þá er skilyrði um að óheimilt sé að semja um að tiltekið hlutfall af ávöxtum og grænmeti í vörufram- boði Baugs Group hf. sé keypt af Grænu ehf. og tengdum fyrirtækj- um. Baugur skuldbindi sig til að kaupa slíkar vörur af keppinautun- um ef þeir geti boðið sambærilega vöru á sambærilegum eða betri kjörum en Grænt og dótturfélög þess geta boðið. Baugi er óheimilt að gera þá kröfu til Græns og tengdra fyrir- tækja að verslanir Baugs njóti ann- arra og betri viðskiptakjara en aðr- ir viðskiptavinir Græns. Grænu ehf. er óheimilt að gera samninga sem útiloka ákveðna við- skiptamenn með beinum eða óbein- um hætti. Stjórnarmenn, starfsmenn, eig- endur að meiru en 1% hlut í Baugi Group hf„ dótturfélögum eða fyrir- tækjum sem Baugur hefur virk yfir- ráð yfir mega ekki sitja í stjórn eða varastjórn fyrirtækja sem tengd eru Grænu og eiga viðskipti við keppi- nauta Baugsfyrirtækja. Sama gildir um maka eigenda, systkini, náin skyldmenni eða mægða aðila. Þá er sett skilyrði um að Grænt ehf. kynni þessa ákvörðun Sam- keppnisstofnunar fyrir starfsmönn- um og viðskiptavinum og upplýsi stofnunina um framkvæmd máls- ms. -HKr. Grænmeti ódýrara Meðalverð á öllum tegundum ávaxta hefur lækkað frá því í febrú- ar. Þannig er t.d. meðalverð á eplum 15-34% lægra nú en það var í febrú- ar, meðalverð á appelsínum er 20% lægra, á banönum 16% lægra, á kívi 30% lægra og á perum 31% lægra. Margar algengar grænmetistegund- ir hafa einnig lækkað í verði. Með- alverð á íslenskum og inníluttum agúrkum hefur lækkað um 54-60%, innfluttir tómatar hafa lækkað um 39%, ísbergssalat hefur lækkað um 60%, paprikur um 43-59%, blómkál um 59% og rauðlaukur, blaðlaukur, spergilkál og selleri um 35-51%. Þetta’ kemur fram á vef Sam- keppnisstofnunar en stofnunin hef- ur frá því í febrúar gert mánaðar- legar verðkannanir á grænmeti og ávöxtum til þess að fylgjast með verðþróun á þessum vörum eftir af- nám tolla á ýmsum grænmetisteg- undum sl. vetur. -hlh Amerískur hvíldarsíóll Ófrúlega þœgilegur! DV-MYND ÞÖRHALLUR ÁSMUNDSSON Banvæn bifreiö Birgir Friöriksson meö minkinn sem hann skaut undir bíl fréttaritara DV. Fyrr í haust lét smyrill lífiö þegar hann lenti á þessari banvænu Corollu. Minkur skotinn undir bíl við heimahús Þrátt fyrir góða viðleitni loðdýra- bænda að halda dýrum sínum í búr- um er alltaf eitthvað um að þau sleppi út og í veðurblíðuna. Króks- arinn Birgir Friðriksson, einn helsti veiðimaður héraðsins, skaut mink heima við hús í bænum í síð- ustu viku, eftir að hafa átt í eltinga- leik við hann um hverfið. Um búr- læðu var að ræða. Birgir býr við Ægisstíginn þar sem fréttaritari DV er til húsa. Hann varð minksins fyrst var neð- arlega við götuna, þar sem hann leitaði inn í garð dagmömmunnar Aðalbjargar Sigfúsdóttur frá Gunn- arsstöðum í Þistilfirði. Minksi þaut síðan yfir götuna og leitaði undir bíl fréttaritarans sem stóð á plani viö húsið. Þar beindi Birgir hólknum að dýrinu sem lá í valnum. Þess má geta að bifreið DV- mannsins, Toyota Corolla, árgerð ‘94, sem reynst hefur ákaflega vel, var vettvangur viðburða fyrr í haust því þá flaug smyrill á bílinn við Móskóg í Fljótunum og hlaut af því bana. -ÞÁ DV-MYND GARÐAR HARÐARSON I heimahöfn Hér er Álftafelliö komiö til síns heima og byrjar senn aö færa afla til verkunar. Nýr bátur á Stöðvarfjörð Nýr bátur bættist í flota Stöðflrð- inga á laugardag þegar Álftafell SU 100 kom til heimahafnar. Álftafellið er 62 lesta stálbátur, smíðaður á Seyðisfirði árið 1970. Báturinn leysir af hólmi trébát með sama nafni sem var um 19 lest- ir að stærð. Það er fyrirtækið Kross ehf. sem er eigandi hins nýja báts og að sögn Alberts Geirssonar, framkvæmdastjóra þess, verður bát- urinn gerður út á dragnót (snurvoð) og net. í áhöfn verða fjórir til fimm manns. -GH RÖGUM Á MORGUN Fá&u þér mi&a í síma 800 6611 e&a á hhl.fs HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings Stal kjöti og konfekti Maður með fjóra stóra hamborg- arhryggi var stöðvaður af lögregl- unni í Kópavogi íá laugardag en borist hafði tilkynning frá starfs- manni Bónus um mann sem grun- aður var um að hafa hnuplað úr búðinni. Annar starfsmaður hafði hlaupið þjófinn uppi þar sem maðurinn hafði tekið 5 kfó af konfekti með sér úr búðinni án þess að borga. Þegar lögregla hafði henur í hári mannsins komu i ljós fjórir myndar- legir hamborgarhryggir sem hann hafði hnuplað úr annarri verslun. Manninum var var sleppt að lokn- um yfirheyrslum. Fikniefni á Þórshöfn Við rannsókn flkniefnamáls, er upp kom þann 12.12. sl„ voru tveir menn handteknir á Þórshöfn og í framhaldi af handtökunni var hald lagt á 5 grömm af hassi. Við frekari rannsókn málsins kom í ljós að annar mannanna tengdist málinu ekki. Var hann því látinn laus strax og það kom í ljós. Hinn maðurinn sem handtekinn var játaði aðild og telst málið upplýst. -hlh Brot á siðareglum SÍA Siðanefnd Sambands íslenskra auglýsingastofa telur að auglýsing, gerð af ART-AD fyrir Sjómannafé- lag Reykjavíkur, Vélstjórafélag ís- lands og Félag íslenskra skipstjórn- armanna, sem birtar voru í Frétta- blaðinu þann 23. október 2002 og í Morgunblaðinu þann 24. október 2002, brjóti í bága við siðareglur SÍA. Málið var tekið fyrir á fundi siða- nefndar á fmuntudag er fjallaö var um kæru frá Lögmálum ehf„ f-h. Atlantsskipa ehf„ dags. 26. nóvem- ber 2002. Atlantsskip töldu illa að sér veg- ið með téðri auglýsingu. Niðurstaða nefndarinnar er að umræddar auglýsingar brjóti í bága við siðareglur SÍA, 2. gr„ um heið- arleika, 4. gr. um sannleiksgildi og 7. gr. um last. Nefndin mælist til að auglýsing- arnar verði ekki birtar aftur. í ljósi þessa telur Siðanefnd SÍA ekki ástæðu til frekari aðgerða. -HKr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.