Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Blaðsíða 32
52 Tilvera DV-MYNDIR HH Sýnendur Þau leggja verk sín undir dóm gesta, Böövar Gunnarsson, Kristín Helga Káradóttir og Halldóra Ólafsdóttir. Gestir Heba og Sjöfn Guðmundsdætur voru mættar tit að viröa verk- in fyrir sér. MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2002 Ánægð með afraksturinn Hörn Harðardóttir er meðal sýnenda. Hér stendur hún á milli Hrannar Harðardóttur og Magnúsar Guðmundssonar. r StofnuO 1918 Rakarastofan Klapparstíg Sími 5S1 3010 Látum okkur líða vel rv' ENDING GÆÐI Opið I0-I8. laugard. frá I0-I4 Skeifan 2 • I08 Reykjavík S: S30 S900 pouisen@peulsen.ii • www.pouisen.is jJíJókertölur ™ laugardags 8 0 5 4 2 BÓNUSTÖLUR 3>S) Alltaf á t miðvikudögum Jókertölur mlðvlkudags JNf. 3 3 14 8 Listaháskólanemar í Galleríi Sævars Karls: Pælingar um kynjafræði Nemendur Listaháskólans opn- uðu sýningu á laugardaginn í Gall- eríi Sævars Karls. Verkin eru unn- in í hina ýmsu miðla og þar er með- al annars velt fyrir sér undanhaldi karlmannlegra gilda í list samtím- ans, orsökum þeirrar stefnu og ekki síst til hvers hún leiðir. Þetta er af- rakstur pælinga í áfanganum Fall Íkaríusar, undir leiðsögn Halldórs Bjöms Runólfssonar. -Gun. Spáð og spekúlerað Krsitinn Thorlacius, Elínborg Eggertsdóttir, Silja Rut Thorlacius og Eggrún Thorlacius velta fyrir sér inntaki sýningarinnar. I góðu formi Guðmundur Andri syngur af innlifun með gleraugun um hálsinn. Bak við hann standa Helgi Guðmundsson með munnhörpu og Guðmundur Ingólfsson sem spilar á kontrabassa. DV-MYNDIR HH Góður húmor Þau kunnu greinilega að meta grínið hjá Spöðunum er þeirsungu af innlifun Kaupakonan hans Gísla ergröm. Útgáfutónleikar á Grand Rokk: Sprell- fjörugir Spaðar spiluðu og sungu Bíógagnrýni vrsi Aðdáendur Spaðarnir höfða til flestra. Syndir Bíóféíagið 101 í Regnboganum - Ash Wednesdayt: ★ ★ "i, fortíðar Sif Gunnarsdóttir skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Geysilegt stuð var á Grand Rokk á föstudagskvöld er hin merka sveit, Spaðamir, hélt út- gáfutónleika vegna hins nýja disks, Skipt um peru. Sveitina skipa menn sem sumir hverjir eru þekktari fyrir annað en tónlistar- flutning, menn eins og Guðmimd- nr Andri Thorsson rithöfundur, Gunnar Helgi Kristinsson, pró- fessor í stjórnmálafræði, og Sig- urður G. Valgeirsson fjölmiðla- maður. Spaðamir eru fjölhæfir og í tónlist þeirra bregður fyrir mörgum stefnum sem fá þó mjög persónulegan blæ í meðförum þeirra. -Gun. Vel mætt Þröng var á þingi við sviðið þar sem hinir ástsælu Spaðar skemmtu gestum Grand Rokk. Þess má geta að diskur þeirra var tekinn upp í Kartöflugarðinum. Edward Bums er einn af þessum mönnum sem eru með puttana í öllu ferli kvikmynda sinna. Hann skrifar handritið, leikstýrir mynd- unum og framleiðir þær, fyrir utan það að leika eitt af aðalhlutverkun- um. Hann hefur gert fjórar mislétt- ar myndir um ást og vináttu með léttu heimspekUegu ívafi, síðast The Sidewalks of New York sem sýnd var í Háskólabíói fyrr í ár. Mynd- imar hans eru athyglisverðar, með prýðilegri persónusköpun og oft skemmtUegum samtölum en það hefur aUtaf vantað herslumuninn á aö þær nái því að vera verulega góð- ar. Fimmta kvikmynd Edwards Bums er af aUt öðru og myrkara sauðahúsi en þær fyrri. Sagan ger- ist á öskudag árið 1983 í New York- hverfinu HeUs Kitchen í vestur- hluta Manhattan þar sem írska maf- ían ræður ríkjum. Francis SuUivan (Bums) er fyrrverandi glæpamaður sem hefur tekið sig á eftir að bróðir Edward Burns í hlutverki Sullivans Hann leikur aöalhlutverkið, skrifar handritið og leikstýrir myndinni. hans var drepinn þrem árum fyrr. Pabbi Francis hafði verið áhrifa- mikiU í írsku mafíunni og kennt Francis á götulífið á meðan yngri bróðumum Sean (Wood) var ætlað að komast burt úr hverfmu í há- skóla og hefja nýtt llf. En eftir morð- ið á Sean hættir Francis aUri glæp- astarfsemi, með hjálp kaþólska prestsins Mahoney (Handy), rekur bar og eina syndin sem hann drýgir er að halda við ekkju bróður sins. En fortíðin leitar hann uppi á ösku- dag, fyrsta dag fóstunnar, daginn sem kristnir menn eiga að lúta í auðmýkt, iðrast og velta fyrir sér eigin syndum og dauðleika. Daginn sem allir kaþólikkar hverfisins ganga um með krossmerki úr ösku á enninu sprettur upp sá orðrómur að hinn löngu látni Sean sé risinn upp frá dauðum og gangi ljóslifandi um hverfið - er hann draugur eða dó hann kannski aldrei? Maður greiðir fyrir syndir sínar, þótt seint sé - segir Ash Wednesday okkur og minnir þannig örlítið á Mendes-kvikmyndina, The Road to Perdition. Boðskapurinn er dapur- legur: það þýðir lítið að reyna að breytast til batnaðar og reyna að feta hinn þymum stráða stíg dyggð- arinnar - syndir fortíðarinnar ná alltaf í skottið á þér. Kvikmyndataka og tónlist eru sérlega vel unnir þættir Ash Wed- nesday. Kvikmyndatakan er komótt og hrá og staðsetur mann vel bæði í tima og rúmi, tónlistin er minimal- ísk og sparlega notuð og mjög áhrifarík. Bums er sannfærandi í hlutverki Francis og Wood getur greinilega leikið fleira en hobbita. Besta leikinn eiga þó fjölmargir fin- ir aukaleikarar eins og Platt sem hefnigjam bófi, James Handy í hlut- verki prests sem kann að setja kík- inn fyrir blinda augað og McCourt sem roskinn bófaforingi. Eins og með fyrri myndir Bums finnst manni að hann hafi haft tæki- færi til að gera eitthvað verulega gott en ekki alveg tekist það. Það vantar þéttleika í myndina og of mikið er um endurtekningar. En eins og fyrri myndir Burns er Ash Wednesday athyglisverð og vel bíó- ferðarinnar virði. Handrit, lelkstjórn og framleiósla: Ed- ward Burns. Aðalleikarar: Edward Burns, Elijah Wood, James Handy, Rosario Daw- son, Malachy McCourt, Oliver Platt o.fl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.