Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2002, Blaðsíða 14
14
Útlönd
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002
DV
Bandaríkjamenn segja íraka brotlega við ályktanir SÞ:
Fá ekki stuöning
frá öðrum ríkjum
REUTERSMYND
Stríðsundirbúningur í fullum gangi
Liösmenn bandaríska flughersins gæta aö flugvél sinni í herstöö í Tyrkiandi.
Allt veröur aö vera klárt fyrir hugsanlegt stríö gegn írak.
Tayyip Erdogan
Tyrklandsforseti hefur í bili komiö í
veg fyrir aö leiötogi stjórnarflokksins
geti oröiö forsætisráðherra.
Erdogan ekki for-
sætisráðherra
Til átaka gæti komið milli nýrrar
ríkisstjómar Réttlætis- og þróunar-
flokksins i Tyrklandi við veraldlegt
valdakerfi landsins eftir að forset-
inn beitti neitunarvaldi sínu á lög
sem hefðu heimilað Tayyip Erdog-
an, leiðtoga flokksins, að verða for-
sætisráðherra.
Ahmet Necdet Sezer forseti hafn-
aði breytingum sem gera áttu á
stjórnarskrá Tyrklands sem meinar
Erdogan að setjast á forsætisráð-
herrastólinn þar sem hann hlaut
dóm árið 1999 fyrir íslamskan und-
irróður. Flokkur Erdogans fékk
hreinan meirihluta á þingi í kosn-
ingunum fyrir skömmu.
Líklegt er talið að baráttan milli
stjómarflokksins og forsetans gæti
orðið til að spilla fyrir pólitískum
stöðugleika í Tyrklandi sem hefur
sótt um inngöngu í Evrópusam-
bandið.
Réttlætis- og þróunarflokkurinn
hefur heitið því að nota þingmeiri-
hluta sinn til að fá breytingamar á
stjómarskránni aftur samþykktar.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti ætlar aö tjá sig opinberlega um
vopnaskýrslu íraka í dag, í fyrsta
sinn síðan stjóm hans tilkynnti að
írösk stjómvöid hefðu gerst brotleg
við ályktanir Öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna sem skylduðu þau að
greina frá gjöreyðingarvopnaáform-
um sínum og draga ekkert undan.
Bandarískjamenn voru hinir einu
sem gengu svona langt. Meira að
segja Bretar, sem hafa verið dygg-
ustu bandamenn þeirra í undirbún-
ingi stríðsaðgerða gegn írk, vildu
ekki túlka nærri tólf þúsund síðna
skýrslu íraka sem brot á ályktunun-
um. Brot af þessu tagi gæti verið
notað sem átylla til að fara í stríð.
Stjómvöld í Bagdad vísuðu full-
yrðingum Bandaríkjamanna þegar í
stað á bug.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að á
næstu vikum yrði skorið úr um
hvort írakar ætli að fara að ályktun-
um SÞ sem miða að því að losa þá
við öfl gjöreyðingarvopn sem þeir
kunna að eiga í fórum sínum. Hann
sagði að ef írakar héldu áfram að
vera ósamvinnuþýðir myndi það
leiða til þess að ekki fyndist frið-
samleg leið út úr deilunni.
John Negroponte, sendiherra
Bandaríkjanna hjá SÞ, varð fyrstur
manna í gær til að lýsa því yfír að
írakar hefðu brotið gegn ályktunun-
um. Hann sagði að írakar væru að
ljúga þegar þeir segðust ekki vera
að reyna að komast yfir gjöreyðing-
arvopn.
Hans Blix, yfirmaður vopnaeftir-
lits SÞ, sagði að í skýrslu íraka
vantaði gögn um sýkla- og efna-
vopn, svo sem miltisbrand. Orð
hans renndu stoðum undir grein-
ingu Negropontes á skýrslunni.
Blix sagðist hins vegar ekki hafa
neinar sannanir fyrir því að írakar
ættu enn gjöreyðingarvopn og skor-
aði á önnur ríki, einkum þó Banda-
ríkin, að leggja fram sannanir fyrir
fuflyrðingum sínum.
Undirbúningur fyrir hugsanlegar
hemaðaraðgerðir er í fullum gangi.
Um hundrað þúsund hermenn geta
verið komnir til Persaflóans í febrú-
ar og tugum þúsunda hefur verið
sagt að vera viðbúnir því að fara
fljótlega eftir áramót.
Vill keppa við Lott
Trent Lott, sem á í
vök að veijast vegna
kynþáttahyggjuum-
mæla sinna á dögun-
um, hefur nú fengið
keppinaut um leið-
togaembætti repúblik-
ana í öldungadeild
Bandaríkjaþings. Sá
heitir Bifl Frist og er frá Tennessee.
Píkusögur gera usla
Fjórir þingmenn á landsþingi
Færeyja gerðu árangurslausa til-
raun við afgreiðslu fjárlaga að fá
minnkað framlag til leikfélags sem
hefur sett hið vinsæla leikrit Píku-
sögur á svið í Þórshöfn.
Kvartettinn hittist í dag
Svokallaður kvartett friðflytjenda
í Mið-Austurlöndum, ESB, Rúss-
land, SÞ og Bandaríkin, hittist í
Washington í dag til að ræða friðar-
viðleitni fyrir botni Miðjarðarhafs.
Bandaríkjamenn vilja einir slá öllu
á frest um sinn.
Versnandi ástand
Rúmlega tvær milljónir Angóla-
manna munu þurfa á matvælaað-
stoð að halda á næsta ári til að kom-
ast af, að því er starfsmenn mat-
vælahjálpar SÞ segja.
Saumað að Chavez
Stjórnarand-
stæðingar í Venes-
úela ætla ekki að
fara að úrskurði
hæstaréttar og
hefja aftur vinnu i
olíuiðnaðinum,
heldm- ætla þeir að
herða baráttu sína
á götum úti fyrir
því að Hugo Chavez forseti segi af
sér embætti.
Saumað að
Þorláksmessuskata!
Verið velkomin
Verslum í fiskbúðunum - Ferskari • Hollar i • Ódýrari -
Fiskbúðin Árbjörg, Hringbraut 119 Fiskbúðin Vör, Höfðabakka 1 Fiskbúðin Gallerý Fiskur, Nethyl 2 Fiskbúðin Sundlaugavegi 12 Fiskbúðin Hafberg, Gnoðarvogi 44 Fiskbúðin Reykjavíkurvegi 3, Hafnarfirði Fiskbúðin Hófgerði 30, Kópavogi Fiskbúðin Freyjugötu 1 Fiskbúðin Vegamót, Nesvegi 100 Fiskbúðin Sjávaraallerý, Háaleitisbraut 58-60 Fiskbúð Einars, Háteigsvegi 2