Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2002, Page 25
25
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002
DV Tilvera
lí f iö
E F T I R V I N N U
•Uppákomur
MXtravaganzakvöld á Broad-
Lisa Loud er án efa „first lady of dance music'
með ótrúlegan feril sem staðið hefur yfir í 14
ár. Ferill sem veitt hefur henni verðlaun og að-
dáun og setur hana á stall sem einn besti
kvenkyns plötusnúð Englands. Lisa verður á
Xtravaganzakvöldi á Broadway í kvöld. Ath.:
aðgöngumiðinn gildir sem happdrættismiði en
fyrsti vinningur er ferð til London. Auk Lisu
verður tískusýning á staðnum og DJ Transatl-
antic. Miðaverð er 1800 kr. en tveir fyrir einn
fæst í forsölu.
• T ónleikar
■Jólasöngvar Kórs Langholts-
kirkiu
Tuttugustu og fjórðu jólasöngvar Kórs Lang-
holtskirkju verða kl. 23. Auk Kórs Langholts-
kirkju syngur Gradualekór Langholtskirkju á
tónleikunum. Kórinn býður tónleikagestum
upp á jólasúkkulaði og piparkökur i hléi. Ein-
söngvarar verða Ólafur Kjartan Sigurðarson og
Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Einnig koma fram
einsöngvarar úr röðum kórfélaga og hljóðfæra-
leikarar leika með kórunum. Stjórnandi er Jón
Stefánsson.
BJóel á Grandrokk
Fyrstu alvöru djasstónleikarnir verða á Grand
Rokk i kvöld á miðnætti. Jóel Pálsson fagnar
útgáfu plötu sinnar, Septett, með félögum.
1.000 kr. inn og léttar veitingar i boði.
BMozart við kertaliós
Kammerhópurinn Camerarctica heldur nú
sina tiundu kertaljósatónleika en hópurinn
hefur frá árinu 1993 haldið slíka tónleika síö-
ustu dagana fyrir jól. Leikin er Ijúf tónlist við
kertaljós í Hafnarfjaröarkirkju í kvöld kl. 21 og
eru þeir um klukkustundar langir. i lok tónleik-
anna verður að venju leikinn jólasálmurinn í
dag er glatt í döprum hjörtum sem einnig er
eftir Mozart.
MFimmta herdeildin í Nvló
5ta herdeildin treður upp kl. 21 á Jólabasar
Nýlistasafnsins. Þar er að finna fullt af þrusu-
góðum jólagiöfum á hlægilegu verði. Fritt inn á
tónleikana.
• K 1úbbar
MEIektrotux á Gauknum
Það er boðið upp á stórhátíðarveislu í ís-
lensku skemmtanalífi á Gauknum í kvöld. El-
ektrolux snýr aftur í miðbæinn, helmingi
stærra í tilefni jólanna. Gestir kvöldsins eru
ofur-snúðurinn Dave Seaman og paunk-fönk
grúppan Gus Gus. Dave Seaman er enginn ný-
græöingur í bransanum. Plötusnúðaferillinn
hófst seint á 9. áratugnum og stuttu síðar byrj-
aði hann að búa til tónlist ásamt félaga sln-
um, Steve Anderson, undir nafninu Brothers
ln Rhythm. Þessi tónlistarferill hefur leitt til
samstarfs og vinnu fýrir listamenn eins og The
Pet Shop Boys, Kylie', Take That, Pulp, Gar-
bage o.fl. Að auki hefur hann gefið út fjöldann
allan af mix-diskum. Gus Gus er sennilega
óþarfi að kynna. Breiðskífa þeirra, Attention,
er nýútkomin beggja vegna Atlantsála og á Is-
landi. Önnur smásklfan af plötunni, David,
kemur út I Bretlandi 20. janúar. Þau fengu auk
þess tvær tilnefningar til íslensku tónlistar-
verðlaunanna og fóru á rómað tónleikaferða-
lag um Bandaríkin snemma I haust og eru byrj-
uð á tónleikaferðalagi slnu um Evrópu. Kvöld-
ið hefst klukkan 23.30 og Gus Gus og Dave
Seaman til aðstoðar verða Alfons X og Grétar
G. 1500 kr. við dyr.
MAIIev Cat á Flauel
Skunkrock og Breakbeat.is standa fyrir Alley
Cat kvöldi á Flauel I kvöld og standa herleg-
heitin yfir frá kl. 23 til 6. Hin geðþekka Alley
Cat er að kynna nýja plötu, Crowd Control, og
er ísland fýrsti viðkomustaður hennar I heims-
reisu hennar.
Krossgáta
Lárétt: 1 léleg, 4 lof,
7 gluggi, 8 æsa,
10 styrkja, 12 feyskja,
13 hokin, 14 félagi,
15 kraftur, 16 atlaga,
18 áforma, 21 mann,
22 hrina, 23 innyfli.
Lóðrétt: 1 gerast,
2 armur, 3 froðusnakka,
4 þrifnaður, 5 eyri,
6 sigti, 9 kjass, 11 smá,
16 dýpi, 17 kærleikur,
19 hrossaskítur, 20 for.
Lausn neðst á síöunni.
Stórmeistarinn Levon Aronian og al-
þjóðlegi meistarinn Artyom Timofeev
frá Rússlandi eru efstir eftir 11. umferð
Umsjón: Sævar Bjarnason
endumir hafa staðið sig með sóma, sér-
staklega Stefán sem hefur teflt í topp-
baráttunni allan tímann. Daviö hefur
teflt ágætlega líka og sjáum við í dag
ágætt dæmi þar um. Davíð tefldi Dreka-
afbrigðiö fræga og rak kóng hvíts á ver-
gang. í stöðunni hér að ofan segir tölv-
an mín að mát sé 1 7 leikjum eftir 37.
Re3+. En Davíð er af holdi og blóði og
velur ömgga leið til sigurs!
Hvítt: Phukan Pranjal (2059).
Svart: Davíö Kjartansson (2224).
Sikileyjarvöm.
Goa, Indlandi (10), 17.12. 2002
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 g6 6. Be2 Bg7 7. Be3
0-0 8. 0-0 Rc6 9. h3 a6 10. Rb3 Be6
11. f4 b5 12. Bf3 Hc8 13. Rd5 Bxd5
með 8 v. af 11 á heimsmeistaramóti
unglinga á Indlandi. 7 aðrir skákmenn
koma þar á eftir meö 7,5 v. Stefán
Kristjánsson hefur 6,5 v. og Davíð
Kjartansson hefur 5,5 v. Keppnin er
mjög hörð og spennandi, 88 keppendur
taka þátt, margir titilhafar og meiri-
hluti keppenda hefur yfir 2300 Elo-stig
og þeir sem era að berjast um sigurinn
hafa flestir vel yfir 2500 Elo-stig. Keppn-
inni lýkur í dag og báðir íslensku kepp-
14. exd5 Ra5 15. Rxa5 Dxa5 16. c3 b4
17. Bd4 Re8 18. Bxg7 Rxg7 19. cxb4
Dxb4 20. De2 Rf5 21. Hf2 Dxf4 22.
Bg4 Hcl+ 23. Hxcl Dxcl+ 24. Kh2
Re3 25. Dxa6 h5 26. Bf3 h4 27. Dc6
Del 28. He2 Rfl+ 29. Kgl Dal 30. Kf2
Rg3 31. Hc2 Dfl+ 32. Ke3 Rf5+ 33.
Ke4 Hb8 34. b3 Hb4+ 35. Hc4 Dbl+
36. Kf4 Dcl+ 37. Kg4 (Stöðumyndin)
37. -Hxc4+ 38. bxc4 De3 39. Db5 Dd4+
40. Kg5 Kg7 0-1
■me 05 ‘QBl 61 ‘isp a ‘ng 91
‘IRIl 11 ‘Jniæg 6 ‘gis 9 ‘ju e ‘pæiumjQ T ‘e^sEijErj g ‘uiq z ‘a>is 1 írqjqoj
‘jnQi E5 ‘BIOI zz ‘Bimis \z ‘Epæ 81 ‘sbjb 91
‘ue ei ‘iiqu n jnise ei ‘mj zi ‘buo 01 ‘uuSa 8 Jjofi i ‘sojii p ‘nois 1 :ua.in
DV-MYND SIG. JÖKULL
Gengiö tii klrkju
Þær eru ákveðnar í fasi, þessar fallega búnu stúlkur sem hér taka á sig krók til að koma rétt aö sáluhliði kirkj-
unnar í Árbæjarsafni.
Dagfari
Jólabakstur
um nótt
Aðventan er annatími hjá
mörgum. Líklega þó mestur
hjá prestum, kaupmönnum og
hrútum en líka hjá blaða-
mönnum sem eru þessa dag-
ana að keppast við að fylla
síður jóla- og áramótablaða að
ekki sé talað um myndarlegar
húsmæður sem kosta kapps
um að fylla sem flesta stauka
af smákökum.
Sú sem þetta ritar tók jóla-
baksturinn með stæl eitt
kvöldið í vikunni. Skar reynd-
ar aðeins niður nætursvefn-
inn þann sólarhringinn. Það
þótti ekki tiltökumál á mínu
heimili á sjötta áratugnum að
baka stöku sinnum til jólanna
um miðjar nætur. Þetta var á
þeim tíma sem heimarafstöðin
var eina orkuveitan og átti
fullt í fangi með að framleiða
nægilegt afl í skammdeginu -
vatnið í læknum í lágmarki
en ljósanotkun í hámarki. Það
skapaðist sérstök stemning
þessar bökunarnætur þegar
kyrrð var komin á, tírurnar
höfðu verið slökktar annars
staðar en í eldhúsinu og flest-
ir voru gengnir til náða. Ung-
dómurinn hafði fengið að
leggja sig í rökkrinu til að
vera betur upplagður við
baksturinn. Hver og einn fékk
svo sinn skerf af deigi til að
móta kökur úr og skreyta,
undir öruggri stjórn húsfreyj-
unnar, móður minnar, sem
hafði undirbúið næturævin-
týrið.
Þetta fyrirkomulag þætti
okkur baka fullmikil vand-
ræði í dag. Ótakmörkuð raf-
orka er einn af sjálfsögðu
hlutunum og okkur finnst
sjálfsagt að bruðla með hana
- ekki síst á aðventunni.
Gleðileg jól!
Helga vill að ég hrein6i
arfa, fari út með ru6lið
09
Lietinn er endalaue og
ég veit ekkl á hverju
ég á að byrja.
1
10-2
Ra65apúður
er ekki
ólöglegt
eiturlyfl