Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2002, Qupperneq 37
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002
37
Ronaldo og Serena
Reutersfréttastofan til-
kynnti í gær hvaða
íþróttamenn ársins hún
hefði valið. Bandaríska
tenniskonan Serena
Willams og brasilíski
knattspyrnumaðurinn
Ronaldo urðu fyrir val-
inu. 34 iþróttafréttamenn
frá 27 löndum stóðu að
kjörinu. Serena fékk 65
stig af 102 mögulegum og
önnur í kjörinu varð
Paula Radcliffe, heims-
methafi í maraþoni.
Ronaldo var fyrr í
vikunni kosinn besti
knattspyrnumaður
heims og stóðu landsliðs-
þjálfarar um allan heim
að því vali. Ökuþórinn
Michael Schumacher
varð í öðru sæti.
-JKS
Rcifpostur: dvsport@dv.is
íþróttamenn ársins hjá fötluðum:
Kristín Rós og
Gunnar valin
Kristín Rós Hákonardóttir var í
gær valin iþróttakona ársins hjá
fótluðum og hjá körlunum varð
Gunnar Öm Ólafsson fyrir valinu.
Árangur Kristínar Rósar var frábær
á árinu sem er að líða og setti hún
alls fjögur heimsmet, tvö þeirra sett
á heimsmeistaramótinu I Argentínu
á dögunum og hin tvö á sundmeist-
aramóti íslands fyrr á árinu. Krist-
ín Rós á í dag sjö heimsmet í 50
metra laug og níu heimsmet I 25
metra laug. Að auki setti Kristín
Rós sjö íslandsmet í 50 metra laug
en sex þeirra voru sett á nýafstöðnu
heimsmeistaramóti.
Á opna danska meistaramótinu
fyrr á árinu vann Kristín Rós til
gullverðlauna í öllum sex greinun-
um sem hún tók þátt. í sumar á
opna breska meistaramótinu í
Sheffield vann hún fem gullverð-
laun og ein silfur- og bronsverð-
laun. Á heimsmeistaramótinu i
Argentínu, sem lauk um síðustu
helgi, vann hún til þrennra gull-
verðlauna og tveggja silfurverð-
launa. I umsögn um Kristínu Rós í
hófinu í gær kom fram að hún ætti
glæsilegan feril að baki og hefur á
undanfómum árum verið ókrýnd
sunddrottning heimsins í sínum
flokki,
Gunnar Örn lét ekki sitt eftir
liggja á árinu og var árangur hans
einkar glæsilegur. Hann setti 27 ís-
landsmet í 25 metra laug, 14 íslands-
met í 50 metra laug, sjö heimsmet í
í 25 metra laug og tvö heimsmet í 50
metra laug. Auk þess varð hann
þrefqldur meistari á opna danska
meistaramótinu og vann einnig til
þriggja annarra verðlauna. Hann
tók einnig þátt í breska meistara-
mótinu þar sem hann vann til fimm
verðlauna, tveggja silfur- og þriggja
bronsverðlauna. Um Gunnar Öm er
sagt að hann sé mjög metnaðarfull-
ur og tilbúinn að leggja mikið á sig
til að ná árangri í sinni íþrótt. Hann
sé góður félagi og öðru ungu sund-
fólki góð fyrirmynd.
Við sama tækifæri var Eddu
Bergmann afhendur Guðrúnarbik-
arinn. Þessi verðlaun hlýtur sú
kona sem starfað hefur sérlega vel á
árinu í þágu fatlaðs íþróttafólks.
-JKS
Kristín Rós Hákonardóttir og Gunnar Örn Ólafsson íþróttamenn ársins 2002 úr rööum fatlaöra íþróttamanna viö
athöfn af því tilefni á Hótel Sögu í gær. DV-mynd E.ÓI.
„Brakandi snilld“ eða „fantavel skrifuð"?
„Kolbrún Bergþórsdóttir flissar yfir bók
og bókin fer í fyrsta sæti
metsölulistans," sagði Guðbergur.
í fyrra voru það upphrópanir eins og
„ótrúlega vel skrifuð", „hörkuvel
skrifuð", „mögnuð lesning", „frásögnin
er hreinræktuð snilld", „brakandi
snilld", „frábærlega samin",
„afreksverk", „dúndurmerkilegt
skáldverk". Nú í ár er hrópað:
„Ofsalega skemmtileg", „ferlega vel
skrifuð", „gríðarlega vel skrifuð",
„algjörlega brillíant", „fantavel
skrifuð", „undurfagur texti",
„dáleiðandi og heillandi".
(Úr grein eftir Jón Kalman í Lesbók
Mbl. 14. desember 2002.)
Höfundarsaga mín eftir Þorstein Antonsson
er ein af þeim bókum sem ekki fer mikið fyrir
þessa dagana. í bókinni rekur Þorsteinn m.a.
samskipti sín við bókaútgefendur og
gagnrýnendur á liðnum árum. Frásögn hans
um samskipti þeirra Ragnars í Smára er
„ofsalega skemmtileg", svo dæmi sé nefnt,
og almennt má segja að Höfundarsaga mín
sé „fantavel skrifuð" bók.
Vestfirska forlagið
mælir með
Höfundarsögu
Þorsteins
Antonssonar fyrir
hvern þann sem
áhuga hefur á vel
skrifuðum texta.