Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Side 6
6
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2002
Fréttir I>V
Fjölskipaður dómur í 9 manna fíkniefnamáli tekur mið af drætti rannsóknar:
Refsingar lækkaðar í tveggja ára máli
- dómarar horfa til þrýstings og hótana vegna ákærðs stýrimanns
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins og aðalskipulag Reykjavíkur staðfest:
Nefnd skipuð til að móta
tillögur
Vatnsmýrina
- ætlað að taka á ágreiningi um framtíð svæðisins eftir 2016
í gær var staðfest í Höfða í Reykja-
vík nýtt svæðisskipulag höfuðborgar-
svæðisins 2001-2024 og aðalskipulag
Reykjavíkur 2001-2024. Fuiltrúar allra
sveitarfélagsuuia á höfuðborgarsvæð-
inu voru viðstaddir undirritunina
ásamt ráðherra og embættismönnum
umhverfisráðuneytisins. Siv Friðleifs-
dóttir umhverfisráðherra tilkynnti við
þetta tækifæri að skipuð hefði verið
nefnd til að gera tillögur um umdeilt
skipulagssvæði í Vatnsmýrinni, þar
sem ReyKjavíkurflugvöllur er nú.
„í svæðisskipulaginu sem við vorum
nú að staðfesta ríkir nokkur óvissa um
landnotkun í Vatnsmýrinni. Af þeim
ástæðum og vegna óska frá samgöngu-
yfirvöldum hef ég í dag skipað nefiid
sem er ætlað fyrir 15. desember nk.
(2003) að gera tillögur að landnotkun á
umraeddu svæði fyrir tímabilið 2016 til
2024. í þessari nefnd þriggja manna er
formaður Ingimar Sigurðsson lögfræð-
ingur frá umhverfisráðuneytinu, en í
nefiidinni eru einnig Helga Jónsdóttir
borgarritari og Leifur Magnússon,
verkfræðingur hjá samgönguráðuneyt-
inu.“
Fjögur ár eru síðan ákveðið var að
hefja þetta umfangsmikla verk sem
svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins
er. Samvinnunefhd um svæðisskipu-
lag, skipuð tveimur fulltrúum frá
hverju sveitarfélagi, hefur haft umsjón
með verkinu. Formenn nefndarinnar
voru þrír: Ámi Þór Sigurðsson og Stef-
án Hermannsson frá Reykjavik og Sig-
urður Einarsson frá Hafnarfirði.
í svæðisskipulaginu er að fmna
framtíðarsýn sveitarfélaganna átta á
höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu
og þróun byggðar næsta aldarfjórðung-
inn, frá og með Kjósarhreppi í norðri
að Vatnsleysustrandarhreppi í suð-
vestri. Sjáifbær þróun er ríkjandi hug-
tak í svæðisskipulaginu og megin-
markmiðið að þétta byggðina, tengja
betur saman húsetu og atvinnu, efla al-
menningssamgöngur og tryggja að höf-
uðborgarsvæðið þróist áfram sem nú-
tímalegt borgarsamfélag. Full samstaða
er um þessi markmið þótt nýja svæðis-
skipulagið innhaldi einnig ýmsar mála-
miðlanir.
í aðalskipulagi Reykjavíkur er
Nýtt aðalskipulag Reykjavíkur staðfest
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, Siv Friöleifsdóttir og Magnús
Jóhannesson árita aöalskipulagiö.
DV-MYNDIR E.ÓL
Svæðlsskipulag höfuöborgarsvæðis-
ins staöfest
Magnús Jóhannesson, ráöuneytis-
stjóri í umhverfísráðuneytinu (lengst
til hægri á myndinni), Siv Friöleifs-
dóttir umhverfisráöherra og Árni Þór
Sigurösson sjást hér staöfesta
skipulagiö meö áritun sinni.
mörkuð sú framtíðarsýn aö borgin
verði öflug og gróskumikil höfuðborg
landsmanna allra og forystuafl á sviði
þekkingar og alþjóðavæðingar. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir horgarstjóri
sagði I stuttri tölu eftir undirritun aðal-
skipulagsins að Reykjavík ætti að vera
„Alþjóðleg borg á islenskum grunni".
Lögð væri m.a. áhersla á eflingu mið-
borgarinnar, endurskipulagningu at-
vinnusvæða, þéttingu og blöndun
byggðar, byggð í Vatnsmýri, vistvænar
samgöngur, vemdun náttúrusvæða og
tengsl íhúa við útivistarsvæði. -HKr.
Átta menn voru sakfelldir en einn
sýknaður í umfangsmiklu máli þar
sem ákært var á ýmsan hátt fyrir
innflutning á meira en tuttugu kíló-
um af hassi í tveimur skipsferðum
og einni flugferð sumarið 2000. í
dóminum er tillit tekið til þess að
rúm tvö ár eru liðin frá brotunum
en lengdin á þeim tima sem rann-
sóknin tók helgaðist af miklu magni
ítarlegra gagna.
Sævar Óskarsson fær þyngsta
dóminn, tveggja ára fangelsi, fyrir
að hafa staðið aö því að skipuleggja
innflutning á 20 kílóum af hassi í
öllum ferðunum þremur. Annar
maður er sakfelldur fyrir að hafa átt
þátt í innflutningi á 15 kílóum af
hassi. Þriðji skipuleggjandinn, sem
einnig fékk dóm í apríl síðastliðn-
um fyrir skjalafals og önnur auðg-
unarbrot, fær 18 mánaða fangelsi en
þar er tekið tillit til dómsins fyrr á
árinu og hann dæmdur með. Maður-
inn er sakfelldur fyrir innflutning á
5 kílóum en hlutdeild í innflutningi
á 10 kílóum.
Stýrimaður sem réð sig sérstak-
lega á Mánafoss til að flytja inn
fikniefni fær 12 mánaða fangelsi.
Hann henti pakka í sjóinn við Eng-
ey en eftir það stóðu ýmsir úr hópi
áttamenninganna ásamt honum að
því að reyna að finna pakkann, m.a.
með köfun. Það tókst þó ekki. Mað-
urinn var síðan sakfelldur fyrir að
hafa sótt annan pakka, um 10 kíló af
hassi, um borð í Goðafoss, sem nú
heitir Skógafoss. Athyglisvert er að
dómaramir þrír taka sérstaklega
tillit til þess að umræddur stýri-
maður hafi verið beittur þrýstingi
við brotið sem átti sér stað varðandi
Goöafoss. „Þá má ætla að honum
hafi í raun verið ljóst að lögregla
fylgdist með ferðum hans og því
væri útilokað að honum tækist að
komast undan með fiknkefnin," seg-
ir dómurinn, en maðurinn lýsti því
yfir í réttarhöldunum að honum
hefði létt mjög þegar lögreglan
handtók hann. Einnig kom fram fyr-
ir dóminum að maðurinn haföi ver-
ið beittur hótunum.
Tugir köfunarferða voru famir norð-
ur fyrir Engey til að reyna að finna
fíkniefhapakkann sem hent var í sjóinn.
Maður sem fór eina ferð, án þess þó að
kafa, fékk tveggja mánaða skilorðsbund-
ið fangelsi fyrir að hafa siglt þangað á
báti. Tveir menn fengu fjögurra og sex
mánaða fangelsi óskilorðsbundið en ní-
undi maðurinn var sýknaður af kröfum
ákæruvaldsins. Málskostnað vegna
hans greiðir ríkið en hinir mennimir
átta eru dæmdir til að greiða lögmönn-
um sínum samtals rúmar þijár milljón-
ir króna í málsvamarlaun. -Ótt
VAGNHÖFÐA 23 • SÍMI 590 2000 • WWW.BENNI.IS
H
REYKJAVÍK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 15.31 14.45
Sólarupprás á morgun 11.22 11.38
Sí°lsflóö 20.58 00.31
Árdegisflóð á morgun 09.18 13.51
Veörið í
Viða rigning eða slydda
Hæg austlæg eða breytileg átt
veröur með kvöldinu. Víða verður
rigning eöa slydda. Sunnan- og
suðvestanátt, víða 3 til 8 m/s, og
úrkomulítiö.
Rigning víðast hvar
Víöa verður rigning og suðaustlæg
átt, 5-13 m/s. Úrkomulítið verður
norðanlands en skýjað með köflum
á jóladag.
Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur
© ý?
HHi 1“ Hrti 0° Hiti 0°
tíl 8“ til 8° til8°
Vindun Vindur: Vindur:
5-13 5_13m/. 5_13ny*
* *
Suóaustlæg Ve&ur fer Útlrt er fyrir
átt veröur heldur austlæga átt
rikjandi og kólnandi. meö vætu í
dálítll rlgning flestum
e&a skúrir. landshlutum
Skýjaö ver&ur og fremur
meö kóflum rnildu ve&ri.
nor&an tll.
! Vindhraöi
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stlnningskaldl 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassvi&ri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviöri >= 32,7
Veðriö kl. 12
AKUREYRI alskýjað 3
BERGSSTAÐIR alskýjað 2
BOLUNGARVÍK rigning 5
EGILSSTAÐIR súld 1
KEFLAVÍK rigning 4
KIRKJUBÆJARKL. rigning 4
RAUFARHÖFN þokumóöa 4
REYKJAVÍK rigning 4
STÓRHÖFÐI rigning 5
BERGEN skýjaö -2
HELSINKI léttskýjað -8
KAUPMANNAHÖFN skýjaö -2
ÓSLÓ léttskýjaö -10
STOKKHÓLMUR -8
ÞÓRSHÖFN rigning 7
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö -10
ALGARVE þokumóöa 15
AMSTERDAM alskýjað 7
BARCELONA skýjaö 16
BERLÍN
CHICAGO hálfskýjaö -3
DUBLIN súld 10
HALIFAX skýjaö 1
HAMBORG alskýjaö 0
FRANKFURT rigning 9
JAN MAYEN snjókoma -2
LONDON skýjaö 12
LÚXEMBORG rigning 9
MALLORCA skýjaö 16
MONTREAL alskýjaö 2
NARSSARSSUAQ léttskýjaö -7
NEW YORK skýjaö 5
ORLANDO skjjaö 10
PARÍS rigning 14
VÍN þoka 1
WASHINGTON alskýjaö 3
WINNIPEG -7