Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Blaðsíða 12
12
Fréttir
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2002
DV
Snjókeöjur fyrir
ícirartæki-^
Aðeins vara frá
viðurkendustu
framleiðendum
Tellefsdal -
Gunnebó
ELLUR.coo
Trygg - OFA
bo -Weed
num grffiium
o
gur 8 - Kóp s
Slrhi: 577 6400 I
Smáauglýsingar
atvinna
550 5000
MR.J0IUES MB.SMITH
MEIM IN BLACK U
Él . a y fTði
Leigan í þínu hverfi
Nýherji kærir útboð
Ríkiskaupa
Nýherji hf. hefur kært útboð Ríkis-
kaupa sem bar heitið „Ný fjárhags-
kerfi“ fyrir ríkissjóð og stofnanir hans.
Hinn 8. janúar 2001 buðu Ríkiskaup út
ný íjárhagskerfi fýrir ríkissjóð og stofii-
anir hans. Verkkaupi var fjármála-
ráðuneytið en umsjónaraðili með verk-
efninu fyrir hönd verkkaupa var Ríkis-
bókhald.
Samkvæmt útboðsgögnum var út-
boðið opið. Við lok tilboðsfrests höfðu
borist átta tilboð frá sex aðilum. Á end-
anum urðu tveir aðilar, Nýherji og
Skýrr, valdir til að taka þátt í frekari
greiningu á tilboðum þeirra og seinna
var ákveðið að Skýrr hlyti samninginn.
Nýherji taldi að Rikiskaup hefðu ekki
metið- tilboð bjóðenda með réttum
hætti í samræmi við útboðsskilmála.
Var bent á að samkvæmt skilmálum
skyldu gæði lausnar ráða mestu um
val tilboða. Verð skyldi koma þar á eft-
ir, þá hæfni bjóðenda, þjónusta og loks
gæði aukakerfa. Samkvæmt heimild-
um Nýherja höfðu gæði lausnar hans
verið meiri en lausnar Skýrr hf. Ný-
herji krafðist þess að ákvörðun Ríkis-
kaupa frá 17. júlí 2001, um að ganga að
tilboði Skýrr hf., á grundvelli framan-
greinds útboðs yrði úrskurðað ólög-
mætt og að viðurkennt yrði skaðabóta-
skylda Ríkiskaupa gagnvart Nýheija.
Þá var krafist kostnaðar úr hendi Rík-
iskaupa við að hafa kæruna uppi.
Kærunefnd komst að þeirri niður-
stöðu að mat á tilboðum í útboðinu
hefði, að því er varðar mat á gæðum
lausna, þ.m.t. tilboða í kennslu, verið
ábótavant og í ósamræmi við það sem
útboðsskilmálar og önnur gögn gáfu til
kynna. Þá telur nefndin að framkvæmd
útboðsins hafl verið svo áfátt að veru-
legur efi sé á að hagstæðasta tilboði
hafi verið tekið og telur nefiidin að Ný-
herji eigi rétt til skaðabóta úr hendi
ríkisins. Úrskurður kærunefndar er þó
ekki bindandi og hefur ríkið stefnt Ný-
heija til baka til ógildingar á úrskurði
kærunefndar. Málið verður tekið fyrir
25. mars og má búast við dómi í aprfl á
næsta ári. -ss
fm
1^-1 m * i ® wi r Zá* L t'U
Hringskonur láta gott af sér leiða
Bókasafni Hafnarfjarðar barst góö gjöf fyrir helgina þegar Kvenfélagið Hringurinn kom færandi hendi. Hringurinn færði safninu úrval
hljóðbóka sem geta nýst sjónskertum og blindum en tilefni gjafarinnar er m.a. 80 ára afmæli safnsins.
UN-kortið er nýtt þjónustu- og hlunnindakort:
Handhafi fær andvirði
kortsins þrefalt til baka
- nýti hann ávísanir á vörur og þjónustu sem í boði er
Komið er á markað nýtt hlunninda-
og þjónustukort, UN-kortið, sem veitir
handhafa þess aðgang að vörum og
þjónustu fyrir verulegar upphæðir.
UN-kortið er til í þremur mismunandi
útgáfum, gull, sflfiir og brons.
' GulI-Un-kort kostar 19.900 krónur en
handhafi þess fær í hendur kortið og
ávísanir upp á vörur og þjónustu ým-
issa aðfla að verðmæti 73.050 krónur.
Silfur-UN-kort kostar 14.900 krónur
en handhafi þess fær í hendur kortið
og ávísanir upp á vörur og þjónustu
ýmissa aðila að verðmæti 49.900 krón-
ur.
Brons-UN-kort kostar 9.900 krónur
en handhafi þess fær í hendur kortið
og ávísanir upp á vörur og þjónustu
ýmissa aðila að verðmæti 29.450 krón-
ur.
Sammerkt með öllum kortunum er
að handhafi þeirra er alltaf að græða,
svo fremi að hann kaupi þær vörur eða
þá þjónustu sem í boði er. Skipta má
greiðslum fyrir kortin með raðgreiðsl-
um Visa.
Óskar Axel, stofnandi UN og einn af
frumkvöðlum X-18, segir UN-kortið
vera jafn öflugt og raun ber vitni iyrir
tilstuðlan fiölda styrktarfyrirtækja, þar
á meðal UN á íslandi. Ef tekið er dæmi
af gull-UN-korti sem kostar 19.900 krón-
ur fást vörur og þjónusta fyrir allt að
73.050 krónur. Þar á meðal er 20.000
króna ávísun á innkaup í verslun UN í
Mörkinni, 2000 króna úttekt á Hverfis-
bamum virka daga, 3000 króna úttekt í
verslunum Retro, 3000 króna úttekt í
gokart hjá Reisbílum, 6.800 króna út-
tekt/mánaðarkort í Baðhúsinu, 2.250
króna úttekt í lasertag hjá Mekka
Sport, 3000 króna hreinsun hjá Fönn,
3000 krónur upp í 10 tíma kort hjá
Gullsól, 2000 króna þjónusta hjá Bflkó,
hjólbarðaverkstæði, 5000 króna úttekt
hjá Mountain Taxi, sem er með jeppa-
Öírafár með UN-kort
Hljómsveitin írafár tók lagið í verslun UN í Mörkinni á föstudagskvöld og fékk
hver hljómsveitarmaður UN-kort afhent við það tækifæri.
ferðir, 4000 króna úttekt í gistingu hjá
Grand Hótel, 3000 króna matarúttekt
hjá A. Hansen og síðast en ekki síst
5000 króna úttekt í smáauglýsingum
hjá DV.
UN-kortin má nálgast með því að
senda baksiðu bæklings sem dieift hef-
ur verið á flest heimili eða með því að
heimsækja UN-búðina í Mörkinni. Að-
eins er hægt að kaupa eitt kort fyrir
hverja kennitölu.
Afslættir og Götusmiðjan
Kortinu fylgja ávísanir upp á ná-
kvæmlega þessar upphæðir.
Auk ávísananna veitir framvísun
UN-korts afslátt hjá verslunum UN,
Smart i Vestmannaeyjum, Hárex í
Mörkinni, Gullsól og JPV-útgáfunni.
Afslátturinn er 20% fyrir handhafa UN-
gullkorts, 15% fyrir handhafa silfur-
korts og 10% fyrir handhafa
bronskorts. JPV Forlag veitir þó 25%
afslátt, óháð tegund UN-korts.
Loks má geta þess að 5% af sölu UN-
kortsins munu renna til Götusmiðj-
unnar sem hjálpar ungu fólki sem lent
hefur á refilstigu í lífinu að fóta sig á
ný. -hlh