Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Síða 16
16 MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2002 Skoðun DV Spurning dagsins Hvað langar þig í jólagjöf? Eysteinn Sigurðarson, 12 ára: Mig langar í sokka. Pétur Karl Hemmingsen, 12 ára: Trivial Pursuit. Guðmundur Sverrisson, 12 ára: Einhverja góöa bók. Sæþór Kristjánsson, 12 ára: Nýja tölvu. Margrét Lilja Guðmundsdóttir, 12 ára: Playstation 2. Kolbrún María Guðmundsdóttir, 12 ára: Náttföt. Fjárlögin og sala Landsbankans Landsbankinn og KMPG Tengjast áreiöanleikaböndum meö ólíkum formerkjum. Ragnar skrifar: Áreiðanleikamat er eitt þeirra hug- taka nútímans sem getur sett allt upp í loft þegar kauphallarundrin eru í þann veginn að sjá dagsins ljós. Nú er lokið við að gera áreiðanleikamat (sumir nefna þetta „könnun", sem er mun óljósara hugtak - aðeins rann- sókn) vegna sölu ríkisins á um 46% hlut í Landsbanka íslands. Þar kemur í ljós að mat KPMG-endurskoðunar er ekki í samræmi við mat bankans á eigin verðmæti sem lagt var til grund- vallar í samningaviðræðum einkavæð- ingamefndar og Samsona ehf. Þegar þetta er skrifað (sl. föstudag) hefur væntanlegur kaupandi ekki fengið mat KPMG afhent og ekki hefur heldur náðst í formann einkavæðing- amefndar til að fá skoðun hans á mál- inu. Eini aðilinn sem hefur tjáð sig um málið er bankastjóri Landsbankans, og hann þvær sínar hendur og segir bankastjóm banka síns ekki eiga neina beina aöild að þeim viðræðum sem fram fóru. Engin gagnrýni hafi komið fram á reikningsskil Lands- banka íslands hf. - Málið er því líklega að verða „heitasta" málið í fréttum þessa dagana, ef frá er talið upphlaup borgarstjórans í Reykjavík. Fyrir marga er Ingibjörg Sólrún borgarstjóri og staðfest löngun hennar til landsmála hrein himnasending þeg- ar sala Landsbankans er sett í sam- hengi við fjárlögin sem nýbúið er að samþykkja á Alþingi - ekki síst ef krafa kaupenda um tveggja milljarða króna afslátt verður sett sem skilyrði og stendur óhagganleg. Þar með yrðu fjárlögin í uppnámi. En eins og kunn- ugt er var óeigingimi alþingismanna í „Fyrir marga er Ingibjörg Sólrún borgarstjóri og stað- fest löngun hennar til landsmála hrein himna- sending þegar sala Lands- bankans er sett í samhengi við fjárlögin sem nýbúið er að samþykkja á Alþingi. “ fyrirrúmi þegar þeir útbýttu fé til ým- issa ríkisframkvæmda. í fjáraukalög- um - allt vegna þess að treyst var á ör- læti þeirra Samsona ehf. Verði hins vegar mismunur KPMG- matsins og reikningsskila Landsbank- ans mestmegnis rakinn til óreiðu- skulda við bankann, sem aftur má rekja til ábyrgðarleysis fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, er ekki ólíklegt að málið færist á topp tíu lista innlendra frétta. Enda varðar það þjóðarheill og efnahagsmál okkar í nánustu framtíð - og raunar miklu fremur en það hvort Ingibjörg Sólrún verður innan eða utan Ráðhúss Reykjavíkur. En nú hækka líka laun ráðamanna um 7%. Það er bót í máli fyrir alla: mig, þig og alla sem búa við sýndarveru- leika í fréttamati íslenskra fjölmiðla. Viktoríanskur hugsunarháttur Öm Blævarr Magnússon skrifar: Fyrir tólf mánuðum ákváöu tveir ungir menn að gefa út blað er tileink- að yröi framhaldsskólanemum. Blað þetta átti að fjármagna með auglýs- ingasölu en dreifa frítt til nema. Af- urðin leit dagsins ljós núna tólfta desember. Eintak var borið út til allra er keyptu auglýsingu í títt- nefndu blaði (Filter). Og þá byrjaði fjörið. Hringt var til ritstjórnar Filters frá versluninni Top Shop er var með baksíðuauglýs- ingu í blaðinu. Sá sem hringdi var framkvæmdastjóri og tilkynnti, að ef blaðið færi í dreifingu færi Top Shop í mál. Ástæðan? Jú, þetta væri sóða- rit og skaðaði ímynd fyrirtækisins. Nú er ég sjálfur liölega fimmtugur og alveg þokkalega þröngsýnn. Ég er bú- inn að sjá þetta blað. Það er ekkert í þessu blaði sem hægt er að kalla klám. Reyndar er þama grein um hjálpartæki kynlífsins. Fyrir nokkru síðan kveikti ég á morgunsjónvarpinu og viti menn - fjörlegur kynlífsfræðingur að tíunda Ég veit ekki til þess að nokkur maður hafi kvartað undan þessum þætti. hina ýmsu möguleika í notkun því- líkra tóla. Ég veit ekki til þess að nokkur maöur hafi kvartað undan þessum þætti. Enda hefur almennt verið talið að viktoríanskur hugsun- arháttur hafi liðið undir lok fyrir löngu. Sé það hins vegar rétt að það sé forsíðumyndin sem fer svo fýrir brjóstið á framkvæmdastjóranum að hann getur réttlætt það fyrir sjálfum sér að ekki bara láta banna blaðið á sínum forsendum heldur hafa einnig samband viö alla aðra sem auglýstu og fá þá lið með sér í þessari kross- ferð gegn klámi, þá er illa komið. Og í hverju er svo þetta klám fólg- ið? Jú, á forsíðunni er mynd af ber- um karlmanni og hefur hann falið stubbinn sinn á milli læranna þannig að mögulegt er með ofurmannlegu imyndunarafli að telja sér trú um að þarna sé mjög loðinn og afburða kraftalega vaxinn flatbrjósta kven- maður. Og undir þessari mynd stend- ur „karlremba er sjálfsvöm". Ég verð að viðurkenna, að í allri minni þröngsýni fannst mér þetta myndaspil bara þrælskondið. Mest undrandi varð ég þegar eitt stærsta tölvufyrirtæki landsins tók undir með þessari manneskju. Nú var þetta blað ætlað framhaldsskólanemum á aldrinum sextán til tuttugu og fimm ára til skoðanaskipta og sem vett- vangur hugmynda þessa aldurs- flokks. Þar sem markaðsstjórinn leyf- ir sér að nota þau vinnubrögð að hringja í aðra auglýsendur og hvetja þá til að standa með sér í að fá dreif- ingu Filter bannaða gæti ég á sömu forsendum hvatt fyrrgreindan ald- urshóp til að versla ekki við Top Shop. En ég geri það ekki. Ég vona að fólk eigi viðskipti þar eftir sem áður þó setja megi stórt „?“ við hugmynda- fræði eins stjómanda verslunarinn- ar. - Ég tek fram, að ég skrifa þetta án vitundar þessara drengja sem að blaðinu standa. Að rugga sér í lendunum Þessa dagana er Garri í góðmennskukasti. Enda þótt oftast sé hann rótarlegur og hálf- gerð ótukt er sá gállinn ekki á honum þessa dagana. Nú kappkostar hann að láta hvkr- vetna gott af sér leiða. Enda að koma jól. Af örlæti sínu gaf Garri vænar flísar af feitum sauð til Mæðrastyrksnefndar þannig að soltnir mættu mettast. Leikföng gaf hann til bama foreldra sem eiga ekki fyrir jólagjöfum. Með tárin í augunum gekk Garri niður Laugaveg- inn þar sem hann mætti pöplinum að kaupa inn til jólanna. Hann fann sárt til með þeim mörgu sem ekki geta gert sér dagamun á heil- agri hátlð. Engar kartöflur Þeir sem við aumasta hlutskiptið hafa búið eru væntanlega forystumenn þjóðarinnar. En nú hefur þeirra hagur vænkast. Jólasveinar kjaranefndar mættu til byggða í vikunni og gáfu þeim i skóinn og rökstuddu örlæti sitt og sögðu að ófært væri að þessir menn drægjust aftur úr öðrum í kjörum. Eða með öðrum orðum að ófært væri að gefa þeim kartöflur í skóinn. Meðal þeirra sem fengu þennan búhnykk var forsetinn sem fyrir helg- ina mætti til mæðrastyrksnefndar og tók þar tali hina umkomulausu. Garri efar ekki að hann eigi þjáningabróður í forsetanum en sá var lengi í stjómmálaflokki sem baröist fyrir bættum kjörum öreiga allra landa. Biskupinn var líka meðal þeirra sem fengu launahækkun. Sá vill öllum gefa kærleik í jólagjöf. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar fengu líka launabætur og þeir gefa auðvitað góðæri og árgæsku til lands og sjávar í alla jólapakka. Enda er slíkt á færi þeirra, þessa góða fólks sem hefur bæði vald tíða og þjóðar. Kátína yfir kjarabótum Á jólunum eiga allir að vera góðir hver við annan. Því ætlar Garri að láta hina mildu tóna í sálarlífi sínu lita óma í þessu jólaguðspjalli sinu. Hann minnir á að í dag er glatt í döprum hjörtum hinnar snauðu alþýöu sem nú getur í sinni sínu fundið bæði frið og fögnuð. í dag er líka glatt í döprum hjörtum alls efsta lags stjórnkerfisins: kátína yfir kjarabótum. Og brátt fara haltir að ganga, daufir að heyra og blindir fá sýn. Við lifum á ótrúlegum timum. Dásemd í des- ember. Með þeim orðum óskar Garri lesendum sín- um gleðilegra jóla um leið og hann fer að dæmi Adams sem átti syni sjö; stappar niður fótunum, ruggar sér í lendunum og snýr sér svo í hring. CyOvTfl Össur sagði satt Hildur GuSjðnsdóttir hringdi: Ég verð að segja að hann Össur Skarphéðinsson naut samúðar minn- ar eftir sjónvarps- viðtalið 18. des. sl. Ég hélt að hann væri að fara með rangt mál þegar hann sagði að Ingi- björg Sólrún gæfi kost á sér til þings, þar sem hún hafði fyllilega gefið í skyn að svo væri ekki, hún ætlaði bara að hugsa málið. Allt í einu snerist frúin í hring og viður- kenndi að hún gæfi kost á sér en svar- aði því aldrei hvort hún hefði rætt við formenn VG eða Framsóknar. Það var nú lóðið! Ekki er ráðahagurinn burð- ugur. Samfylkingin mun svo þurrka út Framsóknarflokkinn í Reykjavík en þangað sótti Kvennalistinn mjög fylgi sitt. Hvað gera Vinstri-grænir nú? Og hvað skyldi ffúnni finnast ef samstarfsflokkamir söðluðu nú um í borgarstjóm og styddu íhaldið? Þar með hefði allur R-listinn sagt „Allt í plati!" Það þyngist því verulega undir fæti hjá borgarstjóra, fylgið minnkaði í síðustu kosningum og nú þarf að berjast við sterkan stjórnmálamann í forystu minnihlutans. Þetta er ekki ham- borgarahryggur Halldðr (heimavinnandi) skrifar: Ég get ekki látið kyrrt liggja am- böguna þrálátu sem fram kemur hjá langflestum þeim sem tala um jólasteikina og segjast ætla að elda „hamborgarahrygg"! Þetta er ekki nokkur matur, svona „hryggur" því hann er ekki til. Nema ef hakkað kjöt væri uppistaða í einhverjum dýra- hrygg, sem ég hygg að sé ekki af þess- um heimi. En svo er til gæðamatur, á jólum og við önnur tækifæri, og það er „hamborgarhryggur" - þessi sem við sjóðum fyrst og er síðan gijáður í ofhi, í svo sem 15 mínútur á 180 gráð- um (360 í amerískum ofni), með Dijon- sinnepi og púðursykri. Horft til allra átta Allt án skuldbindingar. Össur Skarp- héöinsson formaöur Samfylkingar Sannsögulli en svilkonan? Ég hef sagt það áður Skúli Jðnsson skrifar: Það er upplausnarástand í borgar- stjóm Reykjavíkur. Borgarstjórinn, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, virðist hafa orðið friðlaus þegar að því var ýjað að hún myndi sóma sér vel í for- ystusveit Samfylkingarinnar í næstu kosningum. Nú hefur hún játað því að verða í framboði, allt án þess að svíkja sína kjósendur, eða eins og hún segir oft sjálf: „Ég hef sagt það áður...“ Auðvitað sæktist Ingibjörg Sólrún eft- ir ráðherrastóli, yrði hann í boði eftir kosningar. Þar með rýma möguleikar hinna sem lentu ofarlega á lista Sam- fylkingarinnar í Reykjavík því varla yrðu allir ráðherramir úr Reykjavík. Hér er komin upp ný staða fyrir Sam- fylkinguna og alls ekki góð. Með þátt- töku Ingibjargar Sólrúnar á þinglista er rekinn fieygur í forystu Samfylk- ingarinnar á þeim vettvangi. En ekki síður í borgarstjómarmeirihlutann sem í raun riðar nú tU faUs eftir margháttuð svik og hringlandahátt í stjórn borgarinnar, sbr. lokun þjón- ustumiðstöðva eldri borgara (sem R- listinn varð svo að draga tU baka, sumarlanga leikskólalokun og íjár- málaóstjórn. Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangiö: gra@dv.ls Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV, Skaftahlíö 24, 105 Reykiavík. Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.