Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2002 Menning 17 Pílagrímaleiðir Einn er sá flokk- ur bóka sem aö mestu hefur horf- ið undanfarin ár en það eru ferða- bækur. Kemur þar tvennt til; ferða- lögum hefur fjölg- að mjög og mynd- miðlar hafa tekið við hlutverki ferðasagnanna. Ferðabókum mátti í stórum dráttum skipta í tvennt; annars vegar sög- ur af svaðilforum og mannraunum og sakaði þá ekki þó nokkuð væri fært í stílinn, og hins vegar hug- leiðingar um menn og málefni er ferðalangur rakst á leið sinni. Slíkar hugleiðing- ar gátu oft verið fjölbreyttar og tengst mannfræði, þjóðfræði, sagn- fræði, bókmenntum og listasögu, svo fátt eitt sé talið. Ferðasaga Jóns Björnssonar, Á Jakobsvegi, telst til þessa síðast- nefnda flokks. Höfimdur segir þar frá ferð sinni á hjóli um gamal- kunnar pílgrímaslóðir í Frakk- landi og Norðvestur-Spáni til borgarinnar Santiago de Compostela, en þar er sagt að geymd séu bein þjóðardýrlings Spánverja, heilags Jakobs. í bók sem rekur pílagrímaslóðir er að sjálfsögðu margt sagt frá dýrlingum og helgum dómum og er þar dreginn saman mikill fróð- leikur. Og þó að efasemdarmönn- um nútímans þyki þar margt ótrú- legt og næsta skoplegt er sá fróð- leikur tilreiddur með hæfilegri virðingu og virðingarleysi þar sem við á, samanber þessa skondnu samlíkingu um starfs- svið dýrlinga: „Dýrlingar voru um margt ekki ólíkir þinmönnum Jón Björnsson ásamt farkosti sínum Hjóladi suöur og hugsaöi upphátt á leiðinni. utan af landi sem sátu Al- þingi í Reykjavík framan af tuttugustu öldinni. Kjósandi gat ætlast til að þeir gerðu viðvik fyrir sig, útveguðu innflutn- ingsleyfi fyrir jeppa, mæltu með bankaláni eða keyptu smávarning sem ekki fékkst í kaupfélag- inu á staðnum." En frá fleiru er sagt en fyrir- greiðslupólítík í himnasölum, þannig er til að mynda fjallað um klausturlifnað og kirkjubygging- ar, fuglinn Griff og fleiri furðu- skepnur úr nárrúrufræði miðalda, sagt frá Karlamagnúsi og köppum hans, föður Jesúítareglunnar Ignatíusi Loyola og rakin Spánar- saga allt til nýaldar. Allt er þetta efni hið forvitnilegasta auk þess sem höfundur hefur greinilega mikla ánægju af að miðla af þekk- ingu sinni og gerir það án alls yf- irlætis. Árangurinn er því alþýð- legt fræðirit af bestu gerö sem sjaldgæf eru orðin nú á tímum sérhæfingarinnar. Bók sína byggir höfund- ur þannig upp að frásögn- inni er skipt í sex kafla sem hver um sig er helg- aður ákveðinni leið en kaflarnir síðan fleygaðir með útúrdúrum sem höf- undur nefnir svo. Ferða- sagan sjálf er lipurlega rakin án þess þó að höfundur trani sér um of fram og stíll hans er lipur og oft launkíminn þó að honum hætti tU að verða marg- orður á stundum. Bókin er síðan hin vandaðasta að allri gerð, prentuð á góðan pappír og ríku- lega prýdd myndum og kortum. AUt gerir þetta Á Jakobsvegi að athyglisverðu og eigulegu bók- verki. Geirlaugur Magnússon Jón Björnsson: Á Jakobsvegi. Hugsaö upphátt á pílagrímaleiðinni til Santiago de Compostela. Ormstunga 2002. Bókmenntir ✓ Ast og grimmd Skuggasjónaukinn er síðasta bókin í þríleik PhUips PuUmans þar sem segir frá ævintýrum Lýru Silfurtungu og WiUs Parrys. Þrí- leikurinn gerist í mörgum sam- liggjandi heim- um en í öðru bindi, Lúmska hnífnum, sagði frá því þegar WUl fékk hnif- inn sem hægt er að nota tU að skera á mUli heima. f þessari bók segir frá loka- uppgjöri þeirr- ar atburðarásar sem hefur magnast upp í fyrri bókum. Ásríel lávarður hyggst ráðast gegn Alvaldin- um. Frú Coult- er hefur náð Lýru á sitt vald. Alvaldurinn og Metatron ríkis- stjóri hans hafa safnað miklu liði. Og eðlisfræðingurinn Mary Malone hefur uppgötvað að duftið svokaUaða virðist streyma burt úr öUum heimum. En hvað er duft? Hvert er það að fara? Er Alvaldur- inn guð? Eða byggist heimsmynd mannanna á blekkingum? Bækur PhUips Pullmans eru ekki síður ætlaðar fuUorðnum en bömum. f þeim spyr höfundur grundvallarspurninga um guð- fræðUeg og heimsfræðUeg málefni og byggir um leið upp spennandi heimsmynd. f.fyrri bókum hafði verið gefíð i skyn að duft tengdist á einhvern hátt persónum fólks og hér er leyndardómurinn um duftið útskýrður en um leið settar fram nýjar kenningar um sköpun heims- ins, syndir og dyggðir. Lýra og WiU era bæði tvö orðnar mótaðar persónur úr fyrri bókum. Lýra er mun meira aðlaðandi persóna og hún kemur af fuUum krafti inn í þessa bók en WUl fékk að gegna aðalhlut- verki í þeirri síðustu. Lýra, sem er geðþekk en um leið breysk, er bindiefni bókaflokksins og lesandi getur ekki annað en látið sig örlög henn- ar varða. WiU og hún mynda gott par þar sem hvort vegur annað upp. Og hlutverk þeirra fyrir heimana aUa reynist mikUvægt á óvæntan hátt. Ýmsar persónur úr fyrri bókum koma við sögu, svo sem Jórekur, konungur brynjubjamanna, nom- in Serafína Pekkala og auðvitað Asriel lávarður og frú Coulter. Aðrar persónar mótast skýrar, tU dæmis englamir Baltamos og Baruk en saga þeirra er ljúfsár ást- arsaga mitt í allri hringiöunni. Þá eru GaUívespamir Tialys og lafði Salmakía skemmtilegar persónur sem sinna skyldum sínum fram í rauðan dauðann. ÞrUeikur PuUmans snýst að miklu leyti um ástina og birtingar- form hennar. Ástir ólíkra tegunda og ólíkra einstaklinga. Pullman setur ástina í fyrsta sæti sem hina æðstu dyggð en kirkjan í bókun- um formælir ástinni og telur hana til synda. En þó að ástin sé þannig drifkraftur atburðarásarinnar er grimmdin líka áberandi og menn hika ekki að beita grimmd tU að verja ástina eða ráðast gegn henni. Þessar vangaveltur eru svo flétt- aðar saman við hörkuspennandi atburðarás þar sem herir Asriels lávarðar og Metatrons mætast í lokauppgjöri og heimurinn sér fram á nýja dögun. Þeir sem lásu fyrri bækurnar og kunna að meta þær veröa auðvitað að lesa þessa. Mörgum spurning- um er svarað og örlög allra verða ljós. Þetta er þó ekki bók fyrir ung börn enda löng og efnismikU. Þá er engri sykurfroðu vafið utan um hlutina heldur er öUu lýst á grimmUegan hátt. En Skuggasjón- aukinn er verðugur endir á þess- um epíska þrUeik PhUips PuUm- ans. Katrín Jakobsdóttir Philip Pullman: Skuggasjónaukinn. Anna Heiöa Pálsdóttir þýddi. MSI og menning 2002. 20w MlKRÓSAMSTÆÐA með RDS i geislaspilara, segulbandi, Dynamic Bass i Incredible Surround r" TILBOÐ 24 PHIUPS HP4864 1600w HÁRBLÁSARI með nýja Thermo hitastillingu sem tryggir að blásturinn fer aldrei illa með hárið. TILBOÐ 3.495 Verð áður kr. 3.995 otrúlegt SCR802 FERÐATÆKI með geislaspilara, segulbandi og útvarpi. Frábært tæki fyrir börnin. TILBOÐ 6.995 otrúlegt <*satt PHIUPS Verð áður kr. 8.995 Að&Ns r 4 F UftvAiimj ótrúleqt i ensa(f FPH500 Öflug 500w MATVINNSLUVÉL með blandara og safapressu. Tekur 1,5 lítra. TILBOÐ 7.995 Melissa Verð áður kr. 9.995 nuilin. ótrúlegt PHILIPS e^Sdtt HR8569 Mobilo Plus Öflug 1600w RYKSUGA, mjög kröftug og handhæg. Frábær parketbursti fylgir. TILBOÐ 15.995 Verð áður kr. 19.995 l' tt I Heimilistæki I UMBOÐSMENN UM ALLT LAND

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.