Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2003, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2003, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 Tilvera X>V Fjölbreytt form Hlynur Hallsson, Finnur Amar Arnarson og Jessica Jackson Hutchins opna sýningar í Nýlista- safninu á morgun, 25. janúar, kl. 16.00. Hlynur sýnir ljósmynda- og textaverk, myndband, innsetningu eða aðstæður og viðhorfskönnun. Finnur Arnar sýnir myndbandsinn- setningu og Jessica ljósmyndir og skúlptúra. Opnunin er sú fyrsta á afmælisári Nýlistasafnsins sem hef- ur verið starfrækt í 25 ár. Náttúruleg náttúra Jón Sæmundur Auðarson opnaði í gær myndbandsinnsetningu í rými undir stiganum í i8 á Klapparstíg. Þó að hlutverk landslagsmyndanna sé einkum að fegra híbýlin er meg- inhlutverk þeirra aö fara með okk- ur í ferðalag út í sveit, á kunnugleg- an stað í kyrrð náttúrunnar og minna okkur á heimahagana sem við yfirgáfum til að freista gæfunn- i ar í stórborginni. I \ i i I Hugarleiftur í Listasafni Reykjavíkur - Hafn- arhúsi var í gær opnuð sýningin Hugarleiftur sem er afrakstur ís- landsferðar bandarisku myndlistar- konunnar Diane Neumaier og griska rithöfundarins Christos > Chrissopoulos sumarið 2000 og sam- anstendur af ljósmyndum af lista- verkum á almannafæri, ljósmynd- um af týndum hönskum og skrifuð- um textum um takmörkuð sam- skipti persónunnar við fólkið á göt- unni. Á sýning- unni Young Nordic Design sem opnuð hefur verið í Nor- ræna húsinu eru verk ungra ís- . lenskra, norskra, danskra, sænskra og finnskra hönnuða. Verkin varpa skýru ljósi á hefðir norrænnar hönnunar, einfalda formtúlkun, notagildi, einfalda efnisnotkun og strangar gæðakröfur. Sýningin var opnuð í nóvember 2000 í Scandinav- ia House í New York og hefur síðan farið víða um heim. Norræn hönnun Storesarnir eru að hverfa Margrét Oddný Leó- poldsdóttir opnar sýningu í gluggum sin- um í Heima er best, Vatnsstig 9, á sunnudaginn, kl. 16, og verður opið hús af því tilefni. Sýningin er j tileinkuö Þórami Eldjám og ber nafniö „Storesamir eru að hverfa" | eftir samnefndu ljóði hans. Þetta er j innsetning - þó réttara væri að tala ' um útsetningu þar sem Margrét tek- ur gardínumar á heimili sínu og setur þær út fyrir gluggana. íslensku tónlistarverðlaunin: Margir sig- urvegarar - Ingibjörg Þorbergs hlaut heiðursverðlaunin Það var enginn afgerandi sigur- vegari á vel heppnaðri afhendingu íslensku tónlistarverðlaunanna í Borgarleikhúsinu í gærkvöld. Eini tvöfaldi sigurvegarinn þegar kom að popptónlistinni var Sigur Rós, annars var nokkurt jafnræði með því besta í poppflórunni. Einn verðlaunahafi hefði getað farið heim með þrjár styttur. Það var bassaleikarinn Skúli Sverrisson sem vann til þrennra verðlauna, þar af tvennra ásamt Óskari Guðjón- syni. Skúli og Óskar starfa báðir er- lendis og vora því ekki viðstaddir. Það sem kom einna helst á óvart var þegar tilkynnt var hver væri söngkona ársins. Flestir voru búnir að bóka Birgittu Haukdal í flokk með Björk og Emifíönu Torrini, en DV-MYNDIR E.ÖL Magnús og Kóngurínn Bubbi Morthens kom mikiö viö sögu í gærkvöld þótt ekki ynni hann til verðlauna. Meö honum á myndinni er hinn kunni tónlistarmaöur og frammámaöur í réttindum tónlistar- manna, Magnús Kjartansson. Höröur og menntamálaráöherrann Höröur Torfason var tilnefndur í gærkvöld fyrir plötu sína, Söngvaskáld, en þurfti aö sjá á eftir verölaunum í flokknum Ýmis tónlist til Óskars Guöjóns- sonar og Skúla Sverrissonar. Hann er hér á tali viö Tómas Inga Olrích menntamálaráöherra. Glæsilegar söngkonur Á myndinni eru fjórar söngkonur sem hafa gert garöinn frægan og komu viö sögu í gærkvöld. Taliö frá vinstri: Margrét Eir Hjartardóttir, Regína Ósk Ósk- arsdóttir, Selma Björnsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Heiöursverölaunahafinn Ingibjörg Þorbergs varö þess heiöurs aönjótandi aö vera kjörín heiöursverö- launahafi ársins. Meö henni á myndinni eru Margrét Bóasdóttir, söngkona og kórstjóri, og Magnús Kjartansson. Norræn útgáfa af Píkusögum annað kvöld: Skömmin er færeyskt orð yfir sköp - segir María Ellingsen leikkona „Það hefur ekkert leikrit verið sýnt jafn oft og lengi í Færeyjum og Píku- sögur, eða Ginusögur, eins og þær heita þar,“ segir María Ellingsen leik- kona. Sjálf tekur hún þátt í flutningi klukkutíma kafla úr verkinu í Borgar- leikhúsinu annað kvöld kl. átta ásamt Kristbjörgu Kjeld, Charlottu Böving og færeysku leikkonunni Biritu Mohr. Eftir hlé mun færeyska söng- konan Eivör Pálsdóttir flytja ljúfa tóna. Charlotta leikur á dönsku, Krist- björg á íslensku og þær Birita og Mar- ía á færeysku. „Ég er færeysk í aðra ættina og dvaldi oft hjá fólkinu mínu á sumrin. Þá lærði ég málið,“ upplýsir María, spurð um færeyskukunnáttuna. Þessi norræna útgáfa verksins eftir Eve Ensler var flutt, m.a. af Maríu, á norrænni leiklistarhátíð í Þórshöfn sl. sumar og vakti mikla athygli. Leik- pailur Gríma í Færeyjum fýlgdi á eft- ir með verkið í fullri lengd og sló að- sóknarmet. „Færeyingar eru mjög trúaðir og það var hægara sagt en gert að opna umræðu um þetta efhi. Þar- lendar leikkonur voru hræddar um að hneyksla og voru því ánægðar að fá einhverjar utanaðkomandi til að hefja leikinn. Mér var það hrein blessun að fá að taka þátt í þessu ævintýri því þótt Píkusögur séu opinskátt verk um gleði og sorgir kvenna er það ekki klúrt heldur hreint og tært og segir mikinn sannleika. Enda hefur nú myndast hreyfing kringum verkið í Færeyjum," segir María. María kveðst hafa áttað sig á því er hún hafi farið að hugsa um flutning verksins í Færeyjum að hún hefði aldrei heyrt færeyska orðið yfir píku. „Þegar farið var að kafa ofan í orða- forða Færeyinga fundust þó 40 orð yfir fyrirbærið, bæði ljót og falleg." Maria nefnir orð eins og „skömmin" og „i neðra“ en einnig önnur viðkunn- anlegri eins og „ígulkerið", „trillan“ og gjógvin (gjáin). Gina er fallegt nafn á sköpum en María segir konur á Sandey varla þora að gefa gestum þær einar hafa unnið þennan titil hingað til, en óvæntur sigurvegari var hin unga Hera Hjartardóttir sem heillað hefur með söng sínum síðustu mánuði. Söngvari ársins var svo kosinn Amar Guðjónsson úr Leaves. Fullt var í stóra sal Borgarleik- hússins og skemmtu viðstaddir sér konunglega yfir góðum tónlistarat- riðum og spennandi úrslitum. Fögn- uðurinn var ekki sístur þegar tO- kynnt var hver væri heiðursverð- launahafi 2003. Hin ágæta söng- kona, tónskáld og útvarpskona, hinn þjóðkunna ginu-bita með kaffinu lengur. Færeyska matmaddaman Marentza Poulsen ætlar samt að bjóða upp á slíkan bita í Borgarleikhúsinu annað kvöld! -Gun. Ingibjörg Þorbergs, hlaut verðlaun- in að þessu sinni og kom það í hlut forseta íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, að afhenda henni verð- launin. Þær stöllur Selma og Hansa tóku síðan sitt lagið hvor eftir Ingi- björgu. Bubbi Morthens fékk margar til- nefningar en fór heim án verðlauna. Hann minnti þó eftirminnilega á sig þegar hann steig á svið og rokkaði af mikilli innlifun. Samkomunni stjómuðu af mikilli list þau Guðrún Gunnarsdóttir og Gísli Marteinn Baldursson. -HK Njósnarínn Jack Bauer Kiefer Sutherland er aftur kominn í fremstu röö leikara í Hollywood. 24 aftur á skjáinn Einhver óvæntasti og um leið besti smellurinn í sjónvarpi var spennu- þáttaröðin 24 sem Stöð 2 sýndi i fyrra. Þar fylgdumst við með njósnaforingjan- um Jack Bauer í tilraun sinni í að koma í veg fyrir að forsetaframbjóð- andi yrði myrtur. Strax í upphafi lenti fjölskylda hans í miðri atburðarás og var Bauer stundum klemmdur á milli skyldunnar og vemdun fjölskyldunnar. Það sem gerði þessa þætti einstaka var að atburðarásin gerist á einum sól- arhring og var klukkutími tekinn fyrir í hverjum þætti. Þetta er áhætta sem tekin var og hún borgaði sig. Þáttaröð- in var verðlaunuð í bak og fyrir og hún varð til þess að Kiefer Sutherland, sem hafði verið á niðurleið, komst aftur í röð vinsælla leikara. Á sunnudaginn hefst leikurinn aftur þegar önnur syrpa verður tekin til sýn- ingar. Uppbyggingin er eins og at- burðarásin tengist nokkrum persónum sem voru til staðar í þáttunum í fyrra. Þegar fyrsti þátturinn var frumsýndur í fyrra gerðist það í fýrsta skipti í sögu sjónvarpsstöðvanna í Bandaríkjunum að engar auglýsingar voru settar inn í þáttinn. Leikkonurnar María, Charlotta, Krístbjörg og Birita.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.