Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2003, Blaðsíða 25
MMPRRr 'WBmwmaP 'llillMlWW'Htf1
25
FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003_________
IDV Tilvera
Nastassja Kinski
44 ára
Þýska leikkonan
Nastassja Kinski á afmæli í
dag. Nastassja er dóttir leik-
arans Klaus Kinski og lék
fyrst i kvikmynd 15 ára
gömul. Alþjóölega frægð hlaut hún i
kvikmynd Romans Polanskis, Tess (1979).
Feriil hennar hefur veriö skrykkjóttur.
Hún hefur af og til leikið í úrvalsmynd-
um á borð við Paris, Texas og Cat People,
en slæmu myndirnar eru fleiri. í einkalif-
inu hefur ýmislegt gengið á. Þótti hún
baldin i æsku og sat m.a. í fangelsi í
fmun daga þegar hún var 18 ára. í dag
styður hún Rauða krossinn dyggilega. í
nokkur ár bjó hún með tónlistarmannin-
um Quincy Jones og eiga þau eina dóttur.
i Tiuuiqmn u
-fcí
Gildir fyrir laugardaginn 25. janúar
Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.):
. Þú skalt gæta þín að
sökkva þér ekki í of
mikla vinnu. Taktu
þér hlé og vinnan
géiigur betur á eftir. Kvöldið
verður með ánægjulegasta móti.
Fiskarnir (19. febr.-70. marsk
Þú gætir lent í
S idii vandræðum með að
fá fólk til að hjálpa
þér við verkefni sem
þú virinur af því að allir virðast
vera uppteknir.
Hrúturinn (21. mars-19. anrill:
|\Þú ert of viðkvæmur
JPfyrir gagmýni og ættir
re>rna ta^a *lenni
betur. Ferðalag gæti
valdið vonbrigðum.
Happatölur þínar eru 8, 26 og 27.
Nautið (20. april-20. maíl:
/ Ef þú ert sjálfsöruggur
\ . í fasi áttu auðveldar
með að fá aðra til að
hjálpa þér við að
framkvæma hugmyndir þínar.
Happatölur þinar eru 12, 29 og 30.
Tvíburarnir (21. maí-2i. iúníi
Fyrri helmingur dags-
' ins verður rólegur en
eitthvað óvænt bíður
þín í kvöld, líklega í
sambándi við féiagslifið.
Happatölur þínar eru 3, 4 og 15.
Krabbinn (??.. ióní-??. iúiíi:
k Þér gengur vel að
i einbeita þér í
vinnunni í dag og
fá fólk á þitt band en
i gengur ekki sem skyldi.
Farðu varlega í viðskiptum.
Liónið (23. iúlT- 22. áeústl:
Leiddu hugann að
1 sjálfum þér í dag og
sjáðu hvort ekki er
eitthvað sem
mætti betur fara.
Happatölur þínar eru 8, 19 og 35.
Mevian (23. ágúst-22. sept.l:
a- Þér bjóðast óvenjulega
mörg tækifæri í dag í
vinnunni en það krefst
t f þess hins vegar að þú
leggir töluvert á þig og
vinnir mikið.
Vogin (23. seot.-23. okt.):
J Varaðu þig á þeim sem
sýna vinum þínum
V f óvirðingu. Líklegt er
r f að þú hittir fólk í dag
sem kemur þannig fram.
Happatölur þínar eru 2, 8 og 34.
Sporðdreklnn (24. okt.-?i. nóv.i:
Atburður sem gerðist
fyrir nokkru gæti
phaft áhrif á daginn.
Þú þarft að vera
viðbúmn breyttri dagskrá.
Happatölur þínar eru 16, 29 og 31.
Bogmaðurinn (22. nóv.-2i. des.l:
EÞú verður fyrir
) einhverri truflun í
dag og hiin raskar
deginum aðeins. Það
er aðeins tímabundið og þú þarft
ekki að hafa neinar áhyggjur.
Steingeitln 122. des.-i9. ian.c
^ Fjármál fjölskyldunn-
j JrM ar fara batnandi. Ef
Iþér finnst þú þurfa á
hjálp að halda skaltu
ekki hika við að biðja um hana.
Happatölur þinar eru 2, 19 og 26.
Wlla helgina
fyiyndhpnd/PVP
Allir íþráttaviáburðir í beinni á risaskjám. Pool. Enður matseðill.
Tökum að okkur hópa, starfsmannafélng. Stórt og gott dansgólf.
þriöja sinnið
Skilnaður Jennifer Lopez og
Chris Judd mun endanlega ganga í
gegn um helgina. Þar með verður
henni frjálst að giftast í þriðja
sinnið strax á mánudag, en hún ku
vera í tygjum við leikarann Ben
Affleck, sem er víst í giftingarhug.
Lopez og Judd giftust árið 2001 en
sóttu um skilnað fyrir 7 mánuðum.
Talið er að hann fái í sinn hlut um
15 milljónir dollara (1,2 milljarða)
vegna skilnaðarins. Lopez var áður
gift Ojani Noa en þau skildu árið
1997.
Jennifer og Ben kynntust þegar
þau unnu saman að kvikmynd á
síðasta ári og hafa tilkynnt að þau
vilji giftast við fyrsta tækifæri.
7. AÓ í Hvaleyrarskóla í heimsókn á DV
Agnes Ósk, Alexander, Arnór Ingi, Benedikt Rafn, Björn Ingi, Davíö, Gezim,
Heiörún Guöný, Mexhide, Ragnar Þór, Sandra Dís, Sandra María, Sigríöur,
Guöný, Sigþór, Stefán Freyr, Steinþór, Sveinn Darri, Sveinn Snær, Tinna,
Björk, Ylfur Rán, Ævar ísak. Kennari þekkjarins er Bryndís Jöna.
Ozzy í
Pepsi-aug-
lýsingu
Enn og aftur hefur gosdrykkja-
framleiðandinn Pepsi ráðið til sín
ógrynni frægra stjarna til að aug-
lýsa drykkinn góða. Beðið er með
mikiili óþreyju eftir einni slíkri sem
á að frumsýna í einu auglýsinga-
hléa'úrslitaleiks bandaríska ruðn-
ingstímabilsins, Superbowl.
Þar er Osboume-fjölskyldan í að-
alhlutverki en auglýsingin byrjar á
því að böm hans, Jack og Kelly,
„fjarlægja“ andlit sín og reynast
þau í raun vera fyrrum bamastjöm-
umar Donny og Marie Osmond.. Við
það vaknar Ozzy upp af vondum
draumi og er honum mikið niðri
fyrir af martröðinni. Hann kallar á
konu sína, Sharon, á sinn einstaka
hátt, þegar hann áttar sig á því að
konan við hliðin á honum í rúminu
er í raun Florence Henerson, sú er
lék móðurina Carol í sjónvarpsþátt-
unum um Brady-fjölskylduna.
The Man from Elysian Fiefds
★★★
Rithöfundur í
aukastarfi
í The Man from Elysian Fields
leikur Andy Garcia metnaðarfullan
rithöfund, Byron Tiller, sem hefur
ekki, haft erindi sem
erfiði enn sem komið
er. í upphafsatriðinu
sjáum við hann í bóka-
búð, þar sem útsölu-
bækumar em. Að
sjálfsögðu er eina
skáldsaga hans á þess-
um stað. Næst sjáum
við hann með handrit
að nýrri skáldsögu,
sem fjallar um farand-
verkamenn, vera hafn-
að af útgefanda. Hann
þorir ekki að segja eig-
inkonu sinni frá þess-
um móttökum og telur
henni trú um að sagan
verði gefin út og hún
sé jafnvel á lista yfir hugsanlegar
„Bækur mánaðarins".
í millitíðinni hittir Tiller Luther
Fox (Mick Jagger), sem rekur fylgd-
arsveinaþjónustuna Elysian Fields.
Hann býður honum starf sem Tiller
þiggur með semingi. Fyrsta verk
hans er að ferðast með glæsilegri
eiginkonu rithöfundar sem Tiller
dýrkar. Sá er að dauða kominn og
eiginkonan skemmtir sér með hans
vilja. Leiðir þetta til þess að Tiller
fer að aðstoða rithöfundinn við að
skrifa síðustu bókina og heldur að
hann sé kominn á græna grein. Sú
grein er þó meira en brothætt eins
og kemur í ljós.
The Man from Elysians Fields er
innihaldsrík og góð kvikmynd þar
sem mjó lína er á milli hins góða og
hins illa. Það er helst að hún missi
dampinn í lokin, þegar Tiller les
væminn texta úr nýj-
ustu bók sinni. Leik-
arar eru finir, með
Andy Garcia í broddi
fylkingar. Hefur hann
næma tilfinningu fyr-
ir rithöfundinum, sem
veit að hann á betra
skilið en fellur svo
auðveldlega í gildrur
sem settar eru fyrir
hann. Þá er leikur
Mick Jagger yfirveg-
aður og gaman að sjá
hann í „herrafotum".
The Man from
Elysian Fields líður
frekar hægt og stund-
um er erfitt að fá tíma-
skyn í atburðarásina, en þegar á
heildina er litið þá er myndin
áhrifamikil lýsing á fólki sem vill
vel en lendir í atburðarás sem það
ræður ekki við. -HK
Útgefandi: Bergvík. Gefiö út á myndbandi
og DVD-diski. Leikstjóri: George Hicken-
looper. Kanada, 2001. Lengd: 106 mín.
Bönnuð börnum innan 16 ára. Leikarar:
Andy Garcia, Mick Jagger, Julianna
Margulies, James Coburn og Olivia Willi-
ams.
The Business of Strangers
★★★ |
Einnar nætur
gaman
The Business of
Strangers gerist á rúm-
um sólarhring og eru að-
alpersónumar tvær kon-
ur sem hafa ekki farið
vel út úr samskiptum
sínum við karlmenn.
Svo má allavega halda í
fyrstu. Dæmið er nú
samt flóknara en það,
eins og áhorfendur fá að
sjá þegar líður á mynd-
ina. Báðar vinna þær hjá
sama fyrirtæki, önnur í
efsta flokki, hin mun
neðar.
Þegar kynning sem
Julie (Stockhard Chann-
ing) á að stýra mis-
heppnast þá rekur hún Paulu (Julia
Styles) á staðnum, þar sem hún átti að
vera henni til aðstoðar en kom of seint.
Julie er yfir sig stressuð þar sem hún
finnur á sér að það eigi að reka hana.
Hún er þanin á taugum og þegar dæm-
ið snýst við og hún er ráðin aðalfor-
stjóri fyrirtækisins þá nær hún sér
ekki niður - getur ekki sýnt þakklæti
sem hún þó vill gera. Á meðan hafði
hin burtrekna Paula orðið strandagióp-
ur. Þær hittast á bamum á flugvallar-
hótelinu og kynnast. Julie hættir við
að reka Paulu og þær detta í það. Fóm-
arlamb þeirra er karlmaður á barnum
sem Julie þekkir og Paula segir að sé
nauðgari. Þær eru fullar og árásar-
gjamar og taka til sinna ráða. Ekki er
samt allt sem sýnist og
áður en nóttin er úti eru
spurningarnar orðnar
fleiri en svörin.
The Business of
Strangers er sterkt sál-
fræðidrama og um leið
spennandi. Það er kyn-
slóðabil á milli Stock-
hard Channing og Julie
Styles en þær ná vel
saman og eru magn-
aðastar þegar þær era
komnar í hlutverk
hefndarengla. Handritið
er einstaklega vel skrif-
að og þó sviðið sé þröngt
þá em samtölin það
krassandi að ekki er
hægt annað en fylgja konunum eftir af
athygli i atburðarás sem í upphafi átti
að vera prakkarastrik. -HK
Útgefandl: Bergvík. Gefiö út á myndbandi
og DVD-diski. Leikstjóri: Patrick Stettner.
Bandaríkin 2001. Lengd: 84 mín. Bönn-
uö börnum innan 16 ára. Leikarar:
Stockhard Channing, Julia Stiles og
Frederick Weller.