Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2003, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2003, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 HANDBOLTI ) H CEDfll Hornamaðurinn snjalli Slefan Kretzschmar skorar hér eitt af átta mörkum sinum gegn Grænlending- um í gær en hann var markahæstur í þýska liöinu. DV-mynd Hilmar Pór Aðrir leikir á heimsmeistaramótinu í Portúgal í gær: Danir með fullt hús - unnu Alsír eftir vandræöi í fyrri hálíleik og eru með góða stöðu í D-riðli Stefan Kretzschmar var marka- hæstur í þýska liöinu með 8 mörk, Markus Baur gerði 7 mörk og Christ- ian Schwarzer skoraði 6 mörk fyrir Þjóðverja. -ósk/JKS Heiner Brand, þjálfari þýska landsliðsins, var rólegur og yfirvegaður á bekknum í gær þegar hans menn rúlluðu yfir Grænlendinga, 34-20, f þriðju umferð riðlakeppninnar. DV-mynd Hilmar Pór Danir lentu í miklum vandræðum með Alsírbúa í D-riðli í gær. Þeir voru undir, 13-9, í hálfleik en geta þakkað markverði sínum, Kasper Hvidt, sigurinn, 22-19, því hann lok- aði danska markinu í síðari háMeik og lagði grunninn að sigri sinna manna. Lars Krogh Jeppesen og Lars Christiansen voru markahæstir hjá Dönum með fmtm mörk hvor en Tou- ftk Saadaoui skoraði fimm mörk fyr- ir Alsír. „Þetta var stríð í fyrri hálfleik. Leikmenn Alsírs nánast gengu frá okkur en það verður að segjast eins og er að við vorum ekki nógu harðir. í seinni hálfleik tókum við betur á móti þeim og lokuðum vörninni," sagði Torben Winther, þjáifari Dana, eftir leikinn en Danir fengu aðeins á sig sex mörk í síðari hálfleik og sitja nú á toppi D-riðils með fullt hús stiga eftir þrjá leiki. Svíar náðu að komast yfir von- brigði tapsins gegn Slóvenum á þriðjudaginn með því að leggja Bras- ilíumenn að velli, 29-21, í gær. Leik- ur sænska liðsins var þó langt frá þvi að vera sannfærandi, sérstaklega í fyrri hálfleik. Magnus Wislander og Johan Pettersson voru markahæstir í sænska liðinu með sex mörk en Bruno Souza skoraði mest fyrir Bras- ilíu, átta mörk. Frakkar eru búnir að vera mjög sannfærandi það sem af er mótinu og þeir rúiluðu hreinlega yflr spútniklið Argentínumanna sem hafði unnið Króatíu og gert jafntefli við Rússa í tveimur fyrstu leikjunum. Lokátölur urðu 35-18, Frökkum í vU, og eru þeir eina taplausa liðið í C-riðli. Cedric Burdet skoraði sex mörk fyrir Frakka og Bertrand Giile og Anquet- il skoruðu fimm mörk hvor. Lítið gengur hjá Rússum en þeir töpuðu óvænt fyrir Króötum, 28-26, eftir að hafa gert jafntefli gegn Argentínumönnum á þriðjudaginn. Þjóðverjar sigruðu Grænlendinga, 34-20, í B-riðlinum á heimsmeistara- mótinu í handknattleik í Viseu í Portúgal í gær. Það tók þýska liðið um 15 mínútur að hrista Grænlend- inga af sér en í stöðunni 10-5 gerðu Þjóðverjar flmm mörk og Grænlend- ingar ógnuðu þeim aldrei eftir það. Þjóðverjar leiddu í hálfleik með níu mörkum, 20-11. Þýska liðið lék ágætlega í fyrri háifleik en í síðari hálfleik var spila- mennska þeirra ekki eins heitt en Grænlendingar léku þá góða vörn og markvörður þeirra Niels Davidsen varði mjög vel á köflum. Grænlend- ingar mega eiga það að þeir leika ágætan handbolta en breiddin i lið- inu er alls ekki nægilega mikil. Jac- ob Larsen og Hans Motzfeldt bera lið- ið uppi en aðrir standa þeim töluvert að baki. Línumaðurinn þeirra, Rasm- us Larsen, er þó drjúgur og sterkur í vörninni. Larsen skoraði 8 mörk fyr- ir Grænland og Motzfeldt 7 mörk. Heiner Brand, landsliðsþjálfari Þjóðverja: Tilbúnir í baráttuna - segist eiga von á hörkuleik gegn íslendingum á sunnudaginn „Þetta var ekkert auðvelt og Grænlendingar sýndu að þeir vaxa með hverri raun. Það er ekki létt að spila gegn andstæðingum sem fyrir fram eru taldir töluvert veikari. Það er gott að leikimir við veiku þjóðimar em að baki en nú blasa við tveir leikir um helgina. Þar verða and- stæðingamir sterkir og helgin á eftir að verða mjög erfið. Við ber- um mikla viröingu fyrir Portúgöl- um og íslendingum og nú reynir á styrk okkar,” sagði Heiner Brand, landsliðsþjálfari Þýskaiands, þegar DV tókst að króa hann af eftir leik- inn við Grænlendinga. Pressa á Brand Það er nokkur pressa á Heiner Brand í þessari kepppni en Þjóð- verjum er af mörgum spáð heims- meistaratitli sem þeir unnu síöast á heimsmeistarakeppninni í Dan- mörku 1978. Undir stjóm Brands hefur þýska landsliðið náð að rétta heldur betur úr kútnum og liðið var hársbreidd frá því að vinna Evrópumeistaratitilinn í fyrra þeg- ar þeir lutu í lægra haldi fyrir Svi- um í framlengdum úrslitaleik í Stokkhólmi. Núna finnst þeim tími kominn tii að lið þeirra komi heim meö sig- urverðlaun en nokkurrar bjartsýni gætti heimafyrir áður en keppni hófst og ekki minnkaði hún þegar Þjóðverjar gjörsigruðu Rússa í Dortmund í síðasta leik sínum fyr- ir heimsmeistaramótið. Komiö aö alvörunni Hvernig hefur þér litist á keppn- ina í B-riðlinum en þar eru tvö lið áberandi lökust? „Eins og ég sagði er gott að þess- um leikjum við lakari andstæðinga er lokið. Núna er komið að alvör- unni og mínir menn eru tilbúnir í baráttuna um heigina gegn Portú- gölum og íslendingum. Það sem ég er búinn að sjá finnst mér við og íslenska liöið vera með sterkustu liðin í riðlinum og Portúgalar koma þar skammt á eftir. Ég man enn vel eftir leiknum við íslend- inga á Evrópumótinu í Svíþjóð þar sem við urðum að játa okkur sigr- aða gegn sterku íslensku liði. Ég held að við séum sterkari í dag en þá og íslendingar lika svo ég á von á hörkuleik gegn íslendingum á sunnudag.” Bjartsýnn að eðlisfari Ertu bjartsýnn á gott gengi þýska liösins í keppninni? „Já, ég er það. Ég hef ailtaf ver- ið bjartsýnismaður og ætla að halda því áfram,” sagði Heiner Brand við blaðamann DV-Sports og brosti í kampinn. -JKS Eigum góða möguleika á að komast áfram Sören Hilderbrand, þjálfari Grænlendinga, sagðist eftir leikinn hafa verið mjög ánægður með baráttuna í liðinu og liðið verði betra með hverjum leik. „Við vissum fyrir fram að þetta yrði erfiður leikur og það gegn einu besta liði heims í handknattleik. Ég hlakka tU næstu tveggja leikja en við stefnum að sigri i þeim báðum. Mér sýnist, eftir að hafa séð Katar og Ástrala, að við eigum góða möguleika að komast upp úr riölinum," sagði Sören HUdebrand, þjálfari grænlenska liðsins, á blaðamannafundi eftir leikinn. -JKS ; ' ' HANDBOLT U 11/ COd 0 % Úrslit og stöður A-rlöill Marokkó Kúveit .. .... 22-25 Túnis-Pólland .... .... 22-24 Spánn-Júgóslavía . .... 22-20 Spánn 3 3 0 0 79-63 6 Júgóslavía 3 2 0 1 80-56 4 Túnis 3 2 0 1 79-69 4 Pólland 3 1 0 2 69-80 2 Kúveit 3 1 0 2 59-87 2 Marokkó 3 0 0 3 64-76 0 B-riðill Þýskaland-Grænland . .... 34-20 Katar-Ástralía . . . .... 28-23 Ísland-Portúgal . . . .... 29-28 Þýskaland 3 3 0 0 120-53 6 ísland 3 3 0 0 114-60 6 Portúgal 3 2 0 1 93-69 4 Katar 3 1 0 2 66-94 2 Grænland 3 0 0 3 56-98 0 Ástralía 3 0 0 3 54-129 0 C-riðill Rússland-Króatía . .... 26-28 Ungverjaland-Sádi-Arabía .... 36-25 Frakkland-Argentína . .... 35-18 Frakkland 3 3 0 0 94-65 6 Króatía 3 2 0 1 82-74 4 Rússland 3 1 1 2 83-84 3 Argentína 3 1 1 0 74-90 3 Ungverjal. 3 1 0 2 90-85 2 Sádi-Arabía 3 0 0 3 66-91 0 D-riöill Slóvenía-Egyptaland . .... 26-27 Svíþjóð Brasilía . .... 29-21 Danmörk-Alsir . . .... 22-19 Danmörk 3 3 0 0 83-67 6 Sviþjóð 3 2 0 1 83-73 4 Egyptaland 3 1 1 1 75-80 3 Alsír 3 0 2 1 66-69 2 Slóvenía 3 1 0 2 79-85 2 Brasilia 3 0 1 2 67-79 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.