Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2003, Síða 40
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
i hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003
Viðbótarlífeyrissparnaður
Allianz (&
- Loforð er loforð
Sími: 533 5040 - www.allianz.is
Margir fyrrum landsliðsmenn í handbolta komu saman á Ölveri í
gær til að fylgjast með beinni útsendingu á leik íslands og
Portúgals. Spennan var á stundum óbærileg fyrir þessa gömlu
harðjaxla og kalla þeir þó ekki allt ömmu sína. Valdimar Grímsson
situr varla kyrr í sætinu og Sigurður Sveinsson lifir sig inn í leikinn
eins og honum er einum lagið. En í lok leiksins gátu menn andað
léttar - eins marks sigur.
Á stærri myndinni ógnar Patrekur Jóhannesson en hann skoraði
tvö mörk í leiknum. Markahæstir voru hins vegar hornamennirnir
Guðjón Valur Sigurðsson og Einar Örn Jónsson með 14 mörk sem
þeir skiptu bróðurlega á milli sín. Blaðamenn DV-Sports segja Einar
Örn hafa verið besta mann íslenska ------------------
.jA j ■ LANDSLEIKURINN
nS' DV-SPORT BLS. 32-37
ÚTRÚLEG SPENNA
Uppsagnir í sveitarfélaginu Skagafirði:
SAKIR UM PÓLITÍSKA AÐFÖR
Sjálfstæöismenn og Vinstrihreyf-
ingin - grænt framboð mynda
meirihluta í bæjarstjóm sveitarfé-
lagsins Skagafjarðar. Á fundi bæjar-
stjórnar 14. janúar sl. samþykkti
meirihlutinn, m.a. í tengslum við af-
greiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið
2003 og breytingar.á skipuriti, að
segja upp þremur starfsmönnum í
spamaðarskyni en ráða þeirra í
stað aðra þrjá starfsmenn undir öðr-
um starfsheitum. Þessir starfsmenn
eru Guðbjörg Guðmundsdóttir
ferðamálafulltrúi, Ómar Bragi Stef-
ánsson, menningar- og æskulýðs-
fulltrúi, og kona hans María Björk
Ingvadóttir, forstöðumaður æsku-
lýðshúss.
Minnihlutinn brást hart við og í
bókun Snorra Styrkárssonar,
Skagafjarðarlista, segir m.a.:
„Undirritaður mótmælir harðlega
grófum vinnubrögðum meirihluta
sveitarstjómar og sveitarstjóra við
brottrekstur eða fyrirhugaðan brott-
rekstur 3ja starfsmanna sveitarfé-
lagsins, ferðamálafulltrúa, menn-
ingar-, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa
og forstöðumanns Friðar. í stað
þessara einstaklinga á að ráða
a.m.k. 3 nýja starfsmenn undir öðr-
um heitum."
Þrír fulltrúar framsóknarmanna
mótmæltu einnig harðlega Þeir
töldu enga hagræðingu hljótast af
þessum breytingum, frekar aukinn
kostnað. Því væri hér um klára póli-
tíska aðför að ræða þar sem meiri-
hluti sveitarstjórnar misbeitti valdi
sínu. Fulltrúi Skagafjarðarlista
studdi tillögu framsóknarmanna en
hún var síðan felld með 5 atkvæðum
gegn 4.
Bjami Maronsson, D-lista, segir
að þessi ummæli dæmi sig sjálf,
fram fari endurskoðun á starfsemi
sveitarfélagsins vegna erfiðs rekstr-
ar, m.a. mannahaldi. -GG
HÖGGDEYFAR
hagstæð verð
G^varahlutir
BÍIdshöföa 14 • Símt: 567-6744
gscarparts@centrum.ls
ÚTSALA
40% afsláttur
Sportvörugerðin hf.
Skipholti 5, s. 562-8383