Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Blaðsíða 13
28 MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 Patrekur Jóhannesson: Verðum að vera jákvæðir „Við náðum okkur alls ekki á strik í vamarleiknum í byrjun leiksins. Það vantaði fannst mér all- an baráttuanda en það átti síðan eftir að breytast til betri vegar í síð- ari háifleik. Við komumst vel inn í leikinn, komumst yfir, en fórum þá að gera mistök í sókninni. Þeir refsuðu okkur með hraðaupphlaup- um en miðað við hvemig þetta var í lokin imnu þeir okkur með allt og stórum mun. Það sem ég var hvað ánægðastur með var að sjá hvað menn bættu sig í vöminni í síðari hálfleik og menn verða að halda áfram á því sviði. Það er sárt að tapa þessu því við voram ekki langt frá því að vinna. Það var margt gott í þessu en auðvitað margt sem mátti betur fara. Við fómm nokkrum sinnum illa með tækifær- in,” sagði Patrekur Jóhannesson við DV eftir leikinn. Patrekur sagöi að það þýddi ekk- ert að hengja haus en eftir þetta mætum við bara toppþjóðum. Við vitum alveg hvað Spánverjamir geta og Pólverjar eru sterkir eins og við sáum í mótinu I Danmörku fyr- ir heimsmeistaramótið. Við þurfum að vinna þessa leiki til að koma okkur í úrslit. Við fáum smá hvíld núna en ég væri samt alveg til í að byrja strax á næsta mótherja. Við verðum að vera jákvæðir enda komnir áfram með tvö stig,” sagði Patrekur Jóhannesson. . -JKS Hér þakka þeir Magdeburgarfélagar, Ólafur Stefánsson og Kretzchmar, hvor öðrum í leikslok. DV-mynd Hilmar Þór Við ætlum i undanúrslit + 29 S MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 HANDBOLTI J \ff KE3 0 C' „Við misstum þá fram úr okkur og það kostaði gríðarlega orku að komast aftur inn í leikinn. Við náð- um forystunni og þeir misstu að auki mann út af í fjórar mínútur. í öllu falli hefðum við átt að taka leikinn í okkar hendur og ég get ekki almenilega útskýrt af hveiju við misstum þetta úr höndum okk- ar. Þetta var orðið mjög erfitt þegar Þjóðverjar náðu forystimni á ný og svo fór sem fór. Þetta var svekkj- andi því við vorum á góðri leið með að hafa þetta en misstum það nið- ur,” sagði Einar Öm Jónsson eftir leikinn. Einar Öm sagði að um hreina sýningu hefði verið að ræða í fyrri hálfleik og hraðinn verið óskapleg- ur. í fyrri hálfleik hefði vömin ekki verið nægilega sterk og skyttur Þjóðverja fengið alltof mikið rými á miðjunni. Einar sagði að tekist hefði að koma í veg fyrir það í síð- ari hálfleik og það ekki sist verið að þakka Siguröi Bjarnasyni sem hefði átt frábæra innkomu í vömina. „Ég veit ekki hvort við vorum hreinlega værukærir þegar við komumst yfir sex minútum fyrir leikslok. Við náðum einhvem veginn að missa það niður á fáran- legan hátt. Mér líst vel á að taka á móti Pólveijum í næsta leik en við unnum sigur á þeim í síðasta leik fyrir ekki svo löngu. Það skal eng- inn velkjast í vafa um að þeir hafa sterku liði á að skipa og frábæra leikmenn í öllum stöðum. Við erum ömggir áfram í 8-liða úrslitin ef við vinnum Pólland en ef við ætlum okkur i imdanúrslitin þá verðum við að taka Spánverjana líka. Við eigum harma að hefna frá Evrópu- mótinu í fyrra þegar þeir jöfnuðu gegn okkur á elleftu stirndu. Við spáum samt ekkert í þann leik fyrr en eftir leikinn á móti Pólverjum. Við rísum upp á nýjan leik en það er engin skömm að tapa fyrir Þjóð- veijum þó að við höfum rétt þeim sigurinn i lokin. Það er við okkur sjálfa að sakast í þeim efnum,” sagði Einar örn Jónsson. -JKS Einar Örn Jónsson svekktur í leikslok: Við rísum upp á ný - eigum harma að hefna gegn Spánverjum fimm marka tap 1 lokm of stórt miðað við gang leiksms Islenska landsliðið i handknattleik fékk tækifærið til að leggja geysi- sterkt lið Þjóðverja að velli í úrslita- leik þjóðanna í B-riðli á heimsmeist- aramótinu í Viseu í Portúgal í gær. Tvívegis i síðari hálfleik náði ís- lenska liðiö forystunni og virtist þá vera að taka leikinn í sínar hendur en Þjóðverjar létu ekki bugast, náðu yfirhendinni á ný og sirgruðu, 34-29, sem er í raun of stór munur miðið við hvemig leikurinn þróaðist. Þessi leikur var annars mjög kaflaskiptur, Þjóðveijar betri í fyrri háifleik en ís- lendingum tókst með miklu harð- fylgi að vinna upp fimm marka for- skot Þjóðverja. Þrátt fyrir þennan ósigur fer íslenska liðið með tvö stig í farteskinu í milliriðilinn og allt er opið í keppninni. Fyrri hálfleikur var hraðasti leik- ur sem lengi hefur farið fram og seg- ir sína sögu um hvemig nútíma handbolti er orðinn. Þjóðveijar keyrðu upp mikinn hraða í byrjun og héldu honum út allan háifleikinn. Sex mörk voru skoruð eftir rúmlega tveggja mínútna leik og minnti leik- urinn á borðtennisleik svo mikill var hraðinn. íslendingar reyndu hvað þeir gátu til að svara þessum hraða og tókst það ótrúlega vel. Sóknarleikurinn varð beittari eftir því sem á hálíleikinn leið og náði ís- lenska liðið að jafna leikinnn, 10-10, eftir að þýska liðið hafði náð fjög- urra marka forystu. Þá kom ráðleysi í sóknina og eins vann vömin ekki sina vinnu. Á þessum tíma var liðið að reyna erfið skot og ekki bætti úr skák að Sigfús Sigurðsson fékk tveggja mín- útna brottvísun og á meðan skoruðu Þjóðveijar þijú mörk. Ólafur Stef- ánsson var klipptur út úr sóknar- leiknum og var þá það tekið til bragðs að setja hann á miðjuna og Heiðmar Felxison í stöðuna hægra megin. íslenska liðinu tókst ekki að minnka muninn fyrir leikhlé og í því leiddu Þjóðyeijár með fjórum mörk- um, 20-16. íslenska liðið fór illa að ráði sínu og dauðafæri fóm í súginn auk tveggja vítakasta. Þetta taldi þegar upp var staðið í háifleiknum. Auk þess mikla hraða sem var í fyrri hálfleik, var leikurinn lengstum vel leikinn og höfðu menn á orði að þetta hefði verið einn besti háifleik- ur sem leikinn hefði verið í keppn- inni. Það var ljóst strax í upphafi síðari hálfleiks að menn höfðu ekki úthald í að halda sama hraða og áður. Ólaf- ur Stefánsson gerði fyrsta markið í síðari hálfleik úr vítakasti en enn á ný náðu Þjóðverja fimm marka for- ystu. Sigfús Sigurðsson var kominn á bekkinn eftir að hafa meiðst í and- liti undir lok fyrri hálfleiks og útlitiö ekki gott. Sigurður Bjamason var kallaður til í vamarleikinn og smám saman náðist upp frábær vamarleik- ur sem Þjóðverjar áttu ekki svar við. íslendingar söxuðu jafnt og þétt á forskot Þjóðverja, Gústaf Bjarnason jafnaði leikinn, 22-22, með marki úr hominu og tónninn var gefmn. Sigurður Bjamason kom íslend- ingum yfir, 24-23, í fyrsta skipti í leiknum, og ráðleysi var komið upp í leik Þjóðveija. Állt virtist leika í lyndi og undirritaður fékk á tilfinn- inguna að íslenska liðið væri aö taka leikinn í sínar hendur. Þjóðveijar báðu um leikhlé til að ráða ráðum sínum en þjálfara liðsins var ekkert farið að lítast á blikuna. Þjóðverjar náðu aftur forystunni, 26-27, en Patrekur Jóhannesson jafnaði leik- inn, 28-28, og allt var á suðupunkti. Síðan kom að vendipunktinum í leiknum sem hefði átt að nýtast ís- lendingum því að þá urðu Þjóðverjar einum færri í íjórar mínútur. Sókn- arleikur íslenska liösins var ráðleys- islegur, Þjóðveijar brunuðu í hvert hraðaupphlaupið af öðm og sigldu fyrir vikið fram úr og tryggðu sér ör- uggan sigur. Það er í raun synd hvernig leikur- inn rann íslendingum úr greipum. Það voru þeir sem höfðu tekið völd- in en höndluðu þau ekki. Því miður því það var svo sannarlega lag til að leggja Þjóðveijana að velli og vinna um leið sigur í riðlinum. íslenska liðið getur dregið mikinn lærdóm af þessum leik sem ætti siðan að nýtast í þeim slag sem fram undan er í milliriðlinum. Það þarf að fara yfir sóknarleikinn og vömina er alltaf hægt að bæta. Það er engum blöðum um það að fletta að íslenska liðiö býr yfir mikl- um styrk og Þjóðveijar, sem margir spá heimsmeistaratitli, þurftu að hafa sig alla við. Þessi leikur var góð auglýsing fyrir handboltann og þeir verða eflaust margir þjálfaramir sem eiga eftir að kryfja þennan leik til mergjar. Þrátt fyrir stranga gæslu náði Ólafur Stefánsson að rifa sig lausan en hann gerði nokkur mistök í sókninni, nokkuð sem sjaldan sést til hans. Paterkur Jóhannesson átti ágætan leik, bæði í sókn og vöm. Guömundur Hrafnkelsson varði markið af stakri prýði en hann var í markinu allan tímann. Það var óheppilegt hve fá mörk komu úr homunum en aðeins þrjú komu af því svæði. Guðjón Valur Sigurðsson komst ekki á blað og er langt síðan það gerðist síðast. Það var ánægju- legt að sjá hvað Sigurður Bjamason kom sterkur inn og þá sérstaklega í vamarleiknum þegar Sigfúsar naut ekki við. Nú hefst ný keppni og er ljóst að hún verður spennandi. Ef tekið er mið af mótherjunum á ís- lenska liðið fulla möguleika og ef rétt verður á spilum haldið getur allt gerst. -JKS »Eg hef fulla trú á okkur“ - segir Sigurður Bjarnason sem lék vel í vörninni „Það var gríðarlega erfitt að leika gegn þessu þýska liði en markvörð- ur þeirra varði meira en búist hafði verið við. Við misstum einbeiting- una þegar við vorum einum fleiri í flórar mínútur. Liðið náði að leika vel á löngum köflum en við getum gert mun betur en þetta. Við þurf- um að ná upp betri einbeitingu og halda áfram á okkar braut. Auðvit- að er svekkjandi að þetta skyldi fara með þessum hætti en við því er ekk- ert að gera, þetta er búið og gert,“ sagöi Sigurður Bjamason við DV eftir leikinn. -Þið virtust á tímabili vera að taka leikinn í ykkar hendur? „Já, við náðum frábærum kafla í síðari hálfleik þar sem þýska liðið var alveg ráðþrota. Mér fannst dóm- aramir nokkuð hliðhollir þeim á tímapunkti þegar þeir komust aftur inn í leikinn, sem maður getur ekk- ert tuðað yfir. Það vantaöi herslumuninn og meiri sigurvilja í lokin. Það var líka óheppni í þessu en það má alltaf bæta sig. Við þurf- um samt ekki að vera óánægðir, þessu leikur er búinn og nú er bara að horfa til næstu verkefna. Ég hef fulla trú á því að okkur eigi eftir að ganga vel í milliriðlinum og ná langt í keppninni.” -- Hvemig list þér á Spánverja og Pólverja sem næstu mótherja? „Það skiptir engu núna á móti hverjum við lendum því allir leikir sem eftir em í keppninni verða erf- iðir. Við þurfum að halda okkar striki og spýta í lófana,” sagði Sig- urður Bjamason. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.