Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Blaðsíða 18
MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003
34
Sport
Staðan:
Keflavík 14 13 1 1117-721 26
Grindavík 14 7 7 988-1032 14
Njarðvík 14 7 7 925-978 14
KR 13 6 7 774-836 12
Haukar 13 6 7 809-938 10
Is 13 3 10 747-855 6
Næstu leikir:
Njarðvík-ÍS.........29. jan., kl. 20.
KR-Keflavík...........l.feb., kl. 16.
Haukar-Grindavík ... 1. feb., kl. 17.
KR-Njarövík........10. feb, kl. 19.15
Grindavík-Keflavik 13. feb., kl. 19.15.
Haukar-ÍS.........13. feb., kl. 19.15.
Keflavík-ÍS ......16. feb., kl. 19.15
KR-Grindavík .... 17. feb., kl. 19.15.
Njarðvík-Haukar ... 19. feb., kl. 20.
Haukar-KR...........22. feb., kl. 17.
Keflavík-Njarðvík ... 23. feb., kl. 16.
KORFUBOLTI J P -Æt
G3BA £ Mk
Úrslit á fostudag:
LA Lakers-New Jersey . . . .83-89
O'Neal 27 (13 frák.), Fisher 22 (5
stoðs.), Bryant 11 (4 af 14 í skotum) -
Martin 18, Kittles 17, Jefferson 12
Utah-San Antonio...........90-91
Malone 18 (10 frák.), Cheaney 16,
Harpring 14 - Duncan 29 (17 frák.),
Parker 13, Bowen 13
Houston-Detroit ...........74-98
Francis 16, Mobley 14, Posey 12 -
Robinson 20, Hamilton 18, William-
son 18 (6 frák.)
New Orleans-Portland.......96-97
Wesley 28, Brown 18 (9 frák.),
Magloire 13 (10 frák.) - Anderson 27,
Wells 16, Randolph 15 (10 frák.)
Chicago-Washington........104-97
Fizer 18, Marshall 16 (13 frák.), Robin-
son 15 - Stackhouse 23 (10 stoðs.),
Laettner 21, Jordan 11
Minnesota-LA Ciippers .. . .88-85
Szczerbiak 18, Nesterovic 14 (11
frák.), Garnett 12 - Brand 20 (12
frák.), Jaric 19, Richardson 15
Atlanta-Sacramento.......115-104
Robinson 29 (7 frák.), Terry 23 (13
stoðs.), Mohammed 16 - Webber 32 (13
frák.), Stojakovic 24, Bibby 18
Boston-Denver .............77-58
Pierce 45 (10 frák.), Williams 11 -
White 11, Harvey 10, Blount 7
Indiana-Seattle............93-80
O'Neal 14 (10 frák.), Artest 14, Mercer
14 - Payton 18, Mason 17, Lewis 13
Orlando-Phoenix..........107-110
McGrady 33 (11 stoðs.), Kemp 22, Mill-
er 19 (11 frák.) - Marion 29, Johnson
27 (10 frák.), Marbury 22
New York-DaUas............90-101
SpreweU 21, Houston 14, Eisley 14 (8
stoðs.) - Nowitzki 30 (9 frák.), Finley
20, Van Exel 17
Úrslit laugardag:
Golden State-Utah.........108-95
Arenas 27 (5 frák., 9 stoðs.), Jamison
26, Richardson 15 (6 frák., 6 stoðs.) -
Malone 20 (7 frák., 6 stoðs.), Harpring
20 (6 frák.), Cheaney 12
San Antonio-Detroit ......108-76
Duncan 22 (11 frák., 10 af 18 í skot-
um), Jackson 20 (8 frák.), Rose 18 -
Hamiiton 17, Wiiiiamson 15, Barry 12
MUwaukee-Denver ...........88-75
Cassell 26 (8 frák., 4 stoðs.), AUen 21
(6 frák.), Redd 18 - Howard 15, Har-
vey 15 (7 frák., 4 þriggja stiga), HU-
ario 14 (8 frák.)
Memphis-Seattie............83-95
Gasol 25 (10 frák.), Wright 14 (12
frák.), Watson 11 - Radmanovic 29 (8
frák.), Lewis 22 (10 frák.), Payton 18 (5
frák., 6 stoðs.)
Cleveland-Atlanta........101-102
Ugauskas 19 (8 frák.), Parker 17, Dav-
is 16 (9 frák.) - Robinson 27 (9 frák.),
Abdur-Rahim 25 (12 frák.), Terry 13
(12 stoös.)
Washington-Minnesota . . . .89-97
Stackhouse 21, Hughes 18 (6 frák, 4
stoðs.), Jordan 17 (8 frák., 5 stoðs.) -
GUl 19 (8 af 12 í skotum), Gamett 17
(10 frák, 6 stoðs.), Nesterovic 13 (6
frák.)
Miami-PhUadelphia..........91-97
Jones 26 (6 stoðs.), Butler 22, AUen 10
(5 af 6 í skotum) - Van Hom 26 (6
frák.), Iverson 25 (7 frák., 5 stoðs.),
Snow 16
IS tók á móti KR í 1. deild kvenna í gærkvöld:
Liðsheildin
- skóp sigurinn hjá KR-stúlkum og skilaði dýrmætum stigum
KR lagði ÍS í 1. deild kvenna i gær-
kvöld, 65-77, í íþróttahúsi Kennara-
háskólans. Með sigrinum eru þær
komnar með 14 stig eins og Grinda-
vík og Njarðvík. Þessi lið berjast hat-
ramlega um annað sætið í deildinni
og þar með heimaleikjarétt í fyrstu
umferð úrslitakeppnirmar.
Það voru leikmenn ÍS sem byrjuðu
betur í leiknum. Þær léku svæðis-
vöm í fyrsta fjórðungi og keyrðu upp
hraðann. Þaö skilaði þeim níu stiga
forystu eftir fjórðunginn.
í öðrum fjórðungi snera KR-stúlk-
ur við blaðinu og varnarleikur þeirra
varð mun betri. Þegar gengið var til
búningsklefa í hálfleik hafði þeim
tekist að minka muninn niður í fimm
stig.
Stúlkurnar í KR komu svo gríðar-
lega ákveðnar til leiks í síðari hálf-
leik. Fljótlega voru þær komnar yfir
í leiknum og létu þá forystu ekki af
hendi það sem eftir var.
Sterkur varnarleikur ásamt stór-
leik Jessicu Stomski í sókn í fjórða
fjórðungi skilaði KR þessum sigri.
Leikmenn ÍS virkuðu oft og tíðum
ráðvilltir í sóknarleiknum sem var
fremur einhæfur hjá þeim.
Hjá ÍS var Meadow Overstreet
mjög áberandi. Hún skoraði töluvert
en gerði einnig mikið af mistökum.
Alda Leif Jónsdóttir var atkvæða-
mikil í fyrri hálfleik en mun minna
bar á henni í þeim síðari. Einnig átti
Svandís Sigurðardóttir góðan leik
fyrir ÍS.
Ásamt Jessicu Stomski átti Hildur
Sigurðardóttir mjög góðan leik bæði
í vöm og sókn hjá KR-stúlkum. Ann-
ars var áberandi hversu mikil bar-
átta var í þeirra liði og allar skiluðu
sínu hlutverki með miklum sóma.
Liðsheildin var sterk og þá sérstak-
lega í vörninni.
Stig ÍS: Meadow Overstreet 26, Alda Leif
Jónsdóttir 17, Svandis Sigurðardóttir 8, Jó-
fríður Halldórsdóttir 6, Stella Kristjáns-
dóttir 4, Cecilia Larsson 4.
Stig KR: Jessica Stomski 30, Hildur Sig-
urðardóttir 18, Helga Þorvaldsdóttir 11,
Hanna Kjartansdóttir 9, Gréta M. Grétars-
dóttir 8, María Káradóttir 1. -MOS
1. deild kvenna í körfuknattleik:
Góður leikur Birnu
- þegar Keflvíkingar unnu stóran sigur á Haukum
Keflavíkurstelpur voru ekki
lengi að hrista af sér tapið á móti
Njarðvík í siðustu umferð því lið-
ið gersigraði Haukastelpur á fostu-
dagskvöldið í Keflavík, 89-54.
Það var aöeins rétt í upphafi
sem gestunum tókst að halda í við
heimastelpur en staðan breyttist á
skömmum tíma úr 8-8 í 16-8 og eft-
ir það litu þær keflvísku aldrei til
baka. I öörum leikhluta gáfu þær
svo hressilega í og juku muninn
jafnt og þétt og í leikhléi höfðu þær
21 stigs í forskot, 41-20. I þriðja
leikhluta héldu heimastelpur
áfram þessari miklu keyrslu og
enn jókst munurinn og staðan þeg-
ar leikhlutinn var allur, 67-34.
Jafnræði var síðan með liðunum í
lokaleikhlutanum enda úrslit
löngu ráðin og allir leikmenn
fengu að spreyta sig.
Greinilegt er að Keflavíkurliðið
er ekkert að svekkja sig á tapinu í
Njarðvík enda nokkrir leikmenn á
þeim bænum eldri en tvævetur.
Birna Valgarðsdóttir átti skinandi
leik og einnig Svava Ó. Stefándótt-
ir sem setti niður flmm þrista.
Erla Þorsteinsdóttir var ágæt en
annars var liðsheildin í góðu lagi.
Haukaliðið var án Stefaníu Jóns-
dóttur og þá er Katrina Crenshaw
búin að fá reisupassann.
Helena Sverrisdóttir bar uppi
lék Haukastelpna og Pálína M.
Gunnlaugsdóttir átti fínan fyrri
hálfleik og hún barðist að venju
eins og grenjandi ljón, en liðið tap-
aði boltanum alltof oft og var í
heildina séð óöruggt.
Stig Keflavíkur: Birna Valgarðs-
dóttir 26, Svava Ó. Stefánsdóttir 17,
Erla Þorsteinsdóttir 13, Marín R.
Karlsdóttir 9, Sonja Ortega 8, Rann-
veig Randversdóttir 7, Kristín Blön-
dal 5, Anna María Sveinsdóttir 2,
Theodóra Káradóttir 2.
DV
1. deild kvenna:
Njarðvík
í annað
sætið
Njarðvíkurstelpur fylgdu eftir
góðum sigri á Keflavík í síðustu
viku með sigri á Grindavíkurstelp-
um, 71-78, á laugardaginn var og
þar með er liðið komið í annað sæti
1. deildar kvenna í körfuknattleik.
Leikurinn á laugardaginn var
fjörugur og tvísýnn og nokkuð var
um sveiflur. Heimastelpur hófu
leikinn af miklum krafti og komust
í 12-0 en Njarðvíkurstelpur náðu að
klóra í bakkann og staðan að af-
loknum fyrsta leikhluta var 20-13.
Stefanía Helga Ásmundsdóttir
gerði 9 stig fyrir Grindavík í leik-
hlutanum. I öðrum leikhluta fóru
gestimir að sækja á og var það helst
að þakka mjög góðum leik Guðrún-
ar Óskar Karlsdóttur, sem gerði 9
stig auk þess að spila fina vöm og
taka mikilvæg fráköst. Liðið fylgdi
í kjölfarið og hafði eins stigs forskot
í leikhléi, 33-34.
Grindavíkurstelpur náðu aftur
frumkvæðinu í byrjun þriðja leik-
hluta og mest varð forskot þeirra 6
stig, 52-46, og á þessum kafla fór
María Anna Guðmundsdóttir fyrir
liðinu. Njarðvíkurliðið náði þó að
snúa stöðunni við þar sem Krystal
Scott fór í gang og setti 10 stig á
skömmum tíma og staðan að aflokn-
um leikhlutanum var 57-58.1 loka-
leikhlutanum voru gestimir alltaf
með frumkvæðið þótt munurinn
yrði aldrei mikill. Frábær leikur
Evu Stefánsdóttur, sem annan leik-
inn í röð steig upp í lokaleikhlutan-
um, og þau 12 stig sem hún skoraði
þá, vógu verulega þungt á vogar-
skálunum og gerðu í raun útslagið.
Slæm vitanýting Grindavíkur-
stelpna auðveldaði einnig gestunum
liflð. Tveir frábærir sigrar í röð hjá
Njarðvík því staðreynd og liðsheild-
in er að verða ansi sterk. Krystal
Scott var þeirra atkvæðamest og
þær Eva Stefánsdóttir og Guðrún
Ósk Karlsdóttir voru mjög drjúgar.
Auður Jónsdóttir átti fínan leik og
Helga Jónasdóttir var traust. Hjá
Grindavík nýtti Stefanía Helga Ás-
mundsdóttir tíma sinn mjög vel og
María Anna Guðmundsdóttir átti
góða spretti. Denise Shelton barðist
að venju vel en gekk frekar illa í
sókninni. Sandra Dögg Guðlaugs-
dóttir og Guðrún Ósk Guðmunds-
dóttir voru ágætar.
Stig Grindavíkur: Denise
Shelton 17, Stefanía Helga Ás-
mundsdóttir 15, María Anna Guð-
mundsdóttir 13, Guðrún Ósk Guð-
mundsdóttir 9, Sandra Dögg Guð-
laugsdóttir 9, Jovana Lilja Stefáns-
dóttir 6, Sólveig Gunnlaugsdóttir 2.
Stig Njarðvíkur: Krystal Scott
24, Auður Jónsdóttir 15, Eva Stef-
ánsdóttir 14, Guðrún Ósk Karlsdótt-
ir 11, Helga Jónasdóttir 8, Ingibjörg
6. -SMS
Birna Valgarösdóttir
Stig Hauka: Helena Sverrisdótt-
ir 24, Pálína M. Gunnlaugsdóttir
12, Hanna S. Hálfdánardóttir 4,
Ösp Jóhannsdóttir 3, Rannveig
Þorvaldsdóttir 3, Hrafnhildur S.
Kristjánsdóttir 2, Þóra Ámadóttir
2, Egidija Raubatié 2, Hafdís Haf-
berg 2 -SMS