Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Blaðsíða 6
22 MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 HANDBOlTiy Mf DV Patrekur Jóhannesson: Hvað var hægt að gera betur? „Ég veit hvað maður á að segja eftir svona leik en þetta var að minnsta kosti fln æfing. Mér fannst við leysa þennan leik ágætlega og svo getur maður spurt sig hvað hægt sé að gera bet- ur. Maður hugsar um það þegar maður leikur gegn svona liði hvað fyrirkomulagið á keppninni er furðulegt á meðan þjóðir eins og Norðmenn og Sviss eru ekki með vegna þess að álfumar eiga trygg ákveðin sæti,” sagði Patrekur Jó- hannesson í samtali við DV eftir leikinn við Katar. „Maður sá strax hvernig lið þetta var en þeir hvíldu sína bestu menn fyrir leikinn gegn Grænlendingum. Aðalatriðið í mínum huga var að klára leikinn og það var gott að eng- inn meiddist. Það er ekki auðvelt að leika leik sem þennan en einbeting- in veröur að vera í lagi þegar mað veit að andstæðingurinn er mun lakari,” sagði Patrekur. -JKS Einar Þorvarðarson: Við unnum okkar vinnu „Þessi leikur þróaðist með þeim hætti sem ég átti von á en þeir voru að ein- hverju leyti að hvíla sína menn. Katarar voru með hugann við leikinn við Grænlendinga þar sem þeir verða að leggja allt undir. Þetta var ekki góð- ur leikur en viö getum sagt að hann hafi verið skylduvinna. Ég er ánægðustur með það að við höfum ekki verið að leika illa í mótinu til þessa,” sagði Einar Þorvarðarson, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðs- ins, við DV eftir leikinn. „Það er ósköp lítið hægt að segja um svona mótherja en liðið hélt að mestu einbeitingunni og það var gott. Við unnum okkar vinnu, þetta var nóg og við emm öraggir í milli- riðil með tvö stig. Það er það sem skiptir öllu máli en Katarar era meö fleiri betri einstaklinga en t.d. Ástr- alar,” sagði Einar. --------------------=3KS Róbert Sighvatsson: Rólegt og þægilegt „Þetta var ró- legt og þægilegt og léttur leikur i alla staði. Það er hættan, þegar leikið er gegn lak- ari andstæðingi, að missa sig en það gerðist ekki og liðið var á tánum allan tímann. Mér finnst það líka sýna vissan styrk að við kláraðum leikinn með góðum mun sem mér finnst jákvætt,” sagði Róbert Sighvatsson landsliðsmaður við DV eftir leikinn á móti Katar. „Katarar virtust ekki taka þennan leik alvarlega og vora greinilega með hugann við leikinn á móti Græn- lendingum. Mér fmnst best að þessi leikur er að baki og við getum farið að hugsa um næstu verkefni. Þau verða mun erfiðari en þetta,” sagði Róbert Sighvatsson. -JKS Sádi-Arabi rekinn heim Einn leikmaður Sádí-Araba var sendur heim eftir leikinn gegn Ung- verjum sl. fimmtudag. Hann lenti í áflogum við samherja sinn í miðjum leik en þeim hafði orðið sundur- orða. Forsvarsmenn tóku síðan þá ákvörðun eftir leikinn að senda annan þeirra heim með skömm. Leikmenn Sádanna voru ekki ánægðir með skrif landa síns frá mót- inu og létu íþróttafréttamanninn heyra það. Vakti þessi uppákoma mikla athygli og var leikmönnum liðs- ins hótað refsingu ef svona atburður endurtæki sig. -JKS Ekki var hún rismikil, viðureign íslendinga og Katara á heimsmeist- aramótinu i handknattleik í Viseu sl. laugardag. Islendingar gjörsigr- uðu Katara með tuttugu marka mun, 42-22, en i hálfleik var staðan 24-9. Leikurinn var leiðinlegur á að horfa en yfirburðir íslenska liðs- ins voru algjörir allan leikinn eins og lokatölur hans gefa glöggt til kynna. Sigfús Sigurðsson tók ekki þátt í leiknum en stigið hafði verið ofan á ristina á honum í leiknum gegn Portúgal. Hún bólgnaði upp og var engin áhætta tekin með að láta hann leika gegn jafn veikum andstæöingum og Katarar eru. Með þessum sigri var annað sætið í B- riðlinum endanlega tryggt en Þjóð- verjaleikurinn skar úr um hvor þjóðin hreppti fyrsta sætið. íslendingar skoruðu sjö fyrstu mörkin og Katarar skoruðu ekki fyrsta markið fyrr en átta mínútur voru liðnar af leiknum. Bilið breikkaði síðan jafht og þétt. ís- lendingar þurftu ekki að hafa mik- ið fyrir leik sínum í hálfleiknum því mótspyma Katara var lítil. Þjálfari liðsins ákvað að hvíla þrjá lykilmenn fyrir leikinn gegn Græn- lendingum i þeirri von að komast áfram upp úr riölinum sem fjórða lið. I síðari hálfleik skipti Guðmund- ur Hrafiikelsson viö Roland Val Eradze en það reyndist skammgóð- ur vermir fyrir Roland því hann þurfti að yfirgefa völlinn eftir að- eins fimm mínútna leik. Hann fann fyrir eymslum í nára sem kom fyrst upp á æfingu liðsins á föstu- dag. Guðmundur var því kallaður í markið á nýjan leik. íslenska liðið missti á köflum einbeitinguna og leikmönnum brást bogalistin, oft í dauðafærum. Það kom þó ekki í veg fyrir yfir- burðasigur í þessu skylduverki sem aldrei var skemmtilegt á að horfa. Allir leikmenn á leikskýrslu fengu að spreyta sig og vegna meiðsla Sigfúsar fékk Gunnar Berg Viktorsson að spreyta sig í sínum fyrsta leik í keppninni. Gunnar Berg náði sér ekki á strik í leikn- um og var eini útileikmaðurinn sem náði ekki að skora þrátt fyrir nokkur afbragðsfæri en markvörð- ur Katara sá við honum í öll skipt- in. Gústaf Bjamason lék einna best í íslenska liðinu og skoraði nokkur falleg mörk í öllum regnbogans lit- um úr hominu. Hann gerði átta mörk og lék lítið með í síðari hálf- leik. Línuvinnan hvildi öll á Róbert Sighvatssyni sem stóð sig vel og var með góða skotnýtingu. Róbert hefur komist ágætlega frá sínu í mótinu og virðist vera í mun betra formi en á Evrópumótinu í Svíþjóð í fyrra. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari ákvað eins og von var að hvíla menn mikið enda var mikilvægm- leikur við Þjóðverja daginn eftir. Ólafur Stefánsson lék til að mynda ekkert með í síðari hálfleik. Mönnum var almennt létt þegar þessum leik var lokið enda örugglega. leiðinlegur að leika, hvað þá að horfa á hann. -JKS -- þegar íslendingar lögöu Katara meö 20 marka mun Þjóðverjar fóru á kostum - sýndu mikinn styrk gegn Portúgölum Þýska landsliðið i handknattleik fór hamforum gegn Portúgölum í B-riðli á heimsmeistaramótinu í handknattleik i Viseu á laugardag- inn var. Þýska liðiö sigraöi, 37-29, i hálfleik var staöan 15-9. Þjóðverj- ar hófu leikinn með látum og geröu fyrstu þrjú mörkin en Portú- galar náðu aö jafna, 4-4. Lengra komust þeir ekki því Þjóðverjar tóku leikinn gjörsamlega í sínar hendur og Portúgalar sáu eftir það aldrei til sólar. Þjóöverjar náöu níu marka forystu, 25-16, og léku á als oddi á þessum tíma. Portúgalar gáfust hreinlega upp, virkuðu þreyttir og ollu heima- mönnum miklum vonbrigðum. Hennig Fritz, markvörður Þjóð- verja, átti sannkallaðan stórleik og varði 22 skot. Florian Khermann lék einnig vel og skoraði 11 mörk og Stefan Kretzschmar gerði 8 mörk. Þýska liðið er ekki árenni- legt þegar það nær sér á strik. Svo viröist sem allur vindur sé úr portúgalska liðinu eftir töpin gegn íslendingum og Þjóðverjum. Meiðsl hafa einnig sett strik í reikninginn hjá þeim en ekkert af- sakar baráttuleysi liðsins í þessum leik. Carlos Resende var markahæst- ur og skoraði sjö mörk. Carcia Guesta, þjálfara Portúgala, var ekki skemmt í leikslok og sagöi hann leikinn mikil vonbrigði. „Það er ekki öfundsvert verkefni að berjast við þýska liðið í þessum ham. Þegar þeir náðu fimm marka forystu var þetta búið. Við lékum betur í síðari hálfleik en vömin náði sér að sama skapi ekki á strik,” Guesta. Heinar Brand, þjálfari þýska liðsins, sagðist alls ekki hafa átt von á að leikurinn þróaðist með þessum hætti. „Viö vorum að leika geysilega vel og ég er virkilega ánægður með liöið. Þetta var einn besti leikur liðsins lengi undir minni stjóm,” sagði Heiner Brand. -JKS Rislítil m ALLZJZ&r* Við 9 Kandboíta J^port

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.