Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2003, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2003
DV
Fréttir
'AIH
Auk íslenskra flugfélaga munu í það minnsta sjö erlend. flugfélög
sjá um flutninga á íslenskum flugfarþegum til og frá landinu í
sumar. Þetta eru breska félagið Astraeus, þýsku félögin LTU, Aero
Lloyd og Condor, spœnska flugfélagið Futura, ítalska flugfélagið
Azzurra og grœnlensk-skandinavíska flugfélagið Air Greenland.
Kanadíska félagið HMY-Airwaus, tilkynnti hins vegar í morgun að
hœtt vœri við flug til fshmds og annarra Evrópulamda.
Sjö erlend félög
fljúga til íslands
Útlit er fyrir að samkeppni í flugi
til og frá íslandi verði með lífleg-
asta móti næstu misserin. Þar má
búast við að i það minnsta sjö er-
lend flugfélög takist á við Flugleiðir
um hylli íslenskra flugfarþega. Sem
fyrr ber nafn Flugleiða oftast á
góma og virðast flestir keppinaut-
amir miða sína starfsemi við að
bjóða lægri fargjöld en Flugleiðir á
helstu leiðum til og frá landinu. í
því ljósi hefði það einhvem tíma
þótt saga til næsta bæjar að Sam-
keppnisstofnun skoðar nú hvort
Flugleiðum sé stætt á að „lækka“
fargjöld á ákveðnum leiðum.
Hefur Samkeppnisstofnun farið
þess á leit við Flugleiðir að þær
veiti stofnuninni upplýsingar um
verðmyndun á svonefndum vor-
smelli tO að kanna hvort tilboðið
brjóti í bága við elleftu grein sam-
keppnislaga um markaðsráðandi
stöðu. Iceland Express kynnti fyrir
skömmu ferðir til Kaupmannahafn-
ar á 14.900 krónur og skömmu síðar
fóru Flugleiðir að bjóða ferðir til
Kaupmannahafnar fyrir sama verð.
Iceland Express hefur bent á að
markaðsráðandi aðili megi ekki
misnota stöðu sina til að hindra
nýjan aðila í að ná fótfestu á mark-
aði.
Flugleiðir er vissulega stórt fyrir-
tæki á íslenskum markaði og hafa
náin tengsl við ferðaskrifstofuna
Úrval-Útsýn og flýgur m.a. með alla
farþega Plúsferða svo eitthvað sé
nefnt.
Lággjaldastríð
Lággjaldafélagið Iceland Express
reið á vaðið í þessu nýjasta
lággjaldastríði og kynnti undir lok
síðasta árs fargjöld til London og
Kaupmannahafnar á verði innan
við 15.000 krónur fram og til baka
með flugvallasköttum. Verður
fyrsta flugið til Kaupmannahafnar
að morgni 27. febrúar. Kynnt var
einnig að 40 þúsund sæti stæðu til
boða á þessum leiðum á verði und-
ir 20. þúsund krónum. Undir lok
janúar var þegar búð að selja hátt í
helming þessara sæta samkvæmt
upplýsingum félagsins.
Flugleiðir hafa ítrekað bent á að
samanburður þessara félaga sé ekki
sanngjam. Iceland Express sé ekki
flugfélag. Því beri Iceland Express
ekki sömu skyldur og Flugleiðir.
Ólafur Hauksson, talsmaður
Iceland Express, hefur aftur á móti
bent á að skyldur Flugleiða séu ekk-
ert meiri ef komi til þess að farþeg-
ar verði strandaglópar erlendis ef
flugfélagið gæti ekki staðið við sinn
hlut. í áætlunarflugi séu engar
tryggingar 1 gangi sem tryggi far-
þegum flug heim ef slíkar aðstæður
koma upp. Tryggingar áætlunar-
flugfélaga lúti einungis að því að
tryggja rekstraröryggi flugvélanna,
ekki síst með öryggissjónarmið í
huga.
Erlend flugrekstrarleyfi
Segja má að Flugleiðir hafi samt
nokkuð til síns máls þó það breyti í
sjálfu sér engu varðandi réttmæta
gagnrýni á meint há flugfargjöld
Flugleiða til og frá íslandi. Flugfar-
þegar Iceland Express eru í raun á
vegmn breska flugfélagsins Astra-
eus og lúta á skilmálum áætlunar-
flugs þess félags samkvæmt þeirra
flugrekstrarleyfi. Iceland Express
nýtir einnig sölukerfi Astraeus. Því
falla farþegar þeirra ekki undir þá
skilgreiningu að vera farþegar
„ferðaskrifstofunnar" Iceland Ex-
press, enda væru þeir þá tryggðir
fyrir áfollum samkvæmt skilyrðum
ferðaskrifstofureksturs.
Maðurinn á bak við uppbyggingu
Iceland Express heitir Jóhannes
Georgsson. Hann hefur komið víða
við sögu í flugmálum hér á landi og
starfaði m.a. sem framkvæmda-
stjóri fyrir SAS hér á landi frá 1985
til 1994. Hann kom einnig við sögu
Amarflugs á sínum tíma sem bjó
ekki við sama frelsi til reksturs og
nú þekkist. Þá voru félaginu
skammtaðar flugleiðir til Amster-
dam í Hollandi og eins til Mílanó á
Ítalíu sem dugði þó greinilega ekki
til langlífis. Eftir það var í raun
ekki mikil samkeppni við Flugleið-
ir sem varð til við samruna Flugfé-
lags Islands og Loftleiða.
Eins og fyrr sagði reyndi SAS
fyrir sér á þessum markaði en
hætti eftir nokkurra ára viðdvöl og
er nú í samstarfi við Flugleiðir.
Ekki má heldur gleyma íslands-
flugi sem hefur þó að mestu snúið
sér að leiguflugi erlendis sem og
fragtflugi líkt og leiguflugfélagið
Atlanta sem oft hefur verið mjög
umsvifamikið í flutningum á far-
þegum fyrir islenskar ferðaskrif-
stofur. Nokkrir minni aðilar hafa
líka verið nefndir þar til sögunnar.
GO og Canada 3000
Eina alvöru samkeppnin um ára-
bil varð til er breska flugfélagið GO
hóf flug á milli London og Keflavík-
ur í maí árið 2000 og bauð þá upp á