Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2003, Page 14
14
__________________________________ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2003
Skoðun dv
Spurning dagsins
Hvað finnst þér skemmti-
legast að gera í skólanum?
Helga Haraldsdóttir nemi:
Iþróttir bara saman.
Sigurást Valdís Viktorsdóttir:
Smíói, þaö er gaman aö smíöa.
Lára Henrysdóttir nemi:
Leikfimi, þaö er létt og gaman.
Ólafur Páll Ólafsson nemi:
Leikfimi, þar erum viö ekki aö læra.
Alfreð Andri Alfreösson nemi:
Matreiösla, þá þurfum viö ekkert
aö læra.
Blessaðir íslensku hestarnir
Á Heimsmeistaramóti í Þýskalandi.
- Fjölbreyttur gangur vekur athygli.
Jóhann Jóhannsson
skrifar:
Mér hefur alltaf þótt vænt um
íslenska hestinn. Þar sem ég var í
sveit voru hestar spenntir fyrir
vagn og vél og það virtist ekki
mikið átak fyrir hestinn að draga
létta rakstrarvélina, jafnvel meö
mig í sætinu.
Verra var þegar bóndinn fór á
bak þeim hvíta - þá fannst mér ég
sjá glitta i tár í augum dýrsins.
Maðurinn var tröll að burðum og
fætur hans náðu næstum niður á
jörð. En svona fór hann á hestin-
um ásamt aðkomumönnum sem
hópuðust í reiðtúr. Er klárinn
kom örþreyttur til baka var hon-
um gefin tugga sérstaklega. Lík-
lega til að bæta honum upp þræl-
dóminn í ferðinni.
Síðan hefur mér þótt það ljót
sjón að sjá hina svokölluðu „hesta-
menn“ pina þessi smávöxnu dýr
með því að flengjast á þeim tvist og
bast, jafnvel um landið þvert og
endilangt. Ekki er óalgengt að
menn tvímenni á hesti og þykir
bara sjálfsagt! Svona er innræti ís-
lendingsins. Annað viðhorf hafa
útlendingar sem kaupa hest héðan.
Þeir líta á hestinn smávaxna sem
gæludýr og leyfa einungis börnum
að nota hann til reiðar. Þetta hefur
komið fram í viðtölum við kaup-
endur íslenskra hesta héðan, eink-
um í Þýskalandi og Sviss.
íslenski hesturinn er líka kall-
aöur „pony“ og þaö er af þvi að
hann er ekki sá fullvaxni reiðhest-
ur sem getur að líta í flestum öðr-
um löndum. íslenski hesturinn
barst til Noregs með Herúlum og
síðan hingað til lands með þeim er
flúðu undan skattaáþján í Noregi.
Herúlamir komu hins vegar frá
Litlu-Asíu og Rússlandi, þar sem
þessir hestar eru enn til í litlum
samfélögum.
„Svona er innrœti íslend-
ingsins. Annað viðhorf hafa
útlendingar sem kaupa hest
héðan. Þeir líta á hestinn
smávaxna sem gœludýr og
leyfa einungis bömum að
nota hann til reiðar.“
Það vekur athygli á hestamót-
um erlendis að fullorðnir karlar
skuli nota þessa hesta til reiðar,
en eiginleikar hestsins um fjöl-
breytni gangs vekja hins vegar
mikla athygli. Ég hvet dýravernd-
unarfélög hér til að skera upp her-
ör gegn illri meðferð á hestum hér
og hvetja menn til að þyrma hest-
um við reiðmennsku af því tagi
sem hér er landlæg. Bestu með-
ferðina fá þeir hestar sem seldir
eru úr landi - þar fá þeir tilhlýði-
lega umönnun.
Já, það minnir mig á skattsvika-
málið sem hér kom upp fyrir
nokkrum árum en virðist ekki
hafa fengið lokaafgreiðslu enn. Á
hestamannamóti i Þýskalandi
gekk maður undir manns hönd,
þ.á m. núverandi landbúnaðarráð-
herra, þáverandi sendiherra í
Þýskalandi og forseti íslands, til
að bjarga keppni sem þeim var
boðið á svo hún gæti haldið áfram
vegna rannsóknar á skattsvikum
sem tengdust íslenskri hrossasölu
til Þýskalands. Skattrannsóknar-
stjórinn hafði eiginlega aldrei
mikið um málið að segja er hann
var inntur eftir gangi málsins. -
En kannski eru ekki öll kurl enn
komin til grafar.
Öldin önnur í verkalýðsmálum
J.M.G.
skrifar:
I tilefni af skákmóti Hrafns Jök-
ulssonar til heiðurs Guðmundi J.
Guðmundssyni skrifar Guðmund-
ur G. Þórarinsson verkfræðingur
grein í DV í minningu nafna síns
og segir m.a. að af verkalýðsfor-
ingjum virðist hann mörgum
minnisstæöastur.
Guðmundur var aldrei kreppu-
kommúnisti. Hann trúði ekki á
stöðnun eða kyrrstöðu og var sam-
mála atvinnurekendum um það að
hjólin þyrftu að snúast. En nú er
öldin önnur. Formaður Eflingar
vill leysa atvinnuvanda síns fólks
með því að reka útlendinga úr
„Guðmundur var aldrei
kreppukommúnisti. Hann
trúði ekki á stöðnun eða
kyrrstöðu og var sammála
atvinnurekendum um það
að hjólin þyrftu að snúast. “
landi, jafnvel þótt þeir hafi unnið
hér lengi og fest rætur. Svo fór að
bæði Páli Péturssyni félagsmála-
ráöherra og Ara Edwald, for-
manni Samtaka atvinnulífsins,
blöskraði og hafa risið upp til
varnar útlendingunum.
Félagsmálaráðherra sagði í
blaðaviðtali að hann vildi ekki „að
viökomandi fólk væri rekið á guð
og gaddinn". „Við framlengjum ef
fólk vill vera hér áfram, en rekum
það ekki úr landi,“ segir Páll. Og
Ari Edwald segir í blaðaviðtali:
„Það er varhugavert að ýta undir
viðhorf sem geta orðið eldsneyti á
fordóma í garð þeirra útlendinga
sem hingað vilja koma.“
í fréttablaði Eflingar (á bls. 5) er
helst að sjá að stjóm Eflingar hafi
krafist þess af Vinnumálastofnun
og Útlendingaeftirlitinu að öllum
sem ekki hafa dvalið á íslandi
nema í tvö ár verði vísað úr landi.
Svona miskunnarleysi er sorglegt.
- Og allsendis ólíkt Guðmundi J.
... sameinumst,
Gömul kratakerling úr Hafnarfirði hélt hún
hefði farið á landsfund Samfylkingarinnar þeg-
ar hún mætti í Smáralindina síðasta þriðju-
dag. Þegar hún mætti á staðinn benti allt til
þess. Þarna var komið mikið af höltu fólki og
blindu sem beið frelsara síns í ofvæni. Gamall
maður hrópaði að gömlu konunni, sem við
skulum kalla Sigrúnu, þegar hún kom inn:
„Frelsarinn er væntanlegur! Halelúja!" og
bætti síðan við: „Loksins mun ég heyra fagn-
aðarerindið!" Sigrúnu gömlu fannst þetta allt
stemma þótt henni þætti óþarflega margir
karlgera talsmann flokksins.
Ekkert afmæli
Líf Sigrúnar hafði ekki alltaf verið auðvelt.
Sem ung kona hafði hún blindast af framsókn-
armennskunni. Hún hafði orðið ástfangin af
manni sem var ástríðufullur framsóknarmaö-
ur og hafði hún þá gefið vöggugjöf Sjálfstæðis-
flokksins upp á bátinn í óþökk föður síns sem
aldrei bauð henni í afmælið sitt eftir það. Þeg-
ar hinn stórhjartaði framsóknarmaður gaf Sig-
rúnu upp á bátinn eftir að hafa séð hana
drukkna á almannafæri rjátlaðist af henni
framsóknarvíman og hún varð óflokksbundin í
hjarta sínu. Árin þar á eftir kaus hún ýmist
íhaldið eða kommana og þótti þaö bara fínt að
hjálpum þeim
geta sveiflast öfganna á milli. Með árunum
minnkuðu þó sveiflurnar í flokkalínuritinu og
þær fóru að bera meiri merki meðaltalsins.
Jesús Kristur og Jón Ólafs
Þegar Vilmundur kom fram með Bandalag
jafnaðarmanna kaus hún það og þegar Albert
Guðmundsson klauf sig út úr Sjálfstæðisflokkn-
um og stofnaði Borgaraflokkinn ákvað hún að
kjósa hann. Jóhanna Sigurðardóttir höfðaði
líka sterkt til Sigrúnar og þegar hún sagði sig
úr Alþýðuflokknum og stofnaði Þjóðvaka ákvað
Sigrún að ganga til liðs við hana og má taka
fram að Sigrún studdi hana ötullega.
Þaö var því ekki óvænt að í fermingarveislu
Fjalars frænda vorið 1999 reis Sigrún úr sæti
og öskraði yfir rjómatertuhlaðana að hún
myndi kjósa Samfylkinguna í komandi kosn-
ingum. Og hún stóð við það, ekki síst vegna
þess hversu krúttlegur henni þótti Össur
Skarphéðinsson.
Og svo mætti hún á landsfundinn í Smára-
lind síðasta þriðjudag. Fimdarmenn voru
henni flestir ókunnir en góðlegir upp til hópa.
Sigrún komst þó sjálf aldrei fyllilega í sam-
band við aðra fundarmenn og því síður stjórn-
anda fundarins sem læknaði fólk af öllu nema
framsóknarmennsku og sagði „hallelúja!". Sig-
rún hélt því fljótlega heim á leiö og sönglaði
fyrir munni sér:
Gleymd’ ekki þínum minnsta baugi
þótt Davíð Oddsson vilji þaó.
Jón Steinar galar hátt á haugi
og lítur ekki á blaö.
í Kaupþingi er fólginn styrkur
sem bláa höndin getur deytt.
í Norðurljósum Jesús Kristur
og Jón Ólafs eru eitt.
Búum til betri heim
sameinumst, hjálpum þeim
sem minna mega sín,
þeir borga sitt til mín.
Vinnum að friði á jörð
og gerum þakkargjörð
öll sem eitt...
Cjxxri
Varasjóöurinn
í dollurum.
Ríkið kaupir dollara
H.P.Þ. skrifar:
Það hefur und-
anfarið verið til-
finning margra
sem þekkja á
efnahagslíf okk-
ar, að það sé ekki tilviljun að
Seðlabankinn hafi keypt gjaldeyri
- og ekki bara einhvern gjaldeyri
heldur dollara - frá því sl. sumar
fyrir um 10 milljarða íslenskra
króna. Og enn er stefnt að dollara-
kaupum, jafnvel fyrir allt að 20
milljarða króna.Hér er ekki bara
verið að hugsa um útgerðina -
eins og sumir kunna að halda.
Hér er fyrirhyggja í fyrirrúmi
vegna þess ástands sem margir
hafa séð fyrir - að Evrópa kunni
að einangrast frá vestrænu sam-
starfi í núverandi mynd. Þá væri
líka þröngt fyrir dyrum til við-
skipta íslands við aðra en Banda-
ríkin. Það sýnist ætla að rætast
þessa dagana.
Rauðvín með RÚV
Ragnar Haraldsson skrifar:
Það má gagnrýna Ríkisútvarpið
í bak og fyrir og hefur verið gert
óvægilega. Hitt er þó sönnu nær
að RÚV er ekki sama og RÚV,
þannig séð ... Mér finnst hljóð-
varpið vera afar þægilegur og
raunar frábær fjölmiöill (gagn-
stætt sjónvarpinu). Dagskrá RÚV-
hljóðvarps er full af fræðandi og
jafnframt skemmtilegu efni frá
morgni til miðnættis. Og þessa
nýtur maður, jafnvel með vinnu
heima við eða annars staðar. Tek
dæmi af sl. sunnudagskvöldi á síð-
asta tímanum fyrir miðnættið. Þá
sat ég með rauðvínsglas í hendi
og lauk við lestur bókar einnar en
fylgdist einnig með ljúfum tónum
laga sem hljóðvarpið eitt býður
okkur á síðkvöldum. Þakka vel
valda tónlist kvöldið það.
Formaöur á flokksstjórnarfundi.
- Atyrti Baug á flokkspólitískum
forsendum?
Flokkspólitísk áhrif
Samfylkingar
Magnús Helgason skrifar:
Á flokksstjómarfundi Samfylk-
ingarinnar um helgina kom forsæt-
isráðherraefni hennar, Ingibjörg
Sólrún, fram með nýstárlega kenn-
ingu um faglegar eða flokkspóli-
tískar forsendur fyrir afskiptum
stjómmálamanna af þjóðmálum,
þ.á m. umfjöllun um fyrirtæki í
blíðu og stríðu. Ekki megi stjórn-
málamenn gera of mikiö af því að
leggja orð í belg, svo að fyrirtækin
verði ekki fyrir hnjaski. Svo! -
Þessum orðum hefði Ingibjörg Sól-
rún nú átt að beina til síns svala
svila, sem sat hjá í þessari um-
ræðu og horfði í gaupnir sér. Það
var nefnilega Össur Skarphéðins-
son, ennþá skráður formaöur Sam-
fylkingarinnar, sem hafði frum-
kvæði að því að atyrða fyrirtækið
Baug og kalla forsvarsmenn þess
gangstera og „hreinræktaða drullu-
sokka". Auðvitað gleymast ekki
slík orð svo glatt, hvað sem forsæt-
isráðherraefni Samfylkingarinnar
gerir til að auglýsa jafnstöðu sína
gagnvart núverandi forsætisráð-
herra. Manni dettur helst í hug að
Ingibjörg Sólrún hafi einhverja vit-
neskju um aðvífandi áfoll hjá
Baugi, Kaupþingi eða Norðurljós-
um, og telji sigurstranglegt að aug-
lýsa Davíð Oddsson valdan aö
þeirri óáran sem þar kynni að
verða opinberuð.
OV! Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eða sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Skaftahlíö 24,105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.