Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2003, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2003, Side 20
20 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 80 ára________________________________ Axel Elríksson, Hraunbæ 50, Reykjavík. 75 ára________________________________ Guðbjartur Gunnarsson, Klapparstíg 7, Reykjavík. Jón Tryggvi Valentínusson, Grænumýri 8, Seltjarnarnesi. Siguröur Jóhannsson, Norðurbyggð 4, Akureyri. 70 ára________________________________ Ágústa Lúövíksdóttir, Gullsmára 11, Kópavogi. Emll Gunnlaugsson, Suðurbrún 6, Flúöum. Hrefna Stefánsdóttir, Vesturgötu 22, Reykjavík. Jón Þórhallsson rakari, Glaðheimum 6, Reykjavík. Eigin- kona hans er Sigríður Gróa Einarsdóttir. Þau verða stödd á Madeira. 60 ára________________________________ Ásdís Pedersen, Furugrund 10, Akranesi. Guömundur Theodór Antonsson, Háulind 9, Kópavogi. Sveinn Sigurösson, Arnarhrauni 14, Hafnarfirði. Þórhildur Guömundsdóttir, Dísarási 13, Reykjavík. 50 ára________________________________ Áskell Bjarnl Fannberg, Klausturhvammi 11, Hafnarfiröi. Dröfn Guðmundsdóttir, Birkihæð 7, Garðabæ. Margrét Þorbjörg Johnson, Mávahlíð 31, Reykjavík. Patricia M Guðmundsson, Fífurima 24, Reykjavík. Þorsteinn Snædal, Sæviöarsundi 49, Reykjavík. 40 ára________________________________ Davíö Einar Hafsteinsson, Garðaflöt 2a, Stykkishólmi. Einar Einarsson, Skipasundi 32, Reykjavík. Elvar Björn Sigurðsson, Upphæðum 5, Selfossi. Gunnhildur Konráðsdóttir, Engjavegi 6, Mosfellsbæ. Hafdis Valdimarsdóttir, Víðivangi 5, Hafnarfirði. Heiöa Helena Viðarsdóttir, Fögruhlíð 5, Hafnarfirði. Slgríður L. Siguröardóttir, Fjóluhlíð 17, Hafnarfiröi. Soffia Ingvarsdóttir, Unaósi, Egilsstöðum. Andlát Karly Björg Karlsdóttir, Hafnarstræti 15, Akureyri, andaðist á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri fimmtud. 6.2. Margrét Ákadóttlr, Hofteigi 8, Reykja- vík, lést á Landspítalanum fimmtud. 6.2. Hólmfríður Guðmundsdóttir, Kirkjuvegi 15, Keflavík, andaðist á hjúkrunarheim- ilinu Víöihlíð, Grindavík, fimmtud. 6.2. Aðalbjörg Ágústsdóttlr, Skúlagötu 10, Reykjavík, lést að morgni föstud. 7.2. Gylfi Borþór Guðfinnsson, Akranesi, lést í Riga, Lettlandi, miövikud. 5.2. Guðmundur Tómas Gíslason skrúðgarð- yrkjumeistari, Mæri við Vesturlandsveg, er látinn. Útförin hefur fariö fram í kyrr- þey aö ósk hins látna. Einar Valberg Sigurðsson, Reynimel 68, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítal- ans í Kópvogi að morgni föstud. 7.2. Krlstleifur Þorsteinsson, Húsafelli, lést föstud. 7.2. Þorgeröur Jóhanna Jónsdóttir, Ægisgötu 31, Akureyri, andaöist föstud. 7.2. á hjúkrunarheimilinu Seli. Rögnvaldur Lárusson, Höfðagötu 9a, Stykkishólmi, lést á Landspítalanum föstud. 7.2. Jarðarfarir Sigurður Sigurðsson, Vonarholti, Kjalar- nesi, veröur jarösunginn frá Fossvogs- kirkju þriðjud. 11.2. kl. 13.30. Útför Torfa Ásgeirssonar hagfræðings, Faxaskjóli 22, Reykjavík, veröur gerð frá Neskirkju þriðjud. 11.2. kl. 13.30. Auöunn Jóhannesson húsgagnameistari, Fannborg 8, Kópavogi, veröur jarðsung- inn frá Kópavogskirkju þriöjud. 11.2. kl. 10.30. Útför Harðar Sigtryggssonar fer fram frá Garðakirkju, Álftanesi, miövikud. 12.2. kl. 15.00. Slgurleifur Guöjónsson, Safamýri 48, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju föstud. 14.2. kl. 13.30. ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2003 DV Fólk í fréttum Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur mik- ið verið í fréttum vegna úrskurðar hans um Norðlingaölduveitu. Starfsferill Jón fæddist að Stóragerði í Skagafirði 11.6. 1942 og ólst þar upp og að Óslandi í Skagafirði frá 1946. Hann lauk landsprófi frá Héraðs- skólanum í Reykholti í Borgarfirði 1959 og prófi frá Samvinnuskólan- um að Bifröst 1963. Jón stundaði verkamannavinnu hjá Vegagerðinni og Síldarverk- smiðjum ríkisins 1959-60, verslun- arstörf hjá Kaupfélagi Skagfirðinga 1960-63, var verslunarstjóri hjá Kaupfélagi Héraðsbúa á Egilsstöð- um 1963-78, félagsmálafulltrúi hjá Kaupfélagi Héraðsbúa 1978-84, al- þingismaður fyrir Framsóknar- flokkinn í Austurlandskjördæmi frá 1985, var ritstjóri Tímans 1992-93 og 1994-95 og er heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra frá 14.4. 2001. Jón er ritstjóri vikublaðsins Austra á Egilsstöðum frá 1974, sat í sýslunefnd Suður-Múlasýslu 1974-87, var stjómarformaður Hér- aðsskjalasafns Austfirðinga 1975-88, á sæti í miðstjórn Framsóknar- flokksins og gegnir ýmsum öðrum trúnaðarstöfum fyrir flokkinn, sat í blaðstjórn Tímans frá 1985 og var formaður hennar 1987-91, sat í stjóm Landssambands samvinnu- starfsmanna 1980-83, var forseti neðri deildar Alþingis 1987-88, sat í þingmannasambandi Norður-At- lantshafsríkja 1985-87 og 1991-2001, sat í Norðurlandaráði sem varamað- ur 1987-90 og aðalmaður 1990-91, sat þing SÞ 1989 og afvopnunarráð- stefnu SÞ 1988, var formaður fjár- laganefndar Alþingis 1995-2001, var stjórnarformaður Kaupfélags Hér- aðsbúa 1987-95, var formaður Leik- félags Fljótsdalshéraðs í tvö ár, var varaformaður Ferðamálaráðs ís- lands 1998-2001, sat i Markaðsráði ferðaþjónustunnar 1999-2001, var stjómarformaður Upplýsingamiðl- unar ferðamála í Reykjavík 1998-2001 og sat í stjórn Náttúru- stofu Austurlands 1994-2001. Jón hefur skrifað fjölda greina í dagblöð um stjómmál, ritstýrt árs- riti Kaupfélags Héraðsbúa, Sam- herja 1969-85 og tók saman sögu fé- lagsins á árunum 1950-70. Fjölskylda Jón kvæntist 25.12. 1964 Margréti Einarsdóttur, f. 19.11. 1946, þjón- ustufulltrúa í Landsbanka íslands. Hún er dóttir Einars Ólafssonar, rafvirkjameistara á Egilsstöðum, og Ásgerðar Guðjónsdóttur húsmóður. Börn Jóns og Margrétar eru Við- ar Jónsson, f. 30.11. 1964, verkfræð- ingur; Ásgerður Edda Jónsdóttir, f. 10.1. 1968, BA i útgáfu- og fjölmiðla- fræði, búsett í Kanada, gift Kent William Russel Langworth, en börn þeirra eru Mikael Langworth og Daníel Jón Langworth; Einar Krist- ján Jónsson, f. 23.11. 1973, lögfræð- ingur, í sambúð með Áslaugu Bjömsdóttur og er sonur þeirra Bjöm Orri en sonur Ásiaugar er Skúli Ágúst Ámason. Systkini Jóns: Margrét Kristjáns- dóttir, f. 7.8. 1933, húsmóðir á Sauð- árkróki; Þóra Kristjánsdóttir, f. 11.9. 1936, skrifstofumaður á Sauðár- króki; Svava Kristjánsdóttir, f. 9.6. 1947, skrifstofumaður á Hvanneyri. Foreldrar Jóns: Kristján Jónsson, f. 27.12. 1905, bóndi að Óslandi, og Ingibjörg Jónsdóttir, f. 1.4. 1907, d. 20.10. 1955, húsfreyja. Ætt Kristján er sonur Jóns, smiðs í Stóragerði í Óslandshlíð, Sigurðs- sonar, b. í Grímsgerði í Fnjóskadal, Ámasonar, b. á Draflastöðum, Jóns- sonar, ríka á Mýri, Jónssonar, b. þar, Halldórssonar, ættfóður Mýrar- ættar. Móðir Sigurðar í Grímsgerði var Kristín, systir Jóns, alþm. á Gautlöndum, afa Steingríms Stein- þórssonar forsætisráðherra og Har- alds Guðmundssonar ráðherra og langafa Jóns Sigurðssonar banka- stjóra. Kristín var dóttir Sigurðar, b. á Gautlöndum, Jónssonar, bróður Jóns ríka. Móðir Kristínar var Bót- hildur Þorkelsdóttir, systir Elínar, ömmu Kristjáns Fjallaskálds. Móðir Jóns í Stóragerði var Friðrika Krist- jánsdóttir, b. á Böðvarsnesi, Guð- laugssonar. Móðir Kristjáns á Óslandi var Ni- elsína Kristjánsdóttir, b. í Krossnesi í Eyjafirði, Gíslasonar, b. í Péturs- borg i Glæsibæjarhreppi, Bjama- sonar. Móðir Níelsínu var Margrét Hálfdánardóttir, b. á Krossanesi, Hálfdánarsonar. Ingibjörg var dóttir Jóns, b. á Marbæli í Hofshreppi, Erlendsson- ar, b. í Gröf, Jónssonar, b. að Litlu- Brekku, Þorsteinssonar. Móðir Er- lends var Hólmfríður Erlendsdóttir, b. að Vatni á Höfðaströnd, Jónsson- ar. Móðir Jóns á Marbæli var Ingi- björg Jónsdóttir, b. í Gröf, Jónsson- ar ríka á Lambanes-Reykjum. Móðir Ingibjargar var Anna Rögnvaldsdóttir, b. í Brekkukoti, Þorleifssonar og Guðrúnar Jóns- dóttur frá Hreppsendaá. Sjötugur Þórir ísfeld fyrrv. deildarfulltrúi Þórir ísfeld, fyrrv. deildarfulltrúi hjá Hitaveitu Reykjavíkur, síðan Orkuveitu Reykjavíkur, til heimilis að Leirubakka 12, Reykjavík, er sjö- tugur í dag. Starfsferill Þórir fæddist i Neskaupstað og ólst þar upp til sautján ára aldurs. Þá flutti hann til Reykjavíkur, stundaði leiktjaldasmíðar við Þjóð- leikhúsið í tvö og hálft ár og var jafnframt sýningarstjóri hússins í eitt ár. Þórir stundaði verslunar- störf um skeið en ók síðan strætis- vagni hjá SVR til 1974. Þá hóf hann störf hjá Hitaveitu Reykjavíkur þar sem hann var deildarfulltrúi til 2001 er hann komst á eftirlaun. Þórir sat í fulltrúaráði Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar í sex ár. Hann sat í stjóm Starfs- mannafélags Hitaveitunnar og var formaður þess í eitt ár. Fjölskylda Þórir kvæntist 1959 Torfhildi Ragnarsdóttur, f. 1939, starfsmanni við Landsbanka Islands. Þau slitu samvistum 1979. Dóttir Þóris og Torfhildar er Ás- gerður ísfeld, f. 10.8. 1957, húsmóðir í Hafnarfirði, gift Teiti Stefánssyni framkvæmdastjóra og eiga þau tvö börn, Fríðu og Ragnar. Alsystir Þóris er Ólafla ísfeld, f. 1928, húsmóðir í Kópavogi. Hálfsystkini Þóris: Jóna Sigríður Jónsdóttir, f. 1939, deildarstjóri hjá Orkuveitu Reykjavíkur; Guömund- ur Jónsson, f. 1941, d. 1992, var bú- settur í Reykjavík. Foreldrar Þóris voru Jón ísfeld, f. 1890, d. 1935, kaupmaður í Neskaup- stað, og k.h., Ásgerður Guðmunds- dóttir, f. 1907, d. 1986, húsmóðir í Neskaupstað og síðar starfsmaður viö Laugavegsapótek í Reykjavík. Ætt Bróðir Jóns ísfeld var Kristján faöir Jóns ísfeld, pr. og rithöfundar. Jón var sonur Guðmundar, b. á Hesteyri, hálfbróður Guðlaugar, ömmu Guðmundar Sveinssonar, skólameistara FB. Guðmundur var sonur Guðmundar, b. á Ekkjufelli, Sturlusonar, b. á Ekkjufelli, Stefáns- sonar, b. á Þverhamri, Magnússon- ar, bróður Sigríðar, langömmu Önnu, langömmu Þórbergs Þórðai’- sonar, og langömmu Þorbjargar, langömmu Daviðs seðlabankastjóra, foður Ólafs, ráðuneytisstjóra forsæt- isráðuneytisins. Móðir Guðmundar á Hesteyri var Anna Jónsdóttir, b. á Urriðavatni, Árnasonar. Móðir Jóns ísfeld var Þórunn Pálsdóttir ísfeld, snikkara á Lamb- eyri, Eyjólfssonar ísfeld skyggna, snikkara á Syðra-Fjalli, langafa Jó- hönnu, langömmu Vals Amþórsson- ar. Móðir Þórunnar var Gróa Ei- ríksdóttir, b. á Egilsstöðmn, bróður Kristínar, ömmu Sigfúsar Sigfús- sonar þjóðsagnasafnara og langömmu Eysteins, fyrrv. ráðherra og dr. Jakobs prests. Eiríkur var sonur Jóns, pr. í Vallanesi, bróður Sturlu á Ekkjufelli. Móðir Eiríks var Þóra Stefánsdóttir, skálds í Vallanesi, Ólafssonar, skálds á Kirkjubæ, Einarssonar, skálds í Eydölum, Sigurðssonar. Ásgerður var dóttir Guðmundar, smiðs í Steinholti í Borgarfirði eystra, bróður Guðmundar, refa- skyttu á Ingjaldssandi. Systir Guð- mundar var Helga, fyrri kona Sig- urðar bókbindara, föður Helga Sig- urðssonar hitaveitustjóra. Guð- mundur var sonur Einars, b. á Heggsstöðum, Guðmundssonar Vestmann. Móðir Einars var Helga, systir Sigurðar, afa Helga Hjörvar. Helga var dóttir Horna-Salómons. Móðir Guðmundar var Steinþóra Einarsdóttir, b. í Tjarnarhúsum, bróður Solveigar, móður Kristins í Engey, langafa Bjama Benedikts- sonar forsætisráðherra og Guðrún- ar, konu Jóhannesar Zoéga, fyrrv. hitaveitustjóra. Einar var sonur Korts, óðalsb. á Möðruvöllum, Þor- varðarsonar. Móðir Steinþóm var Guðrún Gisladóttir, b. á Seljalandi, Jónssonar og Sigríðar Lýðsdóttur sýslumanns Guðmundssonar. Móðir Ásgerðar var Sigríður Bjamadóttir, b. á Hofi í Dýrafirði, Bjömssonar og Valgerðar Þorsteins- dóttur, pr. á Stað á Snæfjallaströnd, Þórðarsonar. Dagbjört J. Guðmundsdóttir húsmóðir í Kópavogi Dagbjört Jóna Guð- mundsdóttir, Kjarrmóa 4, Kópavogi, er sextug í dag. Starfsferill Dagbjört fæddist í Vog- um á Vatnsleysuströnd og ólst þar upp. Hún stundaði nám við Héraðs- skólann í Reykjanesi 1957- 58, var búsett í Reykjavík 1958- 66, og í Grundarflrði til 1984. Þá flutti hún í Kópavoginn. Dagbjört hefur stundað fisk- vinnslu, vann á Vöggu- stofu Thorvaldsen, starfaði hjá Mjólkur- samsölunni í Reykja- vík, á Hótel Óðinsvéum og hefur starfað við ræstingar frá 1989. Fjölskylda Dagbjört giftist 1966 Ágústi Sigiu-jónssyni, d. 1982. Dætur Dagbjartar og Ágústs eru Björg Ágústsdóttir, f. 24.3. 1968, lögfræðingur og bæjarstjóri í Grundarfirði, gift Hermanni Guð- bergi Gíslasyni, f. 24.7. 1966, bif- reiðasmið og vélstjóra, en dóttir þeirra er Björg, f. 16.9. 2001; Stein- þóra Ágústsdóttir, f. 21.12. 1969, húsmóðir á Selfossi, en sambýlis- maður hennar er Sverrir Ingi- mundarson, f. 7.4. 1964, mat- reiðslumaður og eru synir þeirra Ágúst, f. 19.6. 1988, Ingimundur Sigm-ður, f. 13.8. 1992; Dagný Ágústsdóttir, f. 5.8. 1981, nemi í Reykjavík. Háífsystkini Dagbjartar, sam- mæðra, eru Ragnheiður Gróa Vormsdóttir, f. 18.9. 1922, d. 4.9. 1987; Guðrún Bisabet Vormsdóttir, f. 23.2. 1926, d. 7.2. 1995; Þóröur Óskar Vormsson, f. 28.7.1936. Fóstursystkini Dagbjartar eru Þorbjöm Birkisson, f. 7.6. 1932; Gunnhildur Birkisdóttir, f. 16.8. 1941; Guðný Birkisdóttir, f. 16.8. 1941; Pétur Sigurðsson, f. 10.7. 1949. Foreldrar Dagbjartar voru Guð- mundur Sæmundsson og Stein- þóra Bjarndís Guðmundsdóttir. Þau bjuggu í Vogum á Vatnsleysu- strönd. Dagbjört tekur á móti gestum að Suðurlandsbraut 30, Reykjavík, 2. hæð, laugardaginn 15.2. milli kl. 17.00 og 19.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.