Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2003, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2003, Síða 29
ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2003 29 DV Sport * Jóhann B. Guðmundsson skoraöi tvö mörk þegar Lyn vann öruggan sigur á Lillestram í æflngaleik um helgina. Bæöi mörk Jóhanns B. voru úr vítaspyrnum en auk hans var Helgi Sigurösson í framlínu Lyn. Daviö Þór Viöarsson kom inn á sem varamaður á 27. mínútu í liði Lille- strem en Gylfi Einarsson, Rikharö- ur Daöason og Indriöi Sigurðsson voru allir fjarri góðu gamni í leiknum. Forráöamenn enska úrvalsdeildar liösins Fulham íhuga nú að spila heimaleiki sína á næsta tímabili á heimavelli Chelsea, Stamford Bridge. Fulham hefur spilaö heimaleiki sína á Loftus Road, heimavelli Queens Park Rangers, á þessu tímabili og vantar sárlega framtíðarheimUi. Fylkismenn fá mikinn liösstyrk fyrir baráttuna í Símadeildinni í sumar: Haukur Ingi á leið í Árbæinn Forráðamenn Fulham telja hag sín- um betur borgið á Stamford Bridge og hafa hafið viðræður viö forráðamenn Chelsea inn málið. Austurriski skiöakappinn Her- mann Maier þarf að gangast undir aðgerð á næstunni og missir væntan- lega af lokahluta yflrstandandi keppn- istímabils. Maier, sem meiddist illa á fæti i ágúst 2001, þarf að láta fjarlægja nagla úr fætinum og segja læknar liösins að þar sem Maier hafl náð markmiðum sínum fyrir þetta tímabfl sé sniðugast aö láta fjarlægja naglann núna þannig að hann geti komið í toppformi þegar næsta keppnistímabil hefst. Bandariski spretthlauparinn Tim Montgomery, sem á heimsmetið í 100 metra hlaupi, mun ekki taka þátt í Grand Prix innanhússmótinu i Birmingham 21. febrúar næstkom- andi. Hann hcetti viö að keppa þar sem skipuleggjendur mótsins gátu ekki ábyrgst að blaðamenn myndu ekki spyija um þjálfarann Charlie Francis, sem Montgomery er nýhættur hjá. Francis var dcemdur í lífstíðarbann þegar hann var þjálfari sterakögguls- ins Ben Johnson og sögðu skipuleggj- endur mótsins að það yrði ekki hjá því komist að Montgomery yrði spurður spjörunum úr varðandi Francis. Framherjinn Thierry Henry jafnaði um helgina met sem Michel Platini átti þegar hann skoraði mark Arsenal gegn Newcastle. Þetta var 104. mark Henrys fyrir Arsenal en Platini skor- aði jafnmörg fyrir italska liðið Juventus. Þeir hafa þvi skorað flest mörk allra franskra leikmanna frá upphafi fyrir félög utan Frakklands. Knattspyrnusamband Evrópu og Alþjóöa knattspyrnusambandiö eru komin í hár saman vegna fyrirhug- aðrar heimsmeistarakeppni félagsliða árið 2005. Félög innan knattspymu- sambands Evrópu telja að áiagið á leikmenn liðanna sé meira en nóg fyr- ir og vilja aukinheldur fækka til- gangslausum vináttulandsleikjum sem gera ekkert nema auka álagiö. Það verður fróölegt að fylgjast með ffamhaldinu en Sepp Blatter, forseti Alþjóða knattspymusambandsins, fer varla að láta félög i Evrópu stjóma sínu sambandi og mótum á vegum þess. ’ Króaiiska skiöastúlkan Janica Kostelic tryggði sér í gær sigur í alpatvíkeppni á heimsmeistaramðt- inu í St. Moritz í Sviss. Nicole Hosp frá Austurriki varð önnur, aðeins 6/100 úr sekúndu á eftir Kostelic, og Marlies Oester frá Sviss varð þriðja. Slóvakiski varnarmaöurinn Stan- islav Varga hefur skrifað undir samning við skosku meistarana Celt- ic til loka tímabilsins. Varga var leystur undan samningi hjá Sunder- land í siðasta mánuði en sá fyrirvari er þó á samningi hans við Celtic að hann standist læknisskoðun og fái at- vinnuleyfi. Jimmy Floyd Hasselbaink, fram- herji Chelsea, sem hefur verið ansi grimmur í spilavítum Lundúnaborgar undanfarin ár, segist ekki ætla að hætta að spila þrátt fyrir mikla um- ræðu í Englandi um skaösemi fjár- hættuspils. „Þetta eru minir peningar, ég vann fyrir þeim og þaö getur enginn bann- að mér að stunda fjárhættuspil. Á meðan ég þarf ekki að fá lán hjá öðr- um þá er ég ekki byrði á neinum, það kemur engum við hvort ég hef tapaö 100 milijónum eða unniö 100 mUljón- ir,“ sagði Hasselbaink viö enska fjölmiðla í gær. -ósk - gengur frá samningi við Fylkismenn á næstu dögum samkvæmt heimildum DV- DV-Sport hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að landsliðsmað- urinn Haukur Ingi Guðnason, sem leikið hefur með Keflavík, muni ganga til liðs við Fylkismenn á næstu dögum. Hann hefur verið í viðræðum við nokkur lið í Símadeildinni að und- anfórnu en samkvæmt heimildum DV-Sports voru það tvö lið, Fylkir og Fram, sem háðu lokabaráttuna um Hauk Inga. Framarar vildu fá hann lánaðan í eitt ár en samkvæmt Brynjari Jóhannessyni, fram- kvæmdastjóra meistaraflokksráðs karla hjá Fram, slitnaði upp úr við- ræðum milli Fram ög Keflavíkur um helgina. „Við hefðum aldrei haft efni á að kaupa hann miðað við þá upphæð sem Keflvíkingar vildu fá fyrir hann en hefðum gjaman viljað fá hann lánaðan enda er hann mjög góður leikmaður,“ sagði Brynjar Jóhannesson. Landslið úr myndinni í 1. deild Haukur Ingi hefur verið harð- ákveðinn í því að spila ekki með Keflvíkingum í 1. deildinni á næsta tímabili þar sem hann telur sig ekki eiga möguleika í landsliðshóp Atla Eðvaldssonar ef hann spilar þar. Keflvíkingar hafa hins vegar ekki viljað missa hann fyrir fullt og allt og mikill þrýstingur hefur verið á stjórn knattspymudeildar Keflavík- ur frá stuðningsmönnum liðsins að halda öllum bestu leikmönnum þess og fara beint upp í Símadeildina á nýjan leik. Mál Hauks Inga hefur því tekið töluverðan tíma. Rúnar Amarson, formaður knattspyrnudeildar Kefla- víkur, sagði í samtali við DV-Sport í gær að mikil áhersla hefði verið lögð á að vinna þetta mál náið með Hauki Inga en fór hins vegar ekki leynt með að helst hefði hann viljað að Haukur Ingi hefði skrifað undir nýjan samning við Keflavík, verið lánaður til annars liðs á meðan Keflavík væri í 1. deildinni og síðan komið til baka. Kveð með söknuði Þegar DV-Sport náði tali af Hauki Inga í gærkvöld vildi hann ekki Haukur Ingi Guönason sést hér í landsleik gegn Litháum i október á siöasta ari en hann gengur til liös viö Fylkismenn á næstu dögum. ÐV-mynd Hari staðfesta að búið væri að ná sam- komulagi við Fylki en sagði að mál- in væra sem betur fer að komast á hreint. „Þetta er búinn að vera erfiður tími. Ég hef reyndar æft með Kefl- víkingum undir stjóm frábærs þjálfara, Milans Stefáns Jankovic, og mun kveðja félagið með söknuði. Það er hins vegar alveg ljóst að ég verð að spila í efstu deild ef ég á að eiga einhvern möguleika á að kom- ast í landsliðið. Það er leikur eftir tæpa tvo mánuði og ég þarf að fara að komast i leikæfingu sem fyrst,“ sagði Haukur Ingi við DV-Sport. Það er ljóst að Fylkismenn ætla sér stóra hluti í Símadeildinni á komandi tímabili og verður erfitt að sjá önnur lið en KR og Fylki í topp- baráttunni á ný, sérstaklega í ljósi þeirra leikmanna sem gengið hafa í raðir félaganna tveggja frá því að síðasta tímabili lauk. -ósk Eggert á batavegi - sér loks fyrir endann á meiðslamartröð sinni Allar likur eru á að varnarmaður- inn sterki Eggert Stefánsson, sem leik- ur með Fram, verði klár í slaginn þeg- ar flautað verður til leiks í Símadeild- inni í sumar. Eggert hefur átt við þrálát meiðsli að stríða undanfarið ár og spilaði af þeim sökum aðeins fáa leiki með Fram á síðasta sumri, þá reyndar þjáður og langt frá sínu besta. Erfiðlega gekk að finna hvað amaði að Eggerti en hann hefur verið í sprautumeðferð undan- farið og hún hefur gefið það góða raun að verkur sem hann hefur fundið fyrir í lengri tíma í festingum efst í lær- vöðvanum er horfln og útlit fyrir að hann verði alheill innan skamms. Erfitt andlega „Ég er byrjaður að lyfta og finn ekk- ert til. Ég vonast tii að geta æft með liðinu á næstu tveimur til þremur vik- um. Þetta ár hefur verið gífurlega erfitt andlega en loksins sér maöur fyrir endann á þessari martröð," sagði Eggert í samtali við DV-Sport í gær- kvöld. Eggert átti frábært tímabil með Fram í Símadeildinni 2001, vakti verð- skuldaða athygli og nokkur erlend lið litu hýru auga til hans. Atvinnu- mannadraumurinn fór í bið þegar hann meiddist en Eggert hefur síður en svo gefið þann draum upp á bátinn. Ætla i atvinnumennskuna „Það er alveg á hreinu að ég ætla mér að komast í atvinnumennskuna. Það markmið hefur keyrt mig áfram í meiðslunum og ég get hreinlega ekki verið mirrni maður en bræður mínir,“ sagði Eggert en Ólafur Stefánsson, handknattleiksmaður hjá Magdeburg, og Jón Arnór Stefánsson, körfuknatt- leiksmaður hjá Trier, eru bræður hans. „Mér líst vel á Fram-liðið. Það er ungt og efnilegt og ég er viss um að við getum gert góða hluti á komandi keppnistímabili." -ósk Eggert Stefánsson er aö ná sér af þrálátum meiöslum. <F-~ •C. f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.