Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2003, Síða 32
NT
a '9 m
Láttu
okkur leita
fyrir þig
www.gulalinan.is
Hyrjarhöfði 7sími: 567 8730
hraðferð i Arbæiim
i
i
i
i
4
i
i
4
i
i
4
i
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
Veðurhamurinn
olli engum usla
Landsmenn voru vel á verði í gær-
dag þegar ofsaveðrið gekk yfir landið.
Litlar skemmdir urðu á eignum fólks
en truflanir á samgöngum auk þess
sem rafmagn fór af timabundið í örfá-
um tilfellum. Ekki voru nein slys rakin
til veðurofsans.
Austur á Flúðum var mikill veður-
hamur um tíma í gær. Smáhýsi
skemmdist á einum bæ, rúður fóru
sums staðar úr gróðurhúsum og plast-
hús rifnaði en á annað hundrað manns
eystra nota slík hús til ræktunar.
Nokkrir bílar fóru út af vegum án þess
að þar yrðu slys.
í Mýrdal var ofsaveður þegar líða
tók á dag. Björgunarsveitin Víkverji
var kölluð til og kom í veg fyrir tjón á
gömlum súrheysturni á Brekkum. Þar
var net sett yfir þakið tO að koma í
veg fyrir fok á þakplötum.
- í morgun var suðvestan- og vestanátt
á landinu og víðast hvar hvasst, þetta
18 til 23 metrar á sekúndu. Hlýtt var
víða um land, 7 stig á Hallormsstað, 6 á
Akureyri og 4 á Bolungarvík klukkan 6
í morgun. Búist var við stormi sunnan
og vestan tii á landinu í fyrstu en norð-
an til fram yfir hádegi. Síðdegis má bú-
ast við suðaustanátt með rigningu eða
slyddu vestan til. - JBP
HMY-Airways hættir
viö íslandsflug:
Vonir nú bundnar
við nýtt féiag
- Canada West
sagt í burðarliðnum
Kanadíska flugfélagið HMY-
Airways hefur ákveðið að fella
niður alft flug til Evrópu. Þar með
hættir félagið millilendingum á ís-
landi og er borið við hættu á
hugsanlegum stríðsátökum í írak.
Steinþór Jónsson, umboðsmað-
ur félagsins í Keflavík, segir þetta
vissulega mjög sárt þar sem mikið
hafi verið bókað hér í flug félags-
ins. Hann segist þó ekki vera bú-
inn að gefa upp alla von því fleiri
flugfélög hafi verið í sambandi við
sig um flug á þessari leið.
„Áður en HMY kom til var ég í
sambandi við flugfélag sem stefnir
að því að byrja í sumar og heitir
Canada West. Maður gerir sér þó
grein fyrir því að staðan í dag og
hert eftirlit á flugvöllum i Evrópu
getur haft áhrif víðar en hjá HMY
Airways." - Hugmyndin að
Canada West er sprottin upp úr
Canada 3000 eins og HMY Airwa-
ys en greint var frá því í DV í
byrjun desember.
í tilkynningu HMY til Steinþórs
Jónssonar, umboðsmanns félags-
ins í Keflavík, sem greint var frá í
Víkurfréttum í morgun, segir
m.a.:
„Vegna yfirvofandi stríðs við
Persaflóa og hugsanlegra hryðju-
verka hefur mér verið falið af yf-
irstjórn og eiganda að fella niður
öll flug til íslands og Bretlands frá
og með 10. mars nk. Þetta eru
gríðarleg vonbrigði fyrir okkur
hér í Kanada þar sem við sáum
fram á aukin samskipti við ís-
land.“
HMY Airways hóf ferðir 16. des-
ember 2002 og tók þar í raun upp
merki Canada 3000 sem flaug
hingað um flmm ára skeið en
hætti fluginu árið 2001. -HKr.
Sjá nánar bls. 8 og 9
DV-Sport hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að lands-
liðsmaðurinn Haukur Ingi Guðnason, sem leikið hefur
með Keflavík, muni ganga til liðs við Fylkismenn á næstu
dögum.
„Þetta er búinn að vera erfiður tími. Ég hef reyndar æft
með Keflvíkingum undir stjórn frábærs þjálfara, Milans
Stefáns Jankovic, og mun kveðja félagið með söknuði.
Það er hins vegar alveg Ijóst að ég verð að spila í efstu
deild ef ég á að eiga einhvern möguleika á að komast í
landsliðið. Það er leikur eftir tæpa tvo mánuði og ég
þarf að fara að komast í leikæfingu sem fyrst," sagði
Haukur Ingi við DV-Sport. ___________________
■ DV-SPORT BLS. 29
Forsætisráðherra um ræðu Ingibjargar:
Bensíniö:
Lægsta verð
Itækkar enn
Orkan hækk-
aði bensínlítrann
síðdegis i gær úr
89,90 krónum í
91,80. Á ÓB-stöðv-
um Olís kostar
lítrinn 91,90
krónur. Á Akur-
eyri selur Orkan bensínlítrann á
kr. 89,10. Gunnar Skaptason, for-
stjóri Orkunnar, sagði viö DV í
morgun að hann byði enn lægsta
verðið á markaðinum og svo yrði
áfram, hvað sem tautaði og raulaði.
„Hins vegar er eldsneytisverðið
alveg komið út úr kortinu," sagði
Gunnar. „Miðað við þróun heims-
markaðsverðs er það komið langt
út fyrir öll eðlileg takmörk." -JSS
„Ég er undrandi á því hvernig
þetta er lagt upp. Hún er að tala
um forsætisráðherra og ríkis-
stjórn sem hafa dregið úr afskipt-
um af atvinnurekstri meira en
nokkur önnur ríkisstjórn, bæði
með þvi að breyta leikreglum á
markaði og með því að einka-
væða fyrirtæki í stórum stíl,“ seg-
ir Davíð Oddsson um ræðu Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur á
flokksstjórnarfundi Samfylking-
arinnar um helgina. Ingibjörg
Sólrún sagði að afskipti stjóm-
valda af fyrirtækjum væru ein
helsta meinsemd atvinnulífsins
og beindi spjótum sínum sérstak-
lega að forsætisráðherra.
„Ég vona nú að kosningabarátt-
an verði málefnalegri heldur en
þetta,“ segir Davíð. „Ég er að vísu
ekkert óvanur því að hún veitist
sérstaklega að mér persónulega,
það hefur hún gert oft áður og
Davíð Oddsson. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir.
virðist soldið hafa mig á heilan-
um - eða perunni, eins og krakk-
arnir segja.“
Forsætisráðherraefni
Jóns?
Og afskiptasemin sem blessuð
konan nefnir til sögunnar virð-
ist vera byggð á einhverju sem
hún hefur heyrt og séð skrifað í
einhverjum slúðurfréttum og
þess háttar. Það er nú allt plan-
ið sem byggt er á. Hún eltir uppi
getgátur og slúður um það að
fyrst gerð sé húsleit hjá Jóni
Olafssyni og hjá Baugi þá hljóti
ég að vera á bak við það. Bíddu,
af hverju er ég ekki á bak við
húsleitina hjá Eimskipafélag-
inu? Af hverju er ég ekki á bak
við húsleitina hjá olíufélögun-
um? Af hverju er ég ekki á bak
við húsleitina hjá tryggingafé-
lögunum? Af hverju hefur hún
bara áhyggjur af Jóni Ólafs-
syni?
Mig minnir að skattrannsókn-
arstjóri geri húsleit hjá 25 eða
30 aðilum á ári en fyrrverandi
borgarstjóri hefur bara áhyggj-
ur af Jóni Ólafssyni. Mér fmnst
það afskaplega sérstakt og sér-
kennilegt. Ég hafði ekki áttaö
mig á að hún væri forsætisráð-
herraefni Jóns Ólafssonar og
Baugsfeðganna." -ÓTG
112
EINN EINN TVEIR
NEYÐARllNAN
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ
Dregið hefur verið
úr umsvifum ríkisins
*