Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2003, Blaðsíða 26
50
MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2003
Islendingaþættir______________________________________________________________________________________________________DV
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Stórafmæli
90ára____________________________
Auðunn Gestsson,
Grænumörk 5, Selfossi.
Jón Salómon Jónsson,
Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnarfirði.
85 ára __________________________
Margrét L. Árnadóttir,
Þórsgötu 20, Reykjavík.
80 ára___________________________
Jón Guömundsson,
Skúlagötu 20, Reykjavík.
Sigríður Sigurbjörnsdóttir,
Stekkjarholti 24, Akranesi.
75 ára___________________________
Eiríkur Bragason,
Úthaga 17, Selfossi.
Valtýr Sæmundsson,
Mávabraut lb, Keflavík.
ZOára____________________________
Aðalbjörg Aðalbjarnardóttir,
Miöfelli 8, Egilsstöðum.
Baldur Björnsson,
Borgarsíðu 13, Akureyri.
Guðmundur Sigurjónsson,
Rútsstööum, Blönduósi.
60 ára___________________________
Birgir E. Sumarliðason,
Svarthömrum 17, Reykjavík.
Guðbjörg Eiríksdóttir,
Bogabraut 5, Skagaströnd.
Inga Svava Ingólfsdóttir,
Birkigrund 37, Kópavogi.
Sæmundur Jóhannsson,
Hjöllum 23, Patreksfiröi.
50 ára___________________________
Heiða Rós Jónasdóttir,
Jakaseli 5a, Reykjavlk.
Magnús Árnason,
Rauðalæk 25, Reykjavík.
Ómar Sigurðsson,
Breiðvangi 21, Hafnarfirði.
Ósa Knútsdóttir,
Bólstaðarhlíð 66, Reykjavík.
Siguriaug S. Smart,
Keilugranda 10, Reykjavík.
40ára ___________________________
Arnlaugur Ólafsson,
Ölduslóð 2, Hafnarfirði.
Benedikt Helgi Sigfússon,
Hafnarnesi 1, Höfn.
Egill Gunnarsson,
Vitastig 25, Bolungarvík.
Haukur Óskarsson,
Stuðlabergi 92, Hafnarfiröi.
Hrönn Jóhannesdóttir,
Brekkustíg 15, Njarðvík.
Jóhann Sveinsson,
Langholtsvegi 83, Reykjavík.
Kristín Guðlaug Magnúsdóttir,
Hallormsstaöarskóla, Egilsstöðum.
Nanna Lovísa Zophoníasdóttir,
Tjarnarbraut 15, Hafnarfirði.
Randy Baldvina Friðjónsdóttir,
Smyrilshólum 2, Reykjavík.
Stefán Hjálmarsson,
Stekkjarhvammi 66, Hafnarfirði.
Tómas Tómasson,
Öldugranda 15, Reykjavík.
Vllhjálmur Árnason,
Reyrengi 28, Reykjavík.
Fólk í fréttum
Matthías
skáld
Matthías Johannessen skáld var
sæmdur heiðursverðlaunum Menn-
ingarverðlauna DV fyrir skáldskap
sinn, viðtalsbækur og sem áhrifa-
mikUl málssvari íslenskrar tungu
og menningar um áratuga skeið.
Starfsferill
Matthías fæddist í Reykjavík 3.1.
1930 og ólst upp í Vesturbænum.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1950 ,cand. mag. prófi í íslenskum
fræðum frá HÍ 1955 og stundaði
hann framhaldsnám við Kaup-
mannahafnarháskóla 1955-56.
Matthías var blaðamaður við
Morgunblaðið frá 1951 og ritstjóri
þess 1959-2001.
Ljóðabækur Matthíasar: Borgin
hló, 1958 og 1998; Hólmgönguljóð,
1960 og 1985; Jörð úr ægi, 1961; Vor
úr vetri, 1963; Fagur er dalur, 1966;
Vísur um vötn, 1971; Mörg eru dags
augu, 1972; Dagur ei meir, Ljóð 74,
1975; Morgun í maí, 1978; Veður
ræður akri, 1981; Tveggja bakka
veður, 1981; Flýgur örn yfir, 1984;
Dagur af degi, 1988; Veröld þín, 1989;
Sálmar á atómöld, 1991; Fuglar og
annað fólk, 1991; Árstíðaferð um
innri mann, 1992; Land mitt og jörð:
Ljóð, 1994; Vötn þín og vængur,
1996; Ættjarðarljóð á atómöld, 1999;
Ljóðaúrval, 2001. Mörg ljóða hans
hafa verið þýdd og gefin út á fjöl-
mörgum tungumálum.
Meðal leikrita Matthíasar: Jón
gamli; Eins og þér sáið; Fjaðrafok;
Sólmyrkvi; Sókrates; útvarpsleikrit-
ið Guðs reiði, og sjónvarpsverkin
Ófelía, og Sjóarinn, spákonan... .
Samtalsbækur Matthiasar: í
kompaníi við allífið, viðtöl við Þór-
berg Þórðarson, 1959; Svo kvað
Tómas, viðtöl við Tómas Guð-
mundsson, 1960; Hundaþúfan og haf-
ið, viðtöl við Pál ísólfsson, 1961; I
dag skein sól, viðtöl við Pál ísólfs-
son, 1964; Kjarvalskver, 1968, og
aukið 1974; Bókin um Ásmund, 1971;
Skeggræður gegnum tíðina, sam-
talsgreinar um Halldór Laxness,
1972; Gunnlaugur Scheving, 1974;
Sverrir Haraldsson, 1977, og I
kompaníi við Þórberg. Samtöl - M,
fimm bindi samtala Matthíasar við
ýmsar persónur, komu út 1977-82.
Matthías sendi frá sér smásagna-
söfnin Nítján þættir, 1981;Konung-
ur af Aragon, 1986; Hvíldarlaus ferð
inn í drauminn, 1995, og Flugnasuð
í farangrinum, 1998.
Skáldsögur eftir Matthías: Sól á
heimsenda, 1987; Spunnið um
Johannessen
Stalin, 1995; Það nærist á góðum
minningum, 2001, og Vatnaskil,
2002. Hann samdi fræðiritin Njála í
íslenskum skáldskap, 1958; Klofn-
ingur Sjálfstæðisflokksins gamla
1915, 1971; ævi- og stjórnmálasögu
Ólafs Thors, tvö bindi 1981; greina-
og erindasafnið Úr helgispjallinu, 9.
bindi, og fræðirit um Jónas Hall-
grímsson, Um Jónas, 1993.
Matthías sat í stjórn Hins ís-
lenska þjóðvinafélags, í Bókmennta-
ráði Almenna bókafélagsins, i
stjórn Filmíu, i stjóm SUS, var,
ásamt öðrum, ritstjóri Stefnis, sat í
stjóm Krabbameinsfélags íslands,
var formaður Stúdentaráðs HÍ,
Stúdentafélags Reykjavíkur, Blaða-
mannafélags íslands 1964-65, Félags
íslenskra rithöfunda, Rithöfunda-
sambands Islands, Rithöfundaráðs,
og Norræna rithöfundaráðsins,
Þjóðhátíðarnefndar 1966-74 og
Menntamálaráðs 1983-87.
Þrjár ljóðabóka Matthíasar voru
tilnefndar til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs: Tveggja bakka
veður; Dagur af degi, og Vötn þín og
vængur. Hann hlaut verðlaun úr
Móðurmálssjóði Bjöms Jónssonar;
viðurkenningu úr Rithöfundasjóði
Ríkisútvarpsins; hefur hlotið heið-
urslaun Alþingis frá 1984; gullmerki
Rauða kross íslands 1995; Verðlaun
Jónasar Hallgrímssonar 1999; er
stórriddari hinnar konunglegu
norsku heiðursorðu, frá 2002, og er
heiðursfélagi Rithöfundasambands
íslands.
Fjölskylda
Matthías kvæntist 26.6. 1953
Hönnu Ingólfsdóttur Johannessen, f.
28.11. 1929, hárgreiðslumeistara.
Hún er dóttir Ingólfs Kristjánsson-
ar, bónda á Víðirhóli á Hólsfjöllum,
og k.h., Katrínar Maríu Magnús-
dóttur húsfreyju.
Synir Matthíasar og Jóhönnu eru
Haraldur, f. 25.6. 1954, lögfræðingur
og ríkislögreglustjóri, kvæntur
Brynhildi Ingimundardóttur hjúkr-
unarfræðingi og eru böm þeirra
Matthías hagfræðingur, Kristján
menntaskólanemi, Anna og Svava;
dr. Ingólfur, f. 17.2.1964, læknir, sér-
fræðingur í veirufræði og lektor við
Edinborgarháskóla.
Systkini Matthíasar: Jósefína
Norland, f. 16.5. 1925, húsmóðir í
Reykjavík; Jóhannes Johannessen,
f. 10.11. 1937, lögfræðingur í Reykja-
vík.
Foreldrar Matthíasar: Haraldur
Johannessen, f.
5.4. 1897, aðalfé-
hirðir Lands-
banka íslands, og
k.h., Anna Jó-
hannesdóttir, f.
2.11. 1900, hús-
móðir.
Ætt
Matthías Johannessen
Matthías er í hópi höfuöskálda þjóðarinnar og hefur um
áratuga skeið, sem ritstjóri Morgunblaðsins, verið einn
áhrifamesti málsvari íslenskrar tungu og menningar.
Föðursystir
Matthíasar var
Ellen, móðir Lou-
isu Matthíasdótt-
ur listmálara.
Haraldur var son-
ur Matthíasar Jo-
hannessen kaup-
manns, frá
Bergen I Noregi.
Móðir Haralds
var Helga Norð-
fjörð Jónsdóttir
Norðfjörð, verslun-
armanns í Reykja-
vík, bróður Sigriðar, ömmu Jakobs
Möller ráðherra, fóður Baldurs,
fyrrv. ráðuneytisstjóra og skák-
meistara, fóður Markúsar hagfræð-
ings. Önnur systir Jóns var Helga,
langamma Hans G. Andersen sendi-
herra. Jón var sonur Magnúsar
Norðfjörð, beykis í Reykjavik Jóns-
sonar, beykis í Reykjafirði, bróður
Guðbjargar, langömmu Sigríðar,
ömmu Friðriks Ólafssonar stór-
meistara, og langömmu Jóhanns,
afa Jóhanns Hjálmarssonar skálds.
Önnur systir Jóns var Hallgerður,
langamma Ágústs H. Bjamasonar
heimspekings. Móðir Jóns verslun-
armanns var Helga Ingimundardótt-
ir, systir Ingigerðar, langömmu
Bjargar, ömmu Garðars Cortes óp-
erusöngvara. Bróðir Helgu var Ólaf-
ur, langafi Valgerðar, ömmu Einars
Benediktssonar sendiherra.
Móðursystkini Matthíasar: Láras,
alþm. og hæstaréttardómari, og El-
ín, húsmóðir. Faðir Önnu var Jó-
hannes, bæjarfógeti í Reykjavík Jó-
hannesson, sýslumanns Guðmunds-
sonar, b. á Miklahóli í Viðvíkur-
sveit, bróður Halls, fóður Sigurðar,
langafa Páls Péturssonar félags-
málaráðherra. Annar bróðir Guð-
mundar var Jóhannes, hreppstjóri í
Hofsstaðaseli, afi Vilhjálms Stefáns-
sonar landkönnuðar. Guðmundur
var sonur Jóns, b. á Bjamastöðum
Jónssonar, fjórðungslæknis í Viðvík
Péturssonar. Móðir Jóns á Bjarna-
stöðum var Guðrún Hallgrímsdóttir
(Djákna-Gunna), sú er Myrkár-
djákninn glettist við. Móðir Jóhann-
esar bæjarfógeta var Maren Ragn-
heiður Friðrika Lárusdóttir, sýslu-
manns að Enni Thorarensen, Stef-
ánssonar, amtmanns á Möðruvöll-
um Þórarinssonar, ættföður
Thorarensenættar Jónssonar. Móð-
ir Lárasar var Ragnheiður Vigfús-
dóttir, sýslumanns á Víðivöllum
Scheving. Móðir Marenar var Elín
Jakobsdóttir Hafstein, systir Péturs
Hafstein amtmanns, föður Hannes-
ar, skálds og ráðherra.
Móðir Önnu var Jósefína
Antónína, systir Haralds Blöndal
ljósmyndara, afa Benedikts hæsta-
réttardómara, Halldórs alþingisfor-
seta og Haralds hrl. Jósefína var
dóttir Lárusar Blöndal, amtmanns á
Kornsá, bróður sýslumannanna,
Gunnlaugs og Magnúsar. Láras var
sonur Björns Blöndals, ættföður
Blöndalsættar Auðunssonar. Móðir
Jósefinu var Kristin, dóttir Ásgeirs,
dbrm. og bókbindara á Lambastöð-
um, bróður Jakobs, pr. í Steinnesi,
langafa Vigdisar Finnbogadóttur, en
móðir Kristínar, Sigríður, var syst-
ir Þuríðar, langömmu Vigdísar.
Hálfsystir Sigríðar, samfeðra, var
Rannveig, langamma Þórunnar,
móður Gylfa Þ. Gíslasonar, fyrrv.
ráðherra, foður Þorsteins heimspek-
ings. Sigríður var dóttir Þorvalds,
pr. og skálds í Holti Böðvarssonar,
pr. í Holtaþingum Högnasonar,
prestafóður á Breiðabólstað Sig-
urðssonar.
Fanney Ingibjörg Sæbjörnsdóttir
húsmóðir í Sandgerði
Fanney Ingibjörg Sæbjömsdóttir
húsmóðir, Brekkustíg 11, Sand-
gerði, varð áttræð í gær.
Starfsferill
Fanney fæddist í Nýjabæ i
Skeggjastaðahreppi, N-Múlasýslu og
ólst þar upp við hefðbundin sveita-
störf. Hún þurfti snemma að leggja
heimilinu lið því bamahópurinn
var stór.
Rúmlega tvítug fluttist Fanney til
Sandgerðis ásamt fjölskyldu sinni.
Þar byrjuðu þau Jóhann að búa í
Tungu, sem nú er Brekkustígur 11,
og hafa búið þar síðan.
Fjölskylda
Fanney giftist 18.12.1948 Jóhanni
Óskari Þorkelssyni, f. 13.11. 1915, d.
25.6. 1999, verkstjóra hjá Garði hf.
og síðar hjá Rafni hf. Hann var son-
ur Þorkels Þorkelssonar, f. 31.3.1884
í Hólakoti i Miðneshreppi, d. 28.3.
1971 í Keflavík, fyrrum b. í Hólakoti
og Melabergi í Miðneshreppi, og
Svanhvítar Sigríðar Þórarinsdóttur,
f. 3.3. 1885 að Brekku í Fljótsdal i N-
Múlasýslu, d. 1.8.1959 í Sandgerði.
Böm Fanneyjar og Jóhanns eru
Edda Sigurveig, f. 27.9. 1946, hús-
móðir í Sandgerði, gift Degi Ingi-
mundarsyni útgerðarmanni og eiga
þau Njólu, f. 1.2.1981, Bjarka, f. 22.5.
1982, og Kjartan, f. 17.3. 1985, fyrir
átti Edda Anthony John Stissi, f.
13.7. 1971; Sigurður Þorkell, f. 11.3.
1948, verkstjóri í Sandgerði, kvænt-
ur Ámýju Viggósdóttur húsmóður
og eiga þau Guðrúnu Ingu, f. 7.12.
1967, Fanneyju Steinunni, f. 6.6.
1972, og Ólaf Viggó, f. 26. 9.1979, fyr-
ir átti Sigurður soninn Karsten
Vang, f. 29.12. 1966; Ásta Sæbjörg, f.
11.3. 1948, kaupkona í Neskaupstað,
gift Guðmundi Sveinssyni kaup-
manni og eiga þau Svein, f. 26.5.
1970, Guðveigu Bjamýju, f. 22.7.
1973, Fanneyju Ingibjörgu, f. 16.2.
1976, og Jóhann Óskar, f. 20.5. 1983;
Ingibjörn Guðjón, f. 21.2. 1949,
starfar hjá SR-Mjöli á Siglufirði, var
kvæntur Svanhildi Björnsdóttur
húsmóður og eiga þau Erlu Ósk, f.
15.6. 1982 en fyrir átti Ingibjörn Jó-
hann Fannar, f. 17.6. 1972, og Stein-
unni Dröfn, f. 17.5.1975; Sesselja Sig-
ríður, f. 11.4. 1950, húsmóðir í Sand-
gerði, gift Emi Högnasyni verka-
manni og eiga þau Má Grétar, f. 9.4.
1978, Vilhelmínu Oddnýju, f. 2.7.
1980, og Örn Hauk, f. 6.1.1990; Hulda
Ósk, f. 25.12. 1951, húsmóðir í Sand-
gerði, gift Jónasi Jónssyni verka-
manni og eiga þau Jónu Ósk, f. 18.3.
1975, Ingu Rut, f. 29.11. 1978, og Guð-
mund Jónas, f. 13.5. 1986; Skúli
Ragnar, f. 18.11. 1952, verkamaður í
Sandgerði, kvæntur Sólrúnu Maríu
Henriksdóttur húsmóður og eiga
þau Vilhjálm, f. 10.8. 1979, Svövu
Kristínu, f. 2.1. 1982, og Hrafnhildi,
f. 11.12. 1986; Óskar Fannberg, f.
14.5. 1955, verslunarmaður í Sand-
gerði, kvæntur Bjameyju Ragnheiði
Finnbogadóttur húsmóður og eiga
þau Óskar Inga, f. 15.2.1984 en fyrir
átti Bjamey Sigurð Rúnar Bergdal,
f. 6.4. 1972, nú látinn, sem Óskar
gekk í föðurstað; Svanhvít Sigríður,
f. 2.6. 1959, húsmóðir í Sandgerði,
gift Jóni Kristjánssyni skipstjóra en
fyrir átti Svanhvít Hafstein Má, f.
30.12. 1976, Helga Sævar, f. 27.11.
1979, og Guðmund Adam, f. 11.10.
1984 en dóttir Svanhvítar og Jóns er
Kristín Sigurbjörg, f. 19.7. 1994.
Foreldrar Fanneyjar voru Sæ-
bjöm Þórarinsson, f. 25.3. 1886 á
Brekku í Fljótsdal, N-Múlasýslu, d.
22.9. 1973, bóndi og söðlasmiður í
Nýjabæ í Skeggjastaöahr., síðar
verkamaðm- í Sandgerði, og Ásta
Laufey Guðmundsdóttir, f. 15.2.1905
í Reykjavík, d. 20.12.1973 i Bergholti
í Sandgerði, húsmóðir.