Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2003, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003
Fréttir
DV
Nafn: Benedikt
Jóhannesson.
Aldur: 47 ára, naut.
Fjölskylda: Kvæntur Vigdísi
Jónsdóttur, 3 börn.
Menntun: BS í stærófræöi, MS í
tölfræöi og Ph.D i
tölfræöi.
Starf: Framkvæmdastjóri
Heims hf. og situr í
stjórnum nokkurra
félaga.
Efni: Tekur í dag vió sem
stjórnarformaður Hf.
Eimskipafélags ís-
lands.
Benedikt Jóhannesson hefur
verið að hasla sér völl sem einn
helsti valdamaður í íslensku við-
skiptalífi, situr þegar í stjórnum
fjölmargra félaga og er stjórnar-
formaður í Nýherja, Skeljungi,
Myllunni og nú Eimskipafélaginu.
Þegar leitað er eftir palladómum
samferðamanna um Benedikt ber
flest að sama brunni. Jón G.
Hauksson, ritstjóri Frjálsrar versl-
unar og samstarfsmaður Bene-
dikts til margra ára, er ekki í vafa
eftir hverju menn eru að sækjast
þegar þeir leita til Benedikts um
að taka að sér trúnaðarstörf eins
og stjórnarformennsku.
„Benedikt er afar heiðarlegur
maður og réttsýnn. Hann er glögg-
ur og eldfljótur að greina aðal-
atriði frá aukaatriðum. Hann er
hugrakkur og lætur engin mál slá
sig út af laginu. Stjórnarfor-
mennska er í eðli sínu eftirlits-
hlutverk þar sem fylgst er með
gangi mála og unnið að stefnumót-
un og markmiðssetningu. í slíkri
vinnu er mjög gott að hafa mann
sem heldur sig við aðalatriðin og
sér þau strax,“ segir Jón G.
Hauksson.
Viðmælendur DV eru allir sam-
mála um að Benedikt sé afar hæfi-
leikaríkur leiðtogi sem leiðir
vinnu hóps manna án þess þó að
skipta sér of mikið af daglegu
starfi. Þá er hann stálminnugur og
fullyrt að fletta megi í honum eins
og bók.
Hreinn og beinn
Benedikt er sjálfstæöismaður en
siður en svo að elta vilja flokksins
í einu og öllu. Hann stendur fast á
sínu, er mikill prinsippmaður og
óhræddur að horfast í augu við
hlutina eins og þeir eru. Þótt
Benedikt hafi ekki hátt eða berist
á er þó ekki hægt að segja að hann
læðist með veggjum. Greinar hans
um ýmis mál þykja skeleggar og
hafa vakið athygli. Þar er stund-
um fast að orði kveðiö og engum
hlíft.
Haukur Lárus Hauksson
blaöamaöur
Kolbeinn Kristinsson, forstjóri
Myllunnar, hefur unnið náið með
Benedikt í bráðum 8 ár. Hann tek-
ur undir ofanritað og bætir við að
það sé afar gott að vinna með hon-
um. „Auk þess að vera eldklár og
snöggur að sjá aðalatriði máls er
hann alltaf hreinn og beinn. Mað-
ur veit nákvæmlega hvar maður
hefur hann.“
Á eigin verðleikum
Benedikt er vel í sveit settur ef
ætt hans er skoðuð. Hann er af
Engeyjarættinni en móðir hans var
systir Bjama Benediktssonar for-
sætisráðherra. Og svo er hann
Zoéga í foðurættina en faðir hans,
Jóhannes Zoega, var hitaveitustjóri
í Reykjavík. Benedikt hefur aldrei
leitað upphefðar með ættartengsl
.sín að vopni. „Þeir sem sækjast eft-
ir starfskröftum Benedikts eru
fyrst og fremst að hugsa um hæfi-
leika hans,“ sagði Jón.
Stærðfræðiséní
Benedikt hefur alla tíð þótt
metnaðargjarn maður. Hann var
afburðanemandi og fékk fjölda
verðlauna í stærðfræði í háskól-
um í Bandaríkjunum. En hann
var aldrei utangátta. Eða eins og
einn gamall félagi sagði: „Bene-
dikt er mikill stærðfræðingur en
hann er eðlilegur stærðfræðing-
ur.“
Benedikt var mjög áberandi í fé-
lagslífi í menntaskóla, var í stjórn
málfundafélagsins Framtíðarinn-
ar í MR og síðan formaður. Það
vissu allir í MR hver Benedikt var
á þessum tíma.
Spyrja má af hverju maður með
hæfileika Benedikts hafi ekki far-
ið á kaf í stærðfræðina sem fræði-
grein. Viðmælendur DV svara því
til að hann sé einfaldlega svo
áhugasamur um það sem hann
tekur sér fyrir hendur og hann
þrífist mjög vel í viðskipta-
umhverfi. Benedikt heldur stærð-
fræðinni þó við, hefur verið próf-
dómari í stærðfræði og var for-
maður Hins íslenska stærðfræði-
félags í tvö ár.
Benedikt er mikið fyrir göngu-
túra og spilar körfubolta reglulega
árla morguns með félögum sínum.
Heimildir herma að hann sé Vals-
ari að upplagi. Hann les heil ósköp
og á ferðalögum erlendis má oft
sjá eftir honum inn í bókabúðir.
Annars er Benedikt lýst sem
ferðaglöðum fjölskyldumanni.
Fyrirtaks veislustjóri
Þeir sem séð hafa Benedikt í
sjónvarpi eða hitt hann verða
fljótt varir við mikla kímnigáfu.
„Benedikt er einn mesti húmoristi
sem ég hef kynnst," segir Jón G.
Hauksson og fleiri taka undir það.
Og hann er alls ófeiminn við að
koma fram, nýtur þess satt að
segja. Hann þykir góður ræðu-
maður, talar gjaman blaöalaust,
og er ósjaldan fenginn í hlutverk
veislustjóra.
Kímnigáfa hans þykir þó á
stundum svolítið sérstök og sting-
andi. Og hnjóti menn um eitthvað
sérstakt í fari Benedikts er það
helst að hann þykir stundum svo-
lítið stífur á meiningunni sem aft-
ur má rekja til þess að hann er
mikill prinsippmaður. Sumum
kann að finnast hann þver á
stundum en hann stendur þannig
að málum að síður kastast í kekki
milli hans og þeirra sem kunna að
vera á öndverðum meiöi.
Skeljagrandabræður ákærðir fyrir tvær fólskulegar líkamsárásir:
Segjast hafa fyllst skelfingu
og því skilið fórnarlambið eftir
Aðalmeðferö í máli tveggja
bræöa, sem eru m.a. ákærðir fyrir
tvær líkamsárásir síðastliðið sum-
ar, hófst fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. í ákærunni segir m.a.
að bræðrunum sé gefið að sök að
hafa að morgni fóstudagsins 2. ágúst
sl. veist að ungum manni á heimili
sínu að Skeljagranda og síðan barst
leikurinn út og endaði á göngustíg
við Rekagranda. Bræðurnir eru
ákærðir fyrir að hafa slegið mann-
inn í andlit og líkama með kreppt-
um hnefum og bareflum, stungið
hann og skorið meö eggvopnum og
misþyrmt honum með öðrum hætti
með þeim afleiðingum að hann
hlaut m.a. tólf stungu- og skurðsár í
andlit og líkama, gat á vinstra eyra,
sem £innar ákærða veitti honum
með beltisgatara, brot í ennisbeini
og nefrót, fjóra skurði á höfði, blóö-
söfnun undir höfuðleðri og lífs-
hættulega blæðingu milli heila-
himna. Bræðurnir eru einnig
ákærðir fyrir líkamsárás sama
morgun við Eiðistorg en þá réðust
þeir á mann og slógu hann m.a. með
skóflu í handlegg, sneru hann niöur,
bitu í handlegg og spörkuðu í höfuð
hans þar sem hann lá. Þeir hafa við-
urkennt sakargiftir aö hluta.
Fylltust skelfingu
Bræðurnir báru báðir vitni fyrir
réttinum í gær og viðurkenndu
hvað varðar fyrri árásina að til
átaka hefði komiö á heimili þeirra í
kjölfar þess að þeir töldu að fórnar-
lambið hefði stolið peningum frá
þeim. Annar bræðranna viður-
kenndi við vitnaleiöslur að hafa
slegiö hann nokkrum sinnum í bak-
ið með kústskafti og hinn viður-
kenndi að hafa gatað í eyra hans
með beltisgatara og kýlt hann
nokkrum sinnum í andlitið með
hnefanum með þeim afleiðingum að
hann féll við og skall með höfuðið í
ofn. Við það hefði blætt mikið úr
höfði hans og hefðu þeir bræður
skolað hann í baðkari þeirra og vaf-
ið grisju um höfuð hans. Hann lýsir
atburðinum síðan svo að eftir þetta
hafi þeir farið út með manninn í
þeim tilgangi að láta hann vísa á
peningana. Fórnarlambið hafi verið
með fullri meðvitund á þeim tíma.
Bræðurnlr koma fyrlr dóm í gær
Réttarhöld í máli Skeljagrandabræöra
hófust í gær en þeir eru ákæröir fyrir
tvær fólskulegar líkamsárásir sem
báöar áttu sér staö síöastliöiö sumar.
Bræöurnir hafa setiö í gæsluvarðhaldi
frá því um verslunarmannahelgi eöa
síöan þeir voru valdir aö seinni
árásinni. Þeir hafa áöur komist i kast
viö lögin.
Eria Kristín Árnadóttir
blaöamaöur
Komið hafi til ryskinga og hann
haupið í burtu en lent í öðrum
bræðranna og við það fallið í gang-
stéttina og rotast. Sagði hann þá
bræöur hafa fyllst við þetta mikÚli
skelfingu og þeir ákveðið að fara
með hann í leikskólagarð og skilja
hann þar eftir í þeirri von að hann
fyndist fljótlega. Fómarlambið lá
eftir alvarlega slasað á gangstétt-
inni.
Stangastá
Réttarhöldin eru umfangsmikil
en á þriðja tug vitna hefur verið
kvaddur fýrir dóminn. Þar á meðal
eru nágrannar í Grandahverfi eða
fólk sem átti leið hjá á sama tíma og
árásin. Þá verða nokkrir sérfræð-
ingar kvaddir til en einn þeirra,
Þóra Steffensen réttarmeinafræðing-
ur, kom fyrir dóminn í gær. Hún
segir útilokað að frásögn bræðranna
af því að fómarlambið hafi hlotið
höfuðáverka þegar það féll tvívegis;
fyrst á heimilinu og síðar á göngu-
stígnum.
Hún segir áverka fórnarlambsins
eftir ýmis vopn. Þannig stangast
vitnisburður bræðranna á við vitn-
isburð Þóru að hluta.
Aðalmeðferð málsins verður
framhaldið fyrir Héraðsdómi í dag.
Vaxtalaus
bílalán hjá
Bílalandi
Bílaland, söludeild notaðra bOa
hjá B&L, býður allt að einnar millj-
ónar króna vaxtalaus bOalán dag-
ana 12. tO 15. mars nk. Lánin eru
tO aUt að 48 mánaða og verða fáan-
leg þessa fjóra tOboðsdaga.
„Langflest bOakaup eru gerð með
bOalánum," segir Guðlaugur Andri
Sigfússon, sölustjóri hjá B&L. „Því
finnst okkur ekki úr vegi að bjóða
tímabundið hagstæð lán í stað hefð-
bundinna tilboða," segir Guðlaugur
Andri.
Auk BOalands verða vaxtalaus
bílalán í boði þessa daga hjá þrem-
ur umboðsaðUum B&L eða Bflasölu
Akureyrar, BUasölu Keflavíkur og
BUási á Akranesi. -GG
Gagnrýna meö-
ferð barna með
hegðunarvanda
Félag grunnskólakennaara segir
að alvarlegt ástand hafi skapast
víða í skólakerfinu vegna barna
með miklar hegðunar- og tilfinn-
ingaraskanir. Arsfundur félagsins
beinir þeim tilmælum tfl stjórn-
valda að skoða frá öUum hliðum
heUdstæð úrræði fyrir þennan hóp.
Kennarar hvetja stjómvöld tO þess
að veita fagfólki sem á að sinna
málefnum bama með geðraskanir
svigrúm og aðstöðu tU þess að
veita þá þjónustu sem þessi börn
eiga rétt á. -GG
Pýísurtð
hjálpar Regn-
bogabörnum
Forsvarsmenn Norðlenska og
Regnbogabarna, fjöldasamtaka gegn
einelti, hafa undirritað samstarfs-
samning sem felur í sér að Regn-
bogaböm fá hlut af hverjum seld-
um Goðapylsupakka frá Norð-
lenska til 1. mars 2004.
Um árssamning er að ræða og
kveður hann á um að af hverjum
seldum Goðapylsupakka fá Regn-
bogabörn 10 krónur. Miðað við sölu
í pylsum frá Norðlenska á síöasta
ári hefði þaö gefið af sér rúma eina
miUjón króna á þeim tíma.
Með þessu fá samtökin regluleg-
ar upphæðir í hverjum mánuöi,
sem kemur sér vel fyrir samtök í
uppbyggingu sem þurfa á regluleg-
um framlögum að halda. -GG
Nýtt blað fypii*
Suðurnesjamenn
og Sunnlendinga
Nýtt fréttablað hóf göngu sína á
íslandi í gær og ber nafnið Suður-
fréttir. Því er dreift með íslands-
pósti inn á heimUi allra Sunnlend-
inga og Suðurnesjamanna á hverj-
um miðvikudegi, þ.e. til allra í
væntanlegu Suðurkjördæmi eða aUt
frá Garðskagavita í vestri tU Horna-
fjarðar í austri. Blaðið er gefið út af
íslenskri fjölmiðlun, sem áður gaf
út Suðurnesjafréttir á Suðurnesjum
um árabU. Suðurnesjafréttir verða
lagðar niöur í kjöUarið.
Eigendur Suöurfrétta segja að
blaðið verðir stærsta héraðsfrétta-
blað landsins og því sé ætlaö að
verða snar þáttur í lífi íbúa kjör-
dæmisins. -GG