Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2003, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2003, Qupperneq 24
4 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 24 Islendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson IWilWiiEB ^ 85 ára_____________________________ Bárður Sigurðsson, Rauöagerði 20, Reykjavík. 80 grg___________________________ Erlendur Magnússon, Austurbrún 2, Reykjavík. 75 ára___________________________ Björgheiður Eiríksdóttir, Skúlagötu 40, Reykjavík. Jóhann Friðjónsson, Hesthömrum 10, Reykjavlk. Valur Júlíusson, ^ Hraunbæ 168, Reykjavík. Hann er aö heiman í dag. 70 ára___________________________ Bolli Thoroddsen, Sæbraut 6, Seltjarnarnesi. Erlingur Gísli Gíslason, Laufásvegi 22, Reykjavík. Tryggvi Jónsson, Einbúa, Fosshóli. 60 ára___________________________ Anna Gréta Baldursdóttir, Langholti 17, Akureyri. Ari Teitsson, Hrísum, Húsavík. Guðmundur Þorstelnsson, Rnnbogastööum. Kjartan Guðfinnsson, > Heiðarholti lb, Keflavík. Ragnheiður Hulda Karlsdóttir, Sigtúni 45, Reykjavík. Ragnhildur Gísladóttir, Lækjarbakka 2, Vík. Rútur Kjartan Eggertsson, Eyktarsmára 12, Kópavogi. Steindór Sigurðsson, Hlíöarvegi 52, Garðabæ. 50 ára___________________________ Andrea Stelnarsdóttlr, Spóahólum 8, Reykjavík. Daníel Magnússon, 'v Akbraut, Hellu. Gréta R. Snæfells, Smyrilshólum 2, Reykjavík. Guðrún Helga Hauksdóttlr, Vallarbarði 6, Hafnarfiröi. Halldóra Birna Eggertsdóttir, Sjávargötu 14, Bessastaöahreppi. Hallur Steinar Jónsson, Birtingakvísl 13, Reykjavík. Sigurður Jakob Halldórsson, Leirubakka 26, Reykjavík. 40 árg___________________________ Birgir Guðmundsson, Eyrarvegi 21, Grundarfirði. Brynja Rós Guðlaugsdóttir, Kópnesbraut 21, Hólmavík. Einar Sigurðsson, Ásgarði 12, Reykjavík. > Erlendur Bogason, Huldugili 25, Akureyri. Guðný Andradóttir, Bakkahllð 14, Akureyri. Hannes Bjarnason, Karfavcgi 27, Reykjavík. Ingibjörg Guðrún Sverrisdóttlr, Stigahlíð 16, Reykjavík. Jakobína Valgerður Davíðsdóttlr, Dvergholti 3, Hafnarfirði. Lllja Bjarnþórsdóttir, Lundarbrekku 12, Kópavogi. Lilja Pétursdóttir, Baugholti 14, Keflavík. María Lea Hjörleifsdóttlr, Hverfisgötu 117, Reykjavík. Ragnheiður Steinsen, Álfaskeiði 24, Hafnarfirði. Viðar Vilhjálmsson, Litlu-Breiðuvík, Eskifirði. lát Jónas Einarsson Waldorff, Álsvöllum 4, Keflavík, lést af slysförum sunnud. 9.3. Kristjana Magnúsdóttir frá Hnjóti viö Ör- lygshöfn, áður Suðurgötu 50, Keflavík, lést á hjúkrunarheimlinu Garðvangi mánud. 10.3. Jón Kristján Jóhannsson læknir, Hlíðar- húsum 3-5, Reykjavlk, lést á heimili ^sínu þriðjud. 11.3. Ellert Emanúelsson varð bráðkvaddur sunnud. 9.3. Ragnheiður Jónsdóttir, Hraunvangi 1, Hafnarfirði, andaöist á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði sunnud. 2.3. Jarðarförin hefur fariö fram í kyrrþey að ðsk hinnar látnu. Harvey Guðmundson andaðist á heimili jjSÍnu í Chicago þriðjud. 25.2. DV Fímmtugur_____________; | Helgl Máni Sigurðsson sagnfræöingur og deildarstjóri Helgi Máni Sigurðsson, deildar- stjóri, Fagrahjalli 4, Kópavogi, er fímmtugur í dag. Starfsferill Helgi Máni fæddist á Akureyri og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- prófi frá MR 1974, BA-prófi frá HÍ með sagnfræði sem aðalgrein 1978, stundaði nám í sagnfræði á cand. mag. stigi við HÍ 1978-79 og 2003, lauk prófi í uppeldis- og kennslu- fræðum við HÍ 1981, cand. mag.- prófi í bókmenntum frá HÍ 1984, lauk prófi frá öldungadeild Iðnskól- ans í Reykjavík í prentsmíði 1988, þ.m.t. offsetljósmyndun og hefur sótt fjölda námskeiða, ráðstefna og þinga innanlands og erlendis um sagnfræði, minjavörslu, ljósmyndir, tölvumál, skjalavörslu og stjórnun. Helgi Máni var kennari við grunn- og framhaldsskóla 1977-86, safnvörður myndadeildar á Árbæj- arsafni 1989-91, safnvörður muna- deildar Árbæjarsafns 1991-96, deild- arstjóri munadeildar 1996-2002, er starfsmaður starfshóps um stofnun sjóminjasafns frá 2002 og hafði um- sjón með munaskrá Árbæjarsafns 1989-2002. Helgi Máni hefur séð um upp- setningu fjölda minjasýninga á Ár- bæjarsafni og utan þess, sat í sýn- ingamefnd Sögu Reykjavíkur - frá býli til borgar" og var umsjónar- maður tveggja af tíu herbergjum þess og hafði umsjón með fjölda við- burða og dagskráa á Árbæjarsafni, einkum 1989-91. Hann hefur setið í stjómum og nefndum ýmissa félaga og nefnda í gegnum tíðina og situr nú í stjórn íslandsdeildar Alþjóða- ráðs safna (ICOM) og íslandsdeildar Nordisk museumsforbund. Helgi Máni var ritstjóri bókanna Ljóri sálar minna og Mitt róman- tíska œöi (óbirtar ritsmíðar Þór- bergs Þórðarsonar 1904-1923), 1986-87, hefur haft umsjón með prentuðu efni á vegum Árbæjar- safns frá 1989, er ritstjóri tímarits safnmanna frá 1991, ritstjóri og einn höfunda Söguspegils, afmælisrits Árbæjarsafns 1992, situr í íslensku ritnefnd Nordisk Museologi frá 1995, sat í ritnefnd félagsblaðs Starfsmannafélags Reykjavíkur 1993-98, er höfundur bókarinnar Frumleg hreinskilni. Þórbergur Þóröarson og mannlífiö á mölinni í upphafl aldar, 1992, höfundur, ásamt Yngva Þór Loftssyni, að bók- inni Öskjuhlíö, náttúra og saga, 1993, höfundur bókarinnar Árbœjar- safn, Leiösögubók, 1994,1995,1998 og 2001, hefur skrifað fjölda greina í blöð og tímarit um menningarleg efni, haldið fjölda fyrirlestra og sinnt leiðsögn í fjölda minjaganga á vegum Árbæjarsafns 1990-99 og á vegum annarra aðila. Hann var höf- undur og umsjónarmaður sjón- varpsþáttarins Sértu lipur, lœs og skrifandi, sýndur í Ríkissjónvarp- inu 1992, þýddi bókina Grunnatriöi safnastarfs, eftir Ambrose og Paine, 1998, var ritstjóri og aðalhöfundur bókarinnar Elliöaárdalur, náttúra og saga, 1998, höfundur, ásamt Egg- ert Þór Bemharðssyni, að bókinni Trésmiöafélag Reykjavíkur 100 ára, 1999, og höfundur bókarinnar Vatnsaflsvirkjanir á íslandi, 2002. Fjölskylda Helgi Máni kvæntist 5.8. 1977 Kristínu Soffíu Baldursdóttur, f. 9.8. 1955, hjúkrunarfræðingi. Hún er dóttir Baldurs Jónssonar rafvéla- virkja og Þórunnar Theodórsdóttur bókavarðar. Synir Helga Mána og Kristínar Soffiu eru Baldur Helgason, f. 1976, vefhönnuður í Yew York; Teitur Helgson, f. 1982, stúdent; Sigurður Sindri Helgason, f. 1987, nemi; Ámi Helgason, f. 1994, nemi. Systkini Helga Mána eru Guðný Sigurðardóttir, f. 1941, frönskukenn- ari; Guðrún Kolbrún Sigurðardótt- ir, f. 1943, d. 1983, kennari og leir- kerasmiður; Gísli Heimir Sigurðs- son, f. 1949, læknir. Foreldrar Helga Mána eru Sigurð- ur M. Helgason, f. 22.5. 1910, fyrrv. bæjarfógeti og sýslumaður á Akur- eyri og síðar borgarfógeti í Reykja- vík, og k.h., Þorbjörg Gísladóttir, f. 16.8. 1917, húsmóðir og fyrrv. skrif- stofumaður. Ætt Sigurðar er sonur Helga, verka- manns á Akranesi, Guðbrandsson- ar, b. á Klafastöðum í Borgarfirði, bróður Bjama, langafa Ólafs Bjamasonar, prófessors í læknis- fræði. Bjarni var einnig langafi Gunnars í Þórshamri, foður Þor- steins, leikara og arkitekts. Þá var Bjarni faðir Þórunnar, móður Bjarna, b. í Vigur, föður Baldurs í Vigur, Sigurðar, fyrrv. alþm., rit- stjóra og sendiherra, og Sigurlaug- ar, fyrrv. alþm. Annar bróðir Guð- brands var Magnús, afi Steinþórs jarðfræðings, foður Sigurðar pró- fessors. Guðbrandur var sonur Brynjólfs, b. á Ytri-Hólmi, Teitsson- ar, bróður Arndísar, langömmu Finnboga Rúts, föður Vigdísar Finn- bogadóttur. Móðir Helga á Akranesi var Margrét Helgadóttir, b. í Stóra- botni, bróður Erlings, langafa Þór- mundar, foður Jónatans prófessors. Helgi var sonur Erlings, b. i Stóra- botni, Árnasonar, og Margrétar Sveinsdóttur, af Klingenbergsætt. Móðir Sigurðar var Guðrún 111- ugadóttir, b. í Stóra-Lambhaga í Borgarfirði, Sigurðssonar. Þorbjörg er dóttir Gísla, b, og skipstjóra i Lokinhömrum í Arnarflrði, Kristjánssonar og Guðnýjar Guðmundsdóttur Hagalín. Sjötugur Magnús Finnbogason fyrrv. bóndi og oddvíti aö Lágafelli í Austur-Landeyjum Magnús Finnbogason, fyrrv. bóndi að Lágafelli í Landeyjum, Gilsbakka 2, Hvolsvelli, er sjötugur í dag. Starfsferilll Magnús fæddist að Lágafelli í Landeyjum og ólst þar upp í for- eldrahúsum við öll almenn sveita- störf þess tíma. Hann var í far- skóla Austur-Landeyja, stundaði síðan nám við Héraðsskólann að Laugarvatni og lauk þaðan gagn- fræðaprófi 1951. Magnús var á vetrarvertíðum til sjós og lands í Vestmannaeyj- um, Reykjavík og Hafnarflrði á unglingsárum. Hann stundaði síð- an húskap með foreldrum sínum, tók við búi að Lágafelli 1959 og stundaði þar blandaðan búskap til 2001. Þá fluttu þau hjónin á Hvols- völl. Magnús hefur verið leiðsögu- maður á Njáluslóð sl. tvö sumur. Magnús starfaði í ungmennafé- laginu Dagsbrún og sat þar í stjórn þess, starfaði í Búnaðarfé- lagi Austur-Landeyja og sat í stjórn þess um árabil, átti þátt í að stofna til kornræktar í Austur- Landeyjum og stofna félagsskap því tengdan, sat í sveitarstjórn í þrjátíu og fimm ár og var oddviti Austur-Landeyjahrepps í tólf ár. Hann sat í stjórn Kaupfélags Rangæinga um árabil og í stjórn Sláturfélags Suðurlands um árabil en starfar nú í samtökum eldri borgara á Hvolsvelli. Fjölskylda Magnús kvæntist 1.4. 1961 Auði Hermannsdóttur, f. 27.8.1935, hús- freyju. Hún er dóttir Hermanns Björnssonar, sjómanns og múrara í Reykjavík, og k.h., Unu Jónsdótt- ur húsmóður. Börn Magnúsar og Auðar eru Vilborg, f. 4.3.1962, fiskverkákona, búsett á Akranesi, gift Gunnari Hermannssyni, starfsmanni hjá Haraldi Böðvarssyni hf. og eiga þau þrjá syni; Finnbogi, f. 24.2. 1971, framkvæmdastjóri, búsettur á Selfossi, kona hans er Þórey Pálsdóttir, fjármálastjóri Alpan á Eyrarbakka, og á hún þrjú börn; Ragnhildur, f. 3.7. 1975, sálfræði- nemi í Danmörku, maður hennar er Guðmundur Erlendsson, sím- smiður og bílstjóri, og á hann tvö börn. Systir Magnúsar er Hólmfríður Finnbogadóttir, f. 1.7. 1931, fram- kvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, gift Reyni Jóhanns- syni og eiga þau eina dóttur. Foreldrar Magnúsar: Finnbogi Magnússon, f. 26.2. 1903, d. 1959, bóndi að Lágafelli í Austur-Land- eyjum, og k.h., Vilborg Sæmunds- dóttir, f. 30.1. 1902, d. 1.8.1990, hús- freyja. Magnús verður að heiman á af- mælisdaginn. Útför Önnu Kristínar Jónsdóttur, Fögru- brekku 5, Kópavogi, fer fram frá Kópa- vogskirkju fimmtud. 13.3. kl. 15.00. Útför Unnar Júlíusdóttur, Hringbraut 84, Reykjavlk, fer fram frá Dómkirkjunni fimmtud. 13.3. kl. 15.00. Guðrún Egilsdóttir, Hæðargaröi 35, Reykjavík, veröur jarðsungin frá Bú- staöakirkju fimmtud. 13.3. kl. 13.30. Sigrún Johnsen Langelyth, Suöur- hvammi 15, Hafnarfirði, veröur jarð- sungin frá Fossvogskirkju fimmtud. 13.3. kl. 13.30. Eiríkur Hreiðarsson garöyrkjubóndi, Grísará, Eyjafjarðarsveit, verður jarð- sunginn frá Akureyrarkirkju fimmtud. 13.3. kl. 13.30. Kristinn Sigmundsson, fyrrum bóndi á Arnarhóli, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstud. 14.3. kl. 13.30. Merkír Islendíngar Stefán Jónsson, framkvæmdastjóri Prent- smiðjunnar Eddu, fæddist í Berufirði í Reykhólasveit 13. mars 1904. Foreldrar hans voru Jón Hjaltalín Brandsson, bóndi á Kambi í Reykhólasveit, og k.h., Sesselja Stefánsdóttir. Föðursystir Stef- áns var Daníelína, amma Kristjáns Loftssonar, forstjóra Hvals, og Hrann- ar Hafliðadóttur óperusöngkonu. Stefán ólst upp á Kambi í Reykhóla- sveit, lauk prófi frá Núpsskóla 1926, frá Samvinnuskólanum 1929 og kynnti sér spítalabókhald og rekstur í Danmörku 1931. Stefán var gjaldkeri og bókari þriggja rikisspítala 1930-1934, skrifstofustjóri og varaframkvæmdastjóri ríkisspitala 1934-1937, Stefán Jónsson skrifstofustjóri gjaldeyris- og innflutnings- nefndar 1937-1943, Viðskiptaráðs 1943-1947, gjaldeyris- og innflutningsdeildar 1947-1953 og Innflutningsskrifstofunnar 1953-1960. Hann var framkvæmdastjóri Prentsmiðjunnar Eddu hf. 1960-1980, sat í úthlutunamefnd bifreiða 1938- 1943, var varamaður í stjórn Við- skiptaráðs, Fjárhagsráðs og Innflutn- ingsskrifstofunnar 1943-60, sat i út- flutningsnefnd, í verðlagsnefnd, var formaður sóknarnefndar Nessóknar, átti sæti í olíunefnd, var formaöur stjórnar Breiðfirðingaheimilisins hf. og sat í stjórn Félags íslenskra prentsmiðju- eigenda og Félags íslenska prentiðnaðarins 1963-1978. Hann lést 10.1. 1995.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.