Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2003, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003
7
DV
Fréttir
Gagnrýni Samtaka iönaöarins á hátt gengi krónunnar svaraö:
Kjarabót fyrir almenning og mörg fyrirtæki hagnast
„Það er ekki rétt að allt at-
vinnulíf sé hér að fara í kalda-
kol út af háu gengi krónunn-
ar,“ segir Tryggvi Þór Her-
bertsson, forstöðumaður Hag-
fræðistofnunar Háskóla ís-
lands, en Vilmundur Jósefs-
son, formaður Samtaka iðnað-
arins, sagði á nýafstöðnu Iðn-
þingi að vextir og gengi væru
að „kyrkja atvinnulífið" og
„murka lífið úr“ ýmsum iðn-
aði og ferðaþjónustu.
„Ég held að það sé ljóst að
þetta háa gengi er erfitt fyrir
sjávarútveg, ferðaþjónustu og
aðrar útflutningsgreinar,"
segir Tryggvi Þór. „En það
verður að hafa i huga að þess-
ar greinar bjuggu við hagstætt gengi
í fyrra og árið þar áður og högnuð-
ust mikið á því.“
Tryggvi minnir á að gengið ræðst
á markaði og aðalástæðan fyrir háu
gengi séu væntingar íjárfesta um
uppgang í íslensku efnahagslífi.
Hann bendir á að mörg fyrirtæki
starfi á innlendum markaði og sum
þeirra hagnist á háu gengi.
„Við verðum líka að muna að
styrking krónunnar þýðir að skuld-
ir fyrirtækjanna lækka, jafnvel svo
milljörðum skiptir, eins og í tilviki
Landsvirkjunar. Síðast en ekki síst
hefur kannski gleymst svolítið í
Hclmlld: Seblabankl Ulanda. Unurltlö (ýnlr meöalgenfil fyrir hvem mánuö.
GENGI KRONUNNAR FRA 1996
Aöeins yfir meðaltali
Samtök iðnaðarins segja háttgengi vera að „kyrkja atvinnu-
lífið“ en Seöiabankinn bendir á að raungengi sé aöeins rétt
yfir tíu ára meöaltali.
þessari umræðu að hærra gengi fel-
ur í sér kjarabætur fyrir fólk í land-
inu því að innfluttar vörur verða
ódýrari," segir Tryggvi Þór.
Litskrúðugar lýsingar
„Nei, þetta eru nú ansi litskrúð-
ugar lýsingar hjá mönnum," segir
Arnór Sighvatsson, deildarstjóri
hagfræðisviðs Seðlabanka íslands,
spurður um hvort hann tæki undir
orð Vilmundar Jósefssonar. „Gengið
hefur náttúrlega hækkað verulega
en það er ekkert fjarri þvi að vera í
langtímameðaltali. Raungengið er
aðeins að færast yfir 10 ára meðaltal
en hefur hins vegar verið
mun hærra í toppum.“
Vilmundur sagði á Iðn-
þingi að ekki mætti ein-
blína á verðbólgumark-
mið en meginverkefni
Seðlabankans er að halda
verðbólgunni lágri. Amór
segist ekki vita hvað
menn eigi við þegar talað
sé um að „einblína ekki á
verðbólgumarkmið" og
segist telja markmið
bankans skynsamlegt.
Vilmundur gagnrýndi
háa vexti ekki síður en
gengið; sagði vextina hér
jafnvel þrefalt hærri en
annars staðar og að vart
þekktust hliðstæður meðal þróaðra
ríkja jafnvel þótt leitað væri um
víða veröld.
„Það voru mjög óvenjulegar að-
stæður hér sem kölluðu á svo háa
vexti,“ segir Arnór Sighvatsson.
„Vextimir hafa síðan minnkað og
vaxtamunurinn á skammtíma-
skuldabréfum á milli íslands og
annarra landa hefur sjaldan veriö
minni en nú. Auk þess ber að hafa í
huga að vextir í Bandaríkjunum og
í Evrópu eru í lágmarki - í Banda-
rikjunum eru þeir í 40 ára lág-
rnarki."
-ÓTG
Yoga Spinning
með Jónínu Ben
8 vikur í Veqgsport
Konutímar / karlatímar
Unglingatími meö
Jóhönnu Klöru
Stefánsdóttur, 18 ára.
18 ára og yngri sem vilja
vera í formi.
Verð 14.500
Eldri nemendur 12.000
Unglingatímar 12.000
Hjón 24.000
FIA skólinn, w
nám í einkaþjálfun
Sumarnámskeið.
Skráning í Veggsport
í síma 577 5555.
Stórtónleikar
Isafjarðarkirkja
fimmtud. 20. mars kl. 20:30
Dagskra
• Karlakórinn Ernir
• Kristín S. Sigtryggsd. einsöngvari
• Sunnukórinn
• Gospelkór Vestfjaröa
• Tónlistaratriöi frá Tónlistarskóla
ísafjarðar
Söngstjóri: Steingrímur Þorgeirsson
Kynnir: Hlynur Snorrason
lögreglufulltrúi
Hallgrímskirkja
laugard. 22. mars kl. 17:00
Dagskrá
• Kammerkór Seltjarnarneskirkju
• Kvennakór Reykjavíkur
• Kammerkór Suðurlands
• Kvennakór Hafnarfjarðar og
Kór Flensborgarskóla
• Kristín S. Sigtryggsdóttir
einsöngvari
• Kammerkór Reykjavíkur
• Karlakórinn Þrestir
• Árnesingakórinn í Reykjavík
• Söngfélag Skaftfellinga
• Á páskum.
Höfundar Sigurður Bragason og
Valdimar Lárusson
• Signý Sæmundsd. einsöngvari
• Snorri Wium einsöngvari
• Davíð Ólafsson einsöngvari
Söngstjóri: Sigurður Bragason
Félagsheimilið Klif
Ólafsvík
fimmtud. 20. mars kl. 20:30
Dagskrá
• Kirkjukór Ólafsvíkur
• Þórunn Pétursdóttir einsöngvari
undirleikur Dóra Erna Ásbjörns-
dóttir og Gústav Ásbjörnsson
• Örmyndir - Englar afdalsins
• Kirkjukór Akranes
• Anita Ómarsdóttir einsöngur
• Unglingahljómssveit Ólafsvíkur
• Kirkjukór Hellisands
• Unglingahljómssv. Dalamanna
• Sex í sveit
• Gospelkór Ólafsvíkur
• Samsöngur gospelskóranna
• Davíð Ólafsson einsöngvari
Söngstjóri: Jónína Erna Arnardóttir
Kynnir: Gunnar Kristjánsson fyrrv.
formaður HSH
Fjölbrautaskóli
Suðurlands á Selfossi
fimmtud. 20. mars kl. 20:30
Dagskrá
• Elín Ósk Óskarsdóttir söngkona
• Gunnar Björnsson sellóleikari
• Jónas Ingimundarson píanóleikari
• Jórukórinn
• Kammerkór Suöurlands
• Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands
• Karlakór Selfoss
• Katrín Sigurðardóttir söngkona
• Kristjana Stefánsd. söngkona
• Loftur Erlingsson söngvari
• Njálusönghópurinn - Saga singers
• Tónlistartríó:
Margrét Stefánsdóttir sópran
Joanna Wlaszczyk píanó
Jóhann i. Stefánsson trompet
• Unglingakór Selfosskirkju
• Vörðukórinn
Tónlistarstjórar: Kristín Sigurðar-
dóttir og Stefán Guðmundsson
Kynnir: Guðni Ágústsson ráðherra
Félagsheimilið
Valaskjálf
Egilsstöðum
fimmtud. 20. mars kl. 20:00
Dagskrá
• Kammerkór Reykjavíkur
• Keith Reed óperusöngvari
• Barnakór Egilsstaða
• Menntaskólinn Egilsstööum
• Skólakórar grunnskólanna
á Egilsstöðum og Eiðum
• Davíð Viðarsson einsöngvari
• Ingvar Kristinsson einsöngvari
• Sigurlaug Arnard. einsöngvari
• Þorsteinn Þorsteinss. einsöngv.
Tónlistarstjóri og kynnir:
Jón Guðmundsson
Glerárkirkja Akureyri
fimmtud. 20. mars kl. 20:30
Dagskrá
• Signý Sæmundsdóttir einsöngur
• Barnakór Glerárkirkju
• A. M. Chelkowska píanóleikari
• Sálubót blandaður kór
úr Þingeyjarsýslu
• Tónlistarskóli Akureyrar
• Karlakór Eyjafjarðar
• Kór Glerárkirkju
• Kvennakór Akureyrar
Kynnir: Þorsteinn
Pétursson
Allur ágóði af tónleikunum rennur í sérstakan forvarnarsjóð UMFÍ þar sem áhersla verður
lögð á að fræða foreldra um fyrstu einkenni og rétt viðbrögð við fíkniefnaneyslu unglinga.