Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2003, Síða 32
JV *
X
FRETTASKOTIÐ
Hafir þu abendingu eöa vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað
í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum
við fréttaskotum allan sólarhringinn.
SRIvlllMIM
ALDREI
sefur 550 55 55
www.gulalinan.is
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003
Ungverjalands hófst í gær. Ferenc Mádl, forseti Ungverjalands, tók
á móti honum meö heiðursveröi á Szent-György torgi í Búdapest.
Heimsókn forseta íslands stendur í þrjá daga. Forsetinn mun meöal
annars ræða viðskiptamál þjóðanna. Þá kom yfirvofandi stríð í írak
til umræðu. Óiafur Ragnar Grímsson heldur í opinbera heimsókn
til Slóveníu að lokinni Ungverjalandsheimsókninni.
Stjórnarandstaöan gagnrýnir stjórnvöld harkalega í íraksmálinu::
fllveg forkastanlegt
11
Davið Oddsson forsætisráð-
herra og Halldór Ásgrimsson ut-
anríkisráðherra hafa lýst yfir
stuðningi við yfirlýsingu Bush,
Blair og Aznar sem gefm var út á
Azoreyjum þar sem Sameinuðu
þjóðunum er gefinn sólarhrings-
frestur til að ákveða hvort þær
styðja stríð gegn írak.
„Það er mjög alvarlegt mál að
ríkisstjórn íslands sé að kljúfa sig
frá þorra þjóða með þessum hætti.
Bæði Davíð Oddsson og Halldór
Ásgrímsson hafa á undanfómum
vikum farið eins og kettir í kring-
um heitan graut þegar þeir hafa
verið spurðir út í afstöðu til átaka
við írak. Og svo hefur það gerst
sem margir hafa óttast að þeir
voru ekki seinir að stökkva á
stríðsvagninn með Bush og Blair
um leið og færi gafst. Þaö er að
mínu áliti grafalvarlegt mál að ís-
land skuli stilla sér upp í alþjóða-
samfélaginu með þessum hætti,“
segir Þórunn Sveinbjamardóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar.
„Engin þjóð á eða má fara með
ófrið á hendur annarri þjóð án
þess að alþjóðasamfélagið standi
gervallt á bak við slíka ákvörðun,"
sagði Össur Skarphéðinsson á
framboðsfundi Samfylkingarinnar
í gærkvöld. „Stríð við írak án
samþykkis Sameinuðu þjóðanna
getur kveikt í því tundri sem við
vitum að er í púðurtunnunni fyrir
botni Miðjarðarhafs með skelfdeg-
um afleiðingum. Ný styrjöld kynni
að bresta á. Langvinnt stríð gæti
hafíst. Það er hugsanlegt að það
yrði grimmara og mannskæðara
en nokkru sinni fyrr þar sem
skelfilegum vopnum á borð við
sýkla- og eiturefnavopn, jafnvel
eitthvað enn verra, gæti verið
beitt. Ég segi við ykkur á þessu
kvöldi: Þessa áhættu hefur enginn
þjóðarleiðtogi leyfi til að taka einn
sins liðs.“
„Þetta er alveg forkastanlegt.
Þetta kemur mér ekki á óvart,
þeir hafa passað það vandlegar en
sjáaldur augna sinna að segja
aldrei neitt sem mætti túlka sem
beina gagnrýni á framgöngu
Bandaríkjamanna í þessu máli.
Þeir hafa forðast að tala með skýr-
um hætti á Alþingi og komið i veg
fyrir að tillaga þar sem lýst er
andstöðu við stríðið fengi af-
greiðslu. Ég fann það á lyktinni
langar leiðir að það var gamla
fylgispektin við Washington og
endumærð hræðsla við að herinn
kynni að fara ef þeir móðguðu
Bandaríkjastjórn sem stýrir ferð
þeirra. Það er ömurlegt að sjá ís-
land skipa sér á bekk í þessum fé-
lagsskap og i engu samræmi við
friðarhefð frá fyrri áratugum. Með
þessu velja íslensk stjómvöld að
skipa sér gegn yfirgnæfandi meiri-
hlutaáliti almennings á íslandi og
í heiminum. Veröi þeim að góðu,“
segir Steingrímur J. Sigfússon,
VG.
-GG/ÓTG
Lungnabólgan:
Aukinn viðbun-
aður i Evropu
Aukin útbreiðsla alvarlegs lungna-
bólgusjúkdóms, HABL/SARS hefur
leitt til aukins viðbúnaðar á mörgum
flugvöllum í Evrópu. í Róm og Mílanó
fara komufarþegar í gegn um heil-
brigðisskoðun og í Vín er farþegum frá
Singapúr og Hong Kong gert að vera
um kyrrt í flugvélinni þar til heilbrigð-
isskoðun hefur farið fram og þeir hafa
upplýst hvert ferð þeirra er heitið.
Aðrir evrópskir flugvellir hafa komið
fyrir skiltum um sjúkdóminn og helstu
einkenni sem eru hár hiti, hósti, tíður
andardráttur eða andnauð. Þar sem
sjúkdómurinn virðsit smitast með út-
gufun úr andadrætti er hætta á smiti
um borð í flugvélum töluverð. Hjá
Heimsklúbbi Ingólfs-Prima, sem send-
ir farþega til ijarlægra landa, fengust
upplýsingar um að farið yrði eftir til-
mælum landlæknis í málinu. í morgun
fengust ekki upplýsingar um varúðar-
ráðstafanir i Flugstöð Leifs Eiriksson-
ar vegna lungasjúkdómsins. -hlh
112
EINN EINN TVEIR
NEYÐARLÍNAN
LÖGREGLA SLÖKKVIUÐ SJÚKRALIÐ
|