Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Síða 2
2 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 13.JÚNÍ2003
DV Bingó
Nú leikum við I-
röðina og hér til
hliðarbirtist 4. tal-
an. Ferð fyrir tvo
með Iceland Ex-
press til London eða
Kaupmannahafnar er f boði.
Átta tilkynntu um bingó á B-
röðina. Nafn eins var dregið út,
Þórðar Sturlusonar, Hraunbæ
34, Rvík. Fær hann ferð fyrir tvo
með Iceland Express til London
eða Kaupmannahafnar
Samhliða einstökum röðum er
allt spjaldið spilað. Verðlaun fyrir
allsherjarbingó er vikuferð til
Portúgals með Terra Nova Sól.
EFNI BLAÐSINS
Skuldum vafið hótel
- innlendar fréttir bls. 4
Löqreqlan qaqnrýnd
- úttekt bls. 6-7
Mildari dómur
- innlendar fréttir bls. 8
Fjárdráttur kortlagður
-úttektbls. 10-11
Hamas í sigtinu
- erlendar fréttir bls. 12-13
Aksjón slær öll met
-Tilvera bls.14-15
Ný staða í varnarmálum
-fréttaljós bls. 16-17
Fallegustu
fótboltamennirnir
- Fókus í miðju blaðsins
Óskagryfjur Halla Pé
- DV-sport bls. 29
Spáð í þjálfaramálin
- DV-sport bak
Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf.
Framkvæmdastjóri: Örn Valdimarsson
ABalritstjóri: Óli Bjðrn Kárason
Ritstjórl: Sigmundur Hrnir Rúnarsson
AöstoBarritstjóri: Jónas Haraldsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar,
smáauglýsingar, blaóaafgreiðsla, áskrift:
Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550
5020 - Aðrar deildir: 550 5749
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar:
auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyrí: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf.
Plótugerö og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins
1 stafrænu formi og í gagnabönkum án
endurgjalds.
DV greiðir ekki viömælendum fýrir viötöl við þá
eða fyrir myndbirtingar af þeim.
CAUPVITAÓ EIGA N
SKÝRSLUR AÐ VERA í ]
SKÚFFUM! J
Djúpvegur lagfærður
Vegagerð: Fjögur tilboð
bárust (nýbyggingu 31,5 km
kafla Djúpvegar frá Kleifum í
Skötufirði að Hesti í Hestfirði.
Átti Klæðning ehf. (Kópavogi
lægsta tilboðið upp á rúmar
328 milljónir króna eða 77,1%
af kostnaðaráætlun. Kostnað-
aráætlun Vegagerðarinnar var
tæpar 426 milljónir króna. (s-
lenskir aðalverktakar hf. í
Reykjavlk buðu 86,6% af
kostnaðaráætlun og Kubbur
ehf. á (safirði bauð 98,7% af
kostnaðaráætlun. Langhæsta
boðið átti Ræktunarsamband
Flóa og Skeiða ehf.á Selfossi
eða 124,1 % af kostnaðaráætl-
un.Verkinu skal að fullu lokið
1. nóvember á næsta ári.
ís hlóðst á hreyflana og þeir misstu afl
Rannsóknamefnd flugslysa í
Danmörku hefur lokið rannsókn
og gefið út skýrslu um alvarlegt
flugatvikTF-JVG flugvélar Jór-
víkur ehf. yfir austurströnd
Grænlands 2. ágúst 2002.
Samkvæmt skýrslu nefndar-
innar hafði flugvélin klifrað úr
12.000 fetahæðíl 3.000 feta
hæð til þess að komast upp úr
skýjum sem voru á svæðinu
þegar hreyflar hennar misstu
skyndilega afl. (kjölfarið misstu
flugmennirnir stjórn á flugvél-
inni og náðu ekki fullri stjórn á
henni aftur fyrr en hún var kom-
in niður í 3000 feta hæð.Við
prófun á flugvélinni eftir atvikið
og í flugi hennar frá Kulusuk til
(slands störfuðu hreyflar hennar
eðlilega.Niðurstaða rannsóknar
dönsku rannsóknarnefndarinn-
ar er að líklegasta orsök atviks-
ins sé að flugvélin hafi verið í
klifurflugi á ísingarskilyrðum
þannig að ís hlóðst á loftsíur
hreyflanna með þeim afleiðing-
um að þeir misstu afl. Meðverk-
andi þáttur er að mati Dananna
að flugmennirnir beittu ekki
réttu verklagi samkvæmt neyð-
argátlista flugvélarinnar þegar
hreyflarnir misstu afl.
Byggðastofnun í atvinnurekstri:
Á200 milljónirí 13
félögum á Vestfjörðum
NÝTT HLUTAFÉ 2002
Fjarvinnslan Suðureyri ehf. 3.000.000, kr.
Netagerð Vestfjarða hf. á (safirði 7.000.000, kr.
Sindraberg ehf. á ísafirði 30.000.000, kr.
VoiceEra á fslandi ehf. (Bolungarvík 6.000.000, kr.
Sumarbyggð hf. í Súðavík 2.500.000, kr.
Byggðastofnun lagði á síð-
asta ári hlutafé inn í fimm fé-
lög á Vestfjörðum, samtals að
fjárhæð 48,5 millj. króna. Um
síðustu áramót átti Byggða-
stofnun þar með orðið hluta-
bréf í þrettán félögum á Vest-
fjörðum samtals upp á tæpar
200 milljónir króna.
Auk þessa greiddi stofnunin út
fimm styrki til verkefna á Vestfjörð-
um, samtals 3,8 milljónir króna, auk
styrks til Atvinnuþróunarfélags Vest-
ijarða hf. vegna atvinnuráðgjafar að
ijárhæð rúmar 18 milljónir
laóna.
Byggðastofnun lagði 3 milij-
ónir króna hlutafé í Fjarvinnsl-
una á Suðureyri ehf. á árinu
2002. í Netagerð Vestíjarða hf.
á ísafirði 7 milljónir, í Sindra-
berg ehf. á fsafirði 30 milljónir,
í VoiceEra á fslandi ehf. í Bol-
ungarvík 6 milljónir og í Sumar-
byggð hf. í Súðavík 2,5 milljónir
króna.
Á hlut í 13 félögum
Um síðustu áramót átti Byggða-
stofnun þannig hlutafé í 13 félögum.
Það eru; Atvinnuþróunarfélag Vest-
fjarða hf..l,2 milljónir króna eða 20%
hlutafjár, Bakkavík hf. í Bolungarvík
tæplega 31,1 milljón eða 19,77%,
Eignarhaldsfélag Vestfjarða hf. rúm-
lega 3,4 milljónir eða 33,97%, Fisk-
vinnslan Fjölnir hf. á Þingeyri 100
milljónir eða 20%, Fiskvinnslan
Drangur hf. á Drangsnesi tæplega
2,8 milljónir eða 21,76%, Fjar-
vinnslan Suðureyri ehf. 300 þús-
und eða 27,03%, Hótel ísafjörður
hf. 12,4 miUjónir eða 20,31%,
Netagerð Vestfjarða ehf. á ísafirði
7 rmlljónir eða 19,72%, Sindra-
berg ehf. á fsafirði 30 miUjónir
eða 24%, Snerpa ehf. á Isafirði
750 þúsund eða 21,43%, Sumar-
byggð ehf. í Súðavík 2,5 milljónir eða
23,36%, VoiceEra ehf. í Bolungarvík
400 þúsund eða 20% og Þörunga-
verksmiðjan hf. á Reykhólum rúmar
7,9 miUjónir króna eða 32,16%
hlutafjár í félaginu. Samtals er þetta
hlutafé upp á rúmar 199,7 milljónir
króna. hkr@dv.is
Lögmaður VLFA reyndi að stoppa úttekt PricewaterhouseCoopers:
Krafðist að svört skýrsla
yrði dregin til baka
Lögfræðingur Verkalýðsfé-
lags Akraness reyndi að koma
í veg fyrir að svört skýrsla
PricewaterhouseCoopers frá
því 20. maí um óstjórn í fjár-
reiðum Verkalýðsfélags Akra-
ness yrði lögð fram. Skýrslan
var gerð að ósk starfsstjórnar
VLFA í kjölfar aðalfundar þar
sem formaður félagsins sagði
af sér. Eins og fram hefur kom-
ið eru í skýrslunni staðfestar
grunsemdir og athugasemdir
félagsmanna um að óráðsíu
fyrrverandi formanns og mis-
bresti í bókhaldi félagsins.
DV hefur fengið það staðfest að
Ástráður Haraldsson, lögmaður
Verkalýðsfélags Akraness, sem er
jafnframt fyrrverandi lögmaður Al-
þýðusambands íslands, hafi farið í
höfúðstöðvar PWC 28. maí og reynt
að koma í veg fyrir að skýrslan yrði
lögð fram. Krafðist hann þess að
skýrslan yrði dregin til baka. Var
það á þeirri forsendu að skýrslan
væri hlutdræg. Var því hafnað af
fulltrúum PWC.
Lögmaður VLFA fór í
höfuðstöðvar PWC 28.
maí og reyndi að koma í
veg fyrir að skýrslan
yrði lögð fram.
Hervar Gunnarsson, fyrrverandi
formaður VLFA, sagði hins vegar í
héraðsfréttablaðinu Skessuhorni 4.
júní að um atvinnuróg væri að
LEYNDARMÁI: Reynt var að koma (veg fyrir að virt endurskoðunarfyrirtæki legði
fram athugun sína á bókhaldi Verkalýðsfélags Akraness. Borið var við að niðurstaðan
væri hlutdræg.
ræða. „Ég vil taka það fram að þetta fyrirspurnir kæmu fram um skýrsl-
er ekki skýrsla utanaðkomandi að- una á fundi félagsins yrði þeim að
ila,“ sagði Hervar í samtali við blað- sjálfsögðu svarað. Þá hefðu starfs-
ið. „Þessi skýrsla er fyrst og fremst jnenn PWC unnið heiðarlega að því
tvennt; atvinnurógur og dómur yfir að yfirfara bókhaldsgögn sem þeir
fólki sem fékk ekki tækifæri til að höfðu í höndunum. Rætt hefði ver-
svara fyrir sig.“ ið við ýmsa aðila og fengin utanað-
Fulltrúi PWC sagði að reynt hafi komandi gögn og tekið fullt tillit til
verið að gera skýrsluna tortryggi- þess að sumir þeirra voru ekki hlut-
lega en sjálfur sagðist hann ekki lausir í málinu.
hafa lesið athugasemdir Hervars. Ef hkr@dv.is
Helgarblað DV
Nærmynd af níðingi
Helgarblað DV rekur æviferil
mannsins sem er höfuðpaurinn í
stærsta barnaklámsmáli sem hef-
ur komið upp á Islandi, skoðar
bakgrunn hans og ræðir við fólk
sem hefur kynnst honum.
Dúxaði í söngnum
María Jónsdóttir messósópran
dúxaði í Söngskólanum og segir
DV frá vonum sínum í söng, fjöl-
breyttum áhugamálum og móður-
hlutverkinu.
Loksins eitthvað nýtt
Hljómsveitin Maus sendir frá
sér nýja plötu. DV elti piltana á
tökustað nýs myndban'ds og
spjallaði við þá.
Verra en Watergate?
George Bush, forseti Bandaríkj-
anna, kann að hafa logið að þjóð
sinni um vopnaeign fraka. Verða
örlög hans eins og þeirra John-
sons, Nixons og ef til vill Clintons
sem ungengust sannleikann frjáls-
lega?
Að sigra fjallið
DV ekur með erfiðismunum
hina fornu þjóðleið yfir Svínaskarð
sem er erfið jeppaleið við bæjardyr
Reykvíkinga.