Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Qupperneq 16
MÁNUDAGUR 2.JÚNÍ2003 SKOÐUN 17
16 SKOÐUN MÁNUDAGUR 2.JÚNÍ2003
Hið nýja ísland
Slík vakning hefur orðið í ferðamennsku hér á
landi á allra síðustu árum að líkja verður við
byltingu. Landsmenn eru í æ ríkari mæli að átta
sig á mikilvægi þess og ánægju að fara um eigið
land og njóta töfra þess og afþreyingarmögu-
leika. Þetta er gleðiefni og mun þegar tímar líða
fram hafa mikil áhrif á viðhorf fólks til byggða
og samgangna í dreifbýli landsins. Eftir því sem
fleiri landsmenn fara um landið og finna sér þar
stað um skemmri eða lengri tíma verður til rík-
ari sátt á milli þéttbýlis og dreifbýlis.
Ferðabyltingin tekur á sig margvíslegar
myndir um allt land. Þúsundir sumarbústaða
hafa verið reistir í sveitum landsins á allra síð-
ustu árum og kalla nú eftir mikilli þjónustu í
þorpum og kaupstöðum. Eins hafa hundruð
húsa í litlum sjávarþorpum verið gerð upp á
liðnum misserum og hýsa nú vinnulúna íslend-
inga jafnt að vetri sem sumri. Þá hefur sala á alls
konar tjaldvögnum, fellihýsum og húsbflum
tekið slíkan kipp á síðustu árum að innflytjend-
ur hafa vart undan að afgreiða sendingar af
hafnarkantinum.
Þessi nýja byggðaþróun er í og með afleiðing
þess að samgöngur hafa stórbatnað um mestan
hluta landsins. Ekki verður lengur sagt að ferða-
menn skrölti um vegi landsins heldur skjótast
þeir á milli landshluta með einföldum og næsta
öruggum hætti og ef eitthvað er gefa vegirnir
mönnum tækifæri til of mikils hraða. Það er því
auðvelt að fara um landið og æ fleiri eru reynd-
ar farnir að hafa þann háttinn á að búa hhrta
Við Hala í Suðursveit.
ársins eða allt árið utan helsta þéttbýlisins og
sækja þaðan vinnu í borgarysinn.
Gleðileg afleiðing þessa er að sveitabæir, sem
áður voru að fara í eyði með næsta vonlítinn
búskap, eru að lifna við og draga að sér fólk og
fyrirtæki. Þannig hefur ferðaþjónusta tekið við
af fjárbúskap og kúabúum víða um land á síð-
ustu árum. Miklum túnum og ökrum hefur ver-
ið breytt í golfvelli, fjósum í golfskála og greiða-
sölur og þess eru dæmi að leigubflastöðvar
spretti upp í hlaðinu heima þar sem áður riðu
leitarmenn á fjöll. Hið nýja Island er notað af
fjöldanum sem er að átta sig á töfrum víðsýn-
innar.
Allt údit er fyrir að þessi ferðaáhugi lands-
manna um eigið land eigi eftir að aukast stór-
kostlega á næstu árum og áratugum og hafa
mikil áhrif á byggðaþróun. Þrennt er augljóst í
þeim efnum; í fýrsta lagi munu samgöngur
batna stórlega og vegalengdir styttast, í öðru
lagi mun frítími fólks aukast verulega og þar af
leiðandi þörf fyrir afþreyingu og dvalarstaði og í
þriðja Iagi er efri árunum sífellt að fjölga í lífi
fólks, annars vegar vegna meira langlífis og hins
vegar vegna þess að fólk vill fara á eftirlaun fyrr
en áður.
Allt stemmir þetta að sama ósi. Náttúra ís-
lands er ekki lengur töfraveröld furðulegra sér-
vitringa sem þramma í vegkantinum með poka
sinn og trúss á bakinu. Náttúra Islands er að
verða almenningsgarður allra landsmanna. 21.
öldin verður öld hinna dreifðu byggða. Með
sveigjanlegri vinnutíma, byltingu í fjarvinnslu
og kröfu um fyllri frítíma mun fólk fara að
streyma í auknum mæli út á land. Borgir og
stærstu bæir munu áfram njóta kosta sinna en
það sem breytist er að kostir dreifbýlisins verða
jafn ljósir.
----------------------------------S.
Goðsögnin um herinn hrynur
KJALLARI
Ármann Jakobsson
íslenskufræðingur
Einstefna hefur ríkt í fjöl-
miðlaumfjöllun um banda-
ríska herliðið á Miðnesheiði
síðustu ár. Það sést skýrt þeg-
ar brottför þess vofir yfir og
útvarpsmaður spyr sagn-
fræðing hvort íslendingar
séu nú orðnir „fórnarlömb"
einhliða utanríkisstefnu
Bushstjórnarinnar.
Ég hef skoðað hug minn og mér
finnst ég ekki vera „fómarlamb" þó
að eitthvað fækki atvinnudrápur-
um í næsta nágrenni. Þvert á móti
finnst mér Bushstjórnin nú loksins
hafa gert eitthvað af viti, að vísu á
vafasömum forsendum. Haukarnir
í Pentagon em að sönnu engir
mannvinir en hagsýnir og vita sem
er að þessi her gerir ekkert gagn á
ísiandi. Vera hans hér er ill meðferð
á fé bandarískra skattborgara. Og
jafnvel stjórn sem bruðlar svo
miklu almannafé í vígtól að nægði
til að útrýma fátækt íheiminum tíu
sinnum tímir ekki lengur að halda
uppi gerviher í landi sem er ekki
ógnað af neinum.
„Núna er talað um að
Bandaríkjamenn vilji
taka„einhliða" ákvörðun
um að herinn fari. En ekki
hvað? Þetta erþeirra her
og hefur alltaf verið. Þeir
borga hann og eiga
hann. Bushstjórnin hefur
líka hingað til álitið það
rétt sinn að taka einhliða
ákvarðanir um árásir á
önnur lönd og íslensk
stjórnvöld hafa stutt þau
íþví"
Minna hefur farið fýrir andstöðu
við bandaríska herinn upp á
síðkastið en áður fyrr. Hið sama á
raunar við um hernaðarsinna.
Varðbergi hefur kannski reynst
auðvelt að koma í sjónvarpið frétt-
um af fundum þar sem fjömtíu
manns mæta (að öndunarvélunum
meðtöldum). Enda hefur herinn
ekki skort aðdáendur á fréttastof-
unum. Meðal kjaftastéttanna hefur
verið fullkomin samstaða um að
herinn sé nauðsynlegur, andstaða
við hann fánýt og að hann muni
vera hér um aldur og ævi - uns
skyndilega hillir undir brottför
hans.
Almenningi hefur verið skít-
sama. Menn hafa kannski ekki
nennt að mótmæla hernum en þó
að einstaka Heimdellingur kunni
ennþá fjömtfu ára gamla mllu úr
kalda stríðinu hefur orðið æ al-
gengara að þeir sem fylgja hernum
neiti bara að ræða málið. Breyting-
ar á vem hersins hér og NATO-að-
ildinni hafa einfaldlega ekki verið á
dagskrá og það er bannað að ræða
málið. Þeir sem em andvígir hern-
um hafa verið spurðir f fjölmiðlum
hvort þeir séu virkilega á móti hon-
um ennþá. Uns skyndilega kemur í
ljós að málið er svo sannarlega á
dagskrá og enginn meira úr takt við
nútímann en íslensk stjómvöld og
kjaftastéttirnar sem hafa hindrað
umræðu um málið.
Þurfum við herinn?
Núna er talað um að Bandaríkja-
menn vilji taka „einhliða" ákvörð-
un um að herinn fari. En ekki hvað?
Þetta er þeirra her og hefur alltaf
verið. Þeir borga hann og eiga
George Bush.
hann. Bushstjórnin hefúr líka hing-
að til álitið það rétt sinn að taka
einhliða ákvarðanir um árásir á
önnur lönd og íslensk stjórnvöld
hafa stutt þau í því.
Bandaríski herinn kom hingað ái
vafasömum forsendum, með
skírskotun til stríða hinum megin á
hnettinum. Vera hans hér hefur
verið rökstudd ýmist með hræðslu-
áróðri um ógn frá Sovétríkjunum
eða hvaða ímyndaða óvini sem er,
með fjárhagslegum rökum eða al-
mennum frösum um samstöðu
Vesturlanda. Upp á síðastið hefur
hann verið eins og gamall vani.
Bandaríkjastjórn vill ekki lengur
hafa hann hér og það er engin þörf
á honum -sama hvað hernaðar-
sinnar í Sjálfstæðisflokknum, -
Framsóknarflokknum og Samfylk-
ingunni segja. Allt tal um ógnir og
varnir hefur fyrst og fremst þann
tilgang að breiða yfír að stjórnvöld
og kjaftastéttirnar á islandi hafa
búið til goðsögn um mikilvægi
hersins sem nú er hrunin, þegar
Bush og félagar vilja sjálfir flytja
hann.
Væri ekki ráð að horfast loksins í
augu við raunveruleikann? íslandi
stafar engin ógn sem fjórar or-
ustuflugvélar geta bægt frá. Þeir
óvinir sem efstir eru á baugi hafa
ráðist á sjálft Pentagon og láta eng-
an smáher fæla sig burt. Eina vonin
í þessum nýja heimi er að halda
áfram að vera friðsöm þjóð sem fer
ekki með eldi og blóði gegn öðrum.
Nýstaða uppií varnarmálum:
Gætum þurft að hugsa
málin alveg upp á nýtt
FRÉTTAUÓS
’ ÓlafurTeiturGuönason
olafur@dv.is
„Því verður ekki neitað, að
það er hinn mesti galli, að
engar varnir eru í landinu,"
skrifaði Jón Sigurðsson 1843.
Þótt ótrúlegt megi virðast er
ekki útilokað að núverandi
forystusveit landsins gæti
þurft að endurtaka þessi um-
mæli ef það verður ofan á, að
Bandaríkjamenn dragi enn
frekar úr viðbúnaði á Kefla-
víkurflugvelli.
„Ef þetta verður ofan á verðum
við að hugsa málin upp á nýtt,“
segir heimildarmaður DV sem gjör-
þekkir stöðu mála en óskar að
koma ekki fram undir nafni. Óttast
er að frekari samdráttur hjá varnar-
liðinu setji af stað keðjuverkun.
Ljóst er að ef orrustuþoturnar fjór-
ar í Keflavík hverfa á braut hverfur
líka þyrlusveitin, sem hefur það
meginhlutverk að vera þotunum til
halds og trausts. Og spurt er: Ef
engin ástæða er talin til að bregðast
við óboðnum flugvélum í lofthelg-
inni, verður þess þá langt að bíða
að einnig verði talið óþarft að fylgj-
ast með ferðum kafbáta og kafbáta-
leitarvélarnar hverfí líka burt?
„Þetta leiðir hvað af öðru," segir
heimildarmaður DV.
„Komum á morgun!"
Fullyrt er að Powell, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sem
stjórnvöld hafa bundið vonir við að
myndi styðja óbreyttan viðbúnað
hér, hafi nú gefið eftir gagnvart
Donald Rumsfeld vamarmálaráð-
herra og „tæknilegum rökum"
hans, sem svo eru kölluð, um að
óhætt sé að draga úr viðbúnaðin-
um. „Það er ekkert hald í utanríkis-
ráðuneytinu lengur," er sagt. Og
þótt lögð sé áhersla á að enn geti
allt gerst í samningaviðræðum fer
ekkert á milli mála að íslensk
stjórnvöld líta málið alvarlegum
augum.
Hvað varðar varnarhagsmuni fs-
lendinga snýst málið fyrst og
fremst um loftvarnir, sem orrustu-
þoturnar hafa veitt. Fari þær kom-
ast íslendingar í hóp þeirra þjóða
sem munu vera teljandi á fingmm,
jafnvel annarrar handar, sem hafa
engar loftvarnir.
íslendingar hafa litið
svo á að varnarsamn-
ingurinn við Bandaríkin
feli i sér að Bandaríkja-
menn geti ekkiskil-
greint einhliða hvað
séu fullnægjandi varnir
fyrir ísland.
Rök Bandaríkjamanna munu
einkum vera tvenns konar. í fyrsta
lagi felist fælingarmáttur í því að
hafa hér bandaríska herstöð alveg
burtséð frá þvf hve fjölmennt her-
liðið er. í öðm lagi sé hægt að sinna
loftvömum fslands frá Skotlandi
eða Noregi. Þá myndi hins vegar
taka hálfan annan sólarhring að
bregðast við. „Og þegar verið er að
ráðast á mann finnst manni 36
klukkutímar svolftið langur tími,"
eins og einn viðmælenda ÐV orðar
það.
Algjör nauðsyn
Utanríkisráðherra hefur margoft
lýst þeirri skoðun að mikilvægi
landvarna hafí ekki minnkað á
undanförnum ámm. f skýrslu sinni
um alþjóðamál í mars í fýrra sagði
hann nauðsynlegt að hafa hér við-
búnað til að takast á við ógnir hvort
sem væri af hafl eða úr lofti, og
bætti við: „íslensk stjómvöld munu
ganga til [viðræðna] við Bandaríkin
með það í huga að nú sé um að
ræða lágmarks varnarviðbúnað á
Keflavíkurflugvelli....“
Og á fundi hjá Varðbergi í mars
síðastliðnum minnti ráðherra á
hættuna á „mannskæðum árásum
fámennra öfgahópa," sem gætu „af
minnsta tilefni reynt að kúga lýð-
ræðisríki með hótunum um
blóðsúthellingar eða eyðilegg-
ingu." Nauðsyn landvarna væri því
„ekki minni en áður".
Ekkert Plan B?
Af því leiðir að aðildin að NATO
er ekki talin duga; varnarlið Banda-
ríkjamanna er hin stoðin í vörnum
landsins og ekki síður mikilvæg.
Ekki er að sjá að neins staðar hafi
verið minnst á þann möguleika að
brestir kæmu f þessa stoð í þeim
ÞAÐ ER MARGT BRÉFIÐ: En fátt eins viðkvæmt og það sem forsætisráðherra sendi Bush Bandaríkjaforseta á dögunum og
utanríkisráðherra kynnti utanríkismálanefnd Alþingis í gær. Fari Bandaríkjamenn „nýjar leiðir" f varnarsamstarfinu eins og vilji þeirra stendur
til þurfa íslendingar sjálfir að fara nýjar leiðir sem ekki virðast hafa verið kortlagðar.
ræðum og ritum sem komið hafa
frá stjórnvöldum um vamarmál á
undanfömum missemm.
Sérstök greinargerð um mat á
vamar- og öryggismálum þjóðar-
innar kom síðast út á vegum utan-
ríkisráðuneytisins fýrir fjórum
ámm. í henni em settar fram ýms-
ar tillögur, meðal annars um aukna
þátttöku íslendinga í vörnum
landsins, en ekkert er vikið að því
hvemig bregðast skuli við ef
Bandaríkjamenn dragi úr viðbún-
aði hér umfram það sem íslending-
ar geti sætt sig við. Ekki verður séð
að nokkum tímann hafi verið gefið
út „Plan B“ í varnarmálum.
Meginskyldan
Ástæðan er ósköp einföld: fs-
lendingar hafa Iitið svo á að varnar-
samningurinn við Bandaríkin feli í
sér að Bandaríkjamenn geti ekki
skilgreint einhliða hvað séu full-
nægjandi varnir fýrir ísland. Fram
til þessa hefur gengið ágætlega að
komast að sameiginlegri niður-
stöðu en nú virðist sem breyting
gæti orðið á f fyrsta sinn. Ekki verð-
ur betur séð en að þetta hafi nánast
verið talið óhugsandi - og það er
þess vegna sem stjórnvöld gætu
þurft að „hugsa málið alveg upp á
nýtt“.
Viðfangsefnið yrði sannarlega
nýstárlegt. í stað þess að vera í
þeirri einstöku stöðu meðal þjóða
heims að stórgræða á vörnum
landins (!) þyrfti allt í einu að meta
hvort rétt væri að verja 0,7% af
landsframleiðslu til landvarna eins
og írar eða 2,6% eins og Frakkar,
svo að dæmi séu tekin, sem þýddi
3-12 milljarða króna á ári.
Þess má geta - líklega til gamans
- að algengt verð á orrustuþotu er
um 2,5 milljarðar króna. Þessar
fjórar sem taldar em lágmark
myndu því kosta um 10 milljarða.
Tekjur ríkissjóðs af einkavæðingu
vom ríflega 50 milljarðar króna á
síðasta kjörtímabili; helmingurinn
af söluandvirði Landsbankans
hefði dugað fyrir fjómm þotum en
fer í staðinn í jarðgöng og fleira.
Þess má geta - líklega
til gamans - að algengt
verð á orrustuþotu er
um 2,5 milljarðar
króna. Þessar fjórar
sem taldar eru lágmark
myndu því kosta um 10
milljarða. Tekjur ríkis-
sjóðs afeinkavæðingu
voru ríflega 50 milljarð-
arkróna 1999-2003.
„Ein meginskylda sérhvers full-
valda ríkis er að ábyrgjast öryggi og
varnir þegna sinna," segja sérfræð-
ingar utanríkisráðuneytisins í upp-
hafsorðum greinargerðar sinnar.
En hvernig?
Forræðisfíklarnir
Þeir héldu reykiausa daginn á
dögunum. í sem stystu máli geng-
ur hann út á það að þeir sem
reykja ekki, þeir reykja ekki held-
ur þá. Hinir halda náttúrlega
áfram. Nema auðvitað að það eigi
að gagnálykta. Að meiningin sé að
þennan eina dag ársins reyki eng-
inn, en þá þeim mun meira alla
hina. Það myndi líklega skýra
ákveðna greininn. Þetta er
reyklausi dagurinn en ekki bara
venjulegur reyklaus dagur. Þó
hugmyndin um sérstakan
reyklausan dag fyrir þá sem ekki
reykja sé auðvitað nokkuð undar-
leg þá em undarlegheit næstum
standard í meinlætabransanum.
Þannig em til dæmis rekin sérstök
félög fyrir fólk sem ekki drekkur
vín, hefur aldrei drukkið vín og
ætlar sér sko ekki að byrja á því.
Þó erfitt sé að fmynda sér ástæður
þess þá mun að vísu heldur hafa
fækkað f stúkum landsins á síð-
ustu ámm og varla að stórstúkan
sé neitt stór lengur og er það auð-
vitað áhyggjuefni öllum góðum
mönnum. Reyndar er heimurinn
orðinn svo undarlegur að það er
aldrei að vita hvaða aðferðir em
árangursríkastar í baráttunni við
þá lesti sem gefa lífinu gildi.
Þannig varð maður einn bæði
heimsfrægur og forríkur á að
kynna fólki þann megrunarkúr að
borða bara sem alira mest af fitu,
fitu og engu nema fitu. Ef marka
má áköfustu kynningarmenn
þessa kúrs þá eru engin takmörk
fyrir því hversu mikið má grenn-
ast á því að borða nógu fitandi
mat. Vonandi er þess að sama
skapi skammt að bíða að einhver
góður maður finni Ieið fyrir of-
drykkjumenn að komast á réttan
kjöl með því að þamba hreinan
spíra daginn út og inn.
Vonandi er þess að
sama skapi skammt að
bíða að einhver góður
maður finni leið fyrir
ofdrykkjumenn að
komast á réttan kjöl
með því að þamba
hreinan spíra daginn
út og inn.
En því miður láta óreykinga-
menn sér ekki nægja að nýta
reyklausa daginn til þess að vera
reyklausir. Þeir þurfa nefnilega
einnig að hafa í hótunum við
samborgara sína og virðast aldrei
fá nóg af því að hafa vit fyrir öðr-
um og þá einkum þeim sem aldrei
hafa óskað eftir siíkri handleiðslu.
Nýlega voru sett yfirgripsmikil og
yfirgangssöm tóbaksvarnarlög
sem skerða verulega réttindi fólks
til að nýta eignir sínar að vild.
Fólk f fjölbýlishúsi má ekki einu
sinni hittast í sameigninni og fá
sér vindling og það eins þó allir í
húsinu reyki og vilji reykja. Eig-
endur veitingastaða mega ekki
ráða því sjálfir hvort þeir leyfa^
reykingar í sínum eigin húsa-
kynnum og virðist sem höfundar
tóbaksvamarlaganna álíti að það
séu gestir en ekki húsráðendur
sem setji húsreglur. Það er nefni-
lega búið að finna upp hugtakið
„réttur til reykleysis" og í nafni
þess virðist allt hægt. Þessum nýj-
ustu mannréttindafrömuðum
virðist ómögulegt að átta sig á því
að sá sem fer í hús annars manns,
hvort sem það er íbúðarhús, fjár-
hús eða veitingahús, hann hefúr
einfaldlega gengist undir þær
reglur sem húsráðandi setur. Það
er enginn neyddur til að fara á
veitingahús og það er enginn
neyddur til að sitja í reyk.
Þó þetta sé einfalt þá virðast ^
forræðisfíklarnir ekki skilja það.
Ekki nóg með það, nú vom þeir að
hóta að ganga enn lengra og
banna með öliu reykingar á veit-
ingahúsum. Og þar næst koma ef-
laust heimilin, ef enginn stöðvar
þessa menn. í alþingiskosningun-
um á dögunum slapp inn hópur
fermingarbarna úr fjölmörgum
flokkum og þó rétt sé að binda
jafn litlar vonir við þá þingmenn
og aðra þá má kannski stinga að
þeim þeirri hugmynd að samein-
ast nú um það þarfaverk að færa
fólki aftur réttinn til að ráða eigin
húsum. Að minnsta kosti ráða því
sjálft hvort og þá hvar þar er reykt.^
Grímurmun reglulega leggja
sitt afmörkum til
þjóðmálaumræðunnar á þessum
stað. DVbýðurhann velkominn
til leiks.
Húllumhæ
Blaðamannafélag íslands
heldur úti hreint ágætum vef,
Press.is. Eins og nærri má
C geta er hann einkum ætlaður
Jjj blaðamönnum en öðmm
Q þykir þó vafalaust áhugavert
■* að geta þama fylgst með
T3 fréttamönnum skeggræða
C fjölmiðla á alla kanta, gagn-
<0 rýna efnistök hver annars og
tn fleira í þeim dúr. Á spjall-
svæði vefsins hefur undan-
fama mánuði verið rætt
nokkuð um nýju blaða-
mannaverðlaunin sem em í
bígerð - íslensku Pulitzer-
verðlaunin. Vart er hægt að
kalla umræðumar líflegar,
því gjaman líða margar vikur
á milli bréfa, en fróðlegar em
þær. Flestir blaðamenn sem
hafa tjáð sig em hlynntir
verðlaununum en leggja
áherslu á að afhending þeirra
verði látlaus og ekki í stíl við
umstangið í kringum Eddu-
verðlaunin. Þór Jónsson,
fréttamaður á Stöð 2, er hins
vegar ósammála og er ekkert
að skafa utan af því: „Það á
að gera þetta grand og flott
svo að allur almenningur
tekur eftir. Ef vel tekst til (sem
er auðvitað forsenda) verður
það til þess að vekja athygli á
því sem vel er gert á fjölmiðl-
unum - og veitir ekki af.
M.ö.o. enga helv... minni-
máttarkennd."
Ljósrituð Rússlands-
ferð
Haukur Hauksson er
landsmönnum að góðu
kunnur sem fréttaritari Út-
varpsins (já, útvarpsreksmr
Ríkisútvarpsins heitir Út-
varpið, með stómm staf!) í
Rússlandi. Haukur, sem hef-
ur búið þar eystra í um ára-
tug, býður líka landsmönn-
um að njóta leiðsagnar sinn-
ar í tveggja vikna ferð um
Rússland í haust á vegum
ferðaskrifstofúnnar Bjarma-
lands. Heyrst hefur að þeir
Bjarmalandsmenn séu held-
ur óhressir með að nokkm
eftir að þaulskipulögð ferðin
var auglýst hafi keppinautur-
inn Úrval-Útsýn á útsmog-
inn hátt auglýst nákvæmlega
eins ferð með brottför tveim-
ur dögum fyrr. Úrvalsmenn
myndu væntanlega spyrja á
mótí hvort ferðaplön ferða-
skrifstofa séu viðskiptaleynd-
armál í Rússlandi.
Skárra væri'ða nú
.Skiptar skoðanir eru d meðal Jafnaðar-
manna Iþessum efnum.þvivissulega eru
til friðarsinnar meðal vor.“
Dagbjört Hdkonardóttir I ritstjómargrein
ó PólitíkJs um varnarliðið i Keflavik.
Veisla hjá Víkverja
„Lyktín var gríðarsterk, en
svona á þetta víst að vera og
bitinn hvarf í einu lagi upp í
ginð á Víkverja sem kjamsaði á
þessu mein-
holla holdi um
stund og fannst
sem eldur færi
um nasagöngin
[...) auðvitað í
jákvæðri merk-
ingu, því þetta
var hið mesta hnossgætí með
frábæm eftirbragði."
Vikverji skrífarí Morgunblaðið um
smökkun á Grænlandshákarli hjá Hildi-
brandi Bjarnasyni í Bjarnarhöfn.
Frjáls og ég
skemmti mér...
„Sennilega er fólk bara svo-
Iítið leitt á þessu „frelsi" sem
alltaf er verið að troða upp á
það. Það felst hvort eð er aðal-
lega í einhverskonar áreiti og
snýr oftast að buddunni, hálf-
tómri."
Anna Sigrún Baldursdóttir á Kreml.is, um
að meirihluti vildi í óformtegri skoðana-
könnun Stöðvar2 halda óbreyttum
hömlum á afgreiðslutima verslana á
stórhátiðum.
Seðlabankinn,
góðan dag
Hin ágæta
símsvömn
bankans er
einmitt í fæmm
höndum
heimamanna.
Fyrirsvarsmenn bankans
þurfa því ekki að leita langt
yfir skammt til þess að komast
að því hvar eldurinn brennur
og hvað sé i' húfi.
Einar K Guðfinnsson alþingismaður
I g rein I Fiskifréttum.
Viðkvæmarsálir
„Skyldi það vera viðkvæmt
mál meðal æðstu valdamanna
í Washington að styggja ekki
brothættar pólitískar sálir í ís-
lenska Stjómarráðinu? Fram-
boð á hættulegum hryðju-
verkamönnum og rússnesk-
um njósnaflugvélum er ein-
faldlega of lítíð til þess að
halda uppi eftirspum Banda-
rfkjahers og þetta hljóta allir
stjómarmenn sem kenna sig
við frjálshyggju að átta sig á.“
Úrdálkinum,Undarlegvika‘ÍViðskipta-
blaðinu undir fyrirsögninni.Mellan sem
fær ekki borgað'
V