Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Page 27
FÖSTUDAGUR 13.JÚNÍ2003 TILVEP.A 27
HOWTO LOSE A GUY IN 10 DAYS: Sýnd kl. 5.45,8 og 10.15.
POWERSÝNING kl. 11.45. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 7 og 10. B.i. 12 ára.
OLD SCHOOL: Sýnd kl. 8 og 10.
NÓI ALBINÓI: Sýnd kl. 6.
KRINGLAN
ALFABAKKI
Stcvc MArtin
L.-'ítitah
Maríím
★★★
Það borgar
sig að
kynnast
fólki vel
áður en þú
^ferð á blint
stefnumót á
Netinu. i
ÞároorgSf sig að kynnastTölki vef
áður en þú ferð á blint stefnumót á
Netinu.
Þessi frábæra grínmynd er frá fram
leiðandanum Jerry Bruckheimer
sem hefur gert smellina
Armageddon, Pearl Harbor,
The Rock og Conair
Queen Latifah fer á kostum og
Steve Martin slaer í gegn í sinni
stærstu gamanmynd frá upphafi!
THE MATRIX RELOADED:
^fvajasta myrrd sumarjBft
kinm. Byrjaði með Ijpm i
síðaMi^elgi i Band^jmcjuni
i Lúxus Vlp ki. 3.45. 5.50, 3 og 10.
ÁLFABAKKI tS 587 8900
KRINGLAN XS 588 0800
Sýnd kl. 3.45,5.50,8,9.05,10.15,11.20 og 1230. POWERSÝNINGAR. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 3.45,5.50,8og 10.15.
THE MATRIX RELOADED: Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30. KANGAROO JACK: Sýnd kl.4,6,8 og 10.
SKÓGARLÍF: Sýnd m. ísl.tali kl.3.45.. JOHNNY ENGLISH: Sýnd kl.4 og 6.
1
LJ U Uj J 1
ÉFJÖLMIÐLAVAKTIN
* Hilmar Karlsson
skrifarum fjölmiðla
Raunveruleiki
í sjónvarpi
Eitthvert öfgafyllsta og lágkúruleg-
asta sjónvarpsefni sem boðið er upp
á um þessar mundir er svokallað
raunveruleikasjónvarp. Að takast á
við raunveruleikann er orðatiltæki
sem komið er í slíka vitleysismerk-
ingu í sjónvarpi að engu tali tekur.
Raunveruleikasjónvarpið byrjaði
með Survivor, sem getur að mörgu
leyti fallið undir merkingu orðsins
raunveruleiki. Þar hefur þó verið við-
urkennt að atriði hafi verið tekin aft-
ur sem ekki þóttu nógu fjölmiðla-
væn. Um leið eru svik í tafli sem gera
það að verkum að raunveruleikinn er
orðinn að sýndarmennsku.
í kjölfar vinsælda Survivors spratt
upp alls konar „raunveruleikasjón-
varp" og hefúr hugmyndaflugið í
þeim efnum verið með eiridæmum.
Og hvað varðar raunveruleikann þá
er hann horfinn út í veður og vind og
væri nær að skilgreina þessa þætti á
þann veg að óþekktir leikarar og aðr-
ir keppi í því hver hafi mesta hæfi-
leika til að þola hitt og þetta sem fyr-
irfram er ákveðið - kaldur raunveru-
leikinn er það alla vega ekki.
Einn slíkur þáttur, sem alls ekki er
hægt að kalla raunveruleikasjónvarp,
Scare Tactics, hóf göngu sína í vik-
unni á Stöð 2. f kynningu segir:
„Ótrúlegt raunveruleikasjónvarp,
sem má helst líkja við falda mynda-
vél“. Þarna er verið að veiða áhorf-
endur í gildru. Ekki vantaði að sum
atriðin virkuðu eðlileg en flest þeirra
eru þó leikin af leikurum sem vilja
koma sér á framfæri.
STJÖRNUGJÖF DV
★ ★★★
Nói albínói ★ ★★■i
Respiro ★★★
Identity ★ ★★
Narc ★★★
X-Men 2 ★ ★★
City By the Sea ★ ★★
Confidence ★ ★i
Johnny English ★ ★ik
Matrix Reloaded ★ ★
Bringing Down
the House ★ ★
View From theTop ★ ★
Darkness Falls ★ ★
A Man Apart ★i
How to Lose a Guy
in 10 Days ★ A
Old School ★
REIÐINÁMSKEIÐ: Adam Sandler fær leiðbeiningar frá Jack Nicholson.
Flugdóniferá námskeið
KVIKMYNDAGAGNRÝNI
SIF GUNNARSDÓTTIR
sif@dv.is
Þeir sem hafa séð auglýsinguna
fýrir Anger Management og velt fyr-
ir sér hvað Jack Nicholson sé eigin-
lega að pæla geta huggað sig við
það að myndin er aðeins betri en
hún lítur út fyrir að vera í klippi-
formi auglýsingarinnar - en ekki
meira en aðeins.
Adam Sandler leikur Dave Buznik,
mann sem lætur vaða yfir sig algjör-
lega og endalaust. Þessi gólftusku-
árátta hans virðist hafa byrjað í æsku
þegar bekkjarfanturinn hafði það
sem aðaláhugamál að hrekkja hann
og Dave lét allt yfir sig ganga, enda
bljúgur og hógvær drengur. Sem full-
orðinn maður er hann ennþá afar
hæverskur og afsakandi og hann
vinnur við að hanna föt á of feita ketti
(í alvöru). Yfirmaður hans er hrotti og
fífl, niðurlægir Dave reglulega og hef-
ur af honum hrós fyrir verkefni.
Þrátt fyrir þetta á Dave indæla
kærustu sem vill honum vel en vill
líka að hann læri að svara fyrir sig.
Eftir heldur furðulega flugferð, þar
sem Dave lendir í röð afar einkenni-
legra óhappa, er hann úrskurðaður
Smárabíó/Regnboginn/
Laugarásbíó
Anger Management
★★
flugdóni og dæmdur til að fara á
námskeið til að læra að hafa hemil á
reiði sinni! Sálfræðingurinn, Buddy
Rydell (Nicholson), er galnari en
flestir geðsjúklingar og notar afar
óvenjulegar aðferðir til að koma
Dave í nánara samband við tilfinn-
ingar sínar og manni finnst oft að
það sé frekar sálfræðingurinn en
sjúklingurinn sem eigi við vanda-
mál að stríða.
Það eru mörg prýðilega fyndin at-
riði í Anger Management, eins og
dásamlegt söngatriði þeirra félaga,
Kvikmyndir í sjónvarpi í kvöld:
Samsæri, kaldar stelpur og vísindafarsi
Það eru engin klassísk meistara-
verk kvikmyndanna á dagskrá sjón-
varpsstöðvanna í kvöld og satt best
að segja fátt um fína drætti. Sjón-
varpið sýnir kl. 21.45 Keðjuverkun
(Chain Reaction), miðlungs
spennumynd með Keanu Reeves,
Morgan Freeman og Rachel Weisz í
aðalhlutverkum. Fellur hún undir
flokk svokallaðra samsærismynda.
Reeves leikur tæknimanninn Eddie
Kasalivich sem starfar hjá vísinda-
stofnun og vinnur hann með hópi
manna sem uppgötvar ódýrt elds-
neyti. Þegar einn vísindamannanna
er drepinn og formúlunni stolið er
Eddie grunaður um verknaðinn og
leggur hann á flótta. Þrátt fyrir
skemmtilegt plott og atriði sem fá
hárin til að rísa nær myndin aldrei
almennilegu flugi en er þó hin
sæmilegasta afþreying.
EVOLUTION: Ýmsar furðurverur eru sestar
að á jörðinni.
Stöð 2 sýnir kl. 00.10 Háa hæla og
skíthæla (High Heels and Low
Lifes), gamanmynd um tvær vin-
konur sem leiðast út á hálan ís.
Shannon og Frances komast á
snoðir um áform glæpamanna sem
hyggjast ræna banka í hverfinu
þeirra. Við slikar aðstæður myndu
flestir hringja beint í lögregluna en
ekki Shannon og Frances. Þær
ákveða að krækja sjálfar í væna
peningafúlgu með því að hóta ræn-
ingjunum að segja til þeirra en
vopnin snúast fljótt í höndunum á
þeim. Það er plottið sem er veiki
hlekkurinn í myndinni. Af hverju er
oft spurning sem kemur upp í hug-
ann. Það er samt ágæt skemmtun
að fylgjast með þeim Minnie Driver
og Mary McCormack í hlutverkum
sfnum, sérstaklega hvernig þær
fikra sig áfram (fjárkúguninni.
Bíórásin sýnir kl. 20.00 hina snar-
geggjuðu Evolution. Leikstjóranum
Ivan Reitman tekst best upp í kvik-
myndum sem eru á mörkum þess að
vera farsar, samanber Ghostbusters-
myndirnar. Eftir því sem alvaran er
stopp á miðri hraðbraut á anna-
tíma. En myndin er helst til löng og
Segal leikstjóri efast greinilega um
að áhorfendur nái brandara sem
ekki er búið að margtyggja ofan í þá.
Það kemur ekkert á óvart í leik
þeirra félaga Nicholson og Sandler.
Nicholson er demónískur og hreyfir
augabrúnirnar í tíma og ótíma og
Það kemur ekkert á
óvart / leik Nicholson
og Sandler. Nicholson
er demónískur og
hreyfir augabrúnirnar í
tíma og ótíma og
Sandler er mjög
Sandler-legur.
Sandler er mjög Sandler-legur.
Marisa Tomei er því miður allt of
lítið notuð í hlutverki kærustunnar.
Aðalsportið meðan horft er á
myndina er að telja stórleikara í
smáhlutverkum því nóg er af þeim.
Þar má sjá Woody Harrelsson í kjól
með ljósa hárkollu og Heather Gra-
ham í kjól með eigið hár, John Turt-
urro og Luis Guzman leika reiða
sjúklinga Buddys, Harry Dean
Stanton leikur blindan mann sem
Dave slæst óvart við og John C.
Reilly er í hlutverki munks sem
Dave lemur viljandi í klessu. Ef
þetta kippir f munnvikin er um að
gera að drífa sig í bíó; ef ekki þá er
engin ástæða til, nema fyrir ólækn-
andi Sandler-aðdáendur.
Leikstjóri: Peter Segal. Handrit: David Dorfman.
Kvikmyndataka: Donatd McAlpine. Tónlist:
Teddy Castellucci. Aðalleikarar: Adam Sandler,
Jack Nicholson, Marisa Tomei, John Turturro.
Stjörnugjöf DV
★ ★★★
Chain Reaction ★ ★
High Heels Low Lifes ★ ★
Evolution ★ ★
meiri er árangurinn minni. Reitman
ætti því að vera á heimavígstöðvum í
Evolution sem flokkast undir hrein-
an farsa. Samt er það nú svo að Reit-
man hefur ekkert nýtt fram að færa.
Brandararnir eru kunnuglegir og aUs
konar fígúrur utan úr geimnum, sem
boðið er upp á, hafa sést í betri
myndum. Reitman tekst þó að blása
lífi í slitinn söguþráð eins og góðum
farashöfundum er einum lagið og
nýtur þar aðstoðar ágæts leikara-
hóps sem nær vel saman þannig að
Evolution er stundum fyndin þó
alltaf sé húmorinn meira og minna
fyrirsjáanlegur. hkari@dv.is