Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Qupperneq 28
28 DVSPOfiT FÖSTUDAGUR 13.JÚNÍ2003 DVsport Keppni í hverju orðí Netfang: dvsport@dv.is Sími: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889 Nína Kristín á leið til Eyja HANDBOLTI: Stórskyttan Nína Kristín Björnsdóttir hefur ákveðið að söðla um og spila með (slandsmeisturum (BV á naesta tímabili. Nína var þrá- faldlega orðuð við Val á dög- unum en svo virðist sem hún hafi skipt um skoðun á síðustu stundu. Hún hefur undanfarin ár leikið með Haukum en þar áður var hún í herbúðum Stjörnunnar í Garðabæ. Þetta erað sjálfsögðu mikil blóðtaka fyrir Haukastúlkur en að sama skapi mikill hvalreki fyrir Eyja- stúlkur sem munu mæta með mikið breytt lið til leiks á næstu leiktíð enda munu 8 leikmenn sem voru í leikmannahópi þeirra í vetur ekki spila með á næstu leiktíð. henry@dv.is Davíð til HK HANDBOLTI: Handknattleiks- maðurinn Davíð Höskuldsson er genginn í raðir bikarmeist- ara HK frá Valsmönnum. Davíð,sem spilar stöðu vinstri hornamanns, hefur fá tækifæri fengið á Hlíðarenda og því ákvað hann að söðla um og reyna fyrir sér á nýjum víg- stöðvum. Davíð er 22 ára gamall og hef- ur leikið með meistaraflokki Vals undanfarin tvö ár. Hann skoraði 8 mörk úr 17 skotum í ár en mínúturnar sem hann fékk á síðasta tímabili voru ekki margar. Árið þar á undan var hann með 13 mörk í 25 skotum og komu mörkin 13 í 22 leikjum. henry@dv.is Miðnæturmót ÍR í frjálsum íþróttum fór fram í gærkvöld: Bjarni og Sunna fyrst / minningarhlaupinu um frjálsíþróttakappann Hauk Clausen Miðnæturmót ÍR 200 metra hlaup karla Bjarni ÞórTraustason, FH ..........22,94 Sigurkarl Gústavsson, UMSB ........23,05 Andri Karlsson, Breiðabliki......23,13 Róbert F. Michelsen, Breiðabliki ... 23,45 Magnús V. Gíslason, Breiðabliki.... 23,50 Albert Magnússon, (R...............23,64 Gunnar B. Gunnarsson, FH...........24,28 SteinþórÓskarsson.Ármanni..........24,34 200 metra hlaup kvenna Sunna Gestsdóttir, UMSS............24,99 Hildur K. Stefánsdóttir, (R........26,41 Sigurbjörg Ólafsdóttir, Breiðabliki . .26,98 Þóra Guðfinnsdóttir,lR.............27,15 Anna Jónsdóttir, Breiðabliki ......27,28 Kristjana Ósk Kristjánsd., (R......27,45 Linda B. Lárusdóttir, Breiðab......27,91 Björg Hákonardóttir, Fjölni .......27,94 1500 metra hlaup kvenna Fríða Rún Þórðardóttir, (R.......4:45,24 Martha Ernstdóttir, IR ..........4:48,88 Herdís H.Arnalds,Breiðabliki ... .5:16,06 4x100 metra boðhlaup kvenna A-sveit Breiðabliks................49,06 A-meyjasveit (R ...................51,86 Sveit Fjölnis......................53,22 Stangarstökk kvenna Fanney Björk Tryggvadóttir, IR .....3,40 Aöalheiður M. Vigfúsd., Breiðab.....3,20 Kringlukast kvenna Ásdís Hjálmsdóttir, Ármanni........41,56 Hallbera Eiríksdóttir, UMSB........36,40 Jóhanna Sigmundsdóttir,lR .........19,10 Spjótkast kvenna Vigdís Guðjónsdóttir, HSK..........48,60 Sigrún F. Sveinsdóttir, FH.........46,53 Ásdís Hjálmsdóttir, Ármanni........46,43 Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, FH ....35,85 Jóhanna Ingadóttir, |R ............30,87 800 metra hlaup karla Björn Margeirsson, Breiðabliki .. .1:54,59 Stefán Már Ágústsson, UMSS ... .1:58,94 Burkni Helgason, ÍR .............2:00,84 Ólafur Margeirsson, [R...........2:02,21 Sveinn Elías Elíasson, Fjölni ...2:16,11 Ingvar H.Guðmundsson, Fjölni.. .2:35,98 5000 metra hlaup karla Sigurbjörn Arngríms., UMSS ... .15:39,28 Stefán Guðmurids., Breiðab......16:44,86 Sveinn Ernstsson, (R............16:50,86 Örn Gunnarsson, [R .............17:13,10 Sölvi Guðmundsson, Breiðab. . .18:07,24 Vignir Már Lýðsson, (R..........18:38,42 400 metra grindahlaup karla Björgvin Víkingsson, FH............54,16 Unnsteinn Grétarsson, fR...........55,83 Kringlukast karla Jón Bjarni Bragason, Breiðab.......47,24 Stefán R.Jónsson, Breiðab. ........43,34 Magnús Björnsson, USAH ............35,94 Einar Karl Hjartarson, |R..........31,37 Stangarstökk karia SverrirGuðmundsson, [R..............4,50 4x100 metra boðhlaup karla Sveit Breiðabliks..................44,57 Sveit FH ..........................44,65 Miönæturmótið I gærkvöld var siðasta mótið I undirbúningi margra keppenda fyrir Evrópubikarkeppni landsliða sem fram fer í Árósum I Danmörku 21.-22.júní næstkomandi. henry@dv.is Miðnæturmót ÍR í frjálsum íþróttum fór-fram í fínu veðri á Laugardalsvelli í gærkvöld. Hæst bar á mótinu 200 metra hlaup sem haldið var í minn- ingu Hauks Clausen en hann lést í síðasta mánuði. Haukur var einn mesti afreksmaður sem ÍR-ingar hafa átt í frjáls- um íþróttum og setti frægt Norðurlandamet í 200 metra hlaupi árið 1950 sem stóð um árabil. í 200 metra hlaupinu hjá körlun- um var FH-ingurinn Bjarni Traustason fljótastur en hann kom í mark á 22,94 sekúndum. Sigurkarl Gústavsson, UMSB, varð annar á 23,05 sekúndum og Blikinn Andri Karlsson hreppti bronsið en hann kom í mark á 23,13 sekúndum. 200 metra hlaupið hjá stúlkun- um varð aldrei spennandi því hlaupadrottningin Sunna Gests- dóttir hafði mikla yfirburði frá ræs- ingu og kom langfyrst í mark á 24,99 sekúndum. IR-ingurinn Hild- ur Kristín Stefánsdóttir varð önnur á 26,41 sekúndu en hin unga og efnilega Blikastúlka, Sigurbjörg Ólafsdóttir, náði sér ekki almenni- lega á strik og varð þriðja á 26,98 sekúndum. „200 metra hlaupið hjá stúlkunum varð aldrei spennandi því hlaupadrottningin Sunna Gestsdóttir hafði mikla yfirburði frá ræsingu." Hin bráðefnilega stangarstökks- stúlka, Fanney Björk Tryggvadóttir úr ÍR, náði sér vel á strik í blíðunni í Laugardalnum og jafnaði eigið meyjamet þegar hún vippaði sér glæsilega yfir 3,40 metra. Aðalheið- ur Marfa Vigfúsdóttir úr Breiðabliki varð önnur en hún fór yfir 3,20 metra. Vigdís vann spjótið Hörð barátta var í spjótkastinu hjá stúlkunum en svo fór að lokum að Vigdís Guðjónsdóttir úr HSK tryggði sér sigur, kastaði spjótinu 48,60 metra. Sigrún Fjeldsted Sveinsdóttir úr FH var ekki langt á eftir en hennar besta kast mældist 46,53 metrar. Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni varð sfðan þriðja, hún kastaði tíu sentímetrum styttra en Sigrún. Ásdís var aftur á móti geysisterk í kringlukastinu þar sem hún sigraði mjög örugglega en hún kastaði fimm metrum lengra en Hallbera Eiríksdóttir úr UMSB sem varð önnur. Hörð barátta var í 1500 metra hlaupi kvenna þar sem ÍR-stúlk- urnar Fríða Rún Þórðardóttir og Martha Ernstdóttir háðu harða keppni. Eftir æsispennandi hlaup kom Fríða Rún sterk inn á enda- sprettinum og var rúmum þremur sekúndum á undan Mörthu yfir endamarkið. „Fríða Rún og Martha Ernstdóttir háðu harða baráttu um sigurinn í 1500 metra hlaupinu." Sigurbjörn Ámi Arngrímsson úr UMSS hafði mikla yfirburði í 5000 metra hlaupi karla og var rúmri mínútu á undan Blikanum Stefáni Guðmundssyni sem hirti silfrið eft- ir harða baráttu við Svein Ernsts- son sem varð að sætta sig við bronsið. Jón Bjarni Bragason úr Breiða- bliki vann sfðan sigur í kringlukasti karla en hann varpaði kringlunni 47,24 metra og hafði umtalsverða yfírburði. henry@dv.is Watson kemur á óvart á opna bandaríska í golfi 32-liða úrslit VISA-bikarsins spiluð um helgina Fylkir fer til Húsavíkur 32-liða úrslit í VISA-bikar- keppni karla fara fram í dag og á morgun. Nokkrir athyglisverðir leikir em á dagskrá eins og Eyja- slagurinn á milli KFS og IBV, HK tekur á móti KR, Huginn fær ÍA í heimsókn og ungmennalið Kefla- víkur mætir Grindavík. Einnig er viðureign toppliðs 2. deildar, Völsungs frá Húsavík, og bikar- meistara Fylkis mjög áhugaverð. Völsungarnir hafa farið á kostum í 2. deildinni og unnið alla 5 leiki sína með miklum yfirburðum. Þjálfari félagsins er Ásmundur Arnarson, fyrrverandi leikmaður Fram, og hann segir að mikil til- hlökkun sé fyrir leikinn. „Það er mikil stemning og tilhlökkun í hópnum og bara hjá bæjarbúum öllum, held ég. Við lítum á þennan leik sem ævinfyri og reynslu fyrir okkar unga lið og alveg frábært að mæta bikarmeisturunum sjálfum. Við munum reyna að stríða þeim en hversu langt það nær verður bara að koma í ljós.“ henry@dv.is Opna bandaríska meistaramót- ið í golfi hófst í gærer fyrsti hring- urinn af fjórum var leikinn en þetta mót er eitt af fjórum stærstu mótum ársins. Bandaríkjamennirnir Tom Watson og Brett Quigley spiluðu manna best og komu í hús á 65 höggum eða 5 undir pari. Frammistaða Watsons kom skemmtilega á óvart en þessi 53 ára kylfmgur vann sigur á mótinu árið 1982. Þetta var jafnframt hans besti hringur í síðustu 105 sem hann hefur leikið á opna bandaríska mótinu. Það verður spennandi að fylgjast með fram- göngu hans á næstu dögum. Besti kylfingur heims, Tiger Woods, byrjaði rólega eins og svo oft áður og kom í hús á 70 högg- um eða á pari. hemy@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.