Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Síða 31
FÖSTUDAGUR 13.JÚNÍ2003 DVSPORT 31
1r
Metfjöldi mætti til Ólafsvíkur
og alls voru 64 keppendur á
svæðinu.
Yngsti keppandinn um helg-
ina var 12 ára gamall en sá elsti
var kominn á fimmtugsaldur-
inn.
Bjami Bærings ljóstraði upp
leyndarmálinu að góðri ræsingu
- hann ræsti í þriðja gír í stað
annars eins og venjan er.
Viggó öm Viggósson íslands-
meistari hefur ekki endað svona
neðarlega í crosskeppni svo
lengi sem elstu menn í greininni
muna.
Ragnarlngi Stefánsson tapaði
mörgum stigum í Ólafsvík í fyrra
og vildi ekki láta það endurtaka
sig í keppninni í ár.
Margir keppendur voru að
keppa í sinni fyrstu keppni og
öruggt má telja að þeir mæti aft-
ur til leiks.
Næsta motocrosskeppni verð-
ur á ÓlafsBröi 5. júlí en næsta ís-
landsmót verður á Akureyri 27.
júlí næstkomandi.
Nafnamir sem enduðu á verð-
launapallinum í B-flokki eiga fátt
annað sameiginlegt en nöfnin.
Gunnlaugur Rafn er 34 ára
þotuflugmaður en Gunnlaugur
Karlsson er 14 ára nemi.
BrautiníÓlafsvfker lögð sandi
og rigning nóttina fyrir keppni
kom í veg fyrir mikið ryk á
keppnisdag.
*
Bragi Óskarsson frá Ólafsfirði
sagði að skíðagangan sem
stunduð væri heima hjá honum
reyndi ekkert á úthaldið miðað
við djöfulganginn í motocross-
inu.
Brautarstjórinn Svanur Tóm-
asson brá á það ráð að hafa
brautina iokaða fyrir æfingum í
heila viku fyrir keppnina. Á
keppnisdag var brautin svo slétt
að hægt hefði verið að leggja
parket beint á sandinn.
Haukur Þorsteinsson var stolt-
ur af fjölskyldunni í mótslok.
Arnór sonur hans varð annar í
stærri unglingaflokknum og ^
Aníta dóttir hans varð önnur í
stelpnuflokknum eftir harða
baráttu. Haukur náði einnig sín-
um besta árangri í motocross-
keppni og brosti út að eyrum eft-
ir mótið í Ólafsvík.
Vélhjólamenn eru með allt um
keppnina f Ólafsvík á vefsvæði
sínu, www.motocross.is.
íslandsmótið í Ólafsvík
Þolinmæði er dyggð
Skilaði reynsluboltunum stigum í fyrsta móti sumarsins í motocrossi
íslandsmótið í motocrossi
hófst um helgina með mikl-
um látum. Margir keppendur
mættu í miklum vígahug og
sýndu stórkostleg tilþrif í
byrjun keppni. Þegar líða tók
á riðlana sýndu reynslubolt-
arnir ungu strákunum hvern-
ig yfirvegun og þolinmæði
getur skilað inn stigunum í
lok dags.
Einar Sigurðarson leiddi fyrsta
riðilinn í upphafi keppninnar og
var kominn með 6 sekúndna for-
skot eftir 5 hringi. Úthaldið var ekki
alveg nógu gott hjá Einari og Ragn-
ar Ingi Stefánsson hélt hraðanum
uppi og seig að lokum fram úr.
Haukur Þorsteinsson náði þriðja
sæti og sýndi góð tilþrif. í 10-15
efstu sætunum var ótrúlega lítill
munur á keppendum og mátti ekk-
ert út af bregða því alltaf voru 3-4
keppendur tilbúnir að taka fram úr
við hver einustu mistök.
Bjarni byrjaði vel
I öðrum riðlinum stökk fram á
sjónarsviðið nýr maður í toppbar-
áttuna. Bjarni Bærings hafði aðeins
náð að halda í efstu menn í fyrsta
riðlinum og héldu menn að einhver
heppni hefði ráðið því. Svo reyndist
ekki vera og Bjami tók forystu strax
f fyrstu beygju. Bjarni ekur á kraft-
miklu Yamaha 450 hjóli og er léttur
og sterkur. Hann tók forystu strax
og náði hraðasta hring dagsins í
1:32,197. Hann hélt forystunni í tvo
heila hringi áður en gömlu jaxlarn-
ir náðu að saxa á hann. Ragnar Ingi
náði aftur forystu og hélt henni til
loka. Bjarni seig niður í 9. sæti en
Einar og Haukur náðu aftur öðru
og þriðja sæti.
Viggó frábær
I þriðja riðlinum má segja að ís-
landsmeistarinn frá í fyrra hafi
mætt til leiks. Viggó örn Viggósson
hafði verið mjög slakur í fyrstu
tveimur riðlunum og endað í 9. og
21. sæti. Nú var ekkert sem stöðv-
aði Viggó og hann rúllaði hreinlega
upp keppinautunum og sigraði ör-
ugglega. Ragnar Ingi varð annar og
Haukur þriðji.
Ragnar Ingi leiðir því íslands-
mótið með 57 stig en Haukur og
Einar em með 45 stig. Ljóst er að
Viggó Örn á nóg inni og mótið er
hvergi nærri búið.
Gunnlaugur vann B-flokkinn
í B-flokknum er jafnan breiður
og fjölbreyttur hópur. í þessari
keppni mætti flugmaðurinn Gunn-
laugur Rafn Bjömsson í sína fyrstu
motocrosskeppni og náði að sigra.
B-flokkurinn keppir aðeins í tveim-
ur riðlum og í þeim fyrri skiptust
Gunnlaugur og Gunnar Atli Gunn-
arsson á forystunni. Gunnar Atli
setti besta brautartímann en féll af
hjólinu og Gunnlaugur náði þar
forystunni sem hann ekki lét af
hendi.
f seinni riðlinum sýndi Ólafsfirð-
ingurinn Bragi Óskarsson Gunn-
laugi mikla keppni í upphafi en
„krassaði" á hjólinu eins og það er
orðað fyrir norðan. Ungu strákarn-
ir Ágúst Viggósson og Kári Gunn-
laugsson nældu sér í annað og
þriðja sætið.
Eiga stutt í þá bestu
I þessari keppni eins og í hinum
motocrosskeppnunum sem eiga
eftir að verða í sumar var keppt í
tveimur unglingaflokkum. Minni
flokkurinn er fyrir 80 rúmsentí-
metra hjól og sá stærri fyrir 125.
Þarna mættu ökumenn framtíðar-
innar til leiks og stóðu sig frábær-
lega.
I minni flokknum var Aron
Ómarsson frá Grindavík hraðastur
og sýndi glæsileg tilþrif. Freyr
Torfason og Svavar Friðrik Smára-
son náðu að sýna honum klærnar
en Aron náði að halda þeim fyrir
aftan sig.
Strákarnir voru þeir einu í þess-
um flokki því tvær stelpur k'epptu
einnig og var að sjálfsögðu mikil
keppni þeirra á milli. Aðalheiður
, Birgisdóttir og Aníta Hauksdóttir
náðu góðum árangri og skiptust á
forystunni. Sá slagur endaði með
sigri Aðalheiðar og kom Aníta
skammt undan.
í stærri flokknum eru strákar sem
eru 14 til 16 ára gamlir og gríðarlega
efnilegir. Þarna stukku þeir svo
sannarlega fram á sjónarsviðið og
heilluðu áhorfendur. Reyndar
hræddust kannski keppendurnir í
A-flokknum mest því þessir strákar
eiga stutt í það að rassskella
„gömlu kallana".
í fyrri riðlinum börðust Gunn-
laugur Karlsson og Helgi Már Gísla-
sonum hverja einustu sekúndu.
Þeir sýndu báðir magnaða takta og
tilþrif. Gunnlaugur endaði 9 sek-
úndum á undan Helga. í seinni
umferðinni komu Arnór Hauksson
og Stefán Þór Svansson betur inn í
baráttuna við Gunnlaug og Helga
Má. Gunnlaugur sigraði aftur en
Arnór varð annar, Stefán Þór varð
þriðji og Helgi Már fjórði.
Gunnlaugur og Helgi Már vildu
meira og skráðu sig einnig í B-
flokkinn og gerðu þar góða hluti,
Gunnlaugur náði bronsi og Helgi
Már var ekki langt undan. Þeir tveir
keyrðu langmest allra þennan dag-
inn eða alls fjóra riðla auk tímatöku
og upphitunar.
BJARNI FYRSTUR: Bjarni Bærings leiðir í öðrum
riðli, Ragnar Ingi Stefánsson kemur annar og
Michael B. David þriðji.
Motocrossmolar
Hlakka til næstu keppni
Segir Gunnlaugur Rafn Björnsson sem tókþátt í fyrsta sinn
DV Sport spjallaði stuttlega
eftir keppnina við Gunnlaug
Rafn Björnsson og sagðist
ánægður og hissa með ár-
angur sinn.
„Þetta er fyrsta motocross-
keppnin sem ég tek þátt í og ég átti
ekki von á miklu. Þegar hjálmur-
inn er kominn á höfuðið fer
keppnisskapið í gang og ekkert er
gefið eftir." Gunnlaugur hefur
keyrt endurohjól um hálendisvegi
í mörg ár og keppt í enduro-
keppnum nokkrum sinnum.
Hann hafði þó aldrei keyrt í
motocross braut fyrr en á Selfossi
fyrir þremur vikum.
„Brautin á Selfossi fannst mér
ógnvekjandi í fyrstu. Stóru stökk-
pallarnir eru gerólíkir enduroinu
og ég þurfti langan tfma til að
safna hugrekki í fyrsta stökkið.
Eftir það var ekki aftur snúið.“
Gunnlaugur komst að því nán-
ast á ráslínunni að hann hafði ekki
verið nema einu sinni áhorfandi á
motocrosskeppni og vissi því ekki
alveg hvernig jDetta gengi fyrir sig.
„Ég' einfaldlega gerði eins og
ungu strákarnir og gaf svo allt í
botn. Hjólið er kraftmikið svo ég
náði að vera framarlega í fyrstu
beygjunni og slapp að mestu við
samstuð. Fyrstu 30 sekúndumar
vom reyndar alveg magnaðar og
ólíkt því sem sést í sjónvarpinu. Ég
komst að því að hávaðinn og
spennan í loftinu festast ekki á
filmu. Ég er farinn að hlakka til
næstu keppni."
Gunnlaugur sagðist mjög
ánægður með framkvæmd
keppninnar og það væri algjör
lúxus að mæta með hjólið og fá
braut í fullkomnu ásigkomulagi
afhenta upp í hendurnar. „Ég hef
verið að hvetja félagana að skrá sig
til keppni í b-flokkinn í enduro
eða motocrossi. Þeir mikla þetta
fýrir sér en sjá ekki þá hliðina að fá
að keyra í heimsldassa-braut og
bera svo tímana sína saman á
Netinu daginn eftir. Keppnin er
ekki síðri á milli félaganna heldur
en um toppsætin í Meistaradeild-
inni.“
Gunnlaugur Rafn Björnsson var ánægður að lokinni keppni.
4-