Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2003, Qupperneq 17
+
16 TILVERA MIÐVIKUDAGUR 18.JÚNI2003
MIÐVIKUDAGUR 18.JÚNÍ2003 TILVERA 17
Tilvera
Fólk ■ Heimilið ■ Dægradvöl
Netfang: tilvera@dv.is
Sími:550 5813 -550 5810
Ricky hjólar með kærustunni í Ósló
Latínuguttinn og mjaðma-
hnykkurinn Ricky Martin frá
Puerto Rico bauð kærustunni
sinni í hjólatúr í miðborg
Óslóar á dögunum. Þar með
voru að engu gerðar fyrri
fregnir um að hann væri laus
og liðugur.
„Ég hef aldrei sagt það. Það
eru bara einhverjir blaðamenn
sem hafa skrifað það," segir
Ricky blessaður.
Kærastan heitir Rebecca de
Alba og þau hafa þekkst í
fjórtán ár. Hún er mexíkósk og
starfar sem blaðamaður en
varáðurfyrirsæta.
Ef marka má kappann ætlar
hann sér að gera meira en að
skemmta sér um stundarsakir
með Rebeccu.
„Ég sé mig fyrir mér sem fjöl-
skylduföður, þótt það verði nú
ekki alveg strax. Það verður
stórkostlegt að hafa Ktinn
Ricky Martin á vappi í kring-
um sig. Ég kem til með að
verða besti pabbinn. Ég ætla
að taka krakkann með mér
um allt," segir Ricky.
Kröfulisti Lopez er í lengra lagi
Latínubomban Jennifer Lopez hefur
iengi haft orð á sér fyrir að vera bæði
dyntótt og kröfuhörð um lífsins gæði
og öll þægindi sem þeim fylgja.
Kröfurnar, sem hún gerði áður en farið
var að taka upp myndbandið við lagið
What's Going on, hafa verið gerðar op-
inberar og kennir þar margra forvitni-
legra grasa.
Fyrst skal telja að Jennifer vildi fá til af-
nota fimmtán metra langan húsvagn
með tveimur inngöngum. Og þar skyldi
að sjálfsögðu vera geislaspilari og sjón-
varp og myndbandstæki og aðstaða til
að snyrta sig og farða.Veggir skyldu
vera hvítir í búningsherberginu og þar
skyldu vera hvít blóm á hvítu borði með
hvítum dúk.Gardínur skyldu einnig
vera hvítar, svo og kertin og sófarnir. Og
til að deyja ekki úr þorsta vildi Lopez fá
franskt ölkelduvatn frá Évian,ekki kælt,
heldur við herbergishita.
KVIKMYNDIR HELGIN 13.- 15.JÚNÍ
Sætl Fyrir Titill Innkoma, Innkoma FJöldi
viku helgin alls blósala
1. 2 FINDING NEMO 28.384 191.487 3425
2. 1 2 FAST 2 FURIOUS 18.679 83.584 3418
3. 3 BRUCE ALMIGHTY 14.238 193.818 3477
4. RUGRATS 11.556 11.556 3041
5. HOLLYWOOD HOMICIDE 11.112 11.112 2840
6. DUMB AND DUMBERER 10.854 10.854 2609
7. 4 THEITALIAN JOB 9.609 55.403 2697
8. S THE MATRIX: RELOADED 5.754 257.486 2350
9. 6 DADDY DAY CARE 2.204 92.325 1982
10. 7 X2: X-MEN UNITED 1.740 207.305 1311
11. 8 WRONGTURN 1.317 12.381 1073
12. 10 BENDIT LIKE BECKHAM 801 21.746 387
13. 9 THEIN-LAWS 677 19.401 1074
14. 11 DOWNWITHLOVE 352 19.561 387
15. 12 HOLES 345 63.789 401
16. 17 SPELLBOUND 323 1.622 84
17. 18 WINGED MIGRATION 322 2.966 69
18. 14 A MIGHTY WIND 309 16.644 245
19. 20 L' AUBERGE ESPAGNOLE 248 1.296 92
20. GHOSTOFTHE ABYSS 232 11.359 53
Allar upphæðir íþúsundum bandaríkjadollara
Vinsælustu kvikmyndirnar:
Nemo stóðst allar atlögur
Finding Nemo var langvin-
sælasta kvikmynd helgarinnar í
Bandaríkjunum og er aðsókn að
henni frekar að aukast en að
minnka. Meira að segja ný kvik-
mynd með Jim Carrey, Dumb and
Dumberer, hafði ekki roð við
Nemo. Það má annars segja sem
svo að Dumb and Dumberer, sem
er framhaldsmynd, hafi ekki átt
betra skilið þar sem gagnrýnendur
hökkuðu hana í sig og sumir voru á
því að þarna væri versta kvikmynd
ársins komin. í myndinni endur-
taka Jim Carrey og Jeff Daniels
hlutverk sín í Dumb and Dumber,
sem var mjög vinsæl á sínum tíma.
Nýjasta lcvikmynd Harrison Ford
fékk aðeins betri viðtökur, sérstak-
FINDING NEMO:Hugljúf teiknimynd
höfðaði til Bandaríkjamanna um helg-
ina.
lega hjá gagnrýnendum, en sumum
þótti mikið til um leik Fords í
myndinni.
MYNDBÖND VIKAN 9.- 15.JÚNÍ
Sætl Fyrir Tltill Vikur á lista
1. TRANSPORTER 1
2. 3 SWEET HOME ALABAMA 5
3. 1 RED DRAGON 4
4. 2 THETUXEDO ■BiHnMÍ
5. 9 FEMME FATALE 2
6. 4 BALLISTIC 3
7. 12 SUPER TROOPERS 2
8. jjjfj STEALING HARVARD 1
9 10 THEGOOD GIRL 3
10. 7 CHANGING LANES 9
11. 5 THE SALTON SEA 6
12. 8 THE MASTER OF DISGUISE 6
13. 6 FRIDAY AFTER NEXT 4
14. 15 ENOUGH 10
15. _ CRUSH 1
16. 19 HUMAN NATURE 7
17. 18 ONE HOURPHOTO 11
18. 13 HIGH CRIMES 12
19. 14 LIKE MIKE 4
20. 11 DIE ANOTHER DAY 8
Vinsælustu myndböndin:
Flutningsmaður glæpamanna
The Transporter, sem er vin-
sælasta kvikmyndin á myndbanda-
markaðnum, er kvikmynd þar sem
allt snýst um að spennufíklar fái
dágóðan skammt. Segir myndin frá
Frank Martin sem er flutningsmað-
ur glæpamanna. Hann er kjörinn í
starfið, fyrrum hermaður sem ekki
spyr neinna spurninga. Dag einn
fær hann það verk að flytja ldn-
verska stúlku á milli staða. Hann
grunar að það eigi að drepa hana
um leið og hann skilar henni. Það
kemur svo í ljós að fyrir innan
skrápinn eru mannlegar kenndir og
Martin getur ekki hugsað sér að
senda stúlkuna í dauðann.
Aðalhlutverkið er í höndum
breska leikarans Jasons Strathams,
eins af óþekktu leikurunum sem
Maðkur í mysunni
hjá Mörthu Stewart
Mannorð milljarðamærings í rúst vegna örfárra milljóna
Martha Stewart er einhver al-
þekktasta sjónvarpskona í
Bandaríkjunum og sennilega
sú sem kemst hvað næst Oprah
Winfrey í vinsældum. Árum
saman hefur hún stýrt sjón-
varpsþáttum sem leiðbeina
fólki um það hvernig eigi að
halda heimili og elda góðan
mat, en nú virðist sem hún hafi
sjálf ekki náð að hreinsa allan
maðk úr mysu sinni.
Þessi hagsýna sjónvarpshúsmóðir
hefur nefnilega verið kærð fyrir alrík-
isdómstólum þar vestra og er mikið
réttardrama í uppsiglingu. Stewart er
gefið að sök að hafa reynt að hindra
réttvísina við rannsókn á meintum
innherjaviðskiptum hennar þegar
hún seldi öll hlutabréf sín í lyfjafyrir-
tækinu ImClone þann 27. desember
2001. Daginn eftir var gert opinbert að
fyrirtækið fengi ekki leyfi til að setja á
markaðinn lyf sem það hafði verið að
þróa og í kjölfarið hrundi verð hluta-
bréfa í ImClone. Fljótlega eftir þetta
komst upp að Samuel Waksal, sem
stofnaði ImClone ásamt bróður sín-
um, Harlan Waksal, hafði haft sam-
band við ættingja sína sem áttu hluta-
bréf í ImClone og ráðlagt þeim að
selja hlutabréfin áður en þetta yrði
gert opinbert.
Ekki kært fyrir innherjavið-
skipti
Verðbréfamiðlarar hjá Merrill
Lynch, sem skiptu við bæði Stewart
og Waksal-fjölskylduna, urðu varir
við að faðir bræðranna og dóttir
Samuels Waksal seldu gríðarlegt
magn hlutabréfa í fýrirtækinu þann
27. desember, létu Stewart vita og
hún ákvað að selja öll sín hlutabréf í
fyrirtækinu. Þar með var hún komin
á mjög grátt svæði hvað varðar inn-
herjaviðskipti, því samkvæmt regl-
um má fólk sem býr yfir upplýsing-
um sem aðrir hluthafar geta ekld haft
aðgang að ekki stunda viðskipti með
hlutabréf í viðkomandi fyrirtæki.
Þegar ákæruatriði voru tilkynnt
fyrr í mánuðinum kom hins vegar í
ljós að alríkisdómstóll hyggst ekki
sækja Mörthu til saka fýrir innherja-
viðskipti, heldur fyrir að hindra
rannsókn málsins. I ljós hefur komið
að saksóknarinn treysti sér ekki til að
fara alla leið og kæra fyrir innherja-
viðskipti, enda hefði það verið langt
gengið miðað við afgreiðslu svipaðra
mála í Bandaríkjunum. Hins vegar er
talið að nægar sannanir séu fyrir því
að Stewart og verðbréfamiðlari
hennar, Peter Bacanovic, hafi logið
að þeim sem rannsökuðu málið og
reynt að fela sönnunargögn.
Mismunandi blek
Til dæmis er Stewart sökuð um að
hafa breytt dagbókarfærslum frá 27.
desember 2001 eftir að yfirvöld höfðu
samband við hana, en síðar látið að-
stoðarmann breyta þeim aftur í upp-
runalegt horf. Einnig telst mikilvægt
skjal sem á að styðja fullyrðingu
Stewart og verðbréfamiðlarans um að
ákveðið hafi verið að selja bréf í
ImClone um leið og þau færu undir 60
dollara á hlut. Stewart og Bacanovic
halda því nefnilega fram að þess
vegna hafi Stewart selt bréfin þann 27.
desember en ekki vegna innherjaupp-
lýsinga. Þetta skjal er handskrifað og
við hlið ImClone stendur „@60“, sem
á að merkja að selja skuli bréfin þegar
verðið nær 60 dollurum. Rannsóknir
hafa hins vegar sýnt að „@60“ hafi
verið skrifað með öðrum penna en
afgangur skjalsins.
Aðstoðarmaður Bacanovic,
Douglas Faneuil, hefur játað að hafa
upphaflega logið um atburðarásina
við yfirheyrslur. Hann heldur því
jafnframt fram að Bacanovic hafi beitt
hann þrýstingi um að styðja sína
útgáfu af sögunni.
Karlaveldið að hefna sín?
Það virðist því ljóst að Martha
Stewart sé í nokkuð vondum málum,
en ýmsir hafa bent á að yfirvöld hafi ef
til vill gengið fullhart fram í rannsókn
málsins. Fjárhæðin sem Martha
græddi á innherja-viðskiptunum var
um það bil 45.000 dollarar, eða tæpar
LífMörthu Stewartí hnotskurn:
Hagsýna húsmóðirin
sem varð rík og fræg
Martha Stewart er hverju
mannsbarni kunn vestanhafs,
enda hefur útgáfufyrirtæki
hennar vaxið gríðarlega hratt
síðustu árin. Sjónvarpsþættir,
bækur,tímarit og margmiðlun-
arefni frá þessari hagsýnu hús-
móður hafa kennt almenningi
hvernig eigi að borða, klæðast,
gifta sig, rækta garðinn sinn
og taka á móti gestum.
Martha Stewart fæddist í New
Jersey í ágúst 1941. Hún var skírð
Martha Kostyra og ólst upp í fátækt. I
æsku fór hún strax í húsmóðurhlut-
verkið og saumaði sína eigin kjóla,
fann upp nýjar kökuuppskriftir og
TEKJUR MARTHA
STEWART OMNIMEDIA:
1997: 10 milljarðar kr.
1998: 13 milljarðar kr.
1999: 17 milljarðar kr.
2000: 21 milljarður kr.
2001: 22 milljarðar kr.
hellti sér út í garðrækt. Að auki varð
hún tískumódel um tíma en fann sig
ekki í því.
Hún lærði listasögu í háskóla og
hitti þar Andy Stewart, son verðbréfa-
sala á Wall Street, sem hún giftist 1961.
Hinn fullkomni gestgjafi
Fljódega eftir giftinguna fór hún að
fjárfesta f verðbréfum og lagði þar
grunninn að ríkidæmi sínu. Hún
komst hins vegar að því, eftir að fjöl-
skyldan keypti gamalt hús og gerði
það upp eftir hennar leiðsögn, að
hennar styrkur lá í að halda heimili.
Fljótlega eftir það opnaði hún mat-
vörubúð og veisluþjónustu sem sló í
gegn hjá ríka fólkinu. Að lokum varð
hún fræg á landsvísu þegar hún gaf út
bókina „Entertaining" þar sem hún
leiðbeindi fólki um það hvemig ætti
að vera fullkominn gestgjafi.
Á níunda áratugnum varð hún al-
ræmd fýrir að vera vinnualki og þurfti
að auki að verjast ásökunum um að
hún eignaði sér heiðurinn af verkum
annarra. Árið 1987 skildi hún svo við
Andy Stewart eftir 28 ára hjónaband.
Fyrirtæki hennar, Martha Stewart
Omnimedia, hefur vaxið ógnarhratt
síðustu árin og er meðal annars með
útibú í Kanada, Brasilíu og Japan. Árið
2001 voru tekjur íýrirtækisins 296
milljónir dollara, um það bil 22 millj-
arðar króna.
Des.
2002
fjórar
milljónir
króna,
þannig að
ekki er
hægt að
segja að
miklar
upphæðir hafi
verið í spilinu
fyrir hana, sem er talin eiga
hundruð milljóna dollara.
Því vilja margir meina að hér séu
yfirvöld að reyna að „negla" vel
þekktan einstakling úr viðskiptalífinu
til að draga athygli almennings frá
mun stærri og alvarlegri glæpa-
málum sem komið hafa upp síðustu
misseri í viðskiptalífinu vestra. Eins
hafa sumir bent á að offorsið sem
beitt hafi verið gegn húsmóðurinni
hagsýnu geti átt rætur að rekja til þess
að nú sé karlaveldið, sem ræður
ríkjum í viðskiptaheiminum, að
nota tækifærið til að berja niður
konu sem hefur látið mikið að
sér kveða síðustu árin og
oft beitt aðferðum sem
hafa skilið
andstæðingana eftir í i 18fi|
sárum. Hver svo sem f »» • 'ljl
ástæðan er verður / ,
athyglisvert að /
fylgjast með /. ■
framvindu mála á /ý/
næstu misserum. / /ýí
kja&dv.is ;
&
* ' ■' * u f .
Febr.
Mars
Apríl
Maí
Júnf
Júlf
Ágúst
Sept.
Okt.
Nóv.
Des.
2003
Febr.
Mars
Aprfl
Maí
Júnf
TRANSPORTER: Jason Statham leikur
mikið hörkutól.
Guy Ritchie tók upp á sína arma í
Lock, Stock and Two Smoking
Barrels og Snatch.
26. desember 2001: ©--------
Forsvarsmenn ImClone komast að þvf að
fyrirtaekið fái ekki framleiðsluleyfi á
krabbameinslyfinu Erbitux.Segja
aettingjum og vinum að selja hlutabréf (
fyrirtækinu. 27.desemeber 2001; 4
Martha Stewart fær veður
af þvf að eigendur ImClone
og fjölskyldur þeirra selji
hlutabréf.Ákveður að gera
það sama.
-O 28. desember 2001:
Tilkynnt opinberlega að
ImClone fái ekki
framleiðsluleyfi.
Hlutabréffyrirtækisins
falla fverði um 16%
næsta viðskiptadag.
20.janúar 2002: Ó
Hlutabréf (ImClone falla um
30% eftir að tilkynnt er að
opinberir aðilar muni rann-
saka starfsemi fyrirtækisins.
i
22.mars 2002:
Byrjað að rannsaka
verslun með
hlutabréf ImClone
með tilliti til
innherjaviðskipta.
13.júní 2002:
Samuel Waksal er
handtekinn vegna
ásakana um að hann
hafi sagt fjölskyldu-
meðlimum að selja
hlutabréf í fyrirtæk-
inu rétt áður en til-
kynnt væri að fyrir-
tækið myndi ekki fá
framleiðsluleyfi á
krabbameinslyfi sfnu.
ii
22. júnf 2002:
Merrill Lynch vísar
verðbréfasala
Mörthu Stewart,
Peter Bacanovic,
tímabundið úr
starfi.
8. ágúst 2002:0
Waksal kærður 113
liðum eftir að viðræður
um að hann játi sekt
sína stranda.
) 6. september 2002:
Rannsóknarlögreglu-
menn tilkynna að
þeir hafi sannanir
fyrir 5 mínútna
símtali frá Mörthu
Stewarttil Samuel
Waksal þann 31.
desember, en Waksal
hafði áður sagt að
þau hefðu ekki talað
saman á þessum
tíma.
+ ll.september 2002:
Beðið um opinbera
rannsókn á þvf hvort
Martha Stewart hafi
logið að
rannsóknarnefnd um
mál ImClone.
1
22. október 2002:
Mörthu Stewart tilkynnt að hún
verði sótt til saka vegna sölunnar á
hlutabréfum ImClone f lok árs 2001.
Ó 15. október 2002:
Samuel Waksal játar sekt í 6 ákæruliðum.
3. október 2002:i
Aðstoðarmaður verðbréfasalans sem höndlaði með
hlutabréf Stewart segist hafa þegið peninga fyrirað
segja ekki frá þvf af hverju Martha Stewart seldi allt f
einu hlutabréf f ImClone.
S.júnf 2003:
Martha Stewart og fyrrum
verðbréfasali hennar eru ákærð (9
liðum fyrir að reyna að spilla fyrir
rannsókn á verðbréfaviðskiptum
hennar og breyta lykilskjölum til að
styðja sögu þeirra.Stewart læturaf
störfum sem stjórnarformaður og
framkvæmdastjóri fyrirtækis sfns
Marta Stewart Living Omnimedia.
ii
Júlf
H-
Ágúst
10. júní 2003:
Sam Waksal er dæmdur í 7 ára
fangelsi og 4 milljón dollara sekt
vegna gjörða sinna hjá ImClone.
+