Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2003, Blaðsíða 30
30 DVSPORT MIÐVIKUDAGUR 18.JÚNÍ2003
i
V
>
MARKASKORARAR FAGNA: Þaö
voru Veigar Páll Gunnarsson og
Þórhallur Hinriksson sem skor-
uðu mörk KR-inga gegn Val og
hér sést Þórhallur fagna Veigari
eftir að hann hafði skorað sig-
urmarkið.
KR-ingar tylltu sér á topp
Landsbankadeildarinnar á
mánudagskvöldið þegar þeir
lögðu Valsmenn í bráðfjörug-
um leik, 2-1. íslandsmeistar-
arnir lentu marki undir þegar
25 mínútur lifðu leiks en
sýndu mikinn karakter með
því að rífa sig upp og klára
leikinn með sæmd.
Vallaraðstæður í Frostaskjólinu
voru ekki eins og best verður á kos-
ið. Blautur og þungur völlur sem
gerði báðum liðum erfltt fyrir til að
byrja með enda gekk leikmönnum
erfiðlega að hemja knöttinn á upp-
hafsmínútunum. Gestirnir lágu aft-
arlega strax frá byrjun og leyfðu
heimamönnum að sækja. Það her-
bragð gekk prýðilega því KR-ingun-
um gekk erfiðlega að skapa sér færi
framan af enda var Valsvörnin vel
skipulögð og gaf fá færi á sér.
Heimamenn hertu síðan tökin
smám saman og tókst þeim að
skapa sér nokkur fín færi fyrir leik-
hlé en Ólafur Þór var í fínu formi í
Valsmarkinu og varði oft glæsilega.
Lítið fór fyrir sóknartilþrifum hjá
Valsmönnum sem réðu illa við
blautan völlinn og stungusending-
ar þeirra voru ónákvæmar og end-
uðu flestar utan vallar án þess að
sóknarmennirnir næðu að snerta
knöttinn.
Veigar Páll var í fanta-
formi og stríddi varnar-
mönnum Valsmanna
ótt og títt með hraða
sínum og tækni
KR-ingar byrjuðu síðari hálfleik-
inn með miklum látum og fengu
tvö fín færi á fyrstu tveim mínútun-
um en allt kom fyrir ekki - inn vildi
boltinn ekki. Það kom síðan eins og
köld vatnsgusa framan í heima-
menn þegar Sigurbjörn Hreiðars-
son skoraði gull af marki beint úr
aukaspyrnu á 65. mínútu en þess
má geta þetta er í þriðja sinn í sum-
ar sem KR-ingar fá mark á sig.beint
úr aukaspyrnu.
Heimamenn lögðu ekki árar í bát
við markið heldur juku sóknar-
þungann og pressa þeirra bar loks
árangur tæpum stundarfjórðungi
fyrir leikslok þegar Þórhallur Hin-
riksson stangaði boltann í netið af
stuttu færi og Veigar Páll bætti um
betur 6 mínútum síðar með keim-
líku marki og komu þau bæði eftir
góðar sendingar frá Sigurvini Ólafs-
syni. Frábær endurkoma hjá
heimamönnum sem sýndu mikinn
karakter og vilja með því að klára
leikinn.
Það var allt annað að sjá til
meistaranna í þessum leik en oft
áður í sumar. I stað tíðra kýlinga
fram vöilinn var boltinn látinn
ganga á milli manna með ágætum
árangri þótt Bjarki og Einar Þór
væru fjarri sfnu besta. Það er þó
áhyggjuefni fyrir KR-inga hversu
illa þeim gengur að nýta færin en
þeir sluppu með skrekkinn að
þessu sinni og sigurinn var fyllilega
verðskuldaður. Veigar Páil var í
fantaformi og stríddi varnarmönn-
um Valsmanna ótt og títt með
hraða sínum og tækni. Hann
meiddist snemma í leiknum en beit
á jaxlinn og var hreint ódrepandi
allan tímann og uppskar eins og
hann sáði þegar hann skoraði sig-
urmarkið. Besti maður vallarins var
þó varnarmaðurinn Kristján Örn
Sigurðsson. Hann steig ekki feil-
spor í vörn KR-inga og var það sker
sem Valsmenn strönduðu á. Sigur-
vin reyndist einnig dýrmætur og
sendingar hans voru gulls ígildi að
þessu sinni.
Valsmenn lékuþennan ieik mjög
skynsamlega. Spiluðu á styrkleika
sinn sem er vörnin með þá Guðna
og Ármann í fararbroddi sem áttu
báðir góðan ieik ásamt Ólafi mark-
verði. Sóknin er aftur á móti þeirra
Akkilesarhæll en hún var mjög bit-
laus að þessu sinni og er það mikið
Sóknin er Akkilesarhæll
Valsmanna og var hún
mjög bitlaus að þessu
sinni.
áhyggjuefni fyrir Þorlák þjálfara að
sóknarmenn Iiðsins skuli ekki enn
vera búnir að finna netmöskvana í
sumar. Sigurbirni var oft vorkunn í
leiknum því hann barðist vel allan
tímann og var sífellt að reyna að
skapa eitthvað en félagar hans
fylgdu honum ekki eftir og stóðu
honum langt að baki. Þriðja tapið í
röð því staðreynd hjá Hlíðarenda-
piltum og þurfa þeir að gera eitt-
hvað róttækt varðandi sóknarleik
sinn ef ekki á illa að fara í sumar.
henry@dv.is
Berjumst allt til enda
. sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari KR
„Þessi leikur var vel spilaður af
okkar hálfu og mér fannst liðið
standa sig geysilega vel," sagði
Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, í
leikslok.
„Boltinn flaut vel á milli
manna í dag og það var mikil bar-
átta í liðinu. Þetta var svolítið
„Er ekki tilviljun að
leik eftir leik komum
* við til baka og klárum
dæmið."
farinn að hafa áhyggjur af þessu.
Engu að síður sýndum við enn og
aftur þá skapgerð sem einkennir
liðið. Menn berjast allt til enda og
það getur ekki verið tilviljun að
leik eftir Ieik kemur liðið til baka
og klárar dæmið. Við settum
dæmið upp fýrir þennan leik að
hann væri snúningspunkturinn
hjá okkur og mér fannst það ein-
kenna liðið. Menn ætluðu sér sig-
ur allan tímann og kláruðu leik-
inn með stæl."
Sigurbjörn svekktur
Sigurbjörn Hreiðarsson, fyrir-
liði Valsmanna, var svekktur þeg-
ar DV Sport náði tali af honum
eftir leikinn.
„Það var mjög svekkjandi að fá
að minnsta kosti ekki stig í dag
miðað við það sem við lögðum í
leikinn. Mér fannst við gera fína
hluti sérstaklega í fyrri hálfleik.
Vorum mjög þéttir og KR-ingarn-
ir ógnuðu ekkert rosalega. Við
bökkuðum fullmikið eftir markið
og þá var meðbyrinn þeirra og
því miður gekk okkur erfiðlega að
komast framar á völlinn eftir það.
Það var samt jákvætt að við vor-
um að spila þennan leik mun
betur en gegn Þrótti. Það er engin
örvænting hjá okkur því deildin
er jöfn og nóg af leikjum eftir."
henry@dv.is
erfitt þar sem við nýttum færin
okkar ekki nægilega vel og ég var
KR-Valur
2-1 (0-0}
KR-völlur
1ó. iuni 2003-5.
0-1 Sigurbjörn Hreiöarsson (65., beint úr aukaspyrnu af 25 metra færi. Brotið á Jóhanni).
1- 1 Þórhallur Hinriksson (76., skalli innan markteigs eftir hornspyrnu Sigurvins).
2- 1 Veigar Páll Gunnarsson (82., skalli innan teigs eftir aukaspyrnu Sigurvins).
Valur (4-4-2)
Ólafur Þór Gunnarsson .......5
Bjami Ólafur Eiriksson.......3
Guðni Rúnar Helgason ........4
Ármann Smári Björnsson ......4
Hjalti Þór Vignisson ........2
Sigurður Sæberg Þorsteinsson .. 1
Baldvin Jón Hallgrímsson.....1
(53., Matthías Guðmundsson .... 2)
Sigurbjörn örn Hreiðarsson...4
Stefán Helgi Jónsson.........2
Jóhann Möller ...............1
(73., Ólafur Helgi Ingason...2)
Hálfdán Gíslason.............2
(85., Amór Gunnarsson........-)
Samtals13menn ...............33
KR (4-3-3) Gul spjöld:
Kristján Finnbogi Finnbogason ..3 KR:Veigar(67.),
Sigþór Júlíusson ..4 Þórhallur (78.)
Kristján Örn Sigurösson ..5 Valur: Sigurður
Gunnar Einarsson ..4 (27.), Sigurbjörn
Kristinn Hafliðason ..3 (58.)
Þórhallur Örn Hinriksson .2 Rauð spjöld:
Sigurvin Ólafsson ,.4 Engin.
(90.,JónSkaftason ..-) Skot (á mark):
Bjarki Gunnlaugsson ..2 14 (7)-10 (4)
Einar Þór Danlelsson ..2 Horn:
Veigar Páll Gunnarsson ..5 9-4
(90., Jökull Elísabetarson Aukaspymur:
Garðar Jóhannsson ..3 23-14
(67., Sigurður R. Eyjólfsson ..2) Rangstöður:
Samtals12menn ..39 11-2
Varln skot:
Kristján 3 -
Dómari: Jóhannes Valgeirsson Ólafur Þór 5.
(2). Ahorfendun 1753.
Gæði leiks:
Maður leiksins hjá DVSporti:
Kristján Örn Sigurðsson, KR