Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2003, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2003, Síða 3
MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ2003 DVSPORT 19 Geri mitt besta segir Kristján Örn Sigurðsson, varnarmaður KR, sem staðið hefursig vel í sumar Sá leikmaður sem hvað mesta at- hygli hefur vakið fyrir vasklega framgöngu á knattspyrnuvellin- um í sumar er Kristján Örn Sig- urðsson, varnarmaður KR, en hann gekk til liðs við íslands- meistarana fyrir sumarið eftir að hafa leikið með KA síðastliðin tvö ár. Þrátt fyrir að vera ekki nema 22 ára býr Kristján yfir óhemjumikilli reynslu, enda komið víða við á síðustu árum. DV-Sporti lék forvitni á að vita meira um feril þessa leikmanns, sem oftar en ekki hefur fallið í skuggann af stóra bróður. „Ég fæddist á Akranesi og ólst þar upp, allt þar til fjölskyldan fluttist til Akureyrar. Ég hef æft ífá því ég man eftir mér, fyrst í yngstu flokkunum á Skaganum en síðan skiptí ég yflr í Þór á Akureyri. Þar var ég í nokkur ár áður en ég skiptí yfir í Völsung og með honum spilaði ég minn fyrsta meistaraflokksleik, þá 15 ára, og var liðið þá í 1. deild. Ég spilaði með Völsungi í eitt ár þangað til ég skiptí yfir í KA, en þaðan fór ég til Stoke, þá rétt að verða 17 ára,“ segir Kristján, en eins og greina má af þessari upp- talningu er pilturinn þaulvanur. Hjá Stoke hittí Kristján fyrir bróður sinn, Lárus Orra Sigurðsson, en hann lék með Stoke um árabil áður en hann fór yfir í WBA fyrir nokkrum árum. „Ég var mjög ungur, hefði alveg klárlega aldrei farið utan ef Lárus bróðir hefði ekki verið þama. Hann hugsaði um mig, ég bjó hjá honum fyrstu árin og hann var í raun og veru mín stoð og stytta," segir Krist- ján og er greinilegt að mjög gott samband er á milli þeirra bræðra, sem eru keimlfldr inni á vellinum, hvort sem um ræðir útlit eða leikstfl. „Lárus bróðir er betri leikmaður en ég í dag og það þarfekkert að rífast umþað." „Ég hef alltaf fylgst með honum og reynt að læra eitthvað en Lárus bróðir er betri leikmaður en ég í dag og það þarf ekkert að rífast um það. Ég hef kannski hraðann fram yfir marga aðra í minni stöðu en ég get bætt mig á ýmsum sviðum, og þá sérstaklega þegar kemur að því að vera á boltanum, sendingartækni og annað slíkt. Lærði mikið hjá Stoke Um dvöl sína hjá Stoke segir Krist- ján hana fyrst og fremst hafa verið lærdómsríka. „Fyrstu tvö árin spilaði ég aðeins með unglingaliðinu. Þá æfði maður tvisvar á dag allt árið og þegar svo er getur maður ekki annað en bætt sig sem knattspymumaður," segir Kristján sem á sínu þriðja ári fór að spila með varaliðinu en fékk aldrei tækifærið með aðalliði Stoke í ensku 2. deildinni. „Ég spilaði eiginlega bara einn leik með aðalliðinu. Það var æfingaleik- ur gegn Liverpool á Brittania-leik- vanginum, heimavelli Stoke. Þar kom ég inn á eftir tíu mínútur, eftír að einn varnarmaðurinn meiddist, og það var mjög skemmtilegt. Micheal Owen var ekki með en ég náði samt að kljást þama við nokkra af bestu leikmönnum Englands," segir Kristján. - Ertu ósáttur við að þú fékkst aldrei tækifæri tii að sýna hvað íþér býrhjá Stoke? „Þess vegna fór ég nú heim,“ sagði Kristján fyrst og það vottar fyrir kaldhæðni í rödd hans. „Nei, ef við tölum í alvöru þá getur maður ekki verið ósáttur yfir því að fá ekki að spila alla leiki en ég hefði samt viljað fá sénsinn. Ég held samt að aðal- ástæðan hafi einfaldlega verið sú að ég gerði ekki nægilega góða hluti," svarar Kristján hreinskilnislega. „Þetta hefur svo sem gengið ágætlega hjá mér en maður getur alltafgert betur. Það er engin spurning." „Þetta var farið að ganga eitthvað svo hægt þama úti, ég vildi reyna að bytja upp á nýtt og ákvað þá að koma heim. Ég sé ekki efttr því - mér er farið að ganga mun betur og mér finnst ég hafa spilað betur með hverju árinu eftír að ég kom heim.“ Þetta em orð að sönnu því að ef eitthvað er að marka blaðamenn DV-Sports hefur Kristján verið að taka stórstígum framfömm með hverju sumrinu sem líður, aflt ffá því hann fór aftur til KA árið 2001. Fram- farirnar sjást sennilega best á töl- fræðinni sem lesa má annars staðar á síðunni. „Maður leikur sífellt fleiri leiki og ef maður bætír sig ekki ár frá ári er lfldegt að eitthvað sé að, held ég,“ sagði Kristján, spurður hvort ein- hver haldbær skýring væri á þessari batnandi spilamennsku. Kristján er hógvær með eindæm- um og það heyrist best á því þegar talið berst að hans eigin frammi- stöðu í sumar. „Þetta hefur svo sem gengið ágæt- lega hjá mér en maður getur alltaf gert betur. Það er engin spurning. Getum gert miklu betur Kristján segir ýmsar ástæður fyrir því að hann kom í bæinn og gekk til liðs við KR. „Konan mfn fór í bæinn vegna náms en mig langaði einnig tíl Reykjavíkur. Að spila fyrir KR, sjálfa íslandsmeistarana, var heldur ekki leiðinleg tílhugsun," segir Kristján en tekur undir það að íslandsmeist- ararnir hafi verið að leika undir getu það sem af er mótí. „Já, já, langt undir getu,“ segir Kristján og er ekkert að skafa utan af því. „En ég hef ekki skýringu á hvers vegna. Ef við vissum hvað væri að værum við sennilega löngu búnir að kippa því í liðinn," segir Kristján og glottír. „Við virðumst bara ekki geta spilað fleiri en einn leik vel í einu. Það vantar stöðugleikann í liðið og jafnvel hungrið líka,“ segir Kristján. Hugsar lítið um atvinnu- mennsku og landsliðið Þegar Kristján er spurður um framtí'ðina og hvað sé hans næsta skref f boltanum segist hann vera á „Atvinnumennskan er ekki neitt sem ég velti mér mikið upp úr en ef eitthvað býðst er það auðvitað hið besta mál." samningi hjá KR og þar lfld honum mjög vel. „Ef sá möguleiki kæmi upp og um rétt lið væri að ræða þá væri ég að sjálfsögðu tilbúinn að reyna aftur fýrir mér í atvinnumennskunni. En það er ekki neitt sem ég veltí mér mikið upp úr. Ef það býðst eitthvað þá er það náttúrlega hið besta mál en núna stefni ég bara á að gera mitt besta hjá KR." - Hvað um landsliðshópinn. Er hann eittthvað sem stefnt er að? „Ég spái lítíð í landsliðið og reyni frekar að einbeita mér með KR. Ég stefni bara að því að gera sem best í deildinni hér heima og ef maður yrði valinn í landsliðið þá yrði það auð- vitað frábært," segir hann að lokum, þessi einn efnilegasti miðvörður sem við íslendingar eigum um þessar mundir. vignir@dv.is KRISTJÁN BÆTIR SIG MIKIÐ Hér að neðan má sjá frammistöðu Kristjáns I úrvalsdeild að mati blaðamanna DV-Sports síðustu tvö árin. Eins og lesa má hefur Kristján baett leik sinn til mikilla muna og hefur meðaleinkunnin hækkað um 0,46 á milli ára. KA í Símadeild karla 2002 Leikir 17 Meðaleinkunn 3,24 Maður leikslns 2 sinnum Elnkunn Slakur (2) 1 f meðallagi (3) 11 Góður (4) S Mjög góður (5) 0 Frábær (6) 0 KR í Landsbankadeild karla 2003 Lelkir 10 Meðaleinkunn 3,70 Maður leiksins 3 sinnum Einkunn Slakur (2) 1 f meðallagi (3) 3 Góður (4) 4 Mjög góður (5) 2 Frábær (6) 0 OFTAST MAÐUR LEIKSINS HJÁ DV-SPORTI 2003: Krislján Om SigurOsson, KR 3 Sinisa Kekic, Grindavík 3 BjörgólfurTakefusa, Þrótti 3 Veigar Páll Gunnarsson, KR 2 Helgl Valur Danlelsson, Fylki 2 Þorvaldur Örlygsson, KA 2 Daði Lárusson, FH 2 Allan Borgvardt, FH 2 Atli Jóhannsson, (BV 2 Gunnar Heiðar Þorvaldsson, IBV 2 Eysteinn Lárusson, Þrótti 2 EFSTU MENN í EINKUNNAGJÖE DV SPORT 2003: Sæti Nafn leikmanns Uð Fjöldi leikja Meðaleinkunn 1. Veigar Páll Gunnarsson KR 7 3,86 2. Allan Borgvardt FH 8 3,75 3.-5. Kristján öm Sigurösson KR 10 3,70 3.-5. Halldór Hilmisson Þrótti 10 3,70 3.-5. Tommy Nlelsen 1 H 10 3,70 6.-7. BjörgólfurTakefusa Þrótti 9 3,67 6.-7. Kjartan Sturluson Fylkl 9 3,67 8.-12. Gunnlaugur Jónsson lA 10 3,60 8.-12. Eystelnn Lárusson Þrótti 10 3,60 8.-12. Fjalar Þorgeirsson Þrótti 10 3,60 8.-12. Birkir Kristinsson IBV 10 3,60 8.-12. Sinisa Kekic Grindavík 10 3,60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.