Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2003, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2003, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 21. JÚLl2003 DVSPOKT 23 Hafþór til KA HANDBOLTI: Hafþór Einarsson, markvörður Þórs frá Akureyri, hefur ákveðið að ganga til liðs við erkifjendurna í KA. Hafþór var varamarkmaður fyrir Hörð Flóka Ólafsson, sem skipti yfir í HK fyrir ekki svo löngu síðan, en það þýðirað Þórsarar eru án markmanns þessa stundina og leita nú væntanlega logandi Ijósi að nýjum markmanni. Bergkamp áfram hjá Arsenal KNATTSPYRNA: Dennis Berg- kamp, hollenski sóknarmaður- inn hjá Arsenal, hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við félagið. Það gerði Bergkamp vit- andi það að hann ætti alls ekki víst sæti í leikmannahóp Arsenal á næstu leiktíð þar sem Arsene Wenger, knattspyrnustjóri liðs- ins, hefur sagt aðThierry Henry sé sá eini af framherjum liðsins sem á öruggt sæti í byrjunar- liðinu. „Það er vanda- samt verk að velja þann sem mun leika við hlið Henrys í vet- ur. Skyldi það vera Aliadere, Wiltord, Jeffers, Kanu eða Berg- kamp.Tíminn einn leiðir það í Ijós," sagði Wenger. Kewell skaddaði liðbönd KNATTSPYRNA: Ástralinn Harry Kewell, sem í síðustu viku gekk til liðs við Liverpool frá Leeds, hefur verið útilokaður frá þátt- töku í keppnisferðalaginu sem Liverpool er á þessa dagana. Kewell meiddist í æfingaleik gegn Crewe á laugardag og leiddi röntgenmyndataka í Ijós að liðbönd í ökkla hefðu skadd- ast. Forráðamenn Liverpool vonast hins vegar eftir að Kew- ell verði fljótur að jafna sig og geti tekið þátt í Amsterdam- mótinu í byrjun ágúst en Liver- pool er eitt fjögurra stórliða sem taka þátt í því móti. Þá má geta þess að Senegalinn Salif Diao er einnig meiddur á ökkla, en myndataka sýndi að hann er með slitin liðbönd og verður frá í nokkrar vikur. Staðan: Keflavlk 10 Víkinqur 10 Þór, Ak 10 Haukar 10 HK 10 Njarðvík 10 Afturek±!j§Ö Stjarnan 10 2 BreiðabliklO 3 Markahæstir: Jóhann Þórhallsson, Þór, Ak. 12 Magnús Þorsteinsson, Keflavík 7 Þórarinn Kristjánsson, Keflavik 6 Zeid Yasin, Leiftri/Dalvlk 6 Zoran Panic, HK 6 Eyþór Guðnason, Njarðvík 5 Stefán Örn Arnarson, Víkingi 5 Daníel Hjaltason, Víkingi 4 Hólmar Örn Rúnarsson, Keflavík 4 Henning E. Jónasson, Aftureldingu 4 Valdimar Kristófersson, Stjörnunni 4 Alexandre Santos, Þór, Ak. 3 Högni R. Þórðarson, Njarðvlk 3 Jón Gunnar Gunnarsson, Haukum 3 Krlstján Ómar Björnsson, Haukum 3 OlgeirSigurgeirsson, Breiðabliki 3 Óskar örn Hauksson, Njarðvík 3 Sverrir Þór Sverrisson, Njarðvík 3 Vilhjálmur R. VHhjálmsson, Stjörn. 3 Þorvaldur Guðmundsson, Afture. 3 Næstu leikir: Aftureld.-Stjarnan HK-Þór Haukar-Víkingur Leift/Dalv-Njarðvík Keflavík-Breiðablik Fim. 24. júlí kl. 20 Fös. 25. júlí kl. 20 Fös.25.júlí kl. 20 Fös. 25.júll kl. 20 Fös. 25.júlí kl. 20 ÍR-Léttir 7-1 Hörður Magnússon3, Lúðvík Gunn- arsson, Jón Þór Eyjólfsson, Engilbert Friðfinnsson, Jóhann Björnsson - Sveinn Guðmundsson. Selfoss-KFS 3-1 Jón Guðbrandsson, Brynjólfur Bjarna- son, Ingþór Jóhann Guðmundsson - Yngvi Borgþórsson, víti. KS-Vfðir 2-2 Róbert Haraldsson, Danilo Bjelica - Sindri-Tindastóll 1-3 Sævar Gunnarsson - Kristmar Geir Björnsson 2, Kevin Barr. Völsungur-Fjölnlr 2-2 Boban Jovic 2 - (var Björnsson, Steinn Símonarson. Staðan: Völsungurl 1 8 1 2 36-18 25 Fjölnir 11 7 2 2 32-16 23 Selfoss 11 7 1 3 26-14 22 KS 11 5 3 3 20-17 18 (R 11 5 1 5 22-20 16 Tindastóll 11 5 1 5 20-21 16 Víðir 11 4 2 5 14-16 14 KFS 11 4 1 6 25-31 13 Léttir 11 2 1 8 9-39 7 Sindri 11 0 3 8 15-27 3 Enn eitt Stjörnustig Nýtti ekki tækifærin gegn toppliði Keflavíkur - 5.jafntefli Stjörnunnar 1-0 Ólafur Gunnarsson 24. 1-1 Scott Ramsey 45. Stjarnan og Keflavík skildu jöfn, 1-1, í miklum baráttuleik sem fram fór á Stjörnuvellinum á föstudagskvöldið. Jafnræði var með liðunum í leiknum, en Garðbæingar voru nær því að hirða öll stigin á lokamínút- um leiksins. Eins og svo oft áður í surrtar þurftu þeir að horfa á eftir stigunum sem í boði voru. Keflvíkingar byrjuðu leikinn mun betur og voru mun hættulegri en Garðbæingar. Stjarnan varð þó fyrri til að skora þegar Ólafttr Gunnarsson skaut föstu skoti utan vítateigs neðst í markhornið. Kefl- víkingum var brugðið og við tók góður leikkafli Stjörnunnar, eitt- hvað sem sést hefur allt of sjaldan í sumar en sýndi að liðið á mikið meira inni en staðan gefur til kynna. Gullið tækifæri Keflvíkingar náðu þó að jafna leikinn þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir leiktíma fyrri hálfleiks. Var þar að verki Scott Ramsey sem hafði komið inn á fyr- ir Jónas Sævarsson sem meiðst hafði átta mínútum fyrr. Stjarnan fékk gullið færi á að krækja sér í stigin þrjú þegar sex mínútur voru komnar fram yfir níutíu mínúturn- ar. Vilhjámur Vilhjálmsson, sem átt hafði ófá skot úr aukaspyrnum og hornspyrnum án þess að hætta skapaðist af, fékk þá boltann á markteig eftir skógarferð Ómars Jó- hanssonar, markvarðar Keflavíkur. Skot hans var máttlítið og var varið af varnarmanni Keflavíkurliðsins. í kjölfarið var heimamönnum dæmd óbein aukaspyrna sem þeim tókst ekki að færa sér í nyt. Eitt er betra en ekkert „Við vorum að spila gegn topp- liðinu hér í kvöld og ætluðum okk- ur öll stigin en eitt er betra en ekk- ert,“ sagði Valdimar Kristófersson, þjálfari og leikmaður Stjörnunnar, eftir leikinn. „Þetta hefur gengið þokkalega hjá okkur að undan- förnu og við erum greinilega á upp- leið. Við áttum okkar færi og okkar sóknir þrátt fyrir að þeir væru mik- ið meira með boltann. Við komust vel inn í leikinn eftir markið en það vantaði samt smáeinbeitingu og ákveðni til að klára færin og skapa sér aðeins meira,“ sagði Valdimar að lokum. Maður leiksins: Scott Ramsey, Keflavfk. -þaþ MARKi FAGNAÐ: Leikmenn Keflavíkur fagna markaskoraranum Scott Ramsay í leik þeirra gegn Stjörnunni á föstudags- kvöld. DV-mynd Hari 9. MARKALEIKURINN í RÖÐ Jóhann Þórhallsson, framherji Þórsara í 1. deildinni, er sem stendur markahæsti maður 1. deildarinnar með 12 mörk eftir fyrstu tíu umferðirnar. En þar með er ekki öll sagan sögð því að Jóhann hefur skorað í níu deildarleikjum í röö eða öllum leikjunum sem hann hefur spilað en hann var ekki með í fyrsta leiknum gegn Breiðabliki. Með markinu gegn Blikum á föstudag hefur hann einnig skorað hjá öllum níu andstæðingum Þórs f deildinni í sumar. 9 markalelkir f röð: Dags. Andstæöingur Úrslit Mörk 25/5 HK (h) 1-1 1 31/5 Keflavfk (ú) 3-1 1 6/6 Njarðvik (h) 2-4 1 9/6 Afturelding (ú) 4-2 3 20/6 Víkingur(h) 1-1 1 27/6 Haukar(ú) 2-3 1 5/7 Stjarnan (h) 1-1 1 9/7 Leiftur/Dalvík (ú) 4-1 2 18/7 Breiðablik (h) 3-2 1 Töffræfil Jóhanns f f suman Leikir 9 Mörk 12 Mínútur spilaðar 804 Mínútur milli marka 67,0 Mörk á heimavelli 5 Mörká útivelli 7 Mörk (fyrri hálfleik 3 Mörk (seinni hálfleik 9 Mikilvægur sigur HK vann Leiftur/Dalvík í bragðdaufum leik 1-0 Zoran Panic, vfti 61. 1-1 ZeidYasin 65. 2-1 Zoran Panic, vfti 69. Það tók 60 mínútur fyrir leik- menn liða HK og Leifturs/Dal- víkur að gera leik liðanna at- hyglisverðan. Tvö víti tryggðu heimamönnum sigur. Það þýðir ekki að eyða mörgum orðum í fyrri hálfleikinn og fyrsta stundarfjórðunginn í þeim síðari. Þær mínútur voru hreint út sagt skelfilegar. Það helsta sem ber að nefna er skalli Kolbeins að marki HK eftir skógarferð Gunnlaugs. Boltinn hafnaði þó í stöng. Fyrra vítið var klaufalegt. Vamar- maður gestanna missti boltann til Gunnars Amar Helgasonar og braut svo á honum. Mark gestanna kom eftir send- ingu Jóhanns Traustasonar og var þar vel að verki staðið. En aðeins nokkmm mínútum síðar dæmdi Egill Már annað vítið í leiknum eft- ir að Gunnar örn skaut boltanum í hönd vamarmanns Leifturs/Dal- víkur. Var hann svo þakklátur fyrir árvekni Egils að hann fékk faðmlag fyrir. Eftir þetta vom bæði lið líkleg til að skora, en besta færið átti Zeid Yasin fyrir gestina er hann skaut í slá af löngu færi. Maður leiksins: Gunnar öm Helgason, HK. eirikurst@dv.is Fyrsti heimasigurinn Þór vann Breiðablik 3-2 og heldurséráfram í toppbaráttunni 0-1 (var Sigurjónsson 40. 1- 1 Hlynur Birgisson 43. 2- 1 Jóhann Þórhallsson 84. 3- 1 Alexandre Santos 91. 3-2 sjálfsmark 93. Þórsarar tóku á móti Breiða- bliki í fyrstu deild karla á föstudagskvöldið. Blikar voru ívið sterkari aðilinn í fyrri hálf- leiknum en Þórsarar í seinni. Blikar vom fyrri til að skora og var þar að verki ívar Sigurjónsson sem sneri aftur á heimaslóðir eft- ir skamma vem með Þróttumm. Markið kom eftir hornspyrnu en ívar fylgdi eftir skalla að marki sem heimamenn vörðu á línu. Engu mátti mun að Blikar næðu að skora aftur stuttu síðar en Hörður Rúnarsson, varnarmaður Þórs, bjargaði á síðustu stundu. Heimamenn jöfnuðu svo metin mínútu síðar með góðu marki. Þórsarar komu miklum mun ákveðnari til leiks eftir hlé en náðu þó ekki að skora fyrr en í lokin, og þá tvisvar. Fyrst skoraði Jóhann eftir gott einstaklings- framtak en Blikar mótmæltu kröftuglega og sögðu hann hafa brotið á sér þegar hann vann boltann í teignum. Alexander Santos bætti um betur og Andri Albertsson varð fýrir því að skora sjálfsmark sem hvaða sóknar- maður sem er hefði verið stoltur af að skora. „Stórglæsilegt" skot | upp í markvinkilinn. Þórsarar spiluðu vel, sér í lagi í j síðari hálfleik, og voru vel að sigrinum komnir. Hlynur var sterkur í vörninni og Jóhann síógnandi frammi. Blikar geta varla verið sáttir við tapið, enda enn í mikilli botnbaráttu. Maður leiksins: Hlynur Birgis- SOn. akureyri@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.