Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2003, Blaðsíða 10
26 DVSPORT MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ2003
Frækin för til 5
Um 300 strákar og stelpur frá íslandi tóku þátt í Gothia cup í Gautaborg
Mamma, pakkaðir þú niður
takkaskónum mínum? Eru allir
komnir, einn, tveir, þrír ... Hvar
er Siggi? SIGGI. Ertu með allt,
ástin mín? Svo standið þið ykk-
ur, stelpur. Koma svo! Haldið
hópinn! Koss og bless.
Það var líf og fjör í flugstöð Leifs
Eiríkssonar þegar ríflega 300 strák-
ar og stelpur í félögum víðs vegar
um landið bjuggu sig undir að
halda á vit ævintýranna í Svíþjóð.
Gothia Cup, stærsta knattspyrnu-
mót heims var áfangastaðurinn.
Margra mánaða undirbúningur var
loks að skila sér.
Inn í flugstöðina tíndust liðin eitt
af öðru. Stjarnan, KR, Fjölnir,
Grindavík, Haukar og Þór sendu öll
lið til þátttöku í 3. flokki kvenna.
Valur var með lið í 2. fiokki kvenna.
Fulltrúar hins Hafnarfjarðarveldis-
ins, FH, áttu einnig lið í 2. og 3.
flokki og Leiknir tefldi fram strák-
um úr 3. og 4. flokki, sem og Þór,
Akureyri.
„Galsi var í krökkunum
enda ekki á hverjum
degi sem maður fer
með vinum sínum til út-
landa og það án þess
að hafa mömmu og
pabba með sér."
Galsi var í krökkunum enda ekki
á hverjum degi sem maður fer með
vinum sínum til útlanda og það án
þess að hafa mömmu og pabba
með sér.
Allir skiluðu sér til Svfþjóðar og í
skólana sem áttu eftir að vera
heimili liðanna næstu vikuna. Það
er óhætt að segja að flugþreyta hafi
setið í krökkunum því næstu
klukkustundir heyrðist ekkert frá
hópunum nema hrotur og einstaka
orð mælt úr svefni.
Gautaborg og Liseberg
Gautaborg heilsaði keppendum
með sól og steikjandi hita. Þessi
mikli hiti átti eftir að haldast út
ferðina og koma misvel niður á lið-
unum. Sunnudeginum eyddu flest
lið í heimsókn í Liseberg sem er
heljarstór skemmtigarður í mið-
borg Gautaborgar.
Á mánudagsmorgni hófst svo
sjálf keppnin. Leikið var á völlum
víðs vegar um Gautaborg og í ná-
grannabæjum. Gengi liðanna var
misjafnt. Sum íslensku liðin unnu
stóra sigra en
önnur lutu í
lægra haldi. Það
sem þó háði ís-
lendingunum
var gríðarlegur
hiti sem sem
gerði mönnum
erfitt fyrir.
Um kvöldið
var svo setning-
arathöfnin sem
ffam fór á Ullevi-
vellinum þar
sem samankom-
in voru um 30
þúsund manns
sem skemmtu
sér konunglega á
glæsilegri opn-
unarhátíð. Það
setti þó leiðin-
legan blett á at-
höfnina að færri
komust að en
vildu.
Það er fótbolt-
inn sem lífið
snýst um þessa
viku f Gautaborg
og áfram var
haldið að spila á
þriðjudeginum.
Islensku liðin
lentu ekki saman
í riðli heldur
voru þau flest að
leika við lið frá
Svíþjóð og Dan-
mörku. Okkar
krakkar voru í
mörgum leikjum mun betri heldur
en andstæðingarnir en það virtist
vera sem sólin og hitinn væru erfið-
ust við að eiga. Aftur og aftur gerð-
ist það að íslensku liðin höfðu yfir-
burði í fyrri hálfleik en síðan var
sem þau þryti örendi í síðari hálf-
leik og misstu þá á stundum niður
vænleg forskot.
Línurnarskýrast
Þegar komið var fram á fimmtu-
dag voru línur teknar að skýrast í
riðlunum. Þau lið sem höfnuðu í
tveimur efstu sætunum í sínum
riðli héldu í A-úrslit en það lið sem
varð í þriðja sæti fór í B-úrslit. Þau
lið sem Ientu neðar féllu út.
Tveir athyglisverðustu leikirnir
þann daginn voru leikir Stjörnunn-
ar og Fjölnis í aldurshópnum stúlk-
ur 15 ára og leikur Þórs, Akureyri,
ogKRí sama flokki. Fjölnisstúlkur
slógu Stjörnuna út í skemmtilegum
leik þar sem Garðbæingar sýndu
oft á köflum sérlega góð tilþrif en
voru þó ofurliði bornar.
„Þrátt fyrir að státa
ekki afverðlaunum var
ekki neinn bilbug að
finna á krökkunum né
heldur á þeim fjölda
fararastjóra sem þeim
fylgdu. ístað fótbolt-
ans var einfaldlega bú-
in til ný dagskrá."
Leikur Þórs og KR var spennandi
frá upphafi til enda. Fimm mínút-
um fyrir leikslok fengu Þórsarar svo
tækifæri til að gera út um leikinn en
markvörður KR-liðsins varði vel.
KR-ingar geystust í sókn og skor-
uðu mark sem reyndist þegar upp
var staðið eina mark leiksins. Það
setti skemmtilegan svip á leikinn
að íjölmennur hópur Þórsstráka
var mættur til að styðja við bakið á
stelpunum auk þess sem fjölmargir
aðrir áhorfendur voru á þessum
leik.
„Óhætt er að segja að
íslensku stúlkurnar hafi
vakið stormandi lukku
meðal erlendra pilta.
Það var þó ekki að sjá
að athyglin færi mikið í
taugarnar á stúlkunum
enda hormónaflæðið á
þessum árum í réttu
hlutfalli við Dettifoss."
Bestum árangri íslenskra liða á
mótinu náði 19 ára lið FH. Þeir fóru
auðveldlega í gegnum riðil sinn á
mótinu en þegar kom að undanúr-
slitum þá féllu þeir úr leik gegn Dar
Hero FC. Valur og Fjölnir héldu
uppi heiðri íslensku stelpnanna.
Valsstúlkur komust í 8-liða úrslit í
17 ára aldursflokki og Fjölnir í 15
ára.
Meira en bara fótbolti
Á fimmtudag og föstudag heltust
íslensku liðin eitt af öðru úr keppni.
Það voru því engin íslensk lið sem
fóru í úrslitin á Gothia Cup að
þessu sinni. Þrátt fyrir að státa ekki
af verðlaunum var ekki neinn bil-
bug að finna á krökkunum né held-
ur á þeim fjölda fararstjóra sem
þeim fylgdu. í stað fótboltans var
einfaldlega búin til ný dagskrá.