Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2003, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2003, Qupperneq 5
MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ2003 DVSPORT 21 Hvaða lið er best i enska bolt- anum? „Chelsea, og sá sem er í mestu uppáhaldi hjá mér er Frank Lampard." Hver er besta knattspyrnu- konan á ístandi? „Ásthildur Helgadóttir." Hvaða lið veröur Islands- meistari kvenna í sumar? „Annaðhvort KR eða (BV." Regína Sigurðardóttir, ÍR. Spil- ar sem vinstri bakvöröur með B-liði 3. flokks. Hvaða lið er best í enska bolt- anum? „Liverpool og Micheal Owen er bestur." Hver er besta knattspyrnu- konan á fslandi? „Olga Færseth er mjög góð." Hvaða lið verður íslands- meistari kvenna i sumar? „Ég held það verði Breiða- blik." Sunna Bjömsdóttir, Vikingi. Spilar sem framherji með A-liði 3. flokks. Hvaða lið er best I enska bolt- anum? „Ég fylgist ekki mikið með ensku knattspyrnunni en Arsenal er gott." Hver er besta knattspyrnu- konan á fslandi? „Ásthildur Helgadóttir." Hvaða lið verður fslands- meistari kvenna í sumar? „KR eða Breiðablik." Unnur Ama Þorsteinsdóttir, Vfking. Spilar sem vamarmað- ur með B-liði 3. flokks. ÞÆR BESTTJ: Það sáust oft á tíðum frábær tilþrif í lokaleiknum þar sem áttust við úr- valslið mótsins; landsliðið gegn pressulið- inu. Ekki eru veitt einstaklingsverðlaun á Gullmótinu heldur er helsta áskorunin að vera valin í úrvalslið eftir mótið en í það koma eingöngu til greina stúlkur úr 3. flokki. DV-mynd Teitur Gullmót Breiðabliks ogJB varhaldið um helgina: Stelpurnar sleiktu sólina Tuttugasta Gullmót JP og Breiðabliks var haidið með pomp og prakt í veðurblíðunni í Kópavogsdal um helgina. Um 1200 stelpur voru mættar til leiks og mynduðu þær 115 lið sem komu frá 26 félögum. Að- sóknin sló öll fyrri met og tókst mótið í alla staði frábærlega vel. Gullmótið er að öllum lfldndum eitt hið allra stærsta sinnar tegund- ar á ári hverju, enda keppt frá 2. flokki allt upp í 6. flokk, en að þessu sinni var 2. flokknum sleppt. Mótið var sett á flmmtudagskvöld og byrj- aði spilamennskan á fullu á föstu- dagsmorguninn. Fór mótið fram á æfingasvæði Breiðabliks í Kópavoginum en einnig var keppt á svoköUuðu hraðmóti innandyra í Fífunni, hinni glæsilegu knattspymuhöll þeirra Blika. Sjálfboðavinnan ómetanleg Ari Skúlason, mótsstjóri Gull- mótsins, hafði í nógu að snúast alla helgina enda ekki heiglum hent að halda utan um 1200 stelpur sem aUar eru æstar í að spila fótbolta. „Mótið gekk mjög vel. Það má ekki gleyma því að það eru um 100 manns sem vinna í kringum mótið í sjálfboðavinnu og það er það fólk sem gerir kleift að halda þetta mót,“ segir Ari. „Við erum með mjög harðan kjarna sem er búinn að vera í þessu í mörg ár, svo að hver maður hefur sitt verkefni og gengur bara að þvf,“ segir Ari sem sjálfur hefur mikla reynslu af Gullmótinu. „Við erum með 6-700 manns í gistingu, bæði í Smáraskóla og inn í Smáranum sjálfum. Þetta fólk er- um við líka með í mat en þetta hef- ur allt saman gengið upp.“ Spurður um undirbúninginn fyr- ir svona mót og hve lengi hann hefði staðið yflr segir Ari að hann standi í raun yflr allt árið. „Við segjum að Gull- mótið sé ein afvöggum kvennaknattspyrnunn- ar á íslandi enda fyrst og fremst frábær skemmtun fyrir alla fjölsylduna „Við erum vön því að taka saman strax eftir mót hvað það er sem fer úrskeiðis og fer það í svokallaðar Gullmóts-möppur. Upp úr áramót- um byrjum við síðan að bjóða lið- um en aðalundirbúningurinn er síðasta mánuðinn. Síðustu vikuna er þetta gríðarlega vinna og fólk notar hluta af sumarfríinu sínu til að skipuleggja mótið." Stemning á bikarleik Þótt að fótboltinn sjálfur sé í fyr- irrúmi er margt annað gert á mót- inu, stelpunum og fjölskyldum þeirra til dægradvalar. „Við erum með alltaf með kvöld- vöku á föstudags- og laugardags- kvöldinu, en nú buðum við stelp- unum á bikarleik ÍBV og Breiðabliks á föstudags- kvöldið í stað kvöldvök- unnar. Þar var mikil stemning og ég hef sjald- an séð jafnmarga áhorf- endur á kvennaleik," seg- ir Ari. Á kvöldvökunni á laug- ardagskvöld tróð Birgitta Haukdal svo upp og vakti það mikla kátínu meðal yngstu stelpnanna, enda söngkonan átrúnaðargoð þeirra margra. Vagga kvennaknatt- spyrnunnar Ari segir að þetta mót skipti miklu máli fyrir knattspymuhreyfinguna á Islandi. „Við segjum að Gull- mótið sé ein af vöggum kvennaknattspyrnunnar á íslandi. Flestallar knatt- spyrnukonurnar í dag hafa byrjað að spfla á Gullmótinu og þetta er bara orðið stofnun í sjálfu sér. Þetta er mót sem stelpurnar bíða eftir allt sumarið og eftirvæntingin er mikil. „Þetta er fyrst og fremst fjölskyldu- skemmtun. Öll fjölskyldan á að geta komið og sícemmt sér vel í Kópavoginum yfir helgina og farið glöð heim aftur.“ wgnir@dv.is HART BARIST: Það var ekkert gefið eftir í viðureign KA og Hauka á Gullmótinu eins og þessi mynd gefurtil kynna. DV-mynd Teitur FJÖLSKYLDUSKEMMTUN: Hjónin Amar Ólafsson og Bima Ólafsdóttir og Frið- finnur Hauksson og Sigurbjörg Eyjólfs- dóttir. Fjölskyldur fjölmenntu á Gullmótið: Frábært mót Hjónin Arnar Ólafsson og Birna Ólafsdóttir og Friðfinn- ur Hauksson og Sigurbjörg Eyjólfsdóttir voru komin á Gullmótið alla leið frá Siglu- firði til að sjá stelpurnar sínar hjá KS etja kappi við jafnöldr- ur sínar í hörkukeppni. Þau voru sammála um að Gullmót- ið hefði heppnast frábærlega vel og allt væri eins og best yrði á kosið. „Þetta er búið að vera mjög gott og þetta er einfaldlega frábært mót. Ekki skemmir veðrið fyrir og það gerir þetta bara enn skemmtilegra,“ sagði Arnar þegar DV ræddi við þau í hinu stór- glæsilega veitingatjaldi sem búið var að koma fyrir rétt við Fífuna. Öll voru þau að koma á Gullmót- ið í þriðja skiptið í röð. „Og alltaf er jafn skemmtilegt," voru þau sammála um. „Það er alltaf mjög gott skipu- lag á þessu móti - það má segja að allt sé eins og það á að vera. Svo er svo gaman að koma og sá leikgleðina hjá stelpunum sem leggja sig allar í þetta," segir Sig- urbjörg og bætir við að keppnis- skapið hjá aðstandendunum sé ekki síðra. „Það ersvo gaman að koma og sá leikgleð- ina hjá öllum stelpun- um." „Við erum öll mjög æst á hlið- arlínunni. Það er ekkert grín að horfa á fótbolta og erfltt að halda kyrru fyrir við endamörkin," segir Birna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.