Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2003, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 21. JÚU2003 DVSPORT 29
Vissi vel af stráksa
5,5 millur
Upp og ofan hjá Tiger
Minntiá 1999
GOLF: Vijay Singh, kylfingur-
inn frá Fídjí-eyjum, var líklega
eini þátttakandinn í Opna
breska sem vissi að Ben Carter
gaeti vel gert góða hluti á mót-
inu. „Ég spilaði með honum í
Chicago," sagði Singh sem
varð í öðru sæti ásamt Danan-
um Thomas Björn, höggi á eftir
Carter. „Hann þurfti að standa
sig vel þar til að komast á mót-
ið og gerði það sem þurfti, ná-
kvæmlega eins og í dag. Á
meðan voru allir að tala um Ti-
ger, Love og Björn en hann
læddist bakdyramegin inn,"
sagði Singh. Hann sjálfur var
svekktur að hafa ekki sigrað og
hefði fyrir fram ekki sætt sig
við annað sætið. „Ég kom
hingað til að vinna en gerði
einfaldlega of mörg mistök."
VEÐMÁL: Þegar mótið hófst
var Ben Carter með sigurlík-
urnar einn á móti 250 í
breskum veðbönkum. Ekki
voru margir sem tóku því veð-
máli en þegar á mótið leið
minnkuðu líkurnar og þegar
þær voru í 10-1 tók einn sig til
og veðjaði 615 þúsund krón-
um á Carter. (lok dagsins var
hann um 5,5 milljónum ríkari.
GOLF: Mótið um helgin var 5.
stórmótið í röð sem Tiger
Woods sigrar ekki á. Engu að
síður er hann langefstur á
heimslistanum en það er ekki
nóg fyrir Tiger - hann vill vinna
hvert einasta mót sem hann
tekur þátt í þó svo að flestir
yrðu sáttir við að vinna eitt
stórmót á ferlinum. Honum
gekk ýmist frábærlega eða
hræðilega um helgina, allt frá
því að týna kúlunni á fyrsta
teighöggi að því að setja niður
30 metra högg. „Til þess að
koma mér á ákveðið skrið
þurfti ég að setja niður pútt
sem duttu einfaldlega ekki hjá
mér. Svona er golfið bara,
sumt gekk vel, annað ekki
þannig að þetta jafnast út ef á
heildina er litið."
GOLF: Hver man ekki eftir því
þegar Frakkinn Jean Van Velde
var með 3 högga forystu á 18.
holu síðasta dags Opna breska
mótsins á Carnoustie sem
hann glopraði niðurá ótrúleg-
an kæruleysislegan máta. Það
kom upp í kollinn á mörgum
þegar Ijóst var að Thomas
Björn hafði kastað frá sér
sigrinum á síðustu 3 holunum.
ST. GEORGE 2003: ÚRSLIT
Efstu menn:
Ben Curtis, Bandaríkjunum 283
Thomas Björn, Danmörku 284
Vijay Singh, Fídjí-eyjum 284
Davis Love III, Bandaríkjunum 285
Tiger Woods, Bandaríkjunum 285
Brian Davis, Bretlandi 286
Fredrik Jacobsson, Svíþjóð 286
Þessir helstu:
Nick Faldo, Bretlandi 287
Sergio Garcia, Spáni 288
Retief Goosen, Suður-Afríku 288
Stuart Appleby, Ástralíu 289
Ernie Els, Suður-Afríku 290
Greg Norman, Ástralíu 290
Padraig Harrington, írlandi 291
Thomas Levet, Frakklandi 291
Nick Price, Zimbabwe 292
Fred Couples, Bandaríkjunum 295
Phil Mickelson, Bandaríkjunum 297
Mark O'Meara, Bandaríkjunum 298
lan Woosnam, Bandaríkjunum 303
BEN CURTIS I' HNOTSKURN
Bandaríkjamaðurinn Ben Curtis
varð nýjasta stjarna golfheimsins
þegar hann vann Opna breska
meistaramótið í golfi um helgina:
Fæddun 26. maí 1977, í Ostrander,
Ohio, Bandaríkjunum.
Æska: Ólst upp í seilingarfjarlægð
frá Millcreek golfvellinum og byrj-
aði að spila golf þriggja ára.
1999: Vann áhugamannamótið í
Ohio-fylki.
2000: Varði fýlkistitilinn og gekk
vel á áhugamannamótum. Var efst-
ur á styrkleikalista áhugamanna.
2002: Komst að í bandarísku PGA-
atvinnumannamótaröðinni.
2003: Tók þátt í 13 PGA-mótum og
komst 4 sinnum fram hjá
niðurskurðinum. Besti árangur 13.
sæti sem dugði til þátttökuréttar á
Opna breska, hans fýrsta stórmóti.
Var númer 396 á styrkleikalista
atvinnumanna fyrir mótið.
„Þegar ég vakna í fyrramál-
ið verð ég breyttur maður7'
Hinn 26 ára galmi Ben Curtis er
nýr meistari Opna breska
meistaramótsins í golfi. Hann
lauk holunum 72 á einu höggi
undir pari og getur þakkað
Dananum Thomas Björn fyrir
sigurinn - sá kastaði forskotinu
frá sér á síðustu 3 holunum.
Björn hlýtur að naga sig í
handarbökin. Hann þurfti þrjú
högg til að komast úr sandgryfju á
16. braut og fór þá næstu á skolla.
Hann lauk keppni á pari, höggi á
eftir Curtis. í ofanálag við það fékk
hann dæmd á sig 2 högg í víti á
fyrsta deginum. Ef, ef og aftur ef -
en það dugar þó ansi skammt.
Curtis var að leika á sínu fyrsta
stórmóti og í raun aðeins sínu 14.
móti sem atvinnumaður. Hann er
fyrsti maðurinn síðan 1975 (Tom
Watson) til að vinna Opna breska í
fyrstu atrennu. Hann er einnig sjö-
undi Bandaríkjamaðurinn á 9 árum
til að bera sigur úr býtum á þessu
móti.
Curtis var í fyrsta holli á fyrsta
degi. Hann var stöðugur alla dag-
ana (72, 72, 70, 69) og lék sinn besta
hring undir gífurlegri pressu. Eftir
að hafa lokið keppni þurfti hann að
bíða nokkra stund og notaði tím-
ann til að slá teighögg á æfinga-
svæði, rétt til að halda á sér „hita“
ef til umspils kæmi. Hann virtist
ótrúlega rólegur yflr öllu saman en
átti erfitt með sig þegar kom að þvf
að þakka fjölskyldu sinni fyrir
stuðninginn í þakkarræðunni að
verðlaunaafhendingu lokinni.
Hann var þó búinn að ná sér þegar
fréttamaður BBC náði tali af hon-
um.
„Þetta er ótrúlegt. Ég lagðist til
svefhs í gær og sagði við sjálfan mig
að ég myndi vinna þetta mót. Ég
þyrfti bara gott skor,“ sagði Curtis.
„Én ég var ánægður með að fá bara
að vera með. Það hefði alveg verið
nóg fyrir mig. Þetta er hins vegar
stærsta golfmót í heimi og ég er
ánægður með að vera meistarinn.
Þegar ég vakna í fyrramálið verð ég
breyttur maður," bætti hann við.
„Ég lagðist til svefns í
gær og sagði við sjálfan
mig að ég myndi vinna
þettamót."
Curtis lék frábærlega á fyrstu 11
holum gærdagsins en viðurkenndi
að hann hefði ef til vill verið of rag-
ur þegar nær dró þeirri átjándu.
„Ég hefði bara átt að halda áfram
að negla að fánanum eins og ég
hafði gert alla vikuna," sagði hann
en getur þó varla kvartað yfir ár-
angrinum.
Sigur hans er einn sá óvæntasti í
þessu sögufrægasta golfmóti heims
en það fór fram í 132. skipti um
helgina. eirikurst@dv.is
GOLFKLÚBBUR VESTMANNAEYJA: Júlíus Hallgrímsson endurheimti meistaramótstitli GV
en hann tapaði naumlega fyrir Örlygi Helga Grímssyni í fyrra. Erla Adolfsdóttir fagnaði
hins vegar öruggum sigri, eins og svo oft áður. DV-mynd Ómar
GOLFKLÚBBURINN LEYNIR: Willy nokkur Blumenstein gerði sér lítið fyrir og vann sigur-
vegara síðasta árs, Stefán Orra Ólafsson, um helgina. Sá varð að gera sér annað sætið að
góðu. Hannes Marinó Ellertsson varð þriðji. Mynd GL
GOLFKLÚBBUR SUÐURNESJA: Örn Ævar Hjartarson endurheimti meistaramótstitil karla
eftir fjarveru síðasta árs. Hjá konunum vann Erla Þorsteinsdóttir eftir að næstu tvær konur
á eftir henni í keppni helgarinnar höfðu einokað titilinn í 6 ár. Mynd Víkurfréttir
GOLFKLÚBBUR (SAFJARÐAR: Á meistaramóti G( báru þau Baldur Ingi Jónsson og Ása
Grímsdóttir sigur úr býtum.
Mynd Gf
IJHM 11 Ml IS IAIIAMOIANNA
GSS, Sauðárkróki:
Karlar:
1. Jóhann örn Bjarkarson 309
2. Ólafur Árni Þorbergsson 329
3. Haraldur Friðriksson 336
Konur:
1. Árný Lilja Árnadóttir 338
2. Katrín Sveina Björnsdóttir 380
3. Svanborg Guðjónsdóttir 396
GSE, Hafnarfirði:
Karlar:
1. Tryggvi ValtýrTraustason 288
2. Eiríkur Guðmundsson 297
3. SiggeirVilhjálmsson 298
Konur:
1. Lovísa Hermannsdóttir 366
2. Rós Magnúsdóttir 366
3. Bjarney Sigurjónsdóttir 395
GS, Reykjanesbæ:
Kdrlar:
1. Örn Ævar Hjartarson 286
2. Helgi Birkir Þórisson 293
3. Davíð Jónsson 294
3. Helgi Dan Steinsson 294
Konur:
1. Erla Þorsteinsdóttir 365
2. Magdalena S. Þórisdóttir 368
2. Rut Þorsteinsdóttir 368
GV, Vestmannaeyjum:
Karlar:
1. Júllus Hallgrimsson 291
2. Karl Haraldsson 291
3. Hörður Orri Grettisson 297
Konur:
1. Erla Adolfsdóttir 343
2. Elsa Valgeirsdóttir 423
3. Þóra Gissurardóttir 439