Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2003, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ2003 DVSPORT 31
GÓÐAR BLEIKJUR: Ari Sigvaldason með tvær fallegar bleikjur úr Hvolsá í Dölum en mjög góð bleikjuveiði hefur verið víða í sumar í veiðiánum.
DV-mynd G. Bender
Frábært að vera
á veiðislóðum
segja félagarnir Ari Sigvaldason og Kristján Ari Arason
Veiðimenn hafa farið víða til
veiða í sumar, margir fara í lax
og aðrir í lax og silung, veiði-
skapurinn verður jú fjölbreytt-
ari fyrir vikið. Bleikjan hefur
verið verulega væn og þær
stærstu sem við höfum frétt af
voru um 8 pund. Veiðimenn
hafa dundað sér við að veiða
með smáum flugum og léttum
stöngum bleikjuna víða land.
Fátt er skemmtilegra en kasta
flugunni fyrir bleikjur sem eru ný-
komnar úr sjó og taka grimmt.
Reyndar hafa veiðimenn aðeins
kvartað yfir því að bleikjan sé mjög
treg í ár og það er margt tii í því.
Við hittum tvo vaska veiðimenn
fyrir skömmu vestur í Dölum, fjöl-
miðlamennina Ari Sigvaldason og
Kristján Ara Arason, en þeir voru
við veiðar í Hvolsá í Dölum og
höfðu fengið nokkrar bleikjur þeg-
ar við hittum þá við Hvítadals-
strengina í Hvolsá.
„Það er frábært að vera
hérna að veiða og við
erum búnir að veiða
nokkrar bleikjur á
maðk."
„Það er frábært að vera héma að
veiða, við erum búnir að veiða
nokkrar bleikjur og hafa þær flestar
tekið maðk,“ sögðu þeir félagar, er
við hittum þá á veiðislóðum. En
mjög góð bleikjuveiði hefur verið í
mörgum veiðiám þetta sumarið.
Bleikjurnar ekki í stuði
Og þeir héfdu áfram veiðiskapn-
um, fiskurinn var við og þeir veiddu
báðir bleikju. Fiskurinn vakti í
streng yfir ofan þá, Ari hélt þangað
og setti í fisk en hann slapp eftir
stutta baráttu. Kristján reyndi við
nokkrar bleikjur neðar en þær vom
ekki í miklu tökustuði. Eg hélt á
brott.
Fékk fimm fallegar bleikjur
Margar veiðiár bjóða bæði upp á
lax og sifung, ein af þeim er Langa-
dafsá í ísafjarðardjúpi og þar var
veiðimaður fyrir skömmu við veið-
ar. Hann reyndi við laxinn og fékk
vel í soðið, síðan labbaði hann
niður með ánni og náði í flugu-
stöngina sína og litlu flugurnar og
kastaði fyrir bleikjur í tökustuði.
Hann fékk fimm bleikjur á stuttum
tíma, allt fallega fiska.
Líflegt í Soginu
Líflegt hefur verið f Soginu í
hinni miklu hitabylgju sem hefur
verið síðustu daga. Veiðimenn í
Bíldsfelli og Ásgarði hafa verið að fá
3 til 7 punda bleikjur. Flugan
Mobuto hefur verið skæð síðustu
daga. Núna em komnar yfir 200
bleikjur úr Soginu og 45 laxar hafa
veiðst.
Mikið af fiski í Brúará
„Það er gaman að dunda sér við
bleikjurnar í Soginu, þær em ríg-
vænar sumar hverjar en em ekki
grimmar að taka,“ sagði veiðimað-
ur sem var í Soginu í vikunni. Ann-
ar veiðimaður, sem var að veiða í
Brúará, sagði að mikið væri af væn-
um fiski á nokkmm stöðum en
hann væri dyntóttur mjög.
Veiðimenn em eitthvað byrjaðir
að berja Bjarnarfjarðará á Strönd-
um en hennar tími er afveg að
koma núna. G.Bender
Viö höfum veiðileyfin handa þér
Bjamafjarðará, Blanda, Brynjudalsá, Eldvatn, Eystri Rangá, Ferjukotseyrar, Galtalækur, Grenlækur sv. 3,
Hafralónsá, Kráká, Langadalsá, Laugardalsá, Laxá í Aðaldal - Árbót, Múlatorfa og Staðartorfa, Laxá á Ásum,
Litlá, Miðfjarðará, Sog - Tannastaðatangi og Þrastarlundur, Svartá, Straumarnir, Tungufljót, Vatnasvæði Lýsu,
Vesturbakki Hólsár, Ytri Rangá o.fl.
STANGVEIÐIFELAGIÐ
Veiðimolar
Fyrsti laxinn er kominn á
land úr Glerá í Dölum þrátt
fyrir að áin sé alls ekki vatns-
mikil núna og veiddist fiskur-
inn í fossinum fyrir ofan þjóð-
veg. Fiskurinn var 4 pund og
tók maðk.
Frábær veiöi hefur verið í
Þverá f Borgarfirði og er áin sú
fengsælasta þessa dagana. En
Halldór Blöndal og Jonathan
Motzfeld vom við veiðar í ánni
fyrir
skömmu og
veiddu alla-
vega í soðið.
En litlar
fréttir em af
veiðiskap
hjá þeim fé-
lögum en
þeir fengu
eitthvað af laxi. Halldór Blön-
dal er alvanur veiðimaður og
hefur víða veitt eins og í Laxá í
Aðaldal, meðal annars í opnun
árinnar með bændum.
Veiðin befúr oft verið betri í
Laxá í Aðafdal en núna en
veiðimaður sem var þar fyrir
skömmu veiddi þrjá laxa og
vom þeir í góðum stærðum.
Eitthvað sást af laxi en oft hef-
ur það verið meira.
Þaö hefur ekki verið mikið
vatn í Miðá í Dölum fremur en
öðmm veiðiám á svæðinu en
þrátt fyrir það sáu veiðimenn
40-50 laxa torfu fyrir neðan
brúna á þjóðveginum fyrir
skömmu og reyndu mikið við
fiskana en þeir vom tregir að
taka. Mjög góð bleikjuveiði
hefur verið í ánni og bleikjan
er væn.
Vel hefur veiðst í Hofsá í
Vopnafirði og veiðimenn sem
vom þar fyrir skömmu settu
grimmt í laxa og einn sagði að
hann hefði þurft að fara bak
við stein til að skipta um flugu,
svo grimm var takan hjá laxin-
um í ánni. Selá hefur lflca verið
að gefa fína veiði.
HalldórBlöndal.
Góður gangur hefur verið í
Stangaveiðihandbókinni hjá
Eiríki St. Eirfkssyni og Skerplu
en veiðimaður sem var að
veiða á Vatnasvæði Lýsu fyrir
skömmu byrjaði á því þegar
■ hann kom á
svæðið að
setjast niður
og lesa kafl-
ann um
vatnasvæð-
ið, áður en
hann hóf
veiðiskap-
Eiríkur St. Eiríksson. jnn fyrir a].
vöm, enda bókin góð lesning
áður en ballið byrjaði. Veiði-
maðurinn fékk eitthvað af sif-
ungi en daginn áður höfðu
veiðst tveir laxar en enginn
sást þennan daginn.
6. Bender
Vatnsendabletti 181
203 Kópavogi
Sími 557 6100
lax-a@lax-a.is
www.lax-a.is