Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Side 2
2 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ2003
IÍTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson
AÐALRrTSTJÓRI: Óli Björn Kárason
AÐSTOÐARRrTSTJÓRI: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fatc Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550
5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingan
auglysingar@dv.is. - DreHTng: dreifing@dv.is
Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setnlng og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerö og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins f
stafrænu formi og i gagnabönkum án
endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir
viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af jjeim.
Efni blaðsins
Ökumaður sýknaður
- frétt bls. bls. 4
Trúa skýringum Þórólfs
borgarstjóra
- frétt bls. 4
Örlög Skeljungs ráðast
- frétt bls. 6
Töfrar hálendisins
- frétt bls. 8
Grallaralegur Bob Hope
- úttekt bls. 10
---------BC m CgTCTC-----
Keyptu ibúð á 32 milljónir
Eyþór og Móa vilja selja
-frétt bls. 15
Fylkir einn á toppnum
- DV Sport bls. 36-37
DV Bingó
v Nú spilum við allt
/ m gm \ spjaldið og ætti
( &&CB )a
V "T\r J lönguáðuren
einhver fær bingó.
Verðlaun fyrir bingó á
allt spjaldið eru afar glæsileg,
vikuferð til Portúgals með Terra
Nova Sól. Athugið að samhliða
einstökum röðum hefur allt
spjaldið verið spilað í sumar
þannig að tölurnar sem dregnar
hafa verið út ( bingóleik DV til
þessa gilda á allt spjaldið.
Sautjánda talan sem kemur upp
er40. Þeir sem fá bingó láti vita í
síma 550 5000 innan þriggja
daga. Ef fleiri en einn fá bingó er
dregið úr nöfnum þeirra.
Gjaldþrotameðferð
Fimm fluttir á slysadeild
GJALDÞROTAMEÐFERÐ:
Verslanakeðjan Bonus Stores,
dótturfélag Baugs Group í
Bandaríkjunum, sótti fyrir
helgi um að verða tekin til
gjaldþrotameðferðar, að því
er fram kemur í Morgunblað-
inu í morgun. Samþykkt var
fyrir rétti í Delaware í fyrra-
dag að heimila gjaldþrota-
meðferðina. Bonus Stores
hefur rekið 336 verslanir í
Bandaríkjunum. Áður hafði
verið ákveðið að selja 239
verslanir keðjunnar. Eftir
standa þá 97 verslanir sem
stefnt er að að verði áfram í
eigu félagsins. Mikill taprekst-
ur hefur verið á Bonus Stores
og endurfjármögnun síðasta
haust virðist ekki hafa skilað
sér.
UMFERÐARSLYS: Sjö bíla
árekstur varð á mótum Lauga-
vegar og Nóatúns um klukkan
hálfþrjú í gær. Svo virðist sem
ökumaður eins bílsins hafi
misst stjórn á sér, hugsanlega
vegna einhverra veikinda,
með þeim afleiðingum að
hann ók utan í sex kyrrstæða
bíla. Fimm manns voru fluttir
með sjúkrabíl á slysadeild, þrír
ökumenn og tveir farþegar en
þeir eru þó ekki taldir alvar-
lega slasaðir. Kranabíl þurfti til
þess að draga þrjá bílanna af
vettvangi þar sem þeir höfðu
skemmst töluvert. Miklar um-
ferðartafir urðu vegna slyssins
en loka þurfti götunni í um
það bil klukkutíma á meðan
vettvangurinn var hreinsaður.
Fara á vistheimilið
með tvíburana
Á LEIÐ Á VISTHEIMILl: Magnús Ragnar Magnússon og Guðbjörg Einarsdóttir hafa fallist á að fara á vistheimilið en segjast þó ekki vera fylli-
lega sátt við þá tilhögun. DV-myndir GVA
Magnús Ragnar Magnússon og
Guðbjörg Einarsdóttir, seinfæru
foreldrarnir sem eignuðust tví-
bura í síðustu viku, fara í dag á
vistheimili á vegum Reykjavíkur-
borgar með börnin sín og verða
þar í sex mánuði.
Þegar DV hafði samband við
Magnús í gær bærðust blendnar til-
finningar í honum. „Við neyðumst
víst ti! þess að fara á vistheimilið. Ég
er ekkert sérstaklega hress með það,
þar sem þetta er í raun þvingunarúr-
ræði, en við getum ekki annað gert,
við höfum ekki annað val.“ Magnús
„Yfirvöld eru staðráðin
í því að við förum
þangað inn og því
munum við gera það."
sagði að þau Guðbjörg yrðu á heimii-
inu í sex mánuði og síðan kæmi í ljós
hvert ffamhaldið yrði. „Það fer eftir
því hversu fljót við verðum að læra
það sem þau munu kenna okkur
þarna. Við vonum að allt gangi vel og
að við getum flutt aftur heim með
bömin eftir hálft ár.“ Magnús og
Guðbjörg höfðu óskað eftir því að fá
þá þjónustu sem þau þyrftu á að
halda heim til sfn þar sem þau ættu
slæmar minningar frá þeim tíma
sem þau voru síðast á vistheimilinu,
en þar var eldri drengurinn þeirra
tekinn af þeim. „Yfirvöld eru staðráð-
in í því að við förum þangað inn og
því munum við gera það.“
Minna eftirlit
Á vistheimilinu er boðið upp á
þjónustu allan sólarhringinn og
verður íjölskyldan þar í séríbúð.
Magnús sagðist vera ánægður með
það en kvaðst þó hlakka til að fara í
sfna eigin íbúð með bömin. „Ég býst
við því að eftirlitið á vistheimilinu
verði ekki eins mikið núna og það var
þegar við vomm þama í fyrra skiptið,
en þá var nánast setið yfir okkur f átta
klukkustundir á dag. Núna verða
starfsmenn heimilisins til staðar og
getum við kallað til þeirra ef við þurf-
um á þeim að halda." Magnús sagð-
„Við vonum að allt
gangi vel og að við get-
um flutt aftur heim með
börnin eftir hálft ár."
ist þó búast við því að þjónustan yrði
eitthvað meiri til að byrja með til
þess að koma þeim af stað. „Ef sam-
vinnan er góð eiga hiutimir að ganga
vel. Það emm ekki aðeins við sem
þurfum að vera samvinnufús heldur
einnig bamavemdamefnd og starfs-
menn vistheimilisins."
Móður og bömum heilsast vel en
þau fengu að vera einum degi lengur
á fæðingardeildinni en ráðgert var.
Magnús sagði að ekki væri búið að
skíra tvíburana en þeim hefðu verið
gefin nöfnin Marí Eh'sabet og Jósef
Gabríel. erlakristin@dv.is
16tommu pitsur
á 4500 krónur
OKUR Á ÞJÓÐHÁTfÐ: Eyjamenn hafa áhyggjur af háu verðlagi á veitingastöðum bæjarins
um helgina. í fyrra lögðu sumir staðirnir allt að 200% á vörur sinar.
Eyjamenn hafa nokkrar áhyggj-
ur af háu verðlagi á veitinga-
stöðum bæjarins um verslunar-
mannahelgina en á síðustu
þjóðhátíð lögðu sumir staðirnir
allt að 200% á vörur sínar.
Heyrst hafa sögur af 16 tommu
pitsum á 4500 krónur og
tveggja lítra gosi á 800 krónur
og finnst mönnum nóg um.
Svanhildur Guðlaugsdóttir á og
rekur söluturninn Skýlið í Vest-
mannaeyjum og er jafnframt for-
maður kaupmannasamtakanna.
„Ég hef aldrei hækkað verðið hjá
mér á þjóðhátíð og mun ekki gera
það í ár. Það eru einhverjar trölla-
sögur í gangi en nokkrir staðir
hækkuðu verð hjá sér töluvert
meira en góðu hófi gegnir í fyrra og
fór þetta úr böndunum hjá sum-
um.“ Svanhildur sagðist vona að
menn héldu að sér höndum í ár en
benti á að það hefðu aðallega verið
veitingastaðirnir sem stóðu fyrir
verðhækkununum og að þeir væru
ekki f kaupmannasamtökunum.
„Sjoppurnar voru ekki eins stór-
tækar. í fyrra gáfu þrjár sjoppur út
yfirlýsingu um að þær hygðust ekki
hækka verðið og ég vona að menn
„Nokkrir staðir hækk-
uðu í fyrra verð hjá sér
töluvert meira en góðu
hófi gegnir."
haldi sig núna á mottunni."
Svanhildur sagði að salan hjá sér
hefði verið góð á síðustu þjóðhátfð
og sagðist vita að einhverjir leigu-
bílstjórar hefðu keyrt fólk sérstak-
lega til sín bara út af verðinu. „Ég
vona bara að fólk átti sig á þessu og
láti ekki hafa sig út í þetta." í allri
umræðunni sem nú stendur yfir
um verðsamráð sagðist Svanhildur
þó ekki halda að um slíkt væri að
ræða heldur hefði verðið verið
svona sitt á hvað. „Við fylgjumst
samt vel með því sem keppinautur-
inn gerir því hér á að ríkja eðlileg
samkeppni," sagði hún að lokum.
Heyrst hefúr að heimamenn ætli
ekki að láta bjóða sér þessa verð-
hækkun þetta árið heldur ætli ein-
hverjir þeirra að standa fyrir utan
þessa staði og bjóða fólki frekar
heim til sín í mat. -eká