Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Page 25
h MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ2003 rtLVEHA 25 Ógleði og bólgnir ökklar bíða Winslet TITANIC-STJARNA: Kate Winslet gengur með annað barn sitt og það fyrsta með núverandi eiginmanni sínum, kvikmyndaleikstjóranum Sam Mendes, sem hún giftist fyrir aðeins tveimur mánuðum. Winslet, sem er 27 ára, á fyrir tveggja ára gamla dóttur, Míu, með fyrri eiginmanni sínum, Jim Threapleton, og á þá aðeins eftir að eignast tvö miðað við fyrri yfirlýsingar um að hún aetli að eignast fjögur börn. Sjálf segir Winslet, sem þrisvar hefur verið tilnefnd til óskars- verðlauna, að sér hafi liðið eins og tveggja hæða Lundúna- strætisvagni þegar hún gekk með Miu. „Ég þóttist vita þetta allt. Ég yrði sjálfsörugg, þlómleg og kynþokkafull eins og búist er við af stjörnu. En annað átti eftir að koma í Ijós. Þetta er það erfiðasta sem ég hef nokkru sinni lent í - líkamlega, andlega og tilfinningalega. [ staðinn fyrir skínandi lokka og rjóða vanga varð raunin morgunógleði, bólgnir ökklar og aumt bak," sagði Winslet. Ætlar ekki að kvænast á ný BÓNORÐ: Tom Cruise kvað hafa hafnað bónorði Penelope Cruz. „Hjónaband kemur ekki til greina," á Cruise að hafa sagt við góðan vin sinn. Ástæðan er ein- föld; Cruise leggur ekki í annan skilnað. Hjónaband hans og Nicole Kidman fór, sem kunnugt er, út um þúfur. Cruise hefur enn ekki jafnað sig á því og hyggst ekki endurtaka leikinn. VTTLAUS BEYGJA: Sex ungmenni lenda í ógöngum þegar bílar þeirra bila i óbyggðum og bandbrjálaðir veiðimenn virðast elta þau uppi. um. Eftir nokkra rekistefhu átta þau sig á því að sprungið hafði á jeppanum vegna þess að búið var að koma fyrir gaddavír á veginum. Hópurinn ákveð- ur þá að leita hjálpar í skyndi en verð- ur ekki um sel þegar á vegi hans verður kofi, fullur af vopnum og minjagripum um fyrri fdmarlömb veiðimannanna. Ótti ungmennanna reynist síður en svo ástæðuiaus því fljótlega fara þau að týna töfunni og ljóst að eitthvað verður til bragðs að taka ef nokkur á að lifa af þessa háskafor inn í óbyggðim- ar. Eins og áður segir fer Desmond Harrington með aðalhlutverk í Wrong Tum en hann hefur leikið í myndun- Hópurinn ákveðurþá að leita hjálpar í skyndi en verður ekki um sel þegar á vegi hans verður kofi, fullur afvopnum og minjagripum um fyrri fórnarlömb veiðimann- anna. um Boiler Room og Riding in Cars with Boys, svo einhverjar séu nefndar. Einnig fer leikkonan Eliza Dushku með stórt hlutverk í myndinni en hún hefur áður sést í myndum á borð við Bring It on, Jay and Silent Bob Strike Back og City by the Sea. Tears of the Sun frumsýnd: Bruce Willisí úlfakreppu Regnboginn og Smárabíó frumsýna í dag myndina Tears of the Sun sem Antoine Fuqua leikstýrir. Hann leik- stýröi myndinni Training Day, sem vann til óskarsverðlauna áriö 2001, og snýr nú aftur með stríðshetjusögu ogsjálfan Bruce Willis í aöalhlutverki. í Tears of the Sun leikur Bmce Wilfis stríðshetjuna A.K. Waters sem verður ásamt hersveit sinni að velja milli skyldunnar og góð- mennskunnar. Hvort á að fylgja skipunum og hugsa ekki um það sem er að gerast í kringum þá eða fylgja samvisku sinni og vernda hóp saklausra flóttamanna? Sagan gerist í Nígeríu. Þar er kominn til valda einræðisherra sem einskis svífst. Hermaðurinn Waters er sendur ásamt sveit sinni í venjubundið verkefni sem felst í að bjarga lækninum Lenu Kendricks, sem Monica Bellucci leikur, úr landi. Þegar Waters fínnur hana í afskekktu þorpi neitar hún hins vegar að fara nema stríðshetjan lofí að hjálpa þorpsbúum að komast yfir landamærin svo þeir verði ekki hermönnum einræðisherrans að bráð. Það gengur hins vegar gegn þeim skipunum sem Waters fékk en þegar hann og menn hans verða vitni að vonsku einræðisherrans ákveða þeir að hjálpa Kendricks og þorpsbúunum. Eftir að lagt er af stað sækja her- Eftir að lagt er afstað sækja hermenn einræð- isherrans hart að hópn- um og íIjós kemur að í flóttamannahópnum leynist eini erfingi fyrr- verandi ráðamanna landsins. menn einræðisherrans hart að hópnum og í ljós kemur að meðal flóttamannanna leynist eini erfmgi fyrri ráðamanna landsins. Þar með þurfa Waters og menn hans að vega og meta líf eins manns á móti þeirra eigin og flóttamannanna sem þeir vilja vernda. ERFITTVERKEFNI: Bruce Willis leikur stríðshetju sem á að leysa af hendi venjubundiðverk- efni í Nígeríu en það reynist svo mun erfiðara en til stóð. <

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.