Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Blaðsíða 39
1
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ2003 DVSPORT 39
Toppar nann
Mark Spitz?
Bandaríski sundkappinn Mich-
ael Phelps var stjarna heims-
meistaramótsins í sundi sem
lauk í Barcelona á sunnudag.
Hann bætti þar 5 heimsmet og
um leið met Mark Spitz sem
setti 4 heimsmet á Ólympíuleik-
unum í Miinchen árið 1972. Þar
vann hann 7 gullverðlaun og nú
velta menn fyrir sér hvort
Phelps geti bætt um betur í
Aþenu á næsta ári.
Phelps er ungur að árum, ein-
ungis 18 ára og á því framtíðina fyr-
ir sér. Hins vegar eru ekki allir á
einu máli um hvort Phelps eigi
möguleika á að vinna meira en 7
gullverðlaun á einu og sama mót-
inu og skrifa það á reynsluleysi
kappans.
„Hann hefur ekki kynnst því að
keppa á Ólympíuleikum þar sem
allra augu beinast að honum. Það
er mjög frábrugðið því að klífa met-
orðastigann - að halda sér á toppn-
um er mun erfiðara," sagði lands-
liðsþjálfari Ástrala, Dan Talbot og
bætti við: „Ég held að við verðum
að bíða og sjá með pilt.“
Þjálfari Phelps, Bob Bowman,
sagði að hann yrði að sýna framfar-
ir á næstu Ólympíuleikum og „það
væri enn langt í land með það“.
Árangur hans í Barcelona minnti
um margt á tilþrif Spitz seint á 7.
áratugnum og í byrjun þess átt-
unda. Sá setti sitt fýrsta heimsmet
árið 1967 í 400 m skriðsundi og
nokkrum vikum síðar féllu heims-
metin í 100 og 200 m flugsundi.
Þegar allt kom til alls hafði Spitz
bætt 23 heimsmet, jafnað 3 og ver-
ið í 5 boðsundssveitum sem settu
heimsmet. Ferli Spitz lauk þegar
hann var einungis 22 ára.
Þá var það reyndar ekki óvenju-
legt að sundkappar næðu hápunkti
feriis sfns í kringum tvítugt og er nú
spurt hvort það sé einnig tilfellið
hjá Phelps. Einungis 15 ára komst
hann í sundlið Bandaríkjanna fyrir
Ólympíuleikana í Sidney árið 2000
og öðlaðist við það dýrmæta
reynsltr, eins ungur og hann var.
Hans mesta afrek í Barcelona var
tvímælalaust á föstudag þegar
hann byrjaði á því að setja heims-
met í undantirslitariðli 100 m
flugsundsins og einungis 50 mínút-
um síðar bæta eigið heimsmet í 200
„Við erum að prófa
okkur áfram í 200
metra baksundi."
m fjórsundi þar sem hann vann vit-
anlega gull.
En Phelps er mannlegur, eins og
stóð í fyrirsögn í spænsku blaði eft-
ir úrslitasundið í 100 m flugsundi.
Þar kom landi hans öllum á óvart,
kannski helst honum sjálfum, þeg-
ar hann synti til sigurs á nýju
heimsmeti. Phelps varð annar.
„Ég ætla að geyma þessa úr-
klippu og í hvert sinn sem hann
verður of ánægður með sjálfan sig
og viss í sinni sök, sýni ég honum
þessa fyrirsögn,“ sagði Bowman.
„Ég fæ marga kflómetra út úr hon-
um á æfingum út á þessa fyrir-
,sögn.“
Spitz fékk sín gullverðlaun fyrir
100 og 200 m flugsund, 100 og 200
m skriðsund og þrjú boðsund.
Phelps þykir eiga möguleika í 100
og 200 m flugsundi, 200 og 400 m
fjórsundi. En þjáifarinn er með
fleiri greinar í pokahorninu. „Við
erum að prófa okkur áfram í 200 m
baksundi, 200 og 400 m skriðsundi
- þó svo að við séum mjög ánægðir
með hvernig gekk á þessu móti.“
Auk þess á Phelps sæti víst í
minnst tveimur boðsundshópum
og ef allt gengur upp gæti gullverð-
launamet Spitz vel fallið.
Ekki má gleyma Ástralanum lan
Thorpe sem vann 6 gullverðlaun á
HM í Fukuoka árið 2001. Þá kom
upp svipuð umræða í kringum
þann pilt. „Ég hef lært mikið af
Thorpe," sagði Bowman. „Ég er
mjög hrifinn af því hvernig hann
lætur þetta ekki hafa áhrif á sig og
hann einbeitir sér greinilega að
málum líðandi stundar. Það skiptir
máli að láta væntingar annarra ekki
hafa áhrif á sína eigin frammi-
stöðu.“ Thorpe vann þrenn
gullverðlaun í Barcelona.
MICHAEL PHELPS
Fæddun 30. júní 1985 í Baltimore,
Maryland, Bandaríkjunum.
Hæð: 1,93 m
Þyngd: 75 kg
Félag: North Baltimore AC
HM-verðlaun:
2001: Gull í 200 m flugsundi
2003:3 gull (200 m flugsund, 200
m fjórsund, 400 m fjórsund), 2 silf-
ur (100 m flugsund, 4x200 m fjór-
sund).
Heimsmet:
2001:200 m flugsund.
2002:400 m fjórsund, 4x100 m
fjórsund (flugsundsleggur).
2003:100 m flugsund, 200 m
flugsund, 200 m fjórsund (tvfbætt),
400 m fjórsund (tvíbætt).
Mlchael Phelps er eini maðurinn
sem hefur unnið til guliverðlauna í
þremur mismundandi tegundum
af sundi á Bandaríska meistaramót-
inu.
Phelps varyngsti meðlimur
Ólympíuliðs Bandaríkjanna (15 ára,
2000) og sá yngsti síðan 1932.
Phelps var yngsti sundkappinn til
að slá heimsmet. Það gerði hann
15 ára og 9 mánaða vorið 2001.
Hann var um leið fyrsti maðurinn
til að synda undir 1:55,00 mín. í
200 metra flugsundi.
eirikurst@dv.is
Á FULLU: Michael Phelps sló rækilega gegn á heimsmeistaramótinu f sundi sem fram fór f Barcelona fyrir skömmu. Reuters
«
tr
Veiðihornið
Staðan í laxveiðinni:
Þverá og Norðurá hafa gefið best
Rangárnar sækja fastað efstu veiðiánum
Þrátt fyrir að vatnsleysi,
hefur laxinn komið í veiði-
árnar margar hverjar og
það í miklum mæli.
Reyndar er laxveiðinni
misskipt milli landshluta,
eins og hefur reyndar
gerst áður í veiðiskapnum.
Bleikjuveiðin hefur ver-
ið h'n víða um land og þær
stærstu sem veiðst hafa
eru 8 og 9 punda.
Mokveiði hefur verið í
mörgum góð bleikjuám.
Þverá í Borgarfirði er
enn þá efsta veiðiáin með
um 1030 laxa, síðan kemur
Norðurá í Borgarfirði með
900 laxa. Laxá í Kjós er þar
rétt á eftir með 700 laxa og
rétt þar fyrir neðan er
Grímsá með ríflega 400
laxa.
„Við skruppum hjónin
hálfan dag og settum í
fimm laxa í Grímsánni en
náðum þremur, þetta var
mjög gott,“ sagði Rafn
Hafnfjörð, er Gn'msá í
Borgarfirði bar á góma.
Rangárnar hafa gefið
saman um 900 laxa en
Eystri-Rangá er sterkari en
Ytri-Rangá.
Laxá í Aðaldal hefur al-
veg „klikkað" í laxamagni í
sumar og aðeins eru
komnir 230 laxar úr ánni,
sem er hræðiiega lftið.
Það sem bjargar Laxá eru
þessir vænu laxar sem eru
að togast upp úr henni og
eiga örugglega eftir að
veiðast fram á haust.
Veiðimaður sem var að
koma úr Haffjarðará í
Hnappadal sagði að mik-
ið væri af fiski í henni og
góð veiði hefði verið síð-
ustu daga, enda mikið af
fiski víða í ánni. G.Bender
ALVARAN HEFST: Veiðimenn hafa víða veitt í sumar og margir fengið góða
veiði. Þessi föngulegi hópur var vestur í Dölum og hér eru þau að byrja
veiðiskapinn fyrir alvöru. DV-mynd G. Bender
Stangaveiðifélag
Reykjavíkur:
Mokuðu með
handafii
Ósinn í Gljúfúrá í Borgarfirði
er erfiður fyrir laxinn og reyndar
vandamál að fá hann til að koma
upp f ána í vatnsleysi eins og er «
núna. Stangaveiðiféiagið sendi
út kali til félagsmanna í fyrradag
um að koma og moka með
handafli úr ósi árinnar.
Einhverjir urðu við því og fór
hópurinn uppeftir í gærdag,
með formanninn Bjarna Ómar
Ragnarsson í broddi fylkingar.
G.Bender
Hád
FRITT
rð t^HOTEL.
i_p BlandA
f / Kjörinn áningarstaður í alfaraleið!
Hótel Blanda, Adalgötu 6, Blönduósi, Sími 452 4205, E-mail: blanda@lax-a.is