Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Blaðsíða 12
72 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. JÚU2003 Meira en þúsund orð Umsjón: Haukur Lárus Hauksson Netfang: hlh@dv.is Sími: 550 5819 VARANLEG LAUSN: Við Skipholt bjástruðu þessir menn við að setja klæðningu á hús, varanlega lausn gegn íslenskum veðrunaráhrifum. SÓTT í SJÓINN: Þessi ungi maður var að sækja smávegis sjó í fötu undir aflann sem veiddur var við smábátahöfnina í Kópavogi. VEIÐIMENN: Ungir drengir sem voru að veiðum við Kópavogshöfn í sólskininu i gær speglast hér í sjónum sem hefur að geyma það sem þeir þrá mest - þann stóra. Fátt var þó að hafa nema einhverja titti. DV-myndirE.ÓI. HALLÓ HVUTTI: Eitthvað hefur hann verið að nasa, hvuttinn, undir bekknum. Eigandinn segir honum að þarna sé ekkert að hafa og hann skuli bara halda áfram að spássera i góða veðrinu. BÍLAHRÚGUR: (Kópavogi getur að líta þennan bílakirkjugarð þar sem fyrrum glæsikerrur bíða þess að vera kramdar saman og fluttar úr landi. Þetta framandi landslag dregur til sín stráka í leit að ævintýrum. í ÚTLENDRI HÖFN: Skipverjar á erlendu fragtskipi sem liggur í í Kópavogshöfn spjalla saman í góða veðrinu. Hvort þeir hafa verið að skipuleggja ferð í bæinn um kvöldið skal ósagt látið en einhverjum kæmi það ekki á óvart. GERT KLÁRT: Bygging umtalaðs fjölbýlishúss við Suðurhlíðar er á lokastigi þessa daga en þar voru menn (gær að ganga frá þakkanti. VIÐ ÖLLU BÚINN: Þessi ungi riddari var við öllu búinn þar sem hann læddist við runna á Þinghólsbrautinni (Kópavogi. Af svipnum að dæma virtist hann vænta eldspúandi dreka við næsta horn en ekki er að sjá að votti fyrir ótta f svipnum, enda bara Ijósmyndari á ferð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.