Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ2003 Toyota RAV4, bsk. Skr. 6/96, ek. 112 þús. Verð kr. 970 þús. Sjáöu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI ----✓///»....... SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17, simi 568-5100 Suzuki Baleno GLX, 4 d., bsk. Skr. 7/97, ek. 46 þús. Verð kr. 690 þús. Suzuki Liana, bsk. Skr. 2/02, ek. 10 þús. Verð kr. 1380 þús. Suzuki Grand Vrtara, 3 d., bsk. Skr. 5/00, ek. 45 þús. Verð kr. 1370 þús. Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk. Skr. 1/98, ek. 91 þús. Verð kr. 990 þús. VW Bora, bsk. Skr. 6/02, ek. 6 þús. Verð kr. 1690 þús. Daewoo Leganza, sjsk. Skr. 5/98, ek. 56 þús. Verð kr. 590 þús. Alagningin á Netið Festist í Markarfljóti SKATTUR: Álagningarseðlar landsmanna verða settir í póst í dag og ættu að berast fólki á morgun eða á föstu- dag. Þeir sem ekki treysta sér til að bíða svo lengi geta skoðað eigin álagningu á Netinu klukkan 16.01. Það á við þá sem töldu fram á Net- inu og hafa varðveitt veflykil- inn. Álagningarskrár vegna opinberra gjalda einstaklinga verða lagðarfram á morgun. Ávísanir vegna ofgreidds skatts, barna- og vaxtabóta verða póstlagðar á morgun eða lagðar inn á bankareikn- ing viðkomandi á föstudag. Kærur vegna álagðra opin- berra gjalda þurfa að berast skattstjóra eigi síðar en 1. september nk. ÓHAPP: Um síðastliðna helgi festist jeppabifreið í Markar- fljóti, sunnan við Húsadal í Þórsmörk. Björgunarsveitar- menn frá Dagrenningu á Hvolsvelli komu fólkinu til aðstoðar og drógu jeppabif- reiðina upp úr fljótinu. Fólkið sakaði ekki en bifreiðin er talsvert mikið skemmd þannig að hún var óökufær á eftir. Lögreglan á Hvolsvelli vill geta þess að á þessum árstíma er Markarfljót nánast ófært yfirferðar fyrir alla venjulega og breyttajeppa sökum vatnsmagns og aur- bleytu. Þá bendir lögreglan ökumönnum sem leið eiga um fjallvegi á að sýna mikla aðgæslu við vatnsföll. Samkomulag um að stærstu hluthafarí Skeljungi yfirtaki félagið í sameiningu: Kaupþing-BI eignast olíurekstur Skeljungs - Burðarás og Sjóvá-Almennar fengju hlutabréfasafn sem nemuryfir 4 milljörðum DV hefur fyrir því heimildir að þrír stærstu hluthafarnir í Skelj- ungi hafi gert samkomulag um að gera sameiginlega yfir- tökutilboð í Skeljung hf., þ.e. að kaupa 12,5 prósenta hlut af um 300 hluthöfum á genginu 15,9. Hvað síðan tekur við er enn óvíst en eftir því sem DV kemst næst yrði stofnað eignarhaldsfélag og eign- um Skeljungs skipt upp. Yrði Kaup- þing-Búnaðarbanki leiðandi í því ferli. Þeir sem DV hefur rætt við leggja áherslu á að þetta eigi sér stað í góðu samkomulagi aðila og vilji sé fyrir að klára málið fyrir helgi. Ýmsar leiðir munu vera til um- ræðu um framhaldið. Hallast menn helst að þvf að Kaupþing-Búnaðar- banki eignist og taki yfir rekstur ol: íufélagsins með olfusölu og bensín- stöðvum. Burðarás og Sjóvá-Al- mennar verði keypt út úr hinu eig- inlega olíufélagi en beri síður en svo skarðan hlut frá borði þar sem í þeirra hlut kæmi þá hlutabréfa- safns Skeljungs. Markaðsvirði hlutabréfa í eigu Skeljungs og sem skráð eru á hluta- bréfamarkaði nam samtals tæpum 4,5 milljörðum króna í marslok en Hallast menn helst að því að Kaupþing-Bún- aðarbanki eignist og taki yfir rekstur olíufé- lagsins með olíusölu og bensínstöðvum. bókfært verð annarra eignarhluta í félögum tæpum 200 milljónum. Samtals er verðmæti hlutabréfa- safnsins því um 4,7 milljarðar króna. Þá eru uppi hugmyndir um að fasteignafélag kaupi fasteignir Skeljungs og horfa þeir sem gerst þekkja þá til eignarhaldsfélagsins Stoða sem er í nánum tengslum við Kaupþing-Búnaðarbanka. I framhaldinu þykir ljóst að Skelj- ungur verði tekinn af hlutabréfa- markaði sem ekki þarf að koma á óvart því það er eina olfufélagið sem enn er á markaði. En hins veg- ar er á huldu hvað verður um olíu- og bensínsöluna í framhaldinu. Fæstir sem DV hefur rætt við gera ráð fyrir að Kaupþing-Búnaðar- banki muni eiga Skeljung til lang- frama. Reksturinn er ábatasamur en tæplega eins milljarðs króna hagnaður varð af rekstrinum á síð- asta ári og 129 milljónir á fyrsta fjórðungi þessa árs. Eigið fé í árslok 2002 nam tæpum 5,4 milljörðum. Þrálátar sögusagnir hafa verið um að Baugur ætli sér að komast yfir Skeljung. Þeir sem DV hefur rætt við telja hins vegar að þá muni margir stórir viðskiptavinir Skelj- ungs kippa að sér hendinni og beina viðskiptunum sínum annað. í EIGU KAUPÞINGS-BÚNAÐARBANKA: Samkomulag er um að þrír stærstu hluhafar í Skeljungi yfirtaki félagið og því verði síðan skipt upp undirforystu Kaupþings-Bl.4 Slík blóðtaka yrði alvarlegt áfall fyr- ir félagið. Framtíðareignarhald á Skeljungi er því óvíst. Fram undan er flókið ferli sem vilji er þó til að klára fyrir helgina. Samkeppnismál, svokallað olíufé- lagamál, kann hins vegar að flækja stöðuna og setja strik í reikninginn í samningaferlinu. Óvissan er þvf enn nokkur. Eignirog völd En hvað sem framtíð Skeljungs líður er útlit fyrir að blokkin á bak við Burðarás og Sjóvá-Almennar haldi ftökum sínum í íslensku við- skiptalffi en Skeljungur á hluti í fjölda félaga. Þar á meðal eru Eim- skip, Fiugleiðir, Sjóvá-Almennar, Síldarvinnslan í Neskaupstað, Tangi á Vopnafirði, Þormóður rammi - Sæberg á Siglufirði, ísfélag Vestmannaeyja o.fl. Meðfylgjandi er listi yfir eignarhluti Skeljungs í öðrum félögum. Kaupþing-Búnaðarbanki ætti samkvæmt framansögðu að fá hlut Skeljungs í Bensínorkunni hf. sem rekur sjálfsafgreiðslustöðvarnar Orkan en Skeljungur á 80 prósent í því félagi. Annað dótturfélag Skelj- ungs, Hans Petersen, sem félagið átti að fullu, var hins vegar verið selt til Sjafnar á Akureyri um síð- ustu mánaðamót. Þá fengi Kaup- þing-Búnaðarbanki væntanlega hlutdeildarfélögin en bókfært verð þeirra í marslok nam tæpum 1,3 milljörðum króna. Undanskilið er þá Haukþing sem lagt hefur verið niður. Gengishækkun Langvinn barátta um hið rót- gróna fyrirtæki Skeljung verður væntanlega til lykta leidd fyrir helg- ina. Öðrum megin borðsins hafa setið fulltrúar Burðaráss og Sjóvár- EIGNAHLUTAR SKELJUNGS HF. í ÖÐRUM FÉLÖGUM Félög skráð á hlutabréfamarkaði: Félag Eignarhlutur Nafnverð Bókfært verð Hf. Eimskipafélag (slands 5,8 296.344 1.647.462 Eskja hf„ Eskifirði 5 22.710 64.806 Flugleiðirhf. 5,3 122.672 607.787 Guðmundur Runólfsson hf. 2,5 3.453 19.249 Hraðfrystihúslð-Gunnvör hf. 12,6 17.699 131.188 Jarðboranir hf. 1,4 3.708 25.108 Plastprent hf. 11 28.486 53.458 S(F hf„ Hafnarfirði 6,4 95.384 496.000 Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 5,5 31.992 564.476 Sddarvinnslan hf„ Neskaupsstað 0,5 8.807 43.186 Tangi hf„ Vopnafirði 3 26.007 54.886 Þorbjörn-Flskanes hf. Grindavík 2,5 27.695 189.950 Þormóður rammi-Saeberg hf. 1,1 14.822 53.466 önnur félög 5.853 Samtals 3.956.875 Markaðsverð 4.474.000 Aðrir eignarhlutir: Eignarhaldsfélag Vestmannaeyja hf. 4 • 10.000 10.294 Hraðfrystlhús Hellissands hf. 5 510 30.277 Isfélag Vestmannaeyja, Vestmey. 0,4 2.000 27.702 Ráeyrl hf„ Siglufiröi 6,5 78.000 78.000 Vigri hf. 5 5.000 9.750 ögri hf. 5 5.000 9.750 Ögurvlk hf. 3,6 13.575 19.374 Önnur félög 11.521 Samtals aðrir eignarhlutir 196.668 Samtals eignarhlutir (öðrum félögum 4.670.668 Samkeppnismál, svo- kallað olíufélagamál, kann hins vegar að flækja stöðuna. Almennra, gjarnan kenndir við Kol- krabbann, en hinum megin fulltrú- ar Kaupþings-Búnaðarbanka. Með fyrrnefndu samkomulagi hafa víg- línur í félaginu, bæði ímyndaðar og raunverulegar, verið þurrkaðar út. í fyrradag var gefin út tilkynning um að hlutabréf Skeljungs hefðu verið færð á athugunarlista Kaup- hallarinnar þar sem hluthafar sem eiga 87,57% eignarhlut í íyrirtæk- inu ættu í viðræðum um hugsan- legt yfirtökutilboð á genginu 1,9. Lokatilboð á markaði í fyrradag var 14,7 en fyrir um mánuði keypti Kaupþing-Búnaðarbanki um 9 pró- senta hlut í Skeljungi á genginu 15. Fyrr þann sama dag keyptu Sjóvá- Almennar og Burðarás 20,7 pró- senta hlut Shell International f fé- laginu á genginu 12. Verði yfirtöku- gengið 1,9 í þessari viku hefiir gengi bréfa í Skeljungi hækkað um 73 prósent fá ársbyrjun 2000. hlh@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.