Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Side 18
18 SKOÐUN MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ2003 Siðferðilega röng ákvörðun Heimurinn er betri og öruggari með dauða Udays og Qusays Husseins. írakar eiga betri von um bjarta framtíð í friði og frelsi með dauða tveggja villimanna sem Saddam Hussein ól af sér. Saddam fer enn huldu höfði en vonir um að hann komist undir manna hendur hafa glæðst með fráfalli bræðranna. Enginn syrgir dauða bræðranna fyrir utan fáeina fylgismenn sem áttu allt sitt undir þeim og stjórn Saddams Husseins. Almenningur í Irak andar léttar. Bræðurnir voru villimenn líkt og faðir þeirra - villimenn sem virtu líf einstaklingsins einskis, myrtu, nauðguðu og pyntuðu samlanda sína. Lýsingar á ógnarverkum þeirra eru ofar mannlegum skilningi, vekja svo mikinn óhug að flestir eiga erfitt með að trúa þeim. En eftir því sem fleiri sannanir koma fram í dagsljósið verður æ ljósara hversu nauðsynlegt það var að fella stjórn Husseins af stóli. Ógnarstjórn Saddams Husseins er fallin og írakar fagna. Uppbyggingarstarfið er hafið en það hefur reynst erfiðara en búist var við. Bandamenn hafa ekki náð því takmarki sínu að tryggja frið í írak, lenda í stöðugum skærum ffá fámennu liði, hliðhollu Saddam Hussein. Að þessu sögðu er þrátt fyrir allt aldrei hægt að réttlæta þá ákvörðun bandarískra stjórnvalda að birta myndir af lfkum villibræðranna. Engin siðmenntuð þjóð getur leyft sér að draga lík andstæðingsins ífam í Myndbirtingarnar voru áfall fyrir alla sem litið hafa til Bandaríkjanna sem forystuþjóðar í heimi hinna frjálsu þjóða, þarsem lýðræði og siðferðileg gildi eru í hávegum höfð. dagsljósið í áróðursskyni. Með því að birta myndirnar hafa bandarísk stjórnvöld farið niður á sama stig siðleysis og andstæðingar þeirra. Slíkt er áfall fyrir alla en þó ekki síst þá sem eindregið hafa stutt ffelsun fraks, sem var siðferðilega rétt. Myndbirtingarnar voru áfall fyrir alla sem litið hafa til Bandaríkjanna sem forystuþjóðar í heimi hinna frjálsu þjóða, þar sem lýðræði og siðferðileg gildi eru í hávegum höfð. Og eitt sem einkennir siðaða þjóð, sem hefur frelsi og rétt einstaklingsins að leiðarljósi, er virðing fyrir lífi einstaklingsins, hvort heldur hann er vinur eða óvinur. En steininn tók úr þegar bandarísk stjórnvöld tóku þá ákvörðun að snyrta lík Hussein-bræðra, taka af þeim myndir og birta opinberlega. Hversu lágt er hægt að leggjast í örvæntingu? Hversu langt eru bandarísk stjórnvöld tilbúin að ganga í áróðursstríði gegn öllum siðferðilegum reglum sem þau hafa fram til þessa fýlgt og lagt áherslu á að aðrir fylgi? Auðvitað kann sú stund að renna upp að nauðsynlegt sé að birt myndir af því tagi sem bandarísk stjórnvöld hafa með svo „smekklegum" hætti birt. En þá er það ekld hluti af áróðursstríði eða átökum heldur hluti af sögunni. Þá ákvörðun eiga ekki stjórnvöld áð taka heldur miklu fremur sagnfræðingar framtíðarinnar. Myndbirting af líkum Udays og Qusays hefur valdið þeim sem fastast hafa staðið með Bandaríkjunum vonbrigðum. Vonbrigðum vegna þess að stuðningsmenn Bandaríkjanna ætlast til þess að þau séu fyrirmynd í siðferðilegum efhum. Haukarnir í Washington geta ekki farið sínu fram án þess að aðrir standi upp og segi: Hingað og ekki lengra. Hvert stefnir í skólamálum? KJALLARI Agnar Hallgrímsson Sú siðvenja hefur haldist hér á Akureyri, þar sem ég bý, að út- skrifa stúdenta frá Menntaskól- anum þjóðhátíðardaginn I7. júní. Ekki veit ég hversu gömul þessi „tradisjón" er. Varla eldri en lýðveldið. Ég var að vísu ekki viðstaddur er Tryggvi Gfslason, fráfarandi skóla- meistari í MA, flutti sína síðustu skóiaslitaræðu á dögunum. Hins vegar horfði ég á viðtal við hann í Sjónvarpinu í fréttunum daginn eftir. Það er þetta sjónvarpsviðtal sem ég ætla að fara um nokkrum orðum hér, enda tel ég mig hafa ýmislegt að athuga við það sem þar kom fram. Ekki Menntaskóli Akureyrar Ég vil fyrst nefna, að spurður kvaðst Tryggvi hlynntur því að lengja skólaárið alit upp í 10 mán- uði. Þetta vekur þá spurningu hvenær nemendur eigi að vinna fyrir sér upp í námskostnað. Það hefur lengi verið aðalsmerki ís- lenzkra framhaldsskóla, að sumar- frí væru það löng, að nemendur ættu þess kost að vinna fyrir sér í þeim. Nú eiga langflestir nemend- ur orðið einkabfla, sem eitthvað kostar að reka, auk annars uppi- haldskostnaðar. Fram kom hjá Tryggva, að hann ætlast til þess að foreldrar sjái um framfærslu barna sinna á meðan þau eru í skólanum. Má ég benda Tryggva Gíslasyni á það, ef hann veit það ekki nú þegar, að skólinn heitir Menntaskólinn á Akureyri en ekki Menntaskóli Akureyrar, og fleiri ganga í þennan skóla en for- rfkir pabbadrengir héðan frá Akur- eyri. - Og hvað með þá milljarða- byggingu, sem er nýlega risin á Menntaskólalóðinni og heitir því óskemmtilega nafni „Nemenda- garðar" (gott ef ekki Skólagarðar)? Varla em þeir byggðir fyrir nem- endur sem eiga lögheimili á Akur- eyri og lifa á foreldrum sínum. Námsleiði hvað... ? Annað var það, er fram kom í viðtalinu við Tryggva, að hann teldi æskilegt, að námstíminn yrði stytt- ur úr fjómm ámm í þrjú ár. Ástæð- una taldi hann vera mikinn náms- leiða meðal nemenda skólans. Það leiðir af sjálfu sér, að verði skólaár- ið lengt um einn mánuð á ári verð- ur hægt að stytta námstímann eitt- hvað, en varla um heilt ár. Ég á hins vegar bágt með að skilja ástæðuna fyrir þessum mikla námsleiða. Er hann e.t.v. til kom- inn vegna þess hve skólastjórinn og kennararnir em leiðinlegir, eða vegna útþynntrar og ómerkilegrar námsskrár? Er hann e.t.v. til kom- inn vegna þess að allt skólalífið er svona drepleiðinlegt yfirleitt? Spyr sá er ekki veit. Það er augljóst mál, að enginn er neyddur til að ganga í „mennta- skóla“. Leiðist mönnum svona þar, hvers vegna fara þeir þá ekki ein- faldlega t.d. á Akureyrartogarana? Það gefur ömgglega meira í aðra hönd. Ég var fjóra vetur við nám í MA fyrir mörgum ámm, en aldrei man ég eftir öðm en ég hlakkaði til næsta skóladags. Auðvitað fögnuð- um við skamma hríð ef kennarar mættu ekki vegna umgangspestar, eða frí var gefið, en við vorum kom- MENNTASKÓLINN Á AKUREYRI: „Allir þeir fjórir skólameistarar er stýrt hafa MA frá upphafi hafa verið með háskólapróf (sínum greinum." in til að læra fyrir lífið, en ekkj leika okkur eða láta okkur leiðast. Er ekki einfaldlega stefnan sú að þynna út námsefnið, til þess að „Ef ekki er hægt að fá menntaða kennara að næstelzta og virtasta lærða skóla landsins, er þá ekki kominn tími á það að loka öllum framhaldsskólum í landinu? Ríkið hætti að launa mörg þúsund kennara, og nemend- urnir verði látnir sitja við tölvurnar sínar og læra á Netinu." menn geti lokið starfsnámi með sem allra minnstri fyrirhöfn og kostnaði vegna almennrar grunn- menntunar í framhaldsskóla? Ég vil nefna sem dæmi, að latínunni, sem var ein aðalnámsgreinin þegar ég var í skólanum, hefur nú verið rutt út af námsskránni, en hún var bæði þroskandi og góður grundvöllur fyrir þá sem hugðust leggja stund á háskólanám í tungumálum. MA - ekki „bréfafyrirtæki" Af því að ég er nú farinn að tala um Menntaskólann á Akureyri, langar mig að lokum að fara nokkrum orðum um málefni er hann varðar. Eins og ég sagði áður, hefur Tryggvi Gíslason látið af starfi skólameistara við MA eftir tæp 30 ár. Ráðinn hefur verið nýr maður í hans stað að nafni Jón Már. Þessi maður hefur ekki lokið háskólaprófi í neinni grein, en tekið hefur hann áfangapróf (BA-próf) í íslenzku. Það veitir honum (mér vitanlega) aðeins réttindi til að kenna við grunnskóla, ekki framhaldsskóla, hvað þá stöðu sem skólameistari. Þar við bætist, að hann er sagður hafa tekið einhverja „kúrsa“ f við- skiptafræði vestur í Bandaríkjun- um. Enda þótt Bandaríkjamenn séu miklir vísindamenn og skólar þeirra góðir, get ég varla ímyndað mér, að Jón Már hafi fullnumið ís- lensku við viðskiptaháskóla þar. Þá er það jafn ósennilegt, að MA verði rekinn eins og „bréfafyrir- tæki“, þannig myndi námið gagn- ast lítið. Þetta stangast alveg á við það, ef haft er í huga, að allir þeir fjórir skólameistarar er stýrt hafa MA frá upphafi hafa verið með há- skólapróf í sínum greinum. Þetta hlýtur að vekja gmnsemd um það, að ekki sé lengur völ á vel menntuðum kennurum að Menntaskólanum á Akureyri. Kunningi minn, Björn Teitsson cand. mag., er lengi var skólameist- ari á ísafirði, tjáir mér, að mesta vandamálið í skólastjórninni þar hafi verið, hversu erfitt var að fá hæfa kennara til starfa. - Skyldi því vera þann veg farið með MA? Ef ekki er hægt að fá menntaða kennara að næstelzta og virtasta lærða skóla landsins, er þá ekki kominn tími á það að loka öllum framhaldsskólum í landinu? Ríkið hætti að launa mörg þúsund kenn- ara, og nemendurnir verði látnir sitja við tölvurnar sínar og læra á Netinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.