Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚU2003 SKOÐUN 19 Sí- OLÍUSAMRÁЮ MIKLA: Uppeldisáhrif frá Sovétkommúnismanum eða ekki annað en það sem alltaf er að gerast alls staðar og tengist þá því að maðurinn er fallinn i synd ágirndarinnar? DV-mynd GVA Heilög mær í úlfakreppu KJALLARI Árni Bergmann M. rithöfundur Við lifum í markaðstrú og hún leggur traust sitt á Samkeppn- ina, sem er heilög mær í þeirri trú og mun hvern vanda leysa svo allir hagnist: Verða þá úlfar saddir og lömbin hiaupa um ósködduð. En þessa dagana eru margir harmi slegnir yfir því að nú hafi úlf- ar þeir sem fýrirtækjum ráða (nú síðast olíusölu) gjammað sig sam- an um að hrekja Samkeppnina frá sinni ljúfu leiðsögn og ráfar hún nú um illa haldin og blóðrisa í háska- legu myrkri stórsvindla. Ágirndin allra lasta Á þessu hafa menn ýmsar skýr- ingar. - Bjöm Bjarnason er óvart fyndnastur: Hann heldur að olíufé- lögin hafi orðið fyrir slæmum upp- eldisáhrifum frá sovétkommún- ismanum. Davíð Oddsson heldur að óútskýranleg heimska hafi grip- ið olíuliðið. Margir aka sér og segja jamm og jæja og þykjast vita að olíusamráðið mikla sé ekki annað en það sem alltaf er að gerast alls staðar og tengist þá því að maður- inn er fallinn í synd ágirndarinnar, sem er upphaf allra lasta, svo sem Hallgrímur Pétursson kvað. Ekki minni maður en Alan Greenspan, seðlabankastjóri í Bandaríkjunum, er eitthvað á sömu nótum og sálmaskáldið okkar, en tekur sjúkdómshræðslu samtímans einnig með í líkingamál sitt. Hann segir við þingið í sínu landi að „smitandi græðgi" sé undirrót mik- illar kreppu í bandarísku efnahags- lífi, en hún er tengd því hve dugleg- ir forstjórar stórfyrirtækja þar í landi hafa verið við að skammta sér geipitekjur þvert ofan í allt sem heitir Handleiðsla Samkeppninnar og Lögmál Markaðarins. (Síðast í fyrra tókst þeim að bæta 6% enn við eigin risatekjur, enda þótt hagnaður fyrirtækja skryppi saman og verð á hlutabréfum lækkaði um 24%.) Eilíft samsæri? Tja, hvað skal gera: Það er satt að alls staðar er verið að syndga gegn heilagri Samkeppni og eigum við að taka því eins og hverju öðru ei- lífðarböli sem ekkert verður við gert? Það virðist tónninn í sumum skrifúm: Einn pistilhöfundur sagði á þá leið að ef islendingar væru hissa á „samráði" olíufélaganna þá væri það barasta vegna þess að þeir væru sveitamenn og vissu ekki hvernig kaupin gerast í raun á markaðseyrinni. Og það er ekki nema rétt að „samráð" svokallaðra keppinauta á markaði um verð og skiptingu markaðar er ótrúlega algengt fyrir- bæri hér sem annars staðar og hef- ur lengi verið. Ég man ekki betur en að sjálfur Pétur postuli markaðs- hyggjunnar, Adam Smith, hafi var- að menn við því fyrir meira en 200 árum að þegar kaupmenn eða aðr- ir úr sömu grein komi saman þá endi samtöl þeirra jafnan á því að þeir geri samsæri gegn almenningi á hugvitssamlegum samblæstri um að hækka verð. „Allir sem fyrirtækjum ráða og vörurselja fara með þá bæn á hverjum degi að samkeppni sé til góðs og vilji þeir allt til gera að hafa hana í heiðri. En það eru sær- ingar sem menn skyldu síst aföllu trúa." Allir sem fyrirtækjum ráða og vörur selja fara með þá bæn á hverjum degi að samkeppni sé til góðs og vilji þeir allt til gera að hafa hana f heiðri. En það eru særingar sem menn skyldu síst af öllu trúa. Ekki bara vegna einhverrar erfða- syndar ágirndarinnar sem svelgir allt í sig undir vígorðinu „mikið vill meira" - heldur vegna þess sem er innbyggt bæði í sjálfa samkeppn- ina og svo í arðsemiskröfuna. Samkeppni drepur samkeppni Samkeppnin er vissulega ekki heilög mær og hefur aldrei verið. Hin frjálsa samkeppni á markaði er með þeim ósköpum gerð að hún stefnir beint í einokun, ekki síst við aðstæður okkar tíma. Þær aðstæð- ur greiða jafnt og þétt fyrir því að sá keppinautur sem hefur náð undir- tökum á markaði, hann sitji uppi með markaðinn allan. Sigurvegar- inn hirðir allt. Nema gerðar séu sér- stakar og öflugar lagalegar ráðstaf- anir til að koma í veg fyrir að sam- keppnin drepi samkeppnina. Ef svo vill síðan til að tveir eða þrír verða nær alráðir á tilteknum markaði (sbr. olíudæmið íslenska) þá segir það sig sjálft að það er mjög heimskulegt út frá arðsemis- kröfunni að þeir standi í alvöru- samkeppni. Sú samkeppni er allt of dýr - það verður miklu þægilegra að hafa „samráð" (hið fræga sam- særi Adams Smiths gegn almenn- ingi) um að skipta markaðnum og halda uppi verði. Það er heldur ekkert í svokölluðu markaðssið- ferði sem stendur hér í vegi. Allir hafa lært það af Friedman og öðr- um æðstuprestum að fyrirtæki er ekki félagsmálastofnun og ekki sið- fræðiskrifstofa. Stjórnendur fyrir- tækja, segir Sönn Markaðstrú, hafa ekki aðrar skyldur en að tryggja hlutafjáreigendum sem mestan arð. Þar með eru þeir eiginlega skyldugir til „samráðs" - ef þeir eiga að „sýna árangur" í anda ýtr- ustu arðsemiskröfu. Blessað, elsku, andskotans Ríkið Það er því ekkert í kerfinu sem tryggir að Samkeppnin njóti þeirrar virðingar sem allir hafa á vörunum þegar fjölmiðlar horfa á þá. Bless- að, elsku, andskotans Ríkið, eða Samfélagið, verður að grípa inn í með sínu Eftirliti, með sínum lög- um og samkeppnisstofnunum og með óhræddum pólitískum vilja og bjarga þannig kapítalismanum frá kapítalistunum með „ofríki og ófrelsi" sem fyrirtækin munu vitan- lega kvarta sárlega yfir því þeim finnst að sjálfur kommúnisminn sé að læðast aftan að þeim í hvert skipti sem þau fá ekki að gera eins og þeim sýnist. Gott dæmi um það sem síðast var nefnt er grein í Morgunblaðinu eftir framkvæmdastjóra Verslunar- ráðs. Hann játar fyrst að fréttir um „lögbrot og misferli" stjórnenda fyrirtækja um heim allan séu skelfi- legar en vill um leið „vara við auknu opinberu eftirliti og stífum reglum" í að hafda í svokallaða „deregulation" - að fýrirtækin sjálf verði að koma sér upp reglum og innra eftirliti og leysa markaðs- vandamál án íhlutunar utan að. En eins og sá ágæti hagfræðingur Paul Krugman hefur fram haldið: „Það var einmitt vegna þess að stjórnmálamenn gáfu sitt eftirlits- hlutverk upp á bátinn og trúðu fag- urgalanum um „sjálfstýringu mark- aðarins" að Enronforstjórar og aðr- ir slfkir fengu meira svigrúm en nokkru sinni fyrr til að stunda bók- haldsfals og ljósfælið „samráð" - Gáum að þessu. Kanínuplága Mikil kanínuplága herjar nú á höfuðborgarsvæðið. Eru kanínur farnar að sjást í húsagörðum og víðar og virðast ekki halda þeim nein bönd. Meindýraeyðir er ráðalítill og víst þykir að málið verði tekið fyrir á hápólitísku borgarplani innan skamms. Þrátt fyrir erfiða stöðu í þessu máli er þó ein útleið sem gæti reynst happadrjúg, nefni- lega að kalla til skotveiði- menn sem ekki fá útrás fyr- ir drápseðlið með því að hundelta rjúpur næstu þrjú árin. Þeir gætu hins vegar fretað á kanínurnar eins og þá lystir. Og hver veit nema ný hefð skapaðist varðandi jólamatinn því kanínur Qölga sér hraðar en rjúpur. Þær fjölga sér eins og - kan- ínur. Samráð? Fjölmenni var mætt þeg- ar tekið var á móti Ro’bert- son lávarði, framkvæmda- stjóra NATO, fyrr í vikunni. Þar sem fyrirmenni biðu lá- varðarins ók hjá olíubfll, merktur Shell. Halldór Ás- grímsson horfði á eftir bfln- um dágóða stund og sagði svo: „Skyld’ann vera búinn að tala við Esso?" Dýrar nætur Margir býsnast yfir gisti- verði á hótelum landsins. í því sambandi er því gjarn- an haldið fram að fólk hafi flúið úr hótelunum inn í tjaldvagnana og fellihýsin. Það er hins vegar skamm- góður vermir ef taka skal tillit til heimilisbókhalds- ins. Nýleg könnun á notk- un tjaldvagna og fellihýsa sýnir nefnilega fram á að hún er ekki mikil. Reiknast mönnum til að gistinóttin í slíkum apparötum kosti að meðaltali um 40 þúsund krónur, eða sem jafngildir nótt í flottri lúxussvítu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.