Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLl2003 FÓKUS 21
Hakkísakk, eða fótpoki, er íþrótt sem ungir Reykvfkingar hafa stundað íæ ríkari mæli
undanfarin ár. Nú er svo komið að þessir drengir - Ragnar, Benedikt, Kristján og Halldór - efna til
keppni í sportinu á næstunni.
Síðustu ár hefur það orðið æ algengara á sumar-
dögum að sjá fólk hópast saman og halda á lofti
litlum grjónasekk. íþróttin heitir „hakkísakk" á ís-
lensku slangri og er hvað vinsælust hjá ungum
drengjum hérlendis. Nú hafa nokkrir þeirra tekið
sig saman og ákveðið að halda mót þar sem keppt
verður í þessari nýju íþrótt. Sportið hafa þeir
nefnt fótpoka og hvetja fólk til að fjölmenna á
Melaskólavöllinn þann 9. ágúst næstkomandi.
Keppa í fótpoka ó
Melaskólavellinum
„Þetta er heimsviðburður, engin spum-
ing,“ segir Hlynur Páll Pálsson, einn að-
standenda fyrsta mótsins t fótpoka sem
haldið verður á Melaskólavellinum 9.
ágúst. „Þessi íþrótt hefur verið stunduð í
mörg ár erlendis en á sér tiltölulega
skamma sögu hér á íslandi. Hún hefur
samt verið á mikilli uppleið, sérstaklega f
ár,“ segir Hlynur einarðlega. Ásamt Hlyni
eru það nokkrir drengir í félagsskapnum
Lorti sem standa að mótinu en sá hópur
hefúr getið sér gott orð fyrir gerð stutt-
mynda. Hlynur segir það vera íþróttadeild
Lortsins sem standi að mótinu, SportLort-
urinn, en það er deild innan félagsins sem
stofhuð var fyrir nokkrum árum en lagðist
fljótt í dvala eftir eina knattspymuæfingu
félagsmanna.
Fótablak, fótpoki eða hakkísakk? ,
„fþróttin snýst einfaldlega um það að
sparka í grjónasekk og við ákváðum ein-
faldlega að láta á það reyna hvort fólk væri
til í að keppa í þessu. Það eru nokkrar út-
gáfur af íþróttinni, sumir halda á lofti og
telja en aðrir reyna að gera einhver „trix“.
Þriðja afbrigðið er að spila á velli með eins
konar blakreglum. Þá eru tveir eða þrír f
liði og markmiðið er að dúndra seklmum
yfir netið og í jörðina á vallarhelmingi and-
stæðingsins."
Hvemig er annars með nafnið á þessari
blessnðu íþróttl
„Hún gengur undir ýmsum nöfnum. Ég
hef heyrt um fótablak eða blakkísakk en
við höfum ákveðið að kalla þetta fótpoka
sem mun vera dregið af footbag á ensku.
Annars getur fólk auðvitað bara kallað
þetta hakkísakk.“
Keppt með blakreclum
Hlynur segir að bæði verði einstak-
lingskeppni í því að halda á lofti og einliða-
keppni eins og áður var getið. Reglumar í
liðakeppninni eru á þá leið að keppt er á
velli sem er 4x3 metrar og eru þrír í hverju
liði. Skiptimenn em leyfðir. Hlynur segir
þá þegar vera komna með skráningu í tvo
riðla en þeir vonast að sjálfsögðu eftir
fleirum. Þátttökugjald er 500 krónur á
mann en þeir sem skrá sig í liðakeppnina
fá ffítt í einstaklingskeppnina. Hægt er að
skrá sig hjá Hlyni í síma 690 0009. „V0
verðum svo með grill og plötusnúð þama og
að sjálfsögðu verða vegleg verðlaun í boði.“
Fótpoki snýst um það að halda grjónasekk
á lofti innan hóps. Einnig er keppt í
fótpoka á velli og svipar reglunum nokkuð
til blaks.
mim
MSlí
Pljllf
VíVVtVVVjV'.íVVA'-
18Í11III
' * ■