Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Blaðsíða 16
16 FKÉTTBi MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLl2003 Útlönd Heimurinn í hnotskum Umsjón: Erlingur Kristensson / Kristinn Jón Arnarson Netfang: erlingur@dv.is / kja@dv.is Sími: 550 5828 Hafa áhyggjur MHD-AUSTURLÖND: George Bush og Ariel Sharon hittust í gær og meðal þess sem kom fram á fundi þeirra er að fsra- elsmenn hafa auknar áhyggjur af stuðningi frans við hryðju- verkahópa í Palestínu. Jafn- framt lýsti Ariel Sharon því yfir að ekki yrði hætt við byggingu öryggisgirðingar á Vesturbakk- anum eins og Palestínumenn af íran hafa krafist. Þeir hvöttu báðir yfirvöld í Palestínu til að berj- ast gegn hryðjuverkahópum af auknum krafti. Bush bað jafn- framt Sharon um að leggja hart að sér við að reyna að gera Palestínumönnum kleift að snúa til vinnu sinnar í fsrael og lifa sem eðlilegustu lífi að nýju eftir ófriðarástand síðustu ára. Saadam syrgir synina Segir þá hafa dáið píslarvættisdauða Saddam Hussein, fyrrum (raks- forseti, sendi í gær frá sér enn eina hljóðupptökuna þar sem hann syrgir dauða sona sinna Udays og Qusays og segir þá hafa dáið píslarvættisdauða fyrir írösku þjóðina. Á upptökunni, sem send var út af al-Arabiya sjónvarpsstöðinni í Dubai, hrósar Saddam hugdjörfum stríðmönnum guðs fyrir það að halda út sex klukkustunda langan bardaga við óvininn þegar synir hans og sonarsonur voru skotnir til bana í bænum Mosul í síðustu viku. „Bræður og synir, ég syrgi ykkur og flyt ykkur þær gleðifréttir að sálir fleiri píslarvotta munu sameinast ykkur hjá skaparanum í heilögu stríði,“ sagði Saddam. Ef ég ætti hundrað börn Hann hvatti síðan írösku þjóðina til þess að halda áfram baráttu sinni gegn óvininum og sagði. „Kæru írakar, bræður ykkar Uday og Qusay og Mustafa sonur Udays stóðu við heit sín og brugðust ekki guði sínum. ... Ef ég ætti hundrað börn önnur en Uday og Qusay, myndi ég bjóða þau fram á sama hátt. ... Þeir dóu píslarvættisdauða fyrir írösku þjóðina í heilögu strfði gegn bandaríska innrásarliðinu sem við munum sigra að lokum. Kæru bræður og þið sem börðust með þeim, þið eruð hetjur frösku þjóðarinnar," sagði Saddam. Þetta er fimmta hljóðupptakan sem Saddam sendir frá sér síðan höfuðborgin Bagdad var hertekin þann 9. apríl sl. og þykir hún besta staðfestingin til þessa fyrir írösku þjóðina á að það hafi verið þeir Uday og Qusay sem féllu í Mosul. •Á hinum fjórum upptökunum, sem allar hafa borist á síðustu fimm vikum, á meðan leitin að Saddam hefur staðið sem hæst, „Bræður og synir, ég syrgi ykkur og flyt ykkur þær gleðifréttir að sálir fleiri píslar- írotta munu sameinast ykkur hjá skaparanum í heilögu stríði," sagði Saddam Hussein á nýrri hljóðupptöku. hefur hann ávallt hvatt til andstöðu gegn bandaríska setuliðinu en aldrei jafn eindregið og nú eftir fall sona sinna. Sérfræðingar banda- rísku leyniþjónustunnar, CIA, hafa rannsakað þær allar en hingað til aðeins staðfest að ein þeirra hafi líklega að geyma rödd Saddams. Leitað í nágrenni Tikrit Leitinni að Saddam var haldið áfram í morgun og þá var áhersla lögð á að leita í þorpum í nágrenni heimaborgar hans, Tikrit, en óttast er að stuðningsmenn hans hyggi á hefndir fyrir drápin á bræðrunum. Að sögn talsmanna bandaríska hersins í Irak, hefur ábendingum um hugsanlegar ferðir og dvalar- staði Saddams fjölgað til muna eftir fall bræðranna og ekki síst eftir að það spurðist að sá sem ljóstraði upp um dvalarstað bræðranna fengi greiddar þrjátíu milljónir dollara eins og lofað hafði verið fyrir þá báða. Bandarísk stjórnvöld hafa lofað tuttugu og fimm milljónum dollara fyrir upplýsingar, sem gætu leitt til handtöku Saddams Husseins og er vonast til þess að fljótlega takist að ná honum, dauðum eða lifandi. Að sögn þeirra sem stjórna leit- inni er hringurinn farinn að þrengj- ast verulega um Saddam og sagði Richard Armitage aðstoðarutan- ríkisráðherra Bandaríkjanna í gær að bandarískar sérsveitir væru nú rétt á hælunum á honum. „Þetta er jafnvel orðin spurning um klukku- tíma eða í mesta lagi daga,“ sagði Armitage. Heimflutningur hafinn Að sögn talsmanns Flótta- mannahjálpar Sameinuðu þjóð- anna, UNHCR, er heimflutningur íraskra flóttamanna þegar hafinn frá Sádi-Arabíu og mun fyrsta bíla- lestin þaðan hafa lagt af stað í gær til Basra frá Rafha-flóttamanna- búðunum með um 250 manns. I framhaldinu verða smærri hópar sendir á um tíu daga fresti, sá næsti í byrjun ágúst. SUNDURTÆTTUR FELUSTAÐUR: Eins og sést á myndinni var húsið í Mosul, þar sem synir Saddams féllu, mjög illa farið eftir umsátrið í síðustu viku. Leynilegir hlutar hryðjuverkaskýrslu ekki opinberaðir: Bush neitaði Bush Bandaríkjaforseti neitaði í gær beiðni Sádi-Araba um að leynilegir hlutar skýrslu um hryðjuverkin 11. september verði gerðir opinberir. Utanríkisráðherra Sádi-Arabíu ræddi við Bush í gær og vildi að skýrslan yrði öll opinber svo Sádi- Arabar geti svarað fyrir sig, en m.a. er fjallað um meinta aðstoð þeirra við hryðjuverkamennina í leynilega hlutanum. Bush neitaði hins vegar bón hans og sagði að það gæti ógnað þjóðar- öryggi að gera alla skýrsluna opin- bera. í kjölfarið sagðist utanríkisráð- herrann skilja ákvörðun Bush, en kvað það hneyksli að stjórn hans væri bendluð við árásirnar. ÓSÁTTUR: Utanríkisráðherra Sádi-Arabíu var ekki ánægður eftir fund með Bush Bandaríkjaforseta i gær. Skógareldarnir í Frakklandi hafa kostað fimm manns lífið: Maður í haldi Iðgreglu yfirheyrður vegna eldanna Lögregla í Suður-Frakklandi hefur tekið þrítugan mann til yfirheyrslu vegna skógareld- anna sem þar hafa geisað síð- ustu daga og kostað að minnsta kosti fimm manns líf- ið. Talið er mjög líklegt að eldarn- ir, sem voru um það bil 30 talsins, hafi kviknað af mannavöldum. Ummerki um bensínsprengjur hafa fundist við upptök eldanna, auk þess sem þeir virðast kvikna á mörgum stöðum á svipuðum tíma. Lögregla hyggst nú stöðva alla sem hyggjast fara um skóg- lendi í Frakklandi og leita á þeim til að koma í veg fyrir frekari elda. BARISTVIÐ ELDANA: Flugvélar hafa með- al annars verið notaðar til að slökkva skóg- areldana í Frakklandi síðustu daga. Auk þeirra sem látist hafa í skógareldunum hafa þúsundir þurft að flýja þá og leita skjóls í neyðaraðstöðu sem sett hefur verið upp víða á svæðinu. Þá eru ótalin eignaspjöllin sem eru gríð- arleg. Stór landsvæði skóglendis hafa eyðilagst og kallaði franski ráðherrann Nicolas Sarkozy eldana „vistfræðUegt fjöldamorð". Um það bil 1700 slökkvUiðs- menn hafa með aðstoð hundraða hermanna og liðsauka frá Italíu barist við eldana síðustu daga. Þeir segjast vera á ágætri leið með að slökkva þá, en hafa þó lent í því að vindur náði að kveikja aftur í glóðum eldanna. -I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.