Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Page 8
8 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLl2003
Ferðir
Umsjón: Vilmundur Hansen
Netfang: kip@dv.is
Töfrar hálendisins
á einum stað
Starfsemi í Kerlingarfjöllum
hefur tekið stakkaskiptum á
síðastliðnum árum. Eins og
flestir muna var þar rekinn
skíðaskóli fyrrr á árum en með
minnkandi snjó hefur starfsem-
in breyst. f dag eru menn með
gönguskó á fótum í stað skíða-
klossanna og ganga um fjöllin
sér til ánægju.
Páll Gíslason, einn af aðstand-
endum Fannborgar ehf., sem rekur
ferðaþjónustu í Kerlingarfjöllum,
segir að það hafi verið ákveðið að
endurskoða starfsemina fyrir
þremur árum. „Áhugi á sumar-
skíðamennsku hafði minnkað,
enda snjórinn minni og skíðin því
ekki eins spennandi kostur sem
sumarsport. Við vissum að Kerling-
arfjallasvæðið er útivistarparadi's
og ákváðum að snúa vörn í sókn -
hressa upp á aðstöðuna og auð-
velda aðgengi göngufólks og ann-
arra sem vildu koma í Kerlingar-
fjöll."
Margt að sjá
Páll segir að í Kerlingaríjöllum sé
hægt að upplifa allt það sem há-
lendið hefur upp á að bjóða: jökla,
fjöll og dali. „Auk þess er þetta öfl-
ugt jarðhitasvæði. Það má því segja
að þarna sé hægt að upplifa alla
töfra hálendisins á einum stað og
stundum bæta mannanna verk við
meistaraverkið því í Kerlingarfjöll-
um er ónýt borhola notuð sem bað-
staður sem er einstakur í sinni röð.“
BÆTT AÐSTAÐA: Aðstaðan (Kerlingarfjöllum hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum
árum, enda hefur svæði upp á margt að bjóða.
IHEITA POTTINUM: I Kerlingarfjöllum er öflugt jarðhitasvæði og ónýt borhola er notuð sem baðaðstaða.
Að sögn Páls hefur verið sett upp
sérstök nestisaðstaða fyrir ferða-
menn sem eru á eigin vegum. „Við
köllum húsið Herragarð, en það var
upphaflega byggt sem gistihús fyrir
karlkyns nemendur skíðaskólans
og dregur nafn sitt af því, en síðan
var það nýtt sem starfsmanna-
íbúð."
Kynslóðabilið hverfur
„Gestirnir sem hingað sækja
koma víða að og af mismunandi
ástæðum. Flestir Islendingarnir eru
göngufólk eða hestamenn en það
fer vaxandi að hingað komi erlend-
ir ferðamenn á bílaleigubflum á
leið yfir Kjöl.“
Páll segir að reynslan sýni að
þegar líða fer á sumar sé frekar von
á hópum íslendinga sem komi í
helgarferð. „Það er sérstaklega
ánægjulegt að sjá þegar fólk af
heilu vinnustöðunum kemur
ásamt fjölskyldum sínum. Kyn-
slóðabilið hverfur og allir einbeita
sér að því að njóta fjallaloftsins,
ungir sem aldnir."
Gönguleiða-
kort af Kerl-
ingarfjöllum
Fannborg ehf. hefur gefið út
gönguleiðakort af Kerlingarfjöll-
um. Kortið er í A4-stærð og unnið
samhliða gerð deiliskipulags að
Kerlingarfjallasvæðinu. Á kortinu
er að finna fjölmargar gönguleiðir
um Kerlingarfjöll og nærliggjandi
svæði en sumar þeirra hafa þegar
verið merktar. Þar er einnig að
finna leiðir til og frá Kerlingarfjöll-
um, vegaslóða, reið- og göngu-
leiðir. Á bakhlið kortsins er lýst
helstu gönguleiðum auk þess sem
smærra kort sýnir hvar Kerlingar-
fjöll liggja og vegalengdir þangað.
Árni Þór Helgason vann kortið en
það er til sölu í Hálendismiðstöð-
inni í Kerlingarfjöllum.
HORFT AF SNÆKOLLI: Lárentínus Ágústsson, SnjólaugTinna Hansdótir, Dantel ÞórSveins-
son, Arnar Steinn Hansson, Sveinn Hreinsson, Bjarki Sveinsson, Hans Kristjánsson og Björg
Björnsdóttir með Hofsjökul i baksýn.
SLAPPAÐ AF (FAÐMI FJALLANNA: Staðarhaldarar í Kerlingarfjöllum segja að Islendingar
leiti frekar á fjöll þegar fer að líða á sumarið.
Upplýsingarit
um Vestfirði
Á ferðum um Vestfirði er frétta- og
þjónustublað fyrir ferðafólk sem
leggur leið sína um Vestfirði. Árið
2003 er áttunda árið sem blaðið
kemur út og er því dreift ókeypis
um allt land.
í blaðinu er að finna flestar upp-
lýsingar sem ferðamenn þurfa á
að halda þegar þeir ferðast um
héraðið, kort og fræðslu. (blaðinu
er sagt frá ýmsu áhugaverðu, eins
og sögusýningu (síldarverksmiðj-
unni í Djúpuvík og eyjunni Vigur í
Isafjarðardjúpi. Þar er einnig að
finna gagnlega samantekt yfir
helstu söfnin á Vestfjörðum.
Ferðafélaginn
2003
Ferðafélaginn
2003
(þróttafélag lögreglumanna, (SL
og Umferðastofa sendu nýlega frá
sér tuttugasta árgang af Ferðafé-
laganum sem er upplýsingarit um
ferðalög innanlands. Meðal efnis
að þessu sinni eru öryggismál og
notkun öryggisbúnaðar og greinar
um sambúð akandi og ríðandi
umferðar, ferðalög á hjóli og upp-
lýsingar frá Landsvirkjun um að-
gengi ferðarnanna að mannvirkj-
um í eigu stofnunarinnar. Auk
þess er að finna í Ferðafélaganum
2003, sem dreift er ókeypis, upp-
lýsingar um áhugaverða staði um
allt land og kort.