Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2003, Side 10
70 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ2003
GRÍNGOÐSÖGNIN BOB HOPE: Grínistinn Bob Hope lofaði því að
vera léttur og hress fram í andlátið og stóð við það.
STJÖRNU MINNST: Bob fékk eins og góðri Hollywood-stjörnu
sæmir nafn sitt skráð í stjörnustéttina í Hollywood og hefur fjöldi
aðdáenda vottað honum virðingu sína við stjörnuna hans.
BOB OG SAMMY: Leiðir þeirra Bobs og Sammys Davis Jr.
lágu oft saman á leiksviðinu. Hér eru þeir félagar í léttri
sveiflu á Broadway.
Grínarínn Bob Hope látínn 100 ára:
BRJÓSTMYNÐ AF BOB: Linda Hope, dóttir Bobs, stendur hér við
brjóstmynd af föður sínum í anddyri sjónvarpsakademíunnar í
Los Angelses.
Svolítið
grallaralegur
MEÐ BANDRÍSKUM HERMÖNNUM: Á löngum ferli fór Bob víða um heim til þess að
skemmta bandarískum hermönnum og kom ma. tvisvar til (slands. Hér á myndinni er
hann að skemmta hermönnum á Salómonseyjum í Kyrrahafi árið 1944.
MEÐ FORSETA BANDARlKJANNA: Bob var mikill föðurlandsvinur og gortaði oft af því að
tíu forsetar Bandaríkjanna hefðu verið persónulegir vinir hans. Hér á myndinni er hann
með John F. Kennedy.
Bob Hope, einn mesti grínari
allra tíma í Bandaríkjum, er lát-
inn rétt rúmlega aldargamall.
Þrátt fyrir að hafa verið enskur að
uppruna fannst varla nokkur
skemmtikraftur eins bandarískur
og Bob og hnyttin tilsvör hans
gerðu hann að mesta grínista í sögu
Bandankjanna sfðan Charlie Chap-
lin, var og hét.
Bob var fæddur í Eltham í suð-
austurhluta Lundúna þann 29. maí
árið 2003 og var því í tvíburamerk-
inu. Hann var sonur steinsmiðs,
sem áður hafði fengist við söng en
hans rétta skírnarnafn var Leslie
Towes Hope sem hann breytti
seinna í Bob af því það þótti bein-
skeyttara að hans sögn.
Einstakur húmor
Þegar Bob var fjögurra ára flutti
fjölskylda hans til Bandaríkjanna,
að sögn hans sjálfs vegna þess að
hann hafði svo íitla möguleika á að
verða konungur.
Eftir að hafa æft steppdans um
tíma varð hann fljótlega þekktur
fjöllistamaður og tók þátt í mörg-
um vinsælum söng- og danssýn-
ingum, sem þá vom ennþá mjög
vinsælar í Bandaríkjunum.
í upphafl seinni heimsstyrjaldar-
innar var hann orðinn einn vin-
sælasti utvarpsmaður Bandaríkj-
anna, aðallega fyrir einstakan
meinhæðinn húmor sinn, en eins
og einn aðdáandi hans sagði þá
minnti hann á hraðlest, svo fljótur
var hann að hugsa og svara fyrir sig.
„Með nef í laginu eins og skíða-
stökkpall og flatar eilítið eplarauðar
kynnar var hann svolítið grallara-
legur en þó um leið lítið eitt alvöm-
gefinn og jafnvel geðfelldur," sagði
einn ónafngreindur vinur Bobs
þegar hann var beðinn um að lýsa
Brandarar á færibandi
Stundum ultu brandarnir upp úr
Bob eins og af færibandi en þó af
mestu yfirvegun og aldrei var hann í
meira stuði en þegar hann skemmti
bandarískum hermönnum á
vígvellinum og á herstöðvum víðs
vegar um heiminn.
Ritari hans til margra ára, sagði
einu sinni að á 30 ára starfsferli
hefði hún vélritað meira en sjö
milljón brandara fyrir Bob en bætti
við að hún væru iöngu hætt að
hlæja að þeim.
Bob var ekki aðeins skemmti-
kraftur heldur var hann líka mikill
áhugamaður um golf, eins og einn
besti vinur hans og starfsfélagi, Bing
Crosby, og stofnaði hann sjálfur til
eigin árlegs góðgerðarmóts, Bob
Hope Open, þar sem þátt taka
margir bestu golfleikarar heims.
Eiginkona Bobs var Dolores
Hope, fyrrum dans- og söngkona,
en þau giftu sig árið 1934 og ætt-
leiddu fjögur börn. Hún stóð við
hlið Bobs í blíðu og stríðu og lifir
mann sinn.
honum og bætti við að Bob hefði
frekar verið hluti af landslaginu
heldur en sviðsljósinu.
Bob fylgdist alla tíð mjög vel með
og var ávallt ferskur á sviði, enda
hafði hann fjölda handritahöfunda
á sínum snærum sem héldu
honum við efnið og mötuðu hann
á nýju efni í takt við tímann.
Hann spann líka frá
eigin brjósti og frábær
tilsvör, sem spruttu
fram afvörum hans
með leifturhraða,
verða örugglega lengi
íminnum höfð.
En hann spann ekki síður frá
eigin brjósti og frábær tilsvör, sem
spruttu fram af vörum hans með
leifturhraða, verða örugglega lengi í
minnum höfð.
UNGUR STEPPARI: Bob byrjaði snemma
að skemmta og er hér í einu af allra fyrstu
hlutverkunum sfnum á sviði.